Vísir - 03.04.1979, Blaðsíða 4

Vísir - 03.04.1979, Blaðsíða 4
ÞriOjudagur 3. april 1979. r~f\ ? P t Hinn pólski handknattleiksþjálfari Vfkings, Bodan Kowaldzyk, er ráóinn hjá Víkingi og Armanni fram á haust, en þá vilja Pólverjar fá hann heim aftur. verður Bodan að fara aftur heim? Allt útlit er fyrir að Vikingi muni ganga illa að halda i hinn pólska handknattleiksþjálfara sinn, Bodan Kowaldzyk næsta vetur. Bodan, sem hefur unnið gott verk með Vikingsliöiö frá þvi'aö hann tók viö þvi s.l. haust, hefur að undanförnu fengið hvert bréfið af öðru frá sinu gamla félagi i Póllandi, Slask, þar sem óskað er eftir þvf að hann komi heim og taki við þjálfun þess á ný. Bodan var þjálfari Slask áður en hann fór til Vikings, en félag- inuhefur gengið mjög illa i pólsku deildarkeppnini eftir að hann fór. Var þaö um tima komið i 9. sætiö, en hefur nú aðeins náö sér upp aftur. Það er samt ekki nóg— leik- menn Slask vilja aftur alla leið á toppinn og telja sig ekki geta komist þangaö án hjálpar frá Bodan. Þvi er nú legið i honum aö koma heim aftur, en hvort af þvi verður fæst ekki á hreint fyrr en nú eftir nokkra daga. Bodan er ráðinn sem þjálfari hjá Vikingi fram-á haust. Hann mun i sumar halda handknatt- leiksmönnum félagsins viö efnið, en einnig mun hann þjálfa 3. deildarlið Armanns i knatt- spyrnu. Þangað fær hann raunar einnig nokkra handknattleiks- menn úr Vikingi eins og t.d. þá Pál Björgvinsson, Olaf Jónsson og Erlend Magnússon, sem allir eru mjög liðtækir i knattspyrn- unni þótt svo að handknattleikur- inn sé þeirra aðalgrein... —klp— KR-lngar í basli með flrmenninga -1 Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu en tökst samt aö merja sigur Ármenningar, sem féllu niður i 3. deild i knattspyrnunni, stóðu vel i nýliðunum i 1. deild, KR, i Reykjavikurmótinu i knattspyrnu á Melavellinum í gærkvöldi. KR-ingarnir komust þó útaf sem sigurvegarar i leiknum, en sigurþeirra var ekki nema 2:1, og var það mun minna en menn höfðu búist við fyrirfram. Það var ekki fyrr en 25 minútur voru liðnar af siðari hálfleik, að KR-ingum tókst að koma knettin- umi netið hjá Armenningum — og var heldur litill glans yfir þvi marki þegar það loks kom. Dómari leiksins, Björn Björns- son, hafði þá dæmt aukaspyrnu á Armenninga fyrir utan vitateig þeirra. Voru þeir að möndla við að koma sér fyrir I varnarvegg og markvörður þeirra Finnbjörn Hermannsson var að rölta i markið, þegar Björn gaf merki um að taka mætti spyrnuna. Sig- urður Indriðason þáði þegar gott boð og sendi knöttinn fram hjá „veggnum” og markveröinum, sem horfði á eftir honum i netið á gönguferð sinni i átt að markinu. Armenningar mótmæltu mark- inu ákaft, en Björn gaf sig h vergi og sagöi aö spyrnan hefði verið tekin á réttum stað svo að markiö stæði. Rétt fyrir leikslok skoraði Vil- helm Fredriksen annað mark KR i leiknum og var það snöggtum betra en það fyrra, en besta markið i leiknum skoraöi Ar- menningurinn Bryngeir Torfason — eftir sendingu frá Smára Jósa- fatssyni — á siðustu sekúndu leiksins. Reykjavikurmeistarar KR voru ekkert sérslakir i þessum leik, en trúlega eiga þeir eftir að sýna á sér betri hliðar síðar i sumar. Armenningarnir komu aftur á móti skemmtilega á óvart — börðust vel oggeröu heiðarlega tilraun til að leika knattspyrnu. Hefur hinn pólski handknattleiks- þjálfari Vikings, Bodan Kowald- zyk, sem þjálfar Armann i knatt- spyrnu, sýnilega þegar sett sinn gæðastimpil á liðið og getur orðið gaman að fylgjast með því undir hans stjórn i sumar... — klp — ÞPÓttUP gegn val Þriðji leikurinn I Reykjavikur- mótinu i knattspyrnu verður háð- ur i kvöld, en þá leika á Melavelli tslandsmeistarar Vals og Þrótt- ur. Leikur liðanna hefst kl. 20 og verður leikið I flóðljósum. Þetta er fyrsti leikur liðanna i mótinu, en Valsmenn hafa leikið i meistarakeppninni þar sem þeir sigruðu bikarmeistara Skaga- manna á Akranesi um siðustu helgi. Keppa við Skota i kvöld Það er mikið um að vera hjá körfuknattleiksmönnum okkar þessa dagana, þótt mótin séu yf- irstaðin, enda eru bæði landslið karla og unglinga erlendis i keppnisferðum. Karlaliðiö hélt utan í gær og leikur liöið tvo landsleiki i Skot- landi i kvöld og annað kvöld, og siðan heldur liðið til Danmerkur þar sem leikir við Dani fara fram á föstudag og laugardag. Allir þessir leikir eru vináttuleikir. r UTSOLUMARKAÐURINN í FULLUM GANGI fatabúöin á ugavegi veröur lokuö á meöan vegna breytinga

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.