Morgunblaðið - 21.01.2001, Side 7
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Danskynningar í Norræna húsinu
Lifandi dans
alltaf í þróun
UM ÞESSAR mund-ir standa yfirkynningar á nor-
rænum dönsum og dans-
hefð í Norræna húsinu, á
vegum Dansfræðafélags
Íslands og Norræna húss-
ins. Næsta kynning er nk.
þriðjudag kl. 20 og þar
verða kynntir dansar frá
Noregi, Svíþjóð og Finn-
landi. Sigríður Þ. Valgeirs-
dóttir er formaður Dans-
fræðafélags Íslands, hún
var spurð um tilefni þess-
ara kynninga.
„Okkur datt í hug að
kynna almenningi í einni
heild helstu þjóðdansa
Norðurlanda, og kynna þá
með þátttöku í dansinum.
Síðar ætlum við að kynna
fleiri svið dansins.“
– Hver annast þessar kynning-
ar?
„Við höfum fengið fólk frá
hverju Norðurlandanna sem eitt-
hvað þekkir til þjóðdansa síns
lands og fólkið kynnir síðan dans-
hefðina og kennir þátttakendum
nokkra dansa.“
– Er mikill munur á milli Norð-
urlandanna í danshefðinni?
„Helsti munurinn er kannski sá
að Færeyingarnir eiga elsta hefð í
söngdönsum og Íslendingarnir
eiga einnig hefð af sama stofni. Á
hinum Norðurlöndunum hafa
þessir dansar horfið að mestu og
síðari tíma dansar sem við köllum
„gömlu dansana“ einkenna að
mestu þeirra danshefð, þótt ein-
staka eldri dansar séu einnig til. Á
milli þessara tveggja dansflokka
þróuðust gagndansar (kontra-
dansar), sem náðu minnstri þróun
hér á landi vegna þess að hér skorti
hljóðfæri til undirleiks.“
– Erum við Íslendingar fátækir
að dönsum?
„Lifandi dans er alltaf í þróun.
Segja má að það sé eins hér á landi
og annars staðar, gott dæmi um
það eru t.d. „gömlu dansarnir“ hjá
okkur. Annað merki um þróun er
að sérkenni söngdansanna hafa
fléttast inn í þróun umræddra
gömlu dansa, svo og barnaleiki. Á
eyjunni Krít hafa fundist leifar
fornrar menningar frá því um 1400
fyrir fæðingu Krists. Greindir hafa
verið dansar af þessum fornleifum
og þá einkum tvær megingreinar
dansa. Sá fyrri er hringdans og
hann ber það nafn í fornsögum hjá
okkur þar til um og eftir 1700.
Þetta er semsé nákvæmlega sami
dans og við köllum vikivaka og
Færeyingar kalla færeyskan dans.
Þetta er dans sem er sunginn fyrir
og allir taka undir viðlag og má
segja að hann sé í öndurtakti.
Þetta er semsé söngdans þar sem
allir dansa saman í hring og syngja
með. Hreyfingarnar í dansinum
túlka tilfinningar dansara til
ljóðanna. Þetta er einskonar hóp-
túlkun og mjög sérstakt. Þessir
dansar voru dreifðir um alla Evr-
ópu, reyndar fara ekki miklar sög-
ur af þeim fyrr en um 1200. Í Suð-
ur-Evrópu er þá farið að skrifa um
þessa dansa, en þeir eru
þeir sömu og sjást í
fornleifum, m.a. á Krít.
Ekki er vitað hvernig
þeir bárust hingað en
hér var mikið samband
við Evrópu á tímum
víkinga og þess vegna
má geta sér til hvernig dansarnir
gætu hafa borist hingað. Hin dans-
tegundin sem merki finnast um á
Krít er hringbrot sem í íslenskum
fornsögum var nefndt hringleikur.
Hann virðist hafa lifað hér á landi
lengi því getið er um hann í frásögn
af Sturlu Þórðarsyni. Hringbrotið
er miklu hraðari dans og var t.d.
um 1800 talið eini þjóðdans Íslend-
inga. Hann var mikið dansaður í
Skálholtsskóla og í Bessastaða-
skóla og hefur varðveist í yngri
dönsum, t.d. vefaradansi og reynd-
ar barnaleikjum. Einnig má sjá
merki um hann í gamla marsin-
um.“
– Hvenær bárust nýju dansarnir
hingað?
„Það sem við köllum samkvæm-
isdansa barst hingað aðallega á
öðrum tug tuttugustu aldar. En
jafnframt héldu gömlu dansarnir
velli. Þeir fyrstu munu hafa borist
hingað rétt fyrir 1800.“
– Er danshefðin í Svíþjóð, Nor-
egi og Danmörku lík innbyrðis?
„Já, hún er í sjálfu sér töluvert
lík. Í öllum þessum löndum eru til
nokkrir eldri dansar heldur en
gagndansarnir. Töluvert mikið er
um gagndansa, m.a. alls konar
ræla þar sem par dansar við eitt
eða fleiri pör. Einnig er það sem
við köllum „gömlu dansana“ talið
til þjóðdansa í öllum þessum lönd-
um. Í Finnlandi er hins vegar lítið
vitað um sögu dansins fyrr en á 18.
öld. Norðmenn og Íslendingar
endurvöktu söngdansana uppúr
1902 þegar hreyfing komst á söfn-
un gamalla dansa á öllum Norður-
löndum.“
– Hefur dansinn gegnt álíka
mikilvægu hlutverki á öllum Norð-
urlöndum?
„Dansinn hefur alltaf
gegnt þýðingarmiklu
hlutverki í öllum lönd-
um og dansar hafa bor-
ist á milli landa alla tíð,
þessir fyrri tíma dansar
ekkert síður en tísku-
dansar nútímans. Rann-
sóknir sem ég og samstarfskona
mín Mínerva Jónsdóttir gerðum og
gefnar voru út í bók 1994 sýna að
kenningar sem fram hafa komið,
m.a. í fræðiritum, um að hér hafi
verið danslaust land í 200 ár stand-
ast ekki. Auk kynningarinar nk.
þriðjudagskvöld verður danskynn-
ing kl. 20 þriðjudaginn 30. janúar.
Sigríður Þ. Valgeirsdóttir
Sigríður Þóra Valgeirsdóttir
fæddist í Reykjavík 15.11.1919.
Hún lauk fjögurra ára kvenna-
skólanámi og síðan íþróttakenn-
araprófi frá Íþróttakennaraskól-
anum á Laugarvatni. Hún lauk
BA- og MA-prófi í heilsu-,
íþrótta- og tómstundafræðum
frá Berkeley-háskóla í Kaliforn-
íu 1945. Hún tók doktorspróf í
sálarfræði frá ríkisháskóla New
York-ríkis í Buffalo 1974. Hún
kenndi við Íþróttakennaraskól-
ann í 5 ár, hóf þá störf við Kenn-
araskóla Íslands til ársins 1973
en var prófessor við Kennarahá-
skólann eftir það. Sigríður var
gift Hjörleifi Baldvinssyni,
prentara og kennara, sem er lát-
inn og eignuðust þau þrjú börn.
Dansinn hefur
gegnt þýðing-
armiklu hlut-
verki í öllum
löndum
TVEIMUR skjávörpum, samtals að
verðmæti um 600.000 kr. var stolið
úr Verslunarskóla Íslands með um
10 daga millibili fyrir skömmu. Þjóf-
urinn þekktist á upptökum úr örygg-
ismyndavélakerfi og hefur lögregla
náð að endurheimta skjávarpana.
Þjófurinn var ungur piltur og féll
vel inn í hóp nemenda í skólanum.
Samkvæmt upplýsingum frá VÍ
fyrri þjófnaðurinn sér stað föstudag-
inn 5. janúar, skömmu eftir að
kennslu lauk. Á upptökum úr
myndavélakerfi sést pilturinn
bregða sér inn í skólastofu og lokar á
eftir. Fimm mínútum síðar kemur
hann aftur út úr stofunni með bak-
poka. Hann hafði klippt á vír sem
heldur skjávarpanum föstum með
vírklippu en ekkert skemmt að öðru
leyti. Upptökurnar frá öryggis-
myndavélum voru sendar lögreglu.
Sl. þriðjudag kom pilturinn aftur í
skólann. Upptökur sýna að hann fór
víða um skólann og m.a. inn í sömu
stofu og hann hafði áður tekið skjá-
varpa úr en þar sem skólinn hafði
ekki sett upp nýjan búnað fór hann í
stofuna við hliðina. Litlu síðar kom
hann út og greinilegt er af upptökum
að nokkuð þungur hlutur hafði bæst
við í hliðartösku sem hann bar.
Að þessu sinni var myndin af pilt-
inum það góð að hægt var að þekkja
hann af henni. Skólayfirvöld sýndu
myndina hópi nemenda og kennara.
Með þessu tókst að bera kennsl á
þjófinn, en skólayfirvöld telja að að
öðrum kosti hefði ekki tekist að upp-
lýsa málið. Á miðvikudag gerði lög-
regla húsleit heima hjá honum og
fann þar báða skjávarpana. Þeir eru
nú komnir aftur í skólastofurnar.
Pilturinn hefur játað verknaðinn.
Tveimur skjávörpum stolið úr Verslunarskólanum
Þjófurinn þekktist á upptök-
um úr öryggismyndavélum
Á mbl.is verður á
næstunni hægt að
fylgjast með ferð-
um Rögnu Söru
Jónsdóttur,
mannfræðings og
blaðamanns, um
Asíu og Afríku, en
hún mun senda
þangað frétta-
pistla og myndir af því sem fyrir augu
ber á ferðalaginu, auk þess sem hægt
verður að fylgjast með því á landa-
korti hvar hún er stödd hverju sinni.
Gert er ráð fyrir að ferðalagið taki
sex mánuði. Ragna Sara er komin á
fyrsta viðkomustaðinn, en helstu við-
komustaðir hennar eru Indland, Nep-
al, Malasía, Borneó, Madagaskar,
Suður-Afríka, Mósambík, Malaví,
Tanzanía og Kenýa. Fyrsti pistillinn
birtist á mbl.is um helgina.
Ferðalag um
Afríku og
Asíu á mbl.is
♦ ♦ ♦