Morgunblaðið - 21.01.2001, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 21.01.2001, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2001 25 Morgunblaðið/Þorkell Sigurður segir augljóst að vonlaust sé fyrir öryrkja að leigja á almennum markaði. ÉG HEF lengi verið að reyna aðlæra að lifa af bótunum ogvarla tekist enn, enda nánast óhugsandi. Fjárhæðin dugar aðeins fyrir allra brýnustu nauðsynjum. Að ætla sér að slá lán til að kljúfa kaup á áveðnum hlut er nánast ógjörningur því engin leið er að komast aftur upp úr skuldunum,“ segir Sigurður Páls- son, 59 ára öryrki og íbúi í leiguíbúð á vegum Öryrkjabandalagsins í Hátúni 10, um örorkulífeyri til einstaklinga. Öruggt leiguhúsnæði Sigurður segist upprunalega vera Skagfirðingur og hafi lengstan hluta starfsævi sinnar verið bóndi í Hvammi í Hjaltadal. Eftir að hafa brugðið búi fluttist hann á mölina og varð öryrki við slag fyrir 8 árum. „Ég var orðinn einn og flæktist um á leigumarkaðinum í ein 5 ár áður en ég var svo heppinn að fá íbúð hérna hjá Öryrkjabandalaginu í Hátúni. Íbúðin er reyndar leiguíbúð eins og aðrar leiguíbúðir á almennum markaði. Að- alkosturinn er að íbúarnir geta verið nokkuð vissir um að vera ekki kastað út með skömmum fyrirvara eins og getur gerst á almenna leigumarkað- inum fyrir utan auðvitað leiguna. Með grunnlífeyri, tekjutryggingu og heimilisuppbót hef ég til ráðstöfunar um 70.000 kr. í hverjum mánuði og af því fara rúmlega 25.000 kr. í leigu á hverjum mánuði. Allir hljóta auðvitað að átta sig á að vita vonlaust væri að leigja á almennum markaði.“ Engar stórgjafir „Eins og hjá flestum öryrkjum fer talsvert há upphæð í hverjum mánuði í lyf og lækniskostnað. Ég býst við að hægt væri að miða við að ég kaupi lyf fyrir á bilinu 5.000 til 6.000 kr. í hverj- um mánuði. Sum lyfjanna eru sér- staklega niðurgreidd fyrir öryrkja og önnur ekki. Smám saman hafa ein- stök lyf verið að týnast út af niður- greiðslulistanum, t.d. astmalyf. Lyfjakostnaðurinn hefur því óhjá- kvæmilega hækkað og komið enn frekar við budduna,“ segir Sigurður og viðurkennir að eftir að leiga og lyfjakostnaður hafi verið dregin frá örorkubótunum fari drýgsti hluti af- gangsins í matarinnkaup. Inntur eftir því hvort að hann eigi kost á ódýru mötuneytisfæði svarar hann því neitandi. „Að fá sendan mat eins og sumir gera er heldur ekkert ódýrt. Flest okkar versla í matvöru- verslun í húsinu og síðan er Nóatún ekki langt í burtu. Matur er ekki ódýr á Íslandi og vegna heilsunnar verð ég að huga sérstaklega að því að borða grænmeti og annað hollt fæði. Ein- staka sinnum langar mann líka í eitt- hvað gott!“ Sigurður er spurður að því hvað honum finnist erfiðast við að hafa ekki meira handa á milli. „Að sjálf- sögðu finnst mér leiðinlegt að geta aldrei veitt mér neitt. Ég hef alltaf haft gaman að því að ferðast og gerði talsvert af því að ferðast innanlands á sínum tíma. Núna hef ég engin tök á því að reka bíl eða ferðast með öðrum hætti um landið,“ segir hann. „Hitt er að ég hef lítil tök á því að gleðja börn- in mín, barnabörnin níu og aðra mér nákomna með stórum gjöfum á af- mælum og öðrum stórhátíðum.“ Lifa frá degi til dags Sigurður segist hafa fylgst vel með fréttum af hinu svokallað Öryrkja- bandalagsmáli. „Vitaskuld er hægt að halda því fram að ekki hafi verið reynt að hjálpa hinum verst settu. Staðreyndin er einfaldlega að fyrst höfða þurfti mál var lang ákjósanleg- ast að bera þarna niður enda um aug- ljóst brot á stjórnarskránni að ræða. Eftir að baráttan er komin á rekspöl er hægt að fara í að hjálpa öðrum ver settum. Nú er lag því andinn í þjóð- félaginu er að verða opnari. Hingað til hefur að mínu mati skort kynn- ingu. Nú fer þeim ört fækkandi sem vita ekki um hvað málið snýst og hafa ekki skilning á kjörum öryrkja,“ seg- ir hann og er að lokum spurður að því hvort mikið sé rætt um málefni ör- yrkja í húsinu. „Já og nei, því sumir sem hafa búið lengi við heilsuleysi og bágan fjárhag eru orðnir vondaufir og kjósa að ýta vandanum frá sér – lifa frá degi til dags.“ Nánast óhugsandi að lifa af bótunum Harðar deilur um dóm Hæstaréttar í máli Öryrkjabandalags Íslands og Tryggingastofnunar ríkisins hafa ekki að- eins vakið athygli á kjörum öryrkja í sambúð. Anna G. Ólafsdóttir varð margs vísari um kjör þeirra í samtölum við fjóra einhleypa öryrkja á bótum frá Tryggingastofnun. Hátt í 500 öryrkjar reka heimili með um 70.000 kr. á mánuði. NÚNA er allt að springa í loftupp í Alþingishúsinu vegnadeilna um tekjutengingu ör- yrkja í sambúð við maka sína. Við er- um að tala um þröngan hóp öryrkja og alls ekki þann verst setta. Að halda heimili einn hlýtur alltaf að vera dýr- ara heldur en að halda heimili með öðrum. Ég gef aldrei í safnanir Hjálp- arstofnunar kirkjunnar til útlanda því að ég er á móti því að senda peninga úr landi þegar ég veit að ákveðinn hópur fólks sveltur heilu hungri á Ís- landi,“ segir Elsa Einarsdóttir, 55 ára gamall öryrki og íbúi í leiguíbúðum SEM – samtaka endurhæfðra mænu- skaddaðra á Sléttuvegi 3. Elsa missti mátt í fótum eftir skurðaðgerð á sjúkrahúsi í febrúar árið 1983. Hún varð síðan fyrir öðru áfalli þegar stæða af vörum hrundi yf- ir hana í stórverslun með þeim afleið- ingum að hún hlaut áverka á hægri öxl hátt í fjórtán árum síðar. „Eftir síðara slysið hafa læknar reynt að bæta skaðann í öxlinni. Tvisvar hef ég verið skorin upp og deyfiefni hefur verið sprautað inn í öxlina án verulegs árangurs. Ég er því ekki aðeins bund- in í hjólastól heldur á erfitt með að beita hægri hendinni, t.d. get ég ekki lengur farið ein inn í bílinn minn,“ segir Elsa. Elsa segist aðeins hafa framfærslu af bótum frá Tryggingastofnun. „Ég ætti að fá greiðslur úr lífeyrissjóði en fæ engar,“ segir hún og er innt eftir því hvernig standi á því. „Ég vann í ríkisfyrirtæki úti á landsbyggðinni í hátt í 8 ár. Eins og lög gera ráð fyrir greiddi ég í lífeyrissjóð í hverjum mánuði og hélt til haga launaseðlum með staðfestingu fyrir greiðslunum. Engu að síður fundust lífeyrisgreiðsl- urnar hvergi þegar til átti að taka. Enginn virðist einu sinni geta komist að því í hvaða lífeyrissjóð ég greiddi allan þennan tíma. Greiðslurnar virð- ast hafa gufað upp og koma því vænt- anlega aldrei að notum. Einu greiðsl- urnar hafa því komið frá Trygg- ingastofnun og þær voru lengi skertar vegna greiðslu láns til bíla- kaupa frá stofnuninni. Með bótum eftir slysið í stórversluninni gafst mér síðan tækifæri til að greiða stóran hluta af mínum skuldum seinnihluta síðasta árs.“ Núna segist Elsa fá fullar bætur og nemi ráðstöfunartekjur hennar rúm- lega 70.000 kr. á mánuði. „Af því fara um 30.000 kr. í leigu- og hitakostnað. Reksturinn á bílnum kostar töluvert enda er hann nýr og þarf að vera í kaskó-tryggingu. Ég er að endurnýja bílatrygginguna mína hjá FÍB-trygg- ingum og veit ekki almennilega hvað tryggingin verður há á næsta tíma- bili. Hins vegar er mér enn í fersku minni að þegar ég sagði upp trygg- ingunni hjá Sjóvá-Almennum og fór að tryggja hjá FÍB lækkaði trygging- in um 19.000 kr. á ári og munar um minna fyrir öryrkja.“ Endar náðu sjaldnast saman Elsa tekur fram að eftir sé að telja kostnað við rafmagns- og símnotkun. „Á meðan ég var að borga af lánunum náðu endar sjaldnast saman í hverj- um mánuði. Eina ástæðan fyrir því að ég hjarði var að ég á góða að. Ég er ákaflega rík manneskja því að ég á góð börn og ákaflega góða vini.“ Elsa segir frá því að hún hafi verið studd til að fara til Spánar á síðasta ári. „Dvölin úti á Spáni gerði mér ótrúlega gott og jafnaðist fullkomlega á við 2-3 mánaða dvöl á Reykjalundi. Mér leið svo vel að ég gat minnkað lyfjaskammtinn niður fyrir lágmark. Læknirnn minn spurði mig að því hvort að ég gæti ekki gert ráðstafanir til að búa úti 2 - 3 mánuði á ári úti. Hit- inn gerði mér augljóslega mjög gott.“ Elsa segist eiga erfitt með að átta sig á því hvað hún þyrfti að hafa háa upphæð til ráðstöfunar til að lifa mannsæmandi lífi. „Við vorum eitt- hvað að ræða um þetta um daginn. Þá sagði ég að ég gæti lifað verulega góðu lífi ef ég fengi 100.000 kr. á mán- uði. Að geta keypt sér föt og þurfa ekki lengur að klippa sig sjálfur væri óneitanlega talsverður munur. Eins væri gott að þurfa ekki að steypa sér í umtalsverðar skuldir til að endurnýja bíl. Vegna meiðslanna í öxlinni þyrfti ég helst á lyftubíl að halda. Miðið við markaðsverðið á bílnum mínum yrði mismunurinn væntanlega um 1,5 milljónir kr.,“ segir Elsa og tekur fram að óneitanlega væri gaman að geta glatt barnabörnin þrjú í ríkari mæli. „En eins og ég sagði áðan er ég heppin með börn, þau hafa verið dug- lega að læra og því hef ég ekki þurft að hafa áhyggjur af þeim.“ Fólk sveltur á Íslandi Elsa þyrfti á lyftubíl að halda enda kemst hún ekki lengur óstudd inn í venjulegan fólksbíl.  Tryggingastofnun greiddi ör- orkubætur til 9.431 öryrkja í janúar í ár.  Af þeim halda 2.736 einir heimili og fá þar af leiðandi heimilisuppbót.  Alls fá 472 sérstaka heim- ilisuppbót, þ.e. hafa litlar sem engar aðrar tekjur.  Þessi hópur fær 18. 424 kr. grunnlífeyri, 32.566 kr. tekjutryggingu, 15.147 kr. heimilisuppbót og 7.409 kr. sérstaka heimilisuppbót eða samtals 73.546 kr. á mánuði. Af því dregst 3.261 kr. tekjuskattur. Hreinar ráð- stöfunartekjur eru því um 70.285 kr. á mánuði.  Öryrkjar með fullan frádrátt vegna tekna maka hafa fengið 18. 424 kr. ör- orkubætur á mánuði.  Með frumvarpi ríkisstjórn- arinnar bætast 25.000 kr. við þá upphæð og verður hún því samtals 43. 424 kr. á mánuði.  Öryrkjabandalagið fer fram á að öryrkjar fái óháð tekjum maka 18. 424 kr. grunnlíf- eyri og 32. 566 kr. tekju- tryggingu eða samtals 50.990 kr. á mánuði.  Vegna ýmiskonar kostnaðar geta lífeyrisþegar með lágar tekjur sótt um greiðslur vegna lyfjakostnaðar, bens- ínkostnaðar, heimilishjálpar o.fl.  Með hverju barni lífeyris- þega er greiddur 13.895 kr. barnalífeyrir á mánuði. Barnalífeyririnn er hvorki skattskyldur né tekjutengd- ur.  Hreyfihamlaðir geta sótt um styrki og lán til bifreiða- kaupa og endurnýjunar á bif- reiðum á ákveðnu árabili. Hátt í 500 öryrkjar reka heim- ili með um 70.000 kr. á mánuði Bótaþegar og staða þeirra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.