Morgunblaðið - 21.01.2001, Qupperneq 29
30 SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ANDRI Már Ingólfsson erfæddur í Reykjavík 17.október 1963. Hann laukstúdentsprófi frá MH og
viðskiptafræðinámi frá HÍ og var
einnig við ýmiss konar tungumála-
nám og störf í Þýskalandi, Banda-
ríkjunum og á Spáni á þessum
tíma. Starfaði m.a. hjá ferðaskrif-
stofu í Los Angeles um hríð og var
auk þess mörg sumur starfandi
sem fararstjóri hjá Ferðaskrifstof-
unni Útsýn, sem faðir hans, Ing-
ólfur Guðbrandsson, stofnaði og
rak á sínum tíma. Hann á því ekki
langt að sækja nefið fyrir ferða-
skrifstofurekstri. Andri Már er
ókvæntur og barnlaus og segir það
útvalinn lífsstíl, a.m.k. í bili. Það
samræmist illa að vera fjölskyldu-
maður og vera erlendis allt að
þriðjung ársins. Hann segir þetta
þó mál sem verði endurskoðað í
fyllingu tímans, en til þessa hafi
hann viljað helga sig fyrirtækinu.
Andri vann einnig hjá Ferða-
skrifstofunni Veröld í tæp tvö ár,
en átti ekki náðuga daga þar og eft-
ir þau viðskipti taldi Andri ólíklegt
að hann kæmi nokkru sinni aftur
nálægt rekstri ferðaskrifstofa auk
þess að lofa sjálfum sér að vinna
aldrei fyrir aðra aftur.
„Ég var byrjaður að vinna að
spennandi verkefnum varðandi út-
flutning, en þá bar svo við að
spænskur framkvæmdastjóri sem
rekur ferðaskrifstofu á Spáni og
þekkti til mín,var að hefja Íslands-
ferðir og skoraði á mig að stofna
fyrirtæki og taka á móti fólkinu og
greiða götu þess. Ég þurfti að
hugsa mig vel um, en það var svo
vel boðið af hálfu Spánverjanna og
svo mikill hugur í þeim að þeir
lögðu mér til rekstrarfé fyrstu
mánuðina og því ákvað ég að slá til
og gefa þessu tækifæri. Síðan hefur
ekki gefist tími til að líta um öxl.
Þetta sama ár voru Ólympíuleik-
arnir haldnir í Barcelona og með
því að skipuleggja ferðir þangað
með Íslendinga og nýta þannig
flugsætin betur sáum við að þetta
gat gengið upp. Og það gekk eftir,“
segir Andri Már og heldur svo
áfram og segir:
„Þó að við höfum byrjað á þann
hátt að taka á móti erlendum ferða-
mönnum sem sóttu Ísland heim, þá
fórum við fljótt að mestu yfir í að
senda Íslendinga til útlanda. Í dag
snúast um 85% okkar viðskipta um
að senda Íslendinga í frí til útlanda.
Til sólarstranda, í borgarferðir eða
hópferðir. Við urðum fyrstir til að
opna Spánarmarkaðinn, þ.e. að
flytja Spánverja til Íslands, og höf-
um náð þar mikilli markaðshlut-
deild. Síðasta ár fóru 19 þúsund Ís-
lendingar utan á okkar vegum.
Spánn er stærstur, Barcelona,
Benidorm, Costa del Sol, Kanarí.
Þetta eru gamalkunn nöfn og
landsmenn eru íhaldssamir á þær
kröfur sem þeir gera. Þeir vilja
gott veður, góðan aðbúnað og góða
þjónustu.“
Einhver sagði að góðærið væri
aðeins fólgið í utanlandsferðum,
verðbréfum og bílakaupum, hvað
segir þú um það?
„Ég er kannski ekki alveg sam-
mála því, en að vísu fylgir það góð-
ærinu að fleiri Íslendingar fara til
útlanda og margir þeirra oft á
hverju ári. Það kemur hinsvegar
ekki bara til af góðærinu. Verð á
ferðum til útlanda hefur stórlækk-
að og hafa Heimsferðir verið í far-
arbroddi á öllum þeim áfangastöð-
um sem við fljúgum til. 19 þúsund
bara hjá Heimsferðum er há tala á
okkar litla markaði og við eigum
örugglega heimsmet í ferðalögum
miðað við höfðatölu, enda er það
svo að erlendis stara menn á mann
í forundran þegar þessar tölur eru
nefndar, því þessar 280 þúsundir
sem á Íslandi búa eru sambæri-
legar við lítil bæjarfélög í þessum
löndum sem þeir eru að ferðast til.“
Þú nefndir að þetta væru gam-
alkunn nöfn. Eru landsmenn ekki
nýjungagjarnir í þessum efnum?
„Við getum orðað það þannig að
þeir eru nýjungagjarnir en ekki
eins ævintýragjarnir og ég bjóst
við og hafði vonað. Við höfum t.d.
bryddað upp á nýjum stöðum eins
og Cancun í Mexíkó og Brasilíu.
Mönnum hefur líkað það mjög vel,
en það er hreinlega of langt að fara
og þetta hefur lagst af. Á sama
tíma hefur t.d. Costa del Sol vakn-
að úr dvala. Þar var komin einhver
niðurníðsla og doði og áhugi á
staðnum hafði minnkað. En þar
hafa nú átt sér stað gríðarlegar
breytingar á síðustu árum og fyrir
fimm árum fóru Heimsferðir að
bjóða aftur ferðir þangað. Það var
gert til reynslu, en það kom í ljós
að þar var allt upp á það besta og
staðurinn hefur náð meiri vinsæld-
um en nokkru sinni fyrr. Svo hefur
verið afar spennandi að opna Ís-
lendingum nýja áfangastaði eins og
Prag.
Af því að þú spurðir áðan um
ferðalög og góðæri þá vildi ég bæta
því við það sem ég sagði, að hjá
fjölmörgum Íslendingum eru utan-
landsferðir ekki lengur þessi lúxus
sem menn eru að leyfa sér, heldur
mun fremur lífsmynstur nútímans.
Það endurspeglast kannski best í
því að lengri ferðir eiga minnkandi
fylgi að fagna. Hér áður var dæmi-
gerð sólarlandaferð 3 vikur. Svo
fóru þær að styttast. Nú er algengt
að fólk fari í viku eða tvær að vori,
aftur svipaða ferð að hausti og síð-
an jafnvel góða borgarferð í of-
análag. Það er sem sagt komið nýtt
mynstur og í takt við það sem hef-
ur gerst í öðrum löndum sem við
berum okkur saman við.“
Þarf ekki snilling
Andri Már segir að festa í
rekstri sé einn af lyklunum að
góðri framgöngu og farsæld í
starfi. Það hafi alltaf verið leið-
arljósið hjá Heimsferðum.
„Við byrjuðum smátt og vorum
t.d. með aðeins 40 milljón króna
veltu fyrsta árið. Til samanburðar
var veltan á síðasta ári tæpur millj-
arður og hafa umsvifin verið að
vaxa á bilinu 25 til 45% frá upphafi.
Þótt við höfum verið mjög fram-
sækin hefur það alltaf verið okkar
leiðarljós að hafa skilvirka og vand-
aða starfsemi þannig að viðskipta-
vinurinn sé ánægður. Öðru vísi er
um ekkert framhald að ræða. Það
þarf engan snilling til að setja fram
óraunhæfar áætlanir. Lækka verð
niður úr öllu valdi til að laða að við-
skiptavini og láta síðan hluthafa
borga brúsann eins og við höfum
skýr dæmi um. Velta skiptir engu
máli, heldur arðsemi.“
Þetta eru gífurlegar tölur um
vöxt fyrirtækisins. Hvernig gengur
að aðlagast svo miklum uppsveifl-
um?
„Ferðaþjónusta er svo viðkvæm
atvinnugrein að hún þolir tæplega
gríðarlegan vöxt á skömmum tíma.
Það tekur langan tíma að byggja
upp reynslu. Þetta hefur verið á
góðri uppleið hjá okkur og við
keppum sífellt að því að bæta okk-
ur, en sannast sagna er það bara af
hinu góða að vöxturinn var þó ekki
enn hraðari, því sum árin hefðum
við varla ráðið við hraðari vöxt. Það
þarf að fara gætilega ef hlutir eiga
ekki að fara úr böndunum. Það
þarf styrka innri byggingu og hún
byggist upp hægt og rólega. Við
höfum borið gæfu til að halda vel
utan um okkar vöxt, enda er sterk-
ur og samstilltur hópur starfs-
manna í Heimsferðum. Þetta hefur
verið indælt stríð og við sjáum ekki
annað en að þessi aukning geti
haldið áfram á næstu misserum.“
Andri Már dokar hér við, hugsar
sinn gang augnablik og heldur svo
áfram:
„Þessi ár sem liðin eru frá stofn-
un Heimsferða hafa verið ár mikilla
breytinga í ferðaskrifstofurekstri.
Margt er í grundvallaratriðum
eins, en í dag er sú veigamikla
breyting fyrir hendi að það þýðir
ekki annað en að vera samkeppn-
ishæfur á alþjóðlegum vettvangi.
Við höfum t.d. séð það síðustu árin
að erlend flugfélög eru að fljúga
hingað með erlenda gesti og bjóða
sætin frá Íslandi á lágu verði. Þá
hefur samkeppni alltaf verið mikil
og hörð og farið vaxandi. Síðasta ár
var t.d. eitt það erfiðasta af þeim
öllum og stafaði m.a. af því að Sam-
vinnuferðir fóru af stað með óraun-
hæfa verðmyndun og framboð til
að styrkja sig á markaðnum. Það
segir kannski meira en annað um
styrk Heimsferða, að við stóðum
þessa atlögu vel af okkur á meðan
sumir töpuðu miklum fjármunum.
Við erum auk þess ekki hvað
stoltust af stöðu okkar í dag, því
þegar Heimsferðir hófu rekstur,
var mikil niðursveifla í efnahagslíf-
inu. Það kallaði á agaðan rekstur
frá upphafi og mótaði fyrirtækið.
Oft í gegn um tíðina hefur það ver-
ið erfiðara að bíða með nýjungar og
bíða átekta, vera skynsamur, en að
láta til skarar skríða. Sú stefna hef-
ur komið fyrirtækinu til góða. Ég
kalla þetta varkára framsækni.“
Það hlýtur að vera skemmtilegt
Morgunblaðið/Golli
Ferðaskrifstofan Heimsferðir er ungt fyrirtæki.
Verður aðeins níu ára í mars næstkomandi.
Þar á bæ hafa menn þó búið við stigvaxandi
brautargengi og eru horfurnar að mati
Andra Más Ingólfssonar bjartar og
vaxtarbroddar æ fleiri.
eftir Guðmund Guðjónsson
HEFUR
VERIÐ
INDÆLT
STRÍÐ
Morgunblaðið/Golli
Erill í söludeildinni.