Vísir - 17.02.1979, Síða 23

Vísir - 17.02.1979, Síða 23
VÍSIR Laugardagur 17. febrúar 1979 23 © Private Practice Dr. Feeigeocl Hliómplata vikunnar p o c ab þessu sinni heitir „Private Practice” og er breska hljómsveitin Dr. Feelgood skrifuð fyrir henni. Dr. Feelgood, sem skipuð er Lee Brilleaux söngvara og munnhörpuleikara, Gypie Mayo gitarleikara, John B. Sparks bassaleikara og Big Figure Martin trqmmuleikara, var stoínuð árið' 1971 I Canway Is- land, Essex, sem er smábær byggður i kringum oliu- hreinsunarstöð við mynni Thamesár. Þeir félagar héldu strax til London á klúbbamarkaðinn og 1975 eftir að hafa vakið athygli pressunnarogeignast sæmilega stóran aðdáendahóp, skrifuðu þeir undir samning viö hljóm- plötufyrirtækið United Artists. Siðan hefur vegur þeirra vaxið D R Umsjón: Páll Pálsson jafnt og þétt og nú eru þeir i fyrsta skipti komnir á topp breska vinsældalistans með lagið, „Milk And Alcohol”, sem er eftir Gypie Mayo gitarleikara og nýbylgjurokkarann fræga Nick Lowe. Þetta lag er einmitt tekið af nýjustu plötunni, „Private Practice”. A henni erunlu lög til viðbótar ogeru þau flesteftir Doctorana, en fleiri koma við söga t.d. á Micky Jupp (sem er einn af uppáhaldsmúsiköntum minum þessa dagana) eitt lag, „Down AtThe Doctorfe” og Eddie Floyd á lagið „Things Get Better” svo eitthvað sé nefnt. Tónlist Dr. Feelgood er rokk- aður blús einsog hann tiökaðist i fyrri hálfleik siðasta áratugs, en með nýbylgjuáhrifum.t.d. er greinilegur Stranglerstaktur i laginu „Every Kind Of Vice”. Micky Jupp-linan er þó sterkust i tónlist Dr. Feelgood, enda hlutu þeir sitt tónlistaruppeldi i Southend þarsem Micky Jupp er æðsti prestur. Það má loks geta þess að Dr. Feelgood þykja sérdeilis góðir á hljómleikum. Ég nefni hér á öðrum stað i blaðinu i dag, að Elvis Costello og Ian Dury sé jafnvel væntanlegir hingað til lands i sumar, en ég veit lika aö Dr. Feelgood hafa sýnt mikinn hug á aö koma hingað og spila. Það bendir þvi allt til þess aö nýbylgjurokkarar sæki okkur frónara heim á þessu ári. En hverjir það akkúrat verða veit nú enginn, vandi er um slikt að spa. En eitt er vist að það verð- ur ákaflega gaman þá. - PP © A SIHMNUDAGSKVOLDIM 1T f rm ^ Bjóddu sjálfum pér (. . . og ástvini pínum, ef pú ert B i llllfc l»nl lil JÍJP^jplllF % í pannig skapi) út aö boröa á matstofuna „A nœstu grösumli á sunnudagskvöld. _ Viö bjóöumpá upp á óvenjulegt (óvenju gott!) MATSTOFAN / Laugavegi 42 kalt borö fyrir aöeins 2000 kr. ogpú (piö) boröar (boröiö) eins ogpig (ykkur) lystir. „ÁNÆSTUGRÖSUM”/ 3.hæó ÍSLENSK HÚSGÖGN FYRIR ÍSLENSK HEIMILI SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.