Morgunblaðið - 21.01.2001, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 21.01.2001, Qupperneq 37
MINNINGAR 38 SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ                                    !!"!#$ %&!" ' !(!"!($ )&*+,                 ! "   $"  % "  ! #* "-#$! "- .! "-/ 0 1!  , 2!%#$! * $ !(!#$!,                                !"#$"%%  %#&' (()  %#&' * +#% !"##  * #% ,(  %#&' "# -   #$"%% !"  (.+   %#&' / ,( $"%% .  .+   .  .  .+                                          !"  # $  %         &      (   '  !" ##"  "$ "%  ##" &' " (  (")"  " ##"  "   " ' (+    "  " + , #"- "#                             ! "   #$   %     &'% ( $         )#* ) +     ,-   %  .       !   %                                                      !"     "    " #!                           ! " # $                                                       "## $ ✝ Halldór Þ. Ás-mundsson fædd- ist 15. júní 1917, hann ólst upp á Bjargi í Helgustaðar- hreppi við Reyðar- fjörð. Hann andaðist á dvalarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi 17. janúar síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Ásmundur Helgason og Svein- björg Stefánsdóttir. Systkini hans voru Ari, Helga og Stefán. Ari og Stefán dóu ungir að árum en Helga lést árið 1990. Árið 1947 kvæntist Halldór eft- irlifandi eiginkonu sinni Sigrúnu Guðmundsdóttur, f. 18. október 1927, en hún ólst upp í Grafningi. Börn þeirra eru: 1) Ásmundur Birgir, f. 10. mars 1948, sambýlis- kona hans er Sigrún Harðardótt- ir. 2) Helga Guðný, f. 7. nóvember 1949, eiginmaður hennar er Guð- mundur Sigurðsson. 3) Erna Bryndís, f. 3. ágúst 1951, sam- býlismaður hennar Kornelíus Sig- mundsson. 4) Bjarni Guðberg, f. 11. júní 1957, eiginkona hans er Annika Frid. Halldór og Sigrún eiga fjölda barna- barna og barna- barnabarn auk stjúpbarnabarna. Halldór ólst upp á Reyðarfirði en flutti sem ungur maður til Reykjavíkur. Fljótlega eftir gift- ingu fluttu þau hjónin í Kópavog og voru ein af frumbyggjum Kópavogs. Hann starfaði sem múrari alla sína tíð, allt til 70 ára aldurs. Síðustu árin dvaldi hann í Sunnuhlíð. Útför Halldórs fer fram frá Kópavogskirkju á morgun, mánu- daginn 22. janúar, og hefst at- höfnin klukkan 15. Halldór ólst upp á Bjargi við Reyð- arfjörð, en flutti til Reykjavíkur 24ára gamall með foreldrum sínum og Eiríki uppeldisbróður sínum. Systir hans Helga var þegar komin til höfuðborgarinnar þegar þetta gerðist. Skömmu eftir komuna til Reykjavíkur hóf Halldór nám í múr- verki og vann við byggingar allan sinn starfsferil. Heimahagar Hall- dórs á Austfjörðum mótuðu uppvöxt hans og atgervi. Til sjós og lands voru sóttar bjarg- ir. Skepnuhald var þó aðeins til heim- ilis en sjósókn á litlum bátum gat þó gefið meira en björg því að fiskur var verkaður og seldur, en vart hefur það verið öruggur fengur eða tryggt lífs- viðurværi. Við Reyðarfjörð hafði þó fólk yfirleitt nóg að bíta og brenna. Á uppvaxtarárum Halldórs voru tóm- stundir fremur fáar þó helstar lestur bóka og samkomur þar sem dansað var og spilað undir á orgel. Á slíkt hljóðfæri lærði hann og spilaði sér og öðrum til skemmtunar. Harmónika var þó það hljóðfæri sem hann hafði mest dálæti á. Sína fyrstu harmóniku eignaðist Halldór stuttu áður en hann flutti suður. Þessa nikku seldi hann Stefáni Ólafssyni frænda sínum á Helgustöðum. Fyrir rúmlega 10 ár- um fóru Halldór og Sigrún austur á firði á bernskuslóðir Halldórs ásamt vinum sínum Sverri og Björgheiði. Þau heimsóttu Helgustaði, en þar ræður ríkjum Unnur systir Stefáns. Unnur setti gömlu nikkuna í hendur frænda sínum og vini. Að sögn Unnar höfðu allir viðstaddir gaman af þegar nikkan var handleikin af fyrrum eig- anda, eitthvað vantaði af nótum en það var algjört aukaatriði. Á Bjargi var gott safn bóka. Ás- mundur faðir Halldórs hafði ungur maður ákveðið að í stað þess að eyða peningum í tóbak skyldu þeir fara til bókakaupa. Ásmundur skrifaði sjálf- ur sögur og tók einnig saman sam- tímaheimildir sem komið hafa síðari tíma mönnum að gagni. Þegar daglegri vinnu var lokið hafði fólk færri kosti til tómstunda en í dag, þó að það hafi unað sátt við sitt. Lítið þurfti út af að bera til að raska afkomu. Elsti bróðir Halldórs Ari fékk berkla 23 ára gamall og dó á Kristneshæli. Hjúkrun og umönnun þurftu aðstandendur að greiða sjálf- ir. Lokauppgjör fór fram eftir að Halldór hafði fengið skipspláss á mótorbátnum Sæfinni við síldveiðar. Fjaran var leikvöllur krakkanna, það sagði Halldór mér. Eitt sinn hefði hann verið að leika á kletti í fjörunni, misst fótanna og fallið í sjó- inn, illa var nú komið, því að hann var ekki syndur. Hundurinn á Bjargi synti með spýtufjöl í kaftinum til hans og varð það honum til lífs. Sögu þessa sagði hann til að leggja áherslu á að fólk ætti að læra að synda. Þar eð múrverk varð hans starfsgrein hér við Faxaflóann var hann sjálfur ekkert að læra sund, en á efri árum fór hann þó oft í Sundlaug Kópavogs en sér heita pottinn nægja. Halldór lærði múrverk hjá Hall- dóri Halldórssyni múrarameistara. Eiríkur Bjarnason uppeldisbróðir hans lærði einnig múrverk en hjá öðrum meistara. Fljótlega eftir að þeir fóstbræður luku námi fóru þeir að vinna saman að múrverki og gerðu það alla sína starfsævi. Kona Hall- dórs meistara hét Fanney en hjá þeim kynntist Halldór konuefni sínu Sigrúnu Guðmundsdóttur systur Fanneyjar. Fyrsta heimili Halldórs og Sigrún- ar var við Grettisgötu og bjuggu þau Ásmundur og Sveinbjörg hjá þeim. Síðan byggðu þau árið 1951 í Kópa- vogi og hafa búið þar alla tíð síðan, reyndar á þremur stöðum og nú síð- ast í Hamraborginni. Þau hafa tekið virkan þátt í félagslífi bæjarins. Tengdaforeldrum mínum kynntist ég fyrir um 30 árum og hefur mér þótt gott að vera samvistum við þetta trausta og trygglynda fólk. Ég hef notið þess í hvívetna og vil þakka þeim allar góðar samverustundir. Þau hafa reynst börnum okkar Helgu hin besta fyrirmynd og góðir félagar. Blessuð sé minning Halldórs. Guðmundur Sigurðsson. Það er mér minnisstætt þegar ég heimsótti þau Halldór og Sigrúnu í fyrsta skiptið hvað þau voru gestrisin og hvað þau tóku vel á móti mér, þó ég talaði ekki íslensku. Það leið nú ekki langur tími þangað til Halldór var kominn í stofuna og byrjaður að spila á harmonikuna. Það var alltaf stutt í spilamennskuna og grínið hjá honum. Þegar ég giftist Bjarna syni þeirra og fluttist til Íslands var okkur strax boðið að búa hjá þeim. Við bjuggum hjá þeim fyrstu 15 mánuð- ina meðan við vorum að bíða eftir íbúðinni okkar. Á þeim tíma kynntist ég Halldóri mjög vel og urðum við góðir vinir, hann leit á mig sem sína eigin dóttur sagði hann oft. Það var alltaf séð vel um mig og þau hjónin voru alltaf mjög samrýnd og alltaf notalegt að vera nálægt þeim. Ég held að betri tengdaforeldra sé ekki hægt að eignast. Við fórum líka utan saman í sumarfrí nokkur skipti, bæði til Evrópu og Kanaríeyja, og það var alltaf ánægjulegt að vera með þeim og kynnast þeim náið, því þau voru alltaf svo nægjusöm og þakklát fyrir allt og líka góð við börnin. Það var líka gaman að fá þau í heimsókn, en þau komu á föstudögum í fjöldamörg ár. Það voru ánægjulegir tímar þegar Halldór fylgdist með barnabörnun- um vaxa, tók sér tíma til að leika við þau og kenna þeim alls konar spil. Þau hjónin komu alveg þangað til Halldór hætti að geta keyrt bíl. Þau voru traust og alltaf til staðar fyrir mann, og þau studdu líka hvort ann- að í blíðu og stríðu. Ég dái þau fyrir hvað þau voru einstakt fordæmi í að styðja og styrkja hvort annað í hjóna- bandinu, sem hefði orðið 54 ára í vor. Þegar Sigrún fékk blóðtappa stóð Halldór ótrauður fyrir heimilinu og við hlið hennar. Og það gagnkvæma á ekki síst við um hin síðustu ár þegar Halldór var mjög veikur. Sigrún studdi mann sinn af sinni alkunnu trúfesti og einurð. Já hans mun verða sárt saknað af okkur öllum því hann var mjög mikið fyrir fjölskyldu sína. Ég hlakka til að sjá hann aftur þegar orð Jesú í Jóhannesarguðspjalli 5:28 rætast: „Undrist þetta ekki. Sú stund kemur, þegar allir þeir, sem í gröf- unum eru, munu heyra raust hans og ganga fram, þeir, sem gjört hafa hið góða, munu rísa upp til lífsins.“ Þín tengdadóttir, Annika. Elsku yndislegi afi minn, nú ertu farinn til betri heima og laus við allar þjáningar. Þó að ég vissi undir niðri að það færi að koma að því að þú kveddir þennan heim var ég alls ekki viðbúinn því. Ég ætlaði að heimsækja þig í dag og segja þér frá því að ég væri að lesa endurminningar föður þíns, Ásmundar Helgasonar, og spyrja þig meira um bernskuminn- ingar þínar, en örlögin gripu í taum- ana og ég fæ ekki tækifæri til þess, en svona er bara lífið. Ég er svo þakklát að við fengum að hafa þig hjá okkur yfir jólin. Þetta voru alveg yndisleg jól og mér fannst þú líka hafa notið þeirra. Þetta verða jól sem ég mun aldrei gleyma. Elsku afi minn, þú skipar stóran sess í lífi mínu og okkar allra. Í huga mér og minningum ertu yndislegur, hjartgóður, hlýr og hógvær maður, með frábæra kímnigáfu. Þú gast allt- af sagt eitthvað sem fékk fólk til þess þess að hlæja og hafðir þann eigin- leika að geta létt lund fólksins í kringum þig. Mér finnst alveg lýs- andi fyrir þig að meðan þú lást í veik- indum þínum gastu alltaf gert að gamni þínu. Ég gleymi líka aldrei þeim stund- um sem við áttum þegar þú spilaðir á harmonikuna og ég dansaði eftir músíkinni og hvað ég og Láretta vin- kona mín skemmtum okkur konung- lega þegar þú spilaðir Óla skans og við dönsuðum af fullum krafti. Mér er líka minnisstætt þegar ég fékk að standa á fótunum á þér og þú labb- aðir með mig, það fannst mér ofsa- lega skemmtilegt. Elsku alfi, ég þakka þér fyrir allt sem þú hefur kennt mér og gefið. Ég veit að það er veganesti sem mun alltaf nýtast mér á lífsleiðinni og finnst mér synd að yngstu barna- börnin þín fái ekki sama tækifærið til að kynnast þér eins og við eldri feng- um. Guð veri með þér, elsku afi minn, þú ert sá allra allra besti. Ragnhildur. HALLDÓR Þ. ÁSMUNDSSON  Fleiri minningargreinar um Hall- dór Þ. Ásmundsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.