Morgunblaðið - 21.01.2001, Síða 30
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2001 31
fyrir forstjóra og eiganda fyrirtæk-
is að sjá það vaxa svona og dafna?
„Já, auðvitað. Þó maður hafi oft
haft ærna ástæðu til að reyta hár
sitt þá er mjög hvetjandi að sjá
barnið vaxa og dafna og vita að það
er heilbrigður vöxtur sem liggur
þar að baki og engar blekkingar.“
Sveigjanleikinn
Ýmsir telja sig hafa merkt að
undanförnu að góðærið svokallaða
standi á tæpu vaði þessa dagana,
en eitt af því sem landsmenn draga
úr þegar skórinn kreppir eru ferða-
lög. Andri Már er næst spurður
hvernig Heimsferðir muni takast á
við hugsanlega niðursveiflu í efna-
hagslífi landsmanna.
„Eins og ég gat um áðan, þá var
efnahagslífið í niðursveiflu þegar
við byrjuðum þannig að við þekkj-
um þetta umhverfi og lærðum
strax hvað gera þarf. Við ákváðum
því að byggja upp fyrirtæki með
mikinn sveigjanleika. Fyrirtæki
sem gæti stækkað þegar forsendur
byðu upp á það og einnig dregið
saman seglin og skorið niður ef svo
bæri undir. Það var nauðsynlegt að
hafa þetta að leiðarljósi, Það eru
svo háar upphæðir í þessum rekstri
sem menn geta tapað á stuttum
tíma. Þessi sveigjanleiki er fyrir
hendi, auk þess sem okkur hefur
tekist að byggja upp mjög góða
eiginfjárstöðu. Höfum þannig eig-
inlega safnað til mögru áranna.
Fyrirtæki verða að geta tekið áföll-
um. Ef þau eru ekki í stakk búin til
þess er hætt við að skammtíma-
hugsun hafi fengið að ráða ferðinni.
Það er fátt meira agandi í rekstri
en að byrja með tvær hendur tóm-
ar.“
Mun fyrirtækið halda áfram að
vaxa af sama krafti og verið hefur?
„Við viljum halda áfram að vaxa
og ég er viss um að farþegafjöldi á
eftir að vaxa, ekki síst vegna þeirr-
ar breytingar sem ég nefndi áðan,
að fólk fari oftar út en í skemmri
tíma í einu. Þó veit ég ekki hvort
aukningin verði eins hröð og verið
hefur. Þetta getur líka farið eftir
því upp á hvað er boðið. Það þarf
sífellt að laga sig að nýjum að-
stæðum á þessum markaði. Íslend-
ingar eru nýjungagjarnir eins og
ég gat um áðan þótt þeir séu ekki
sérstaklega ævintýragjarnir. Ýmsir
töldu t.d. að Íslendingar myndu
ekki vilja leggja á sig fjögurra tíma
flug til Prag í helgarferð þegar það
gat farið annað á tveimur til þrem-
ur tímum. Við reyndum þetta samt
og útkoman var sú að það skipti
ekki máli. Þetta var beint flug,
verðið það sama og þá vildu margir
fá valkost í stað London, Dublin
eða Edinborgar.“
Hvað með kvitt sem á kreiki er
að vegna breytinga í ferðabókunum
verði ferðaskrifstofur brátt óþarf-
ar?
„Við erum með annarsvegar
ferðaheildsala og hins vegar
ferðasmásala. Ferðaheildsalar
leggja áherslu á að selja sínar eigin
ferðir. Eru með sínar eigin vélar,
eigin skipulagningu, eigin fram-
leiðslu. Ferðasmásalar eru að end-
urselja ferðir annarra. Hlutverk
smásalanna hefur farið minnkandi.
Við erum t.d. hættir að selja fyrir
Flugleiðir í almennri sölu. Þar gát-
um við stóraukið veltu okkar, en sú
veltuaukning hefði verið einskis
virði hvað varðar afkomu og því
ákváðum við að láta það eiga sig.
Heimsferðir standa fyrir sínu og
vel það sem ferðaheildsalar, enda
seljum við yfir 90% af okkar ferð-
um beint til viðskiptavinarins.“
Keppir ekki við pabba
Andri Már er sonur Ingólfs Guð-
brandssonar, eins þekktasta ferða-
málafrömuðar Íslands. Ingólfur
rekur ferðaskrifstofuna Heims-
klúbbur Ingólfs, en rak áður og átti
ferðaskrifstofuna Útsýn þar sem
Andri vann í mörg sumur. Andri er
spurður um sambandið og sam-
starfið og hann svarar:
„Ég stofnaði Heimsferðir og
ákvað að ganga þessa götu einn.
Það má segja að við höfum ekki átt
skap saman til að starfa saman.
Samt sem áður er gott á milli okk-
ar. Um samkeppni okkar í millum
er þó ekki að ræða. Hann er á allt
öðru sviði, reksturinn er ólíkur og
þetta skarast lítið eða ekkert.
Hann er með mjög sérhæfðar ferð-
ir.“
En ef hann væri ekki faðir þinn,
værir þú kominn út á þetta svið?
„Já, ég býst við því. Og það fyrir
löngu.“
Ein í lokin, er nokkur tími fyrir
þig til að slaka sjálfur á í útlönd-
um?
„Hjá mér er gríðarlega mikið að
gera frá febrúar og fram í nóv-
ember. Þá er enginn tími til að fara
í frí. Þó reyni ég að slaka á þegar
ég þarf að fara utan, t.d. til að
ganga frá samningum og þess hátt-
ar. Um jól og áramót reyni ég að
stinga af og ég reyni að fara á ein-
hvern nýjan stað á hverju ári.
Þetta er bæði til að skoða heiminn
og eins til að fá hugmyndir að nýj-
um ferðamannastöðum. Þetta hefur
iðulega leitt af sér samninga og
ferðamannastraum og get ég þá
nefnt Mexíkó, Brasilíu og Kúbu.
Heimurinn er spennandi viðfangs-
efni.“
Fyrirtæki verða að geta tekið áföllum. Ef þau
eru ekki í stakk búin til þess er hætt við að
skammtímahugsun hafi fengið að ráða ferð-
inni. Það er fátt meira agandi í rekstri en að
byrja með tvær hendur tómar.
w
w
w
.c
lin
iq
ue
.c
om
100% ilmefnalaust
Upp, upp og út í buskann
Nýtt krem frá Clinique Anti-Gravity Firming Lift Cream
Nú er að létta til.
Það er að þakka nýja Anti-
Gravity Firming Lift kreminu frá
Clinique - hátækniafurð frá helstu
húðsérfræðingum okkar.
Öflug, rakagæf efnablandan
stuðlar að því smám saman að
styrkja húðina og veita henni
lyftingu um leið og hún dregur úr
fíngerðum línum og smáhrukkum
og sendir þær út í buskann.
Þessi einstaka efnablanda
endurnýjar teygjanleika húðar-
innar með því að efla náttúrulegt
kollagen hennar.
Hún endurnýjar vernd húð-
laganna, sem þynnast með
árunum.
Húðin verður stinnari og
sléttari að sjá.
Hún verður fallegri og
endurheimtir ljómann.
Langar þig til þess?
Anti-Gravity Firming Lift Cream,
30 ml.
Anti-Gravity Firming Lift Cream,
50 ml.
Clinique. 100% ilmefnalaust.