Vísir - 30.04.1979, Blaðsíða 4

Vísir - 30.04.1979, Blaðsíða 4
VISIR Mánudagur 30. aprll 1979 FLUGLEIÐIR: DISHEYLAHD OG ABRIR DRAUMAR Það er langt til Ameriku, ekki sist ef menn ætla alla leið til Miami. En þótt ótrú- legt kunni að virðast er ekkert dýrara að fara þangað til þriggja vikna sumarleyfis- dvalar en að fara til okkar hefðbundnu sólarlanda i Evrópu. Þegar tekiö er með í reikning- inn að öll herbergi eru ioftkaeld, með baði, kæliskáp, sima og litasjónvarpi, verður lanö hnetubóndans brosmilda ennþó girnilegra. Aö sjálfsögðu er hægt að fá ibúðir lika og þær eru ekki siður búnar. Amerikuferðirnar eru , eins og allir vita, framlag Flugleiða til þeirra sem leita sér sumar- sólar. Félagið var um árabil að- eins með Kanarieyjar og vann íslendingum raunar fótfestu þar, en svo var fariö úti tilraun til að laða Islendinga til Miami, á Florida. Sú tilraun hefur heppnast með ágætum vel og amerikuförum fjölgar stöðugt. Leikvöllur Það má með nokkrum sanni segja að Amerikanar hafi fund- ið upp skemmtanabransann. Enda er áreiðanlega leit að stað sem hefur upp á jafn=>mikið að bjóða og Miami. Floridaskaginn er raunar eins og hann leggur sig paradis fyrir ferðamenn, kannske væji rétt- ara að segja að hann sé risastór leikvöllur fyrir börn og full- orðna. Þar er bókstaflega allt sem menn geta imyndað sér að hægt sé að gera sér til skemmtunar. Og þegar imyndunaraflið er þrotið er enn heilmikið eftir sem menn hefðu EKKI getað imynd- að sér. Hinir augljósu staðir til að heimsækja, Kennedyhöfðk og Disneyland, gætu dugað tveim til þrem löndum sem feröa- mannaseiðar. Þeir eru aðeins iitill hluti af Florida. Það er heldur ekkert erfitt að ferðast um þessa paradis. Fiest allir íslendingar tala ágæta ensku, og töluvert margir amerikanar, þannig að tungu- Mikki Mús býr i Disneylandi, eins og allir vita. málaerfiðleikarnir ættu ekki að I vera ófyrirstiganlegir. iThorshavn og Paris Flugleiðir eru ekki með aðrar sólarlandaferðir, en hinsvegar ferja þær fólk á allskonar skemmtilega staði i heiminum. Þar má nefna Færeyjar, Grænland og Paris, sem ekki liggja enná i alfaraleið islenskra ferðamanna. Þá er einnig orðið nokkuð um að fólk bregði sér til New York i skemmtiferð. Sú heims- borg hefur upp á flest það að bjóða sem snertir tónlist, mynd- list og aðrar listir, að meðtalinni matarlyst þvi þar eru margir frábærir veitingastaðir. Mörg- um íslendingum hrýs llklega hugur viö að heimsækja svona risaborg, telja vist að þeir verði þar eins og krækiber i helvlti og eigi sér eins mikla möguleika til j a6 lifa þetta af. Kunnugir segja hinsvegár að I New York sé besta borg I heimi, að London meðtalinni (en ekki Reykjavik) og það þurfi ekki lengi að dvelja þar til að j sannfærast. Og liklega verður ekki hægt | að afsanna það — nema með| vettvangskönnun. —ÓT. Þú byrjar ferðina í GEVAFOTO! Myndavélarnar i Gevafoto eru af öllum stærðum, gerðum og verð- flokkum. En eitt er þeim sameigin- legt — þærkunna sitt fag. Góðar og fallegar ferðamyndir eru tryggðar með myndavélum frá Gevafoto og framköllun á sama stað! Fyrsta flokks þjónusta og ráðleggingar sérfræðings á staðnum. Það er nauðsynlegt að taka myndavélina með i ferðalagið — en ekki er lakara ef sjónauki er lika meðferðis. Þeir eru til i miklu úr- vali hjá Gevafoto og með nútima tækni og japanskri fjöldafram- leiðslu hefur verðið náðst ótrúlega langt niður. Sjónaukar frá Denkar og Konica gera ferðalagið enn skemmtilegra. JÆu s t u rs t rœt i 6 S\ 'nu 22955 Pálmatré, sól og sandur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.