Morgunblaðið - 21.01.2001, Síða 17
LISTIR
18 SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ er ekki heiglum hent að gera
kvikmynd í mörgum, aðgreindum
köflum. Samhengið slitnar hjá
áhorfandanum, eftirtekt hans trufl-
uð, enda vanur hefðbundinni fram-
vindu, stígandanum, aðalpersónun-
um sem allt snýst um, eru kjarni
málsins. Stuttmyndir, sem virka
sem heild eru fátíðar en hafa látið
örlítið að sér kveða síðustu árin.
Einkum eftir að Robert Altman
gerði Short Cuts (’93), tímamóta-
mynd af þessu sauðahúsi. Fíaskó
þreifaði á forminu en árangurinn var
mishæðóttur.
Huldar Breiðfjörð er ungur rit-
höfundur sem vakti talsverða at-
hygli fyrir tveim jólaflóðum með
frumlegri og fyndinni ferðasögu af
sjálfum sér á hringveginum um há-
vetur. Ökutækið aldurhniginn
Lapplander. Sú bók var samfelld röð
af ólíkum uppákomum, með þjóð-
veginn sem rauða þráðinn í frásögn-
inni. Huldar er handritshöfundur,
hinn andlegi bakhjarl Villiljóss, og á
heiður skilinn. Með hjálp fimm leik-
stjóra, sem ástæðulaust er að draga
í dilka, þeir skila allir sínu vel, og
rösklega það, eru hugmyndaríkir,
hafa góð tök á leikurunum og keyra
myndina áfram á réttu tempói.
Sömuleiðis er leikhópurinn glimr-
andi góður, vel til fundin blanda
ungra og eldri leikara. Púsluspilið
gengur upp, Villiljós er fersk og hún
er frumleg; fyndin, háðsk og dulítið
alvarleg í senn. Full af táknum um
lífið, dauðann, smáskeiðum af ást-
leysi og einmanaleika, stundum á
mörkum hins yfirskilvitlega.
Einkum er það óttinn sem tengir
persónur Huldars saman á þessari
skoðunarferð um myrkviði sálarlífs-
ins og óvissan um hvað framtíðin ber
í skauti sér og kristallast í almyrkva
óvænts rafmagnsleysis og persón-
unni Sölva (Ingvar E. Sigurðsson).
Efinn og ótryggðin aldrei langt und-
an. Fyrst og síðast er Villuljós mein-
fyndin skemmtun og sjálfri sér lík í
eigin heimi rótlausrar vissu.
Fyrsti hluti segir frá líkvagnsekli
(Björn Jörundur), í tilvistarkreppu.
Starfið fer illa með hann, ökuþórinn
sér farþega sína afturgengna, hefur
einkum samneyti við páfagaukinn
Megas (sem skáldið glæðir sinni
þokkafullu rödd og er ein af betri
hugmyndum verksins). Konan held-
ur framhjá honum, ekki nóg með að
eljarinn skilji eftir sig spor í sam-
búðarkrísu ökumanns dauðra, held-
ur skítur hundurinn hans „svívirð-
ingu í sárið“.
Þar með er tónninn gefinn. Við er-
um komin inn í hálfraunsæja veröld
sem hver og einn upplifir á sinn hátt.
Kaflarnir fimm hafa allir margt til
síns ágætis, aðal þeirra fjölbreytt
efni, persónurnar litríkar og ólíkar,
og nánast undantekningarlaust vel
leiknar af skemmtilega samsettum
hópi ungra og eldri leikara. Sem fá
óvenju bragðmikinn, hnyttinn og
blæbrigðaríkan texta.
Allir kaflarnir gerast í frekar
þröngu rúmi; inni á bar, í hrað-
bankaklefa, um borð í flugvél, í lík-
vagninum, o.s.frv. Leikstjórarnir
eru ekki í vandræðum með að leysa
hömlurnar, Villiljós er alltaf allt
annað en leiksviðsleg. Óttinn við
framtíðina er einsog lög gera ráð
fyrir, hvað mest áberandi í þættin-
um Mömmuklúbburinn. Þar segir af
þremur, óléttum stúlkum, ein komin
á steypirinn. Frábærlega vel leiknar
af ungum og efnilegum leikkonum
sem túlka efasemdir og ráðvillu
barnaðra barna, eftirminnilega. Ótt-
inn við að verða ekki að neinu ríkir í
meinfyndnum þætti ungra og eilífð-
arpoppara í hljómsveit á ferðalagi í
háloftunum.
Einn þátturinn gerist á veitinga-
húsi þar sem nýtrúlofað par rífst út
af öllu mögulegu sem ómögulegu, í
næsta bás sitja eldri hjón, löngu
hætt að gera veður út af tittlingaskít
og búin að þróa sambandið út fyrir
hefðbundna veggi hjónaherbergis-
ins. Hér mætast syndin og sakleysið
í súrsætu háðsglotti.
Sölvi, hin dulúðgi tengiliður, verð-
ur æ sýnilegri eftir því sem á líður. Í
lokakaflanum verður þessi persónu-
gervingur óttans og ótryggðarinnar,
beinn þátttakandi. Martröðin verður
að hræðilegum veruleika í svefnher-
berginu. Þar með erum við leidd á
endastöðina, sem þrátt fyrir öll
óþægindin, nýtur nokkurrar,
óvæntrar birtu í lokin. Höfundunum
tekist að loka frásögninni og góðum
tæknimönnum, tónskáldum og töku-
manni að skapa sterka heildarmynd
úr fimmþáttungnum.
Þá er aðeins ógetið rakkans góða,
tengilsins sem kemur á ýmsan hátt
við sögu. Þetta skyldi þó ekki vera
rómantíkin?
„Kaflarnir fimm hafa allir margt til síns ágætis, aðal þeirra fjölbreytt efni, persónurnar litríkar og ólíkar, og
nánast undantekningarlaust vel leiknar af skemmtilega samsettum hópi ungra og eldri leikara.“
Og það varð ljós
KVIKMYNDIR
H á s k ó l a b í ó ,
K r i n g l u b í ó
Leikstjórn Dagur Kári Pétursson,
Inga Lisa Middleton, Ragnar
Bragason, Ásgrímur Sverrisson,
Einar Þór Gunnlaugsson. Handrits-
höfundur Huldar Breiðfjörð. Tón-
skáld Valgeir Sigurðsson. Kvik-
myndatökustjóri Ágúst Jakobsson.
Klipping Sigvald J. Kárason. Leik-
mynd Stígur Steinþórsson. Bún-
ingar Helga Rós V. Hannam. Hljóð
Sigurður Hrellir. Framleiðendur
Þór Snær Sigurjónsson, Skúli Fr.
Malmquist. Aðalleikendur Ingvar
E. Sigurðsson, Björn Jörundur
Friðbjörnsson, Nanna Kristín
Magnúsdóttir, Eggert Þorleifsson,
Helgi Björnsson, Edda Björgvins-
dóttir, Baldur Trausti Hreinsson,
Hafdís Huld, Egill Ólafsson, Rúnar
Freyr Gíslason, Megas. Íslensk.
Zik Zak t. Árgerð 2001.
VILLILJÓS Sæbjörn Valdimarsson
● ÚT er komið hausthefti tímarits-
ins Ice-Floe, International Poetry
of the Far North sem er gefið út í
Anchorage í Alaska og birtir ljóð eft-
ir skáld af norðlægum slóðum. Þar
er að finna ljóð eftir fjögur íslensk
ljóðskáld, þá Hallberg Hallmunds-
son, Jóhann Hjálmarsson, Matthías
Johannessen og Sigurð A. Magnús-
son. Í heftinu eru ljóð eftir á sjötta
tug ljóðskálda frá Norðurlöndunum
og heimskautasvæðunum í Rúss-
landi og Bandaríkjunum.
Ljóðin eru öll birt bæði á frum-
málinu og í enskri þýðingu. Þýðandi
íslensku ljóðanna er Hallberg Hall-
mundsson. Útgefandi er Ice-Floe
Press Anchorage Alaska.
Tímarit
Tónlist á vegum
Tíbrár í Salnum haustið 2001
til vors 2002
Auglýst er eftir umsóknum um tónleika á vegum
Tíbrár haustið 2001 til vors 2002.
Umsóknir um tónleikahald ásamt kjörtíma og
hugmyndum um efnisval sendist til Fræðslu- og
menningarsviðs, Björns Þorsteinssonar, Fannborg 2,
sími 570-1600. E-mail: bjornt@kopavogur.is eða
sigurbjorg@kopavogur.is
Umsóknir skulu berast fyrir 10. febrúar nk.
Tíbrá mun velja úr umsóknum og svara öllum að vali loknu.
Fræðslu- og menningarsvið Kópavogs
KÓPAVOGSBÆR
ELDASKÁLINN
Invita sérverslun
Brautarholti 3, 105 Reykjavík
Sími: 562 1420 - Netfang: eldask@itn.is
Rýmingarsala – Eldhús - Böð
Persónulega eldhúsið
32-48
%
afslá
ttur
af sýn
ingar
innré
ttingu
m
Nýskr. 5.1999, 1600cc vél,
3 dyra, 5 gíra, svartur, ekinn
19 þ, 4X4, aukagangur af
dekkjum o.m.fl.
Verð 1.650 þ.
Honda HR-V
Grjóthálsi 1
Sími 575 1230/00
bíla
land
notaðir bílar
bilaland.is
B&L
Viktoria Antik Síðumúla 34 Sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll
Opið mán.-fös. 12-18
lau.11-17 og sun. 13-17
Antikhúsgögn
og
gjafavörur
Gömul dönsk
postulínsstell