Morgunblaðið - 21.01.2001, Side 15
ÍÞRÓTTIR
16 SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Alfreð þekkir margar hliðar ámótinu í Frakklandi því sjö af
leikmönnum hans skiptast á fjögur
landslið, Ólafur Stef-
ánsson með því ís-
lenska, Stefan Kretz-
schmar, Henning
Fritz og Steffen
Stiebler með Þýskalandi, Oleg
Koulchov og Vassily Koudinov með
Rússlandi og síðast en ekki síst
stendur Frakkinn Christian Gaudan í
marki heimamanna. „Ég held að úr-
slit fari mikið eftir því hvort meiðsli
setji strik í reikninginn. Úrval leik-
manna er ekki of mikið, sérstaklega
ekki þegar kemur að varnarleiknum,
þó að mannskapurinn sé sterkur en
þá veltur mikið á hvort allir séu heil-
ir,“ sagði Alfreð. „Það kemur mikið
til með að mæða á Degi Sigurðssyni
og Julian Duranona. Ef Duranona er
heill þá verður að nota hann á réttan
hátt og ná miklu út úr honum, þá
verður Patrekur Jóhannesson líka að
spila með honum á miðjunni. Dagur
er líka mjög öflugur ef hann er heill
heilsu. Guðmundur Hrafnkelsson
hefur staðið sig vel í marki Nordhorn
á leiktíðinni. Reyndar velta úrslit
mikið á því hvernig leikmenn koma til
leiks. Svo tel ég að það hefði átt að ná
Héðni Gilssyni inn í liðið þó að ég hafi
að vísu ekki séð til hans í vetur. Hann
er stór og sterkur, með reynslu, sem
gæti eflaust hjálpað til auk þess að
hann getur spilað vörn og sókn. Hins-
vegar veit ég ekki með varnarleik
liðsins því ég hef ekki séð hvernig
hann gengur fyrir sig með eigin aug-
um, aðeins lesið og heyrt um hann.
Ég hef bara lesið um leikina að und-
anförnu á Netinu og heyrt í strák-
unum, sem spila hérna. Mér heyrist
sem það sé ekki mikil bjartsýni á
framhaldið. Engu að síður stóð liðið
sig vel á mótinu á Spáni þó að það hafi
verið í neðsta sæti, gekk til dæmis vel
á móti Spánverjum.“
Egyptar og Portúgalar góðir
Alfreð sagðist ekki þekkja mikið til
allra mótherja Íslands í riðlinum en
er engu að síður bjartsýnn miðað við
þá vitneskju sem hann hefur. „Við
höfum alltaf átt í erfiðleikum við
Svíana en það er alls ekki ómögulegt
að vinna þá, ég sá þá leika nýlega og
þeir voru ekki sannfærandi, sérstak-
lega ekki í sóknarleiknum. Tékkar
eru meira óskrifað blað og við ættum
að hafa sigur á þeim. Ég þekki reynd-
ar aðeins lítillega til félagsliðanna síð-
ustu árin en minna til landsliðsins.
Þeir eru að reyna að yngja upp lið sitt
en gengur það frekar illa og því ættu
Íslendingar að vera sterkari,“ sagði
Alfreð og taldi að Egyptar og Portú-
galar yrðu erfiðari.
„Egyptarnir eru hættulegir, þeir
eru að spila vel og ég veit að þeir hafa
náð góðum árangri svo að leikurinn
við Ísland gæti orðið einn af lykil-
leikjunum. Portúgalskur handknatt-
leikur er sterkur í dag og það verður
erfitt að eiga við þá.“
Þurfa að venjast mótspyrnu
Rætt hefur verið um hvort undir-
búningur íslenska liðsins hafi verið
með réttum hætti – hvort átta leikir á
tæplega tveimur vikum skili betri ár-
angri en tveir leikir eins og fyrir Evr-
ópumótið í fyrra. Alfreð sagðist ekki
hafa fylgst náið með undirbúningi
liðsins í ár en var ekki í vafa hvor
kosturinn væri betri. „Það er nauð-
synlegt að fá frekar fleiri leiki en
færri til að prófa bæði leikmenn og
leikskipulag. Ef leikirnir eru fleiri
þarf ekki endilega að vera mikið álag
á öllum og máttarstólpar fá tækifæri
til að hvíla sig. Það er enginn vafi á að
tveir leikir eru of lítið. Annars veit ég
lítið um undirbúninginn,“ bætti Al-
freð við og taldi þörf á enn fleiri erf-
iðum leikjum. „Svo má segja að mikið
af strákunum, sem spila heima, hafa
hreinlega ekki fengið nógu mikla æf-
ingu í að mæta mikilli mótspyrnu og
erfitt að sjá fyrir hvernig þeir muni
bregðast við þegar allt og allir eru á
móti þeim – í það minnsta alls ekki
með þeim. Munurinn á deildinni
heima á Íslandi og þýsku Bundeslig-
unni er mikill og álagið allt öðruvísi.
Á meðan sum lið heima geta gert ráð
fyrir nokkrum leikjum á rólegri nót-
um en öðrum eru allir leikir hér mjög
mikilvægir og þarf að taka á í þeim af
fullri alvöru. Þess vegna er æft mun
meira í Þýskalandi.“
Möguleiki á öðru
sæti í riðlinum
Alfreð telur að annað sætið í riðl-
inum sé raunhæft markmið og mikið í
húfi að ná því. „Ef allt gengur vel er
annað sætið mögulegt en það eru
margir hættulegir leikir. Sérstaklega
á móti Portúgölum, sem hafa bætt sig
mikið að undanförnu og eru sterkir
um þessar mundir eins og Egyptar.
Svíar eru með gamalt og leikreynt
lið, sem er því frekar ferskt og
óþreytt í byrjun mótsins auk þess að
ég hef aldrei séð dómara dæma þeim
í óhag. Því ætti að einbeita sér meira
að hinum liðunum en það verður auð-
vitað að fara í alla leiki til að vinna,“
sagði Alfreð og taldi nóg spáð um úr-
slit því fyrir mestu væri að hugsa um
hvern leik fyrir sig og riðilinn.
Fyrirkomulagið á mótinu er þann-
ig að lið sem hafnar í þriðja eða fjórða
sætinu í riðlinum fær lið, sem varð í
efstu sætunum í öðrum riðli og þar
verða að öllum líkindum fyrir þunga-
vigtarlið eins og Frakkland eða Júgó-
slavía. Hinsvegar taldi Alfreð ekki
óhugsandi að framhaldið gæti orðið
gott. „Því hærra sem við komumst í
riðlinum því meiri eru möguleikarnir.
Draumurinn yrði að ná öðru sætinu
því annars gætum við lent illa í því
eins og 1995. Frakkar eru erfiðir á
heimavelli en Júgóslavar brothætt-
ari.“
Vantar hávaxna leikmenn
Að sögn Alfreðs þarf að hyggja vel
að uppbyggingarstarfinu í hand-
knattleik á Íslandi. „Við erum með
ungt lið, til dæmis miðað við Svía, en
það sem vantar í íslenskan hand-
knattleik eru líkamsburðir leik-
manna. Sérstaklega vantar hávaxn-
ari leikmenn og meira úrval en það er
félaganna að sinna þeirri uppbygg-
ingu. Til dæmis má sjá á íslenska
yngra landsliðinu, sem er þessa dag-
ana hér í Þýskalandi, að það er áber-
andi skipað lágvaxnari piltum en hin
liðin. Stundum finnst mér eins og það
sé lagður meiri metnaður í að vinna
Íslandsmót í yngstu flokkunum en
huga að framtíðinni.“
En eru Íslendingarnir tilbúnir í
slaginn í Frakklandi? „Já, það tel ég.
Stemmningin er góð í hópnum og við
höfum lært mikið á öllum sviðum í
síðustu mótum, ætla ég að vona, og
mér heyrist einbeitingin vera góð.
Liðið hefur lært af síðustu tapleikjum
og greint hvað þarf að bæta og er ef-
laust með réttan mannskap til að
bæta það sem bæta þarf,“ sagði Al-
freð.
Alfreð Gíslason, þjálfari hjá Magdeburg, spáir í spilin fyrir HM í Frakklandi
Morgunblaðið/Kristinn
Ragnar Óskarsson þreytir frumraun sína á stórmóti með íslenska landsliðinu í handknattleik á HM í Frakklandi. Hér sækir hann að
Robert Dunn og Jeo Fitzgerald í leiknum við Bandaríkjamenn á Selfossi á föstudaginn.
Lært af tapleikjunum
Stefán
Stefánsson
skrifar
HEIMSMEISTARAKEPPNIN í handknattleik hefst í Frakklandi á
þriðjudaginn og er íslenska landsliðið á meðal þátttakenda. Und-
irbúningur liðsins fólst meðal annars í átta æfingaleikjum, úrslit í
þeim voru ekki alltaf jafn hagstæð íslenska liðinu og vonir stóðu til,
en sjá má að leiðin liggur upp á við. Morgunblaðið fékk Alfreð Gísla-
son, þjálfara Magdeburg í Þýskalandi, til að viðra skoðanir sínar á
stöðu íslenska landsliðsins, sem hélt til Frakklands í morgun. Fyrsti
leikur Íslands á HM er á þriðjudag, gegn Svíum í Montpellier.