Morgunblaðið - 21.01.2001, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 21.01.2001, Qupperneq 49
DAGBÓK 50 SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Skipin Reykjavíkurhöfn: Sel- foss, Marina og Barb- ara koma í dag. Hvid- björnen kemur á morgun. Barbara og Selfoss fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Sel- foss kemur á morgun, Hvítanes fer á morgun. Mannamót Aflagrandi 40. Á morg- un kl. 8.45 leikfimi, kl. 10 boccia, kl. 14 félags- vist, kl. 12.30 baðþjón- usta. Árskógar 4. Á morgun kl. 9 pennasaumur og harðangur, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13.30 félagsvist, kl. 13 opin smíðastofan, kl. 16 myndlist, kl. 9 hár- og fótsnyrtistofur opnar. Bólstaðarhlíð 43. Á morgun kl. 9–16 handa- vinna, kl. 9–12 búta- saumur, kl. 10 sam- verustund, kl. 13 bútasaumur. Þorrablót verður haldið föstudag- inn 26. janúar kl. 17. Skráning í síma 568- 5052 fyrir föstudaginn 26. janúar. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 á mánud. kl. 20.30. Fótaaðgerða- stofan opin frá kl. 10. Skrifstofan Gullsmára 9 er opin á morgun kl. 16.30–18 s. 554-1226 Félagsstarf aldraðra Lönguhlíð 3. Á morgun kl. 8 böðun, kl. 9 fótaað- gerð og myndlist, kl. 9.30 hjúkrunarfræð- ingur á staðnum, kl. 10– 13 verslunin opin, kl. 11.10 leikfimi, kl. 13 handavinna og föndur, kl. 13.30 enska, fram- hald. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18-20. Á morg- un kl. 9 böðun, kl. 9.45 leikfimi, kl. 10 fótaað- gerðastofan opin, kl. 13 spilað (brids). Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Púttæfing í Bæjar- útgerðinni í fyrramálið kl. 10-12. Tréútskurður í Flensborg kl. 13. Félagsvist í Hraunseli kl. 13:30. Sækja þarf miða á þorrablótið á morgun. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Námskeiðin byrja þessa viku, leir- list, glerlist, málun, ker- amik, tréskurður, búta- saumur og leiklist. Opið hús og spilað laug- ardaga kl. 13.30. Í næstu viku byrja spænsku- og tölvu- námskeið. Bókmennta- hópur byrjar 22. janúar kl. 10.30 í bókasafni Garðabæjar. Skráning á þorrablótið stendur yfir. Félag eldri borgara í Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan er opin virka daga frá kl. 10-13. Matur í hádeginu. Félagsvist í dag kl. 13.30. Dansleikur í kvöld kl. 20, Caprý-tríó leikur fyrir dansi. Mánudagur: Brids kl. 13. Danskennsla Sig- valda, byrjendur kl. 19.00 og framhald kl. 20.30. Söngvaka kl. 20.30, stjórnandi Anna María Daníelsen. Bald- vin Tryggvason verður til viðtals um fjármál og leiðbeiningar um þau mál á skrifstofu FEB fimmtudaginn 25. jan- úar kl. 11-12. Panta þarf tíma. Heimsókn í Prent- smiðjuna Odda. Eldri borgurum hefur verið boðið í heimsókn í Prentsmiðjuna Odda fimmtudaginn 25. jan- úar. Lagt verður af stað frá Ásgarði Glæsibæ félagsheimili FEB kl. 14. Takmarkaður fjöldi, skráning fer fram á skrifstofu FEB sími 588-2111. Breyting hef- ur orðið á viðtalstíma Silfurlínunnar, opið verður á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 10-12 fh. Upplýsingar á skrifstofu FEB í síma 588-2111 frá kl. 10-16. Gerðuberg, félagsstarf. Á morgun kl. 9-16.30 vinnustofur opnar, m.a. fjölbreytt handavinna, umsjón Eliane Homm- ersand, kl. 9.25 sund og leikfimiæfingar í Breið- holtslaug, umsjón Edda Baldursdóttir íþrótta- kennari, frá hádegi spilasalur opinn, vist og brids, kl. 14 kóræfing, kl. 15.30 dans, veitingar í kaffihúsi Gerðubergs. Föstudaginn 26. janúar kl.16 verður opnuð myndlistarsýning Ólafs Jakobs Helgasonar. All- ar uppplýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575-7720. Gjábakki, Fannborg 8. Á morgun handa- vinnustofan opin leið- beinandi á staðnum frá kl. 9–17, kl. 9.30 gler- og postulínsmálun, kl. 13.30 lomber og skák, kl. 14.30 enska, kl. 17 myndlist. Hraunbær 105. Á morg- un kl. 9 postulínsmálun og perlusaumur og kortagerð, kl. 10.30 bænastund, kl.13 hár- greiðsla, kl. 14 sögu- stund og spjall. Hvassaleiti 56-58. Á morgun kl. 9 böðun, fótaaðgerðir, keramik, tau- og silkimálun og klippimyndir, kl. 10 boccia, kl. 13 spilað. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Á morgun kl. 9–16.30 opin vinnu- stofa, handavinna og föndur, kl. 9 hár- greiðsla, kl. 14 félags- vist. Norðurbrún 1. Á morg- un, fótaaðgerðarstofan opin frá kl. 9–14, bóka- safnið opið frá kl. 12–15, kl. 10 ganga. Vesturgata 7. Á morg- un, kl. 9 fótaaðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15 handavinna, kl. 10 boccia, kl. 12.15 dans- kennsla framhald, kl. 13.30 danskennsla byrj- endur, kl. 13 kóræfing. Vitatorg. Á morgun kl. 9 smiðjan og hár- greiðsla, kl. 9.30 bók- band, bútasaumur og morgunstund, kl. 10 fótaaðgerðir, kl. 13 handmennt, kl. 13. leik- fimi, kl. 13 spilað. Gullsmárabrids. Brids- deild FEBK í Gullsmára býður alla eldri borgara velkomna að brids- borðum í félagsheim- ilinu að Gullsmára 13 á mánudögum og fimmtu- dögum. Mæting og skráning kl. 12,45. Spil hefst kl. 13. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, Hátúni 12. Á morgun kl. 19 Brids. GA-fundir spilafíkla, eru kl. 18.15 á mánudög- um í Seltjarnar- neskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðsludeild SÁA Síðu- múla 3-5 og í Kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg á laug- ardögum kl. 10.30. Kristniboðsfelag karla. Fundur verður í kristni- boðssalnum Háaleit- isbraut 58-60, mánu- dagskvöldið 22. janúar kl. 20.30. Benedikt Arn- kelsson hefur biblíu- lestur. Allir karlmenn velkomnir. Kvenfélag Seljasóknar. Þriðjudaginn 23. janúar verður sameiginlegur fundur kvenfélaganna í Breiðholti. Fundurinn verður haldinn í Kirkju- miðstöð Seljakirkju og hefst kl. 20. Margt verð- ur til skemmtunar og kaffihlaðborðið. ITC deildin Íris, heldur fund mánud. 22. janúar, kl.20 í safnaðarheimili Þjóðkirkjunnar við Strandgötu. Allir vel- komnir. Uppl. í síma 555-2821 Helena Mjöll. Kvenfélag Kópavog. Fundur verður haldinn fimmtudaginn 25. jan- úar kl. 20.30 að Hamra- borg 10. Spilað verður bingó. ITC deildin Harpa held- ur kynningarfund þriðjudaginn 23.janúar n.k. í Borgartúni 22. (3hæð). Reykjavík. Fundurinn er öllum op- in. Upplýsingar gefur Guðrún í síma 553-9004. Kirkjustarf aldraðra Digraneskirkju. Opið hús þriðjudag frá kl. 11. Leikfimi, matur, helgi- stund og fræðsla. Verið velkomin. Kvenfélag Breiðholts. Sameiginlegur fundur kvenfélaganna í Breið- holti verður þriðjudag- inn 6. febrúar kl. 20 í Seljakirkju. Fjallkonur. Sameig- inlegur fundur kven- félaganna í Breiðholti verður þriðjudaginn 6. febrúar kl. 20 í Selja- kirkju. Í dag er sunnudagur 21. janúar, 21. dagur ársins 2001. Agnesarmessa. Orð dagsins: En nú, með því að þér eruð leystir frá syndinni, en er- uð orðnir þjónar Guðs, þá hafið þér ávöxt yðar til helgunar og eilíft líf að lokum. (Róm. 6, 22.) MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið. Óhress með skrif Víkverja KONA hafði samband við Velvakanda og langaði að lýsa yfir vanþóknun sinni á skrifum Víkverja í Morgun- balðinu 16. janúar sl. um Blómaval. Henni finnst slík skrif afskaplega leiðinleg og ekki Morgunblaðinu til sóma. Milli himins og jarðar Í ÞÆTTINUM Milli him- ins og jarðar, eru skreyt- ingar sem snúast, þegar fólk í þættinum fer upp á svið. Þetta pirrar mig alveg óskaplega. Er ekki hægt að láta þessar skreytingar vera kyrrar? Þær dreifa at- hyglinni frá fólkinu, sem er uppi á sviði. Bella. Frábær þjónusta Blómavals ÉG get ekki orða bundist vegna skrifa í Velvakanda 19. janúar sl. um Blómaval. Ég á dóttur, sem býr í Nor- egi og fæ ég mjög oft send blóm frá henni í gegnum Blómaval. Blómin eru alltaf óskaplega falleg og vel val- NÚ Í ársbyrjun er slysa- aldan byrjuð og ökumenn teknir fyrir of hraðan akst- ur. Í umferðinni er almennt fjandskapur, agaleysi, hroki og engin virðing bor- in fyrir öðrum, engin tillits- semi. Ökumenn sjást bruna yfir á rauðu ljósi í mörgum tilfellum, enda er lögreglan ekki sýnileg í umferðareft- irliti vegna niðurskurðar. Þetta getur ekki gengið svona lengur. Við, sem höf- um verið án óhappa í um- ferðinni, erum að greiða fyrir skussana í formi hækkandi iðgjalda. Það er áskorun til yfir- valda að lögreglan verði sýnilegri og það strax. Það verður að stöðva ökufant- ana og draga úr slysum. Við skattborgarar eigum kröfu á að þetta sé gert án tafar. Lögregluna út á göt- una. Stöðvum slysin strax. Hafliði Helgason. in. Ég er mjög ánægð með þjónustuna hjá þeim. Hafið mínar bestu þakkir fyrir. Helga. Hrædd í strætó KONA hafði samband við Velvakanda og vildi lýsa yf- ir óánægju sinni með það, að strætisvagnabílstjórar á milli Reykjavíkur og Hafn- arfjarðar tala allt of mikið í GSM-síma. Það virðist ekki skipta máli þótt þeir séu með fullan vagninn af far- þegum. Henni finnst þetta vera algjört ábyrgðarleysi og henni finnst hún alls ekki vera örugg í vagnin- um. Tapað/fundið Grá loðin húfa í óskilum GRÁ, loðin húfa fannst á Flyðrugranda í mikla rok- inu um daginn. Upplýsing- ar í síma 562-0508. Gullarmband GULLARMBAND fannst á deild 11-3 Landakoti fyrir um það bil mánuði. Upplýs- ingar í síma 525-1936. Bíllykill tapaðist BÍLLYKILL tapaðist, annaðhvort á Hofsvalla- götu eða á Ásvallagötu, miðvikudaginn 17. janúar sl. Fundarlaun. Skilvís finnandi er vinsamlegast beðinn að hafa samband í síma 897-2902. Dýrahald Kæru dýravinir SNÚÐUR er fundinn og kominn heill á húfi til síns heima. Eftir vísbendingu frá Seltjarnarnesi kom hann í leitirnar á Valhúsa- brautinni. Hann var óskap- lega feginn að komast heim og á heimilinu ríkir mikil gleði. Við viljum þakka, öllum þeim er höfðu samband, innilega fyrir þá velvild og aðstoð sem okkur var veitt. Það er gott að vita af öllu þessu góða fólki sem er um- hugað um að hjálpa hver öðru og dýrunum okkar. Með kærri þökk, Sædís, Pétur og Adam. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Lögreglan sýnilegri á götum borg- arinnar Víkverji skrifar... KONA nokkur, amma vinar Vík-verja, sem missti eiginmann sinn á síðastliðnu hausti sótti nýlega um það til viðkomandi sýslumanns að fá að búa í óskiptu búi. Hún fyllti út þar til gert eyðublað og gaf upp helstu upplýsingar um sjálfa sig; nafn, kennitölu, heimili og núverandi dval- arstað hennar, sem mun farið fram á vegna þess að möguleiki er vissulega á því að hún eigi þá eign sem um ræð- ir en búi t.d. á dvalarheimili. Síðan þurfti gamla konan að fylla út ýmiss konar upplýsingar um hinn látna, til að mynda hvar hann bjó og hvenær hann dó sem var vitaskuld ekkert vandamál. En það sem vakti mesta athygli var sá liðurinn á eyðu- blaðinu þar sem spurt er um núver- andi dvalarstað hins látna! Vinur Vík- verja, sem sendi honum línu um þetta skondna mál, skrifaði: „Karl faðir minn fyllti þetta út fyrir gömlu kon- una og hann hafði ætlað afa gamla pláss í veislunni þar efra en ekki í hitasvækjunni hjá þessum með horn- in og skottið, en tæknilega séð er afi sex fetum undir yfirborði jarðar í kirkjugarðinum í [...].“ x x x SANNKALLAÐUR Íslendinga-slagur fór fram á Brittannia-leik- vellinum í Stoke í síðustu viku þegar Stoke City og Brentford áttust við í ensku 2. deildinni í knattspyrnu. Hvorki fleiri né færri en sex Íslend- ingar voru þar innan vallar, þar af báðir markverðirnir – Birkir Krist- insson og Ólafur Gottskálksson – og eina mark leiksins gerði Ríkharður Daðason eftir sendingu Bjarna Guð- jónssonar! Víkverji er ánægður með gengi Stoke um þessar mundir, það er í ágætri stöðu nálægt toppi deildarinn- ar og ljóst að það á góða möguleika á að komast upp í 1. deild í vor. Víkverja kemur ekki á óvart að Guðjóni Þórð- arsyni skuli ganga svona vel. Þar er á ferðinni maður sem kann sitt fag. x x x VÍKVERJI sagði frá því síðastasunnudag að þegar afgreiðslu- stúlka í Lyfju í Lágmúla bar strika- merki upp að skanna tengdum búð- arkassa og upphæðin sem Víkverji átti að greiða birtist þar á skjá, fylgdi með nafn hans og dóttur hans, en lyf- in sem hann var að kaupa voru ætluð þeim. Fyrirtækið var sem sagt að tölvuskrá persónuupplýsingar um viðskiptavini sína og lyfjanotkun þeirra í venjulegan búðarkassa. Mikil umræða hefur farið fram í þjóðfélaginu um verndun persónu- upplýsinga og skráningu heilsufars- upplýsinga í gagnagrunna og telur reyndar að allt of víða í þjóðfélaginu sé safnað saman alls konar upplýs- ingum um hegðun og neyslu einstak- linga án þess að auðvelt sé að koma auga á að brýnir hagsmunir búi að baki. Dæmi um það rakst hann nýlega á á símaskránni á Netinu, simaskra.- is. Þar er í boði hentug þjónusta, sem sé sú, að notendur geti búið til sína einkasímaskrá og safnað á einn stað undir heitinu Þínar síður, þeim síma- númerum, sem þeir hringja oftast í. En einn galli er á gjöf Njarðar. Til þess að eiga völ á þessari þjónustu þarf að skrá kennitölu sína um leið og einkasímaskráin er stofnuð. Hvers vegna í ósköpunum? Þar til annað kemur í ljós gefur Víkverji sér að hér sé ekki um að ræða neitt illgjarnt „plott“ af hálfu Símans til að afla upp- lýsinga um það hverjir séu að hringja í hverja. Miklu líklegra er að þarna birtist það kæruleysi sem einkennir umgengni um kennitölur lands- manna. Af hverju ekki að leyfa hverj- um notanda að velja eigið aðgangs- orð? x x x ÍSLENSKA landsliðið í handboltaheldur senn til Frakklands þar sem heimsmeistaramótið fer fram. Heldur lítið hefur farið fyrir liðinu í fjölmiðlum undanfarnar vikur, að mati Víkverja, og lítil umræða virðist í gangi um mótið og liðið. Það hefur oft viljað brenna við að þegar væntingar eru miklar gengur íslensku hand- boltamönnunum illa, en einna best þegar enginn á von á miklum afrek- um. Skemmst er að minnast heims- meistaramótsins í Kumamoto í Japan í því sambandi, en þar náðu Íslend- ingar fimmta sæti. Góða ferð til Frakklands, strákar! K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 öndunarfæri fiska, 4 þvaga, 7 skrökvar, 8 renningurinn, 9 gríp, 11 ástundun, 13 ókeypis, 14 krumla, 15 drukkin, 17 þvættingur, 20 amboð, 22 giskar á, 23 frí, 24 reglu- systir, 25 fræða. LÓÐRÉTT: 1 hindrun, 2 form, 3 kropp, 4 seglskip, 5 tek- ur, 6 mikið annríki, 10 æsir, 12 reið, 13 spor, 15 ánægð, 16 sett, 18 reyfið, 19 hefja upp, 20 grenja, 21 gaffal. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 hjáleigan, 8 seppi, 9 iglan, 10 fen, 11 krapi, 13 aktar, 15 nauts, 18 flaga, 21 tía, 22 gaddi, 23 liðug, 24 fangbrögð. Lóðrétt: 2 japla, 3 leifi, 4 ilina, 5 aflát, 6 ósek, 7 knár, 12 pot, 14 kál, 15 nagg, 16 undra, 17 sting, 18 falar, 19 auð- ug, 20 auga. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.