Morgunblaðið - 21.01.2001, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 21.01.2001, Qupperneq 32
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2001 33 a t r a a i i i t a a a i i a a a r u t a t a t r f a a r r r a við starfi framkvæmdastjóra Þróunarsamvinnu- stofnunar. Hér eru einungis nefnd tvö ný dæmi en af fleiru er að taka. Vandi stjórnmálanna og stjórnmálaflokkanna nú er ekki sá, að of margt fólk sækist eftir þátt- töku í stjórnmálum heldur að of fátt fólk leitar eftir slíkri þátttöku. Það þarf mikla harðjaxla til þess að standa í stjórnmálabaráttu, hvort sem er á Íslandi eða annars staðar. Þeir harðjaxlar eru að verða of fáir innan þingflokkanna og í starfi á vettvangi stjórnmálaflokkanna. Það er beinlínis orðið áhyggjuefni manna í öllum flokkum, hversu fáir þeir eru. Ein ástæðan fyrir því er sú, að ungt, vel menntað og hæfileikamikið fólk vill ekki taka þátt í stjórnmálum. Hvers vegna ekki? Í fyrsta lagi vegna þess, að betri kjör bjóðast í atvinnu- lífinu. Í öðru lagi vegna þess, að þetta unga fólk vill ekki bjóða fjölskyldum sínum upp á það skít- kast og áreiti, sem fylgir stjórnmálaþátttöku. Af þessum sökum er ungt og hæfileikamikið fólk smátt og smátt að hverfa af vettvangi stjórnmál- anna og haslar sér völl annars staðar. Það er beinlínis hættulegt fyrir lýðræðið og stjórnkerfið í landinu, ef þessi þróun heldur áfram. Það er orðið afar brýnt að snúa henni við. Og það er mikið verkefni fyrir núverandi for- ystumenn í stjórnmálum að stuðla að því. Einn þáttur í því er að sú viðhorfsbreyting verði í samfélagi okkar að það sé jafn sjálfsagt að maður hverfi úr stjórnmálum án þess að það sé túlkað sem persónulegur ósigur og að annað fólk skipti um starf og að sá hinn sami eigi margra kosta völ á vettvangi atvinnulífsins ekki síður en aðrir þjóðfélagsþegnar. Að jafnræðið nái til stjórnmálamannanna ekki síður en ann- arra. Hlutur kvenna Í Morgunblaðinu í gær, föstudag, birtist Opið bréf til Morgun- blaðsins, blaðs allra landsmanna frá Kvenrétt- indafélagi Íslands. Þar segir m.a.: „Þá vakti það furðu framkvæmdastjórnar (Kvenréttindafélags Íslands, innskot Mbl.) að á gamlársdag birti blaðið viðtöl við 14 forsvarsmenn ýmissa hags- muna- og heildarsamtaka í samfélaginu, þar sem þeir voru beðnir um að líta um öxl í tilefni alda- mótanna. Yfirskriftin var: „Hvað segja þeir um aldamótin?“ ÞEIR en ekki ÞAU vegna þess, að þetta voru eingöngu karlar. Hvers vegna ræðir blaðið ekki við neina konu þarna? Telur blaðið að það sé engin kona í stjórnunarstöðu í atvinnulíf- inu eða hjá hagsmunasamtökum sem hafi áhuga að segja nokkuð um aldamótin? Það sætir furðu að Morgunblaðið, sem undanfarin ár hefur birt ágætar greinar og viðtöl um jafnréttismál skuli gera sig sekt um kynblindu af þessu tagi. Ef blaðið á að endurspegla viðhorf beggja kynja er fráleitt að birta umsagnir 14 karla en engrar konu. Skilaboðin hljóta að vera þau að karlar einir hafi eitthvað að segja á tímamótum sem þessum og slík skilaboð eru ekki til þess fallin að auka jafnrétti eða styrkja sjálfsmynd kvenna.“ Það efni í gamlársdagsblaði Morgunblaðsins, sem framkvæmdastjórn Kvenréttindafélags Ís- lands vísar hér til, eru greinar eftir forvígis- menn atvinnuvegasamtaka og launþegasam- taka, þar sem þeir líta yfir farinn veg og horfa til framtíðar. Efni þetta hefur birzt í Morgun- blaðinu áratugum saman. Sú ein breyting hefur orðið, að samtökunum hefur fjölgað. Yfirleitt eru það formenn samtakanna, sem skrifa grein- arnar. Í stöku tilvikum eru það framkvæmda- stjórar þeirra. Það liggur í augum uppi að Morgunblaðið kýs ekki formenn þessara samtaka eða ræður fram- kvæmdastjóra þeirra ekki frekar en að blaðið kjósi stjórn Kvenréttindafélags Íslands! Þess vegna er ekki við Morgunblaðið að sakast þótt það séu eingöngu karlar, sem gegna umræddum trúnaðarstörfum. Kvenréttindafélag Íslands verður að eiga orð við forystumenn þessara samtaka og spyrja hvers vegna engin kona gegni þar æðstu trúnaðarstörfum. Raunar „vek- ur það furðu“, svo að notað sé orðalag talsmanna Kvenréttindafélagsins að félagið beini spjótum sínum að Morgunblaðinu vegna þessa. Í upphafi hins opna bréfs Kvenréttindafélags Íslands til Morgunblaðsins segir svo: „Í ársbyrj- un voru kynntar 20 breytingar á ritstjórn Morg- unblaðsins, blaði allra landsmanna. Það hefur vakið talsverða athygli, að í þessum hópi eru að- eins tvær konur. Ritstjórn Morgunblaðsins er því eftir sem áður, skipuð karlmönnum í miklum meirihluta eða 90%. Það er ekki dregið í efa, að þeir karlar sem um ræðir séu hæfir einstakling- ar en hefði það ekki orðið blaðinu til góðs að hugsa líka til hins helmings þjóðarinnar og skipa fleiri konur í ritstjórn?...Kvenréttindafélag Ís- lands lýsir yfir undrun sinni á því að við upphaf 21. aldarinnar hafi Morgunblaðið, útbreiddasti prentmiðill landsins, ekki notað það tækifæri, sem gafst til þess að lagfæra þá slagsíðu, sem verið hefur á ritstjórn blaðsins. Það er skylda þeirra sem með einum eða öðrum hætti eru áhrifavaldar í samfélaginu að gera kynjunum jafn hátt undir höfði. Sífellt fleiri fyrirtæki og stofnanir gera sér grein fyrir þessu og hafa komið upp markvissum jafnréttisáætlunum, sem ætlað er að jafna hlut kynjanna.“ Af þessu tilefni er ástæða til að taka fram, að skipurit það yfir ritstjórn Morgunblaðsins, sem birt var hinn 3. janúar sl. segir ekki alla söguna um hlut kvenna í stjórn ritstjórnar eða Morg- unblaðsins yfirleitt. Þar var einungis sýndur sá hluti af stjórnkerfi Morgunblaðsins, sem breyt- ingar náðu til. Stærsta ritstjórnardeild Morgunblaðsins er innlenda fréttadeildin. Þar eru nú starfandi þrír fréttastjórar. Tveir þeirra eru karlar, sem hafa gegnt þessum störfum í u.þ.b. tvo áratugi. Þriðji innlendi fréttastjórinn er kona Agnes Braga- dóttir. Áður en hún tók við því starfi hafði hún verið fréttastjóri menningarmála um skeið og tók að sér það verkefni að byggja menningarrit- stjórn Morgunblaðsins upp sem sjálfstæða fréttadeild. Áður hafði umsjón menningarmála verið í höndum Súsönnu Svavarsdóttur. Undanfarin ár hefur Guðrún Hálfdánardóttir verið fréttastjóri viðskiptaritstjórnar Morgun- blaðsins. Umsvif viðskiptaritstjórnar hafa stór- aukizt og af þeim sökum var ráðinn til starfa með henni nýr fréttastjóri á viðskiptaritstjórn um áramótin, Hallur Þorsteinsson. Yfirmaður Daglegs lífs, vikublaðs, sem fylgir Morgunblaðinu á föstudögum er Valgerður Þ. Jónsdóttir, sem á langan starfsferil að baki á Morgunblaðinu. Yfirmaður neytendamála og ferðamála er Guðbjörg Guðmundsdóttir, sem einnig á að baki langan starfsferil á ritstjórn Morgunblaðsins. Hún hefur umsjón með neytendasíðum blaðsins og jafnframt Ferðablaði á sunnudögum. Tveir af fyrrverandi blaðamönnum viðskipta- ritstjórnar hafa tekið við mikilvægum trúnaðar- stöðum í framkvæmdastjórn Morgunblaðsins. Það eru Bylgja Birgisdóttir, viðskiptafræðingur og MBA, sem er starfsmannastjóri Morgun- blaðsins og hafði áður verið starfsmanna- og rekstrarstjóri ritstjórnar og Margrét K. Sigurð- ardóttir viðskiptafræðingur sem er markaðs- stjóri blaðsins. Samtals gegna um 20 konur trúnaðar- og lyk- ilstöðum á Morgunblaðinu. Það gætir því misskilnings hjá Kvenréttinda- félagi Íslands um hlut kvenna í stjórnunarstöð- um á Morgunblaðsins en vissulega er sá mis- skilningur skiljanlegur í ljósi þess, að í blaðin hinn 3. janúar sl. var ekki sýnd heildarmynd af stjórnskipulagi ritstjórnar eða útgáfufyrirtæk- isins í heild. Morgunblaðið/RAX Hjólreiðamaður á vegi sem að hluta fór í kaf þegar Hvítá flæddi yfir bakka sína fyrir viku. „Það er svo til marks um sérstaka hæfni Ingibjargar Pálmadóttur í mannlegum sam- skiptum, að vinsæld- ir hennar hafa auk- izt og hún hefur vaxið að virðingu á þeim tíma, sem hún hefur gegnt ráð- herrastörfum, þrátt fyrir afar erfiðar ákvarðanir, sem hún hefur þurft að taka.“ Laugardagur 20. janúar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.