Morgunblaðið - 21.01.2001, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 21.01.2001, Qupperneq 50
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2001 51 DAGBÓK ÞRJÚ grönd voru spiluð og unnin út um víðan völl í þessu spili frá þrettándu um- ferð Reykjavíkurmótsins: Norður gefur; NS á hættu. Norður ♠ 6 ♥ Á104 ♦ K97 ♣KG9842 Vestur Austur ♠ ÁG10752 ♠ K4 ♥ K6 ♥ 8732 ♦ 654 ♦ DG1083 ♣D3 ♣76 Suður ♠ D983 ♥ DG95 ♦ Á2 ♣Á105 Venjulega kom vestur út með millispaða, gosa eða tíu, og vörnin gat tekið þrjá slagi á spaða og síðan ekki söguna meir. Eitt af þessum „dauðu“ spilum, sem enga athygli vekja. En þegar bet- ur var að gáð kom í ljós að Matthías Þorvaldsson í Sub- aru-sveitinni hafði einn manna farið niður á þremur gröndum. Hvernig í ósköp- unum gat það gerst? Í vörninni voru bræðurnir Sigurbjörn og Anton Har- aldssynir í sveit Skeljungs. Sigurbjörn valdi að koma út með fjórða hæsta spaðann – sjöuna. Anton tók með kóng og spilaði fjarkanum til baka og Sigurbjörn átti slaginn á tíuna. Sigurbjörn var með stöðuna í spaðanum á hreinu, svo hann ákvað að hætta við þann lit og skipti yfir í hjartasexu! Setjum okkur nú í spor Matthíasar. Frá hans bæjar- dyrum er sennilegt að aust- ur hafi byrjað með K42 í spaða. Sem þýðir að Anton má alls ekki komst inn til að spila spaðatvistinum í gegn- um D9. Svíningin í hjarta er líka óþörf ef laufið skilar sex slögum. Matthías fór því upp með hjartaás, tók laufkóng og svínaði tíunni í bakaleið- inni. Mjög rökrétt, því aust- ur er líklegri til að eiga fleiri lauf en vestur miðað við skiptinguna í spaðalitnum. En Bessi átti drottn- inguna í laufi og það reyndist fimmti slagur varnarinnar með þremur á spaða og ein- um á hjartakóng!!! BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson. Árnað heilla LJÓÐABROT Til fánans Rís þú, unga Íslands merki, upp með þúsund radda brag. Tengdu í oss að einu verki anda, kraft og hjartalag. Rís þú Íslands stóri, sterki stofn með nýjan frægðardag. - - - Skín þú, fáni, eynni yfir eins og mjöll í fjallahlíð. Fangamarkið fast þú skrifir fólks í hjartað ár og síð. Munist, hvar sem landinn lifir, litir þínir alla tíð. Einar Benediktsson 85ÁRA afmæli. Á morg-un mánudaginn 22. janúar verður 85 ára Val- borg E. Emilsdóttir, ljós- móðir, Borgarholtsbraut 27, Kópavogi. Eiginmaður hennar var Guðmundur Ólafsson, bókbindari. Hann lést 1999. 50ÁRA afmæli. Á morg-un, mánudaginn 22. janúar, verður fimmtugur Gunnar Ólafsson, yfirvél- stjóri á ms. Goðafossi. Eig- inkona hans er Sólveig G. Guðmundsdóttir. Þau dvelja á Kanaríeyjum á af- mælisdaginn. 50ÁRA afmæli. Fimm-tugur verður þriðjudaginn 23. janúar Hjalti Garðar Lúðvíksson, framkvæmdastjóri, Lang- holtsvegi 53, Reykjavík. Eiginkona hans er Ólafía Jóna Eiríksdóttir, leik- skólakennari. Þau taka á móti gestum á Grand Hót- eli frá kl. 18 á afmælisdag- inn. BRÚÐKAUP. Gefin voru sam- an 20. október sl. í Kópavogskirkju af sr. Eðvarð Ingólfssyni, El- ísabet Guð- mundsdóttir og Ólafur Hjörtur Magnússon, Með þeim á myndinni er sonur þeirra Egill Már Hjart- arson. Heimili þeirra er í Reykjavík. FÉLAG það, sem stend- ur að baki Morgun- blaðinu (Mbl.) og hefur rekið það, nær frá upp- hafi árið 1913, heitir Ár- vakur. Í almennu máli er til lo. árvakur, og haft m.a. um þann, sem snemma vaknar á morgnana. Þeir, sem mynduðu þetta nafnorð eftir lo., létu það fall- beygjast eins og no. ak- ur, þ. e. sem a-stofna orð með stofnlægu r-i, sem helzt í öllum föllum et. og ft.: akur, akur, akri, akurs, ft. akrar, akra, ökrum, akra. Frá Mbl. var greint í Ríkisútvarp- inu ekki alls fyrir löngu og sagt frá rekstri þess og útbreiðslu og þá rætt um félagið, sem á og rekur Mbl., þ.e. Árvakur ehf. Sá sem flutti þennan pistil, virðist halda, að nafn félagsins beygist eins og no. dagur, sem er líka a-stofn, en ekki með stofnlægu r-i: dagur, dag, degi, dags. Í ft. dag- ar o.s.frv. Þess vegna notaði hann tvívegis ef. Árvaks í frásögn sinni. Sú er samt ekki raunin. Nafn fyrirtækisins er í nf. Árvakur, í þf. Árvak- ur, við tölum um Árvak- ur (ekki Árvak), þgf. er Árvakri, hann vinnur hjá Árvakri (alls ekki Ár- vak), og hann er í stjórn Árvakurs (ekki Árvaks). Hér má svo bæta við no. faraldur, sem beygist eins; þf. faraldur, þgf. faraldri, ef. faraldurs. Læknar munu tala um faraldursfræði, ekki far- aldsfræði. Á sama hátt beygist t. d. no. otur, ot- ur, otri, oturs. í ft. otrar, otra, otrum, otra. - J.A.J. ORÐABÓKIN Árvakur Námskeið á vorönn hefjast í vikunni BRIDSSKÓLINN Byrjendanámskeið: Á byrjendanámskeiði Bridsskólans er ekki gert ráð fyrir neinni kunnáttu og ekki er nauðsynlegt að hafa með sér spilafélaga. Það er fólk á öllum aldri og af báðum kynjum sem sækir skólann. Láttu slag standa! Tíu þriðjudagskvöld frá kl. 20-23. Framhaldsnámskeið: Standard-sagnkerfið verður skoðað í smáatriðum, en auk þess verður mikil áhersla lögð á varnarsamstarfið og spilamennsku sagnhafa. Ný bók, Nútíma brids, eftir Guð- mund Pál Arnarson, verður lögð til grundvallar. Kjörið fyrir þá sem vilja tileinka sér nútímalegar aðferðir og taka stórstígum framförum. Ekki er nauðsynlegt að hafa með sér spilafélaga. Tíu fimmtudagskvöld frá kl. 20-23. Öll kennslugögn fylgja báðum námskeiðum Nánari upplýsingar og innritun í síma 564 4247 milli kl. 13 og 18 virka daga. Bæði námskeiðin eru haldin í húsnæði Bridssambands Íslands, Þönglabakka 1 í Mjódd, þriðju hæð.                           Byrjendur: Hefst þriðjudaginn 23. janúar Framhald: Hefst fimmtudaginn 25. janúar Þvagfæraskurðlæknir Hef opnað læknastofu í Læknastöðinni, Álfheimum 74, Glæsibæ. Tímapantanir í síma 568 6311 alla virka daga frá kl. 9.00-17.00. Baldvin Þ. Kristjánsson, sérfræðingur í þvagfæraskurðlækningum og almennum skurðlækningum. Verslunin GLUGGINN er til sölu Upplýsingar í síma 899 7854. Hjá SvönuOpið mán.–föst. frá kl. 10–18 laugard. frá kl. 10–18 ÚTSALA ENN MEIRI VERÐLÆKKUN Kvenfataverslun, Garðatorgi 7, Garðabæ, sími 565 9996. STAÐAN Kom upp á Hastings- mótinu er lauk fyrir skömmu. Hvítt hafði hinn ungi armenski stórmeist- ari Levon Aronjan (2551) gegn enska kollega sínum Jim Plaskett (2525). 33.Bxd5! Kc7 biskupinn er friðhelgur þar sem eftir 33...cxd5 34.Rb3+ verður hvítur skiptamuni yfir. 34.Bxc6! Rd6 enn var biskupinn friðhelgur þar sem eftir 34...Kxc6 35.Rb3+ Kb6 36.Rxa5 Kxa5 37.Hc5+ verður hvítur aftur skipta- muni yfir. 35.Bxa4! löngu og ströngu ferðalagi biskupsins er lokið og eru þrjú peð uppskera erfiðisins. Það þarf ekki að fjölyrða um það að það var kappnóg til að stýra skákinni til farsælla lykta. Framhaldið varð: 35...Kd8 36.Hc3 g5 37.Bc2 Bxc2 38.Hxc2 Ha7 39.Re6+ Ke7 40.Rxg5 Kf6 41.Rf3 Kf5 42.Kf2 Kf4 43.Rd2 Ha4 44.Rb3 Ha8 45.Rc5 og svartur gafst upp saddur lífdaga. 7. umferð Skákþings Reykjavíkur fer fram kl. 14.00 sunnudaginn 21. janúar í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni 12. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake VATNSBERI Afmælisbarn dagsins: Þú ert miðpunktur athygl- innar og hrókur alls fagn- aðar en þarft að gæta þess að ganga ekki of nærri vinum þínum. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú þarft að skipuleggja tím- ann þinn miklu betur en þú gerir nú þar sem þú kemst ekki yfir þá hluti sem þér ber að vinna. Láttu ekki ókunn- uga rugla þig í ríminu. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þótt þú haldir annað ertu gæddur nægum innri styrk til að takast á við þau verk- efni sem menn vilja fela þér. Þú getur því óhræddur tekið þau að þér. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Það getur oft reynst erfiðara en virðist í fljótu bragði að laga hluti sem hafa verið látnir dankast lengi. Láttu samt slag standa. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Það eru margir metnaðar- fullir menn í kringum þig og þú mátt varast að verða ekki í vegi fyrir einhverjum þeirra. Þú þarft að sýna mikla lagni til þess að fá frið með þitt. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þótt það sé ekki alltaf skemmtilegt að hlusta á skoðanir annarra má oft læra ýmislegt af þeim. Það er svo margt hægt að lesa út úr fari fólks og tali. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú hefur lagt hart að þér að undanförnu og ert þú að upp- skera laun erfiðis þíns. Njóttu þeirra og láttu þau lyfta þér áfram til nýrra átaka. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Það er ekkert við því að segja þótt ekki gangi allir hlutir upp eins og til er ætlast. Þetta á ekki að draga úr þér kjarkinn heldur kenna þér. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Gefðu þér tíma til þess að kynna þér nýju starfsáætl- unina sem þú átt að vinna eftir. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það er engin ástæða fyrir þig til þess að vera að væla yfir hlutunum. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Varastu að taka of mikla áhættu í starfi því þótt sjálf- sagt sé að vera óragur við nýjungar þá er líka hægt að taka svo stór skref að maður detti niður í milli. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Vísaðu fólki kurteislega frá þér þegar þér finnst það vera orðið yfirþyrmandi. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú þarft að sjá til þess að þú fáir einhverja stund milli stríða því ef þú heldur svona áfram þá endar þetta bara með því að þú gengur fram af þér. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynning- ar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudagsblað. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.