Vísir - 30.04.1979, Síða 11
VISIR Mánudagur 30. april 1979
10
25 gerðir linsa.
Mótor, sem knyr áfram
filmuna.
Alsjálfvirkt flash.
Dagsetningarstimpil a
f ilmuna.
Austurstræti 7, s: 10966.
TAKTU DROTTNINGU
DRAUMA ÞINNA MED í FRÍIÐ
Aldrei áður hefur ný myndavélartegund valdið slíku fjaðrafoki sem
Cauon^HHQ,
j landi teekninnar, Þýskalandi, var hún valin MYNDAVÉl ÁRSINS
A STar is Born....Æl
NEWSWEEK kallar hana stór-
kostlegasta tækniundur i sögu
myndavélarinnar.
. BUSINESS WEEK kallar hana
tímamótasprengju og valda
gjaldþroti fjölda keppinauta.
Canon býður upp á
ÓTAL MÖGULEIKA:
f-, ....... er rafeindastýrö
^anon SLR myndavéi,
ÆÍE-ÍL
sem svo sannar-
lega gerir OLLUM
kleift að taka frábærar myndir.
FERÐASLYSA-
TRYGGINGAR
MEÐ EÐA ÁN
SJÚKRA-
KOSTNAÐAR
sxzy/
*ArDvP$>
líftfmígingafélagið
AIND\ÁKA
Gagnkvæmt vátryggingafélag
Liftryggingar. sjúkra- og slysatryggingar
Ármúla 3 Reykjavík Simi 38500
Auglýsið í Yísi
Paltna aö kvöldlagi.
„SUNNA SER UM
FERBIR.__"
Sunna og Mallorca
fara saman i hugum
margra þeirra sem ár
eftir ár heimsækja
þessa paradis á jörð-
inni. Það eru nú liðin
rúm tuttugu ár siðan
Guðni Þórðarson gekk
þar á land með sinn
fyrsta farþegahóp og
skrifsfofan á þar orðið
annað heimili, með
fjölskylduvinum og til-
heyrandi.
„Gamlir” farþegar muna til
dæmis áreiðanlega eftir honum
Villa, einum innfæddu fjöl-
skyldumeðlimanna, sem var
reddari á heimsmælikvarða og
leysti óteljandi vandamál.
Meðal annarra fjölskylduvina
má telja Los Valdemosa sem
hafa skemmt fleiri en Mallorca-
förum, þvi þeir hafa oftar en
einusinni komið hingað til ísa-
lands til að sjá hvernig hinn
helmingurinn af fjölskyldunni
hefst við.
Þeir sem eru að nálgast
miðjan aldur mun sjálfsagt eftir
að fyrstu árin voru Valdemosa
sóttir heim á Tagomago.
Nú eru þeir búnir að opna
eigin stað sem heitir Jack el
Negro. Og sunnugestir eru þar
jafnan fjölmennir. Hinum megin
við „Fischersundið” sem
Klúbbur þeirra stendur við er
svo „Riki’s’,'sem furðufuglinn
Riki Lash rekur.
Riki er töluverður fjölmiðla-
kall, þvi hann skrifar daglegan
rabbdálk i Majorka-póstinn og
útvarpar beint frá klúbbnum
sinum. Einnig hann tekur
sunnugestum hlýlega og á orðið
marga ágæta vini i þeirra hópi,
enda má sjá ýmsa islenska
minjagripi á veggjum hjá hon-
um.
Drekar og grisir
Eins og við er að búast hefur
Magaluf ströndin. Fremst á myndinni er Ibúöahóteliö Royal Magaluf, sem er mjög vinsælt hjá Sunnu-
farþegum.
VÍSIR
Mánudagur 30. april 1979
n
fram og aftur um eyna til að
skoða það sem þar er merkilegt
að sjá, fyrir utan ströndina, sól-
ina og barina.
Meðal merkra staða má telja
Drekahellanaensúsaga gengur
meðal gamalla Mallorcafara að
um þá hafi verið höfð fleiri og
hástemmdari lýsingarorð en
flesta staði aðra.
Og eins og venjulega er klykkt
út með grisaveislu i Son Amar,
en þar hafa fleiri grisir orðið
tslendingum að bráð en
nokkurs staðar annars staðar.
Aftur i viking
Þótt strandhögg Guðna á
Mallorca hafi verið happasælt
mjög fann hann fljótlega hjá
sér þörf fyrir að leggja meira af
Spáni undir sig. Sunna býður þvi
einnig ferðir til Costa del Sol,
Costa Brava og Kanarieyja.
Einnig þar er úr nægum gisti-
stöðum að velja og þessir staðir
hafa allir sin séreinkenni sem
ferðalangar hafa tekið ástfóstri
við.
Sunna er eina ferðaskrif-
stofan sem heldur uppi ferðum
til Kanarieyja að sumarlagi, en
þær eru fyrst og fremst eftir-
sóttar sem vetrardvalarstaður.
Sumarið er þvi hálfgerð lægð
þar i landi, sem þýðir að hægt er
að komast að mjög góðum kjör-
um. Með þvi að gera langtima-
samning eins og Sunnu (hún er
lika þar með vetrarfarþega)
nást svo enn betri kjör.
Verð á ferðum til Kanarieyja
er þvi mjög hagstætt. Þar við
bætist að börn tiu ára og yngri
fá fria ferð með foreldrum sin-
um sem ekki er svo litill bónus.
Frá Grikklandi: fjárhirsla Aþenubúa.Jfún er nærri jafn illa farin og
sú islenska.
Sunna yfir að ráða fjölbreytileg-
um húsakosti á eynni. Og þar er
að finna nöfn sem þúsundir’
Islendinga kannast vel við. Það
eru ibúðablokkirnar Trianon og
Royal Magaluf og hótel eins og
Antillas, Barbados og Hótel 33.
Eins og venjulega er Sunna
reiðubúin að ferja sina farþega
Risarnir sættast
Grikkland er á góðri leið með
að verða meiriháttar áfanga-
staður sólþyrstra Islendinga og
fáni Sunnu blaktir að sjálfsögðu
þar yfir ströndum. Þau tiðindi
hafa gerst að risarnir I islensk-
um ferðamálum, Sunna og Ot-
sýn, hafa nú grafið striðsöxina
Bellver kastalinn ofan viö Palma.
og hafa samvinnu um flug til
Grikklands og Costa del Sol.
Þessi samvinna var orðin
timabær og verður áreiðanlega
til góðs, bæði fyrir ferðaskrif-
stofurnar og farþega þeirra.
Flugið er dýrasti liðurinn i
sólarlandaferðum héðan frá
íslandi, enda um langan veg að
sækja.
Það er þvi sérlega mikilvægt
að flugvélarnar séu fullskip-
aðar, til að arður fáist af hverju
sæti. Þegar Sunna og Otsýn
leggja saman má búast við
nokkuð góðri sætanýtingu.
Saltfiskmarkaðnum
bjargað
Viðskiptajöfnuður okkar við
Portúgal hefur undanfarin ár
verið okkur svo hagstæður að
Portúgölum hefur þótt meira en
nóg um. Við höfum selt þangað
býsnin öll af saltfiski, en sára-
lítið keypt I staðinn.
Loks hótuðu Portúgalir að
hætta að kaupa okkar góða salt-
físk ef ekki yrði á breyting. Þá
var tekið til við að kaupa þaðan
oliu, skip og fleira.
Sunna leggur sitt af mörk-
unum til að bjarga þessum salt-
fiskmarkaði okkar. Til viðbótar
við saltfisk i tonnatali fá Portú-
galir frá Islandi aðskiljanleg
tonn af íslenskum ferðamönn-
um.
Þessar ferðir hafa gengið vel,
enda Portúgal hið indælasta
ferðamannaland. Sól er þar
mikil og þrálát, verðlagið mjög
skikkanlegt og Ibúarnir elsku-
legir.
Sunna er með tuttugu og
tveggja daga ferðir til Portúgal
frá júnibyrjun og fram yfir
miðjan september.
—ÓT
VERTU MYNDAVÉL ÞINNI GÓÐUR VINUR.
Lærðu vel á hana. Ef langur tími líður á milli myndatöku, er gott
að fara yfir allar stillingarnar. Ein röng stilling getur eyðilagt
margar góðar myndir og um leið minningar.
MYNDAVÉLIN ÞARF EFTIRLIT.
Hafðu ávalt nýja filmu í vélinni, og rafhlöður skal skipta um að
minnsta kosti einu sinni á ári. Snertið aldrei linsuna; hreinsið
allt ryk af henni með linsubursta eða linsupappír.
HAFÐU MYNDAVÉLINA ÁVALLT TILBÚNA.
Skemmtilegt myndefni getur birst mjög skyndilega og þá er
oftast of seint að fara að setja filmu í vélina.
HALTU MYNDAVÉLINNI STÖÐUGRI.
Þar með eykur þú möguleikann á skýrum og óhreyfðum
myndum. Óstöðug myndavél er aðalorsök óskýrra og hreyfðra
mynda. Þrýstu hægt á afsmellarann.
HALTU MYNDAVÉLINNI VEL UPP AÐ AUGANU.
Taktu þér tíma, ef hægt er, til að skoða myndskurðinn. Ef til vill
væri betra að krjúpa á kné, eða standa uppi á stein, til að fá
eitthvað, eða losna við úr forgrunni.
EIN MYND SEGIR MIKIÐ, MARGAR MYNDIR SEGJA MEIRA.
Sparaðu því ekki filmuna, góð mynd er ómetanleg. Reyndu að
gera myndaseríu, slík sería segir miklu meira en ein mynd.
ÞÚ SKALT MYNDA FÓLK.
Þegar það er upptekið af einhverju, þá verða myndirnar eðli-
legri og líflegri. Fólk þarf ekki endilega alltaf að horfa í vélina.
EINFALDAR VÉLAR ÞURFA MIKIÐ LJÓS.
En það þýðir ekki að það þurfi að vera sólskin. í skýjuðu veðri er
líka hægt að taka góðar myndir. Prófaðu möguleika mynda-
vélarinnar — snemma morguns (t.d. landslag) í skugga (t.d.
portrett) eða rigningu.
ALLIR I FJÖLSKYLDUNNI ÞURFA AÐ KUNNA Á
MYNDAVÉLINA.
Gætið þess að ekki vanti myndir af einum fjölskyldumeðlim þ.e.
Ijósmyndaranum í fjölskyldualbúmið, Nýtísku myndavélar eru
auðveldar í notkun.
GÆTIÐ AÐ ENDURKASTI VIÐ LEIFTUR-
LJÓSMYNDATÖKUR.
Takið aldrei myndir með leifturljósi beint á móti glugga eða
myndum með gleri. Þegar leifturljósið er minna en 10—15 cm
frá linsunni, er hætta á að sú persóna sem mynda á, verði með
,,rauð augu“ á myndinni, ef hún horfir beint í myndavélina.
Látið hana því ávallt horfa eitthvað annað.
UMHIRÐA VÉLARINNAR.
Myndavél er flókið og dýrt tæki og ber að meðhöndlast sem
slíkt. Verndaðu vélina gegn hnjaski. Gegn sandi og vatni t.d.
með plastpoka. Gegn hita t.d. í kælitösku og gotf er að hafa
vélina innanklæða í kulda.
MYNDA
FILMUR SKAL GEYMA f KÆLI.
Látið aldrei myndavél eða filmu liggja í hita t.d. í i sólskini.
Farðu með áteknar filmur í framköllun eins fljótt og auðið er.
Ef þú ert ekki ánægð/ur með myndirnar þínar, komdu þá til
okkar og við gefum þér góð ráð og segjum þér til hvað þú hefur
gert rangt.
MYNDA
NOKKUR EINFOLD
LJÓSMYNDUNARRÁÐ
LJOSMYNDAVÖRUVERSLUN
LAUGAVEGI 178 REYKJAVÍK
SÍMI85811