Vísir - 12.06.1979, Page 14

Vísir - 12.06.1979, Page 14
VÍSIR Þriðjudagur 12. júni 1979 sandkorn Sæmundur GuOvinsson skrifar Skuldin Ttflfróöir menn hafa gaman af þvi að leika ser með töiur og oft verður útkoman ótrúleg þótt sönn sé. F'yrir skömmu kom nýr skuttogari til Ólafsfjarðar og kostaði hann 2,3 milljarða. Miðað við óbreytt ástand i þjóðfélaginu mun kaupandi skipsins skulda yfir 700 miiljarða vegna kaupanna eft- ir 18 ár þótt hann inni af hendi þær afborganir sem samning- ar gera ráð fyrir. Þetta hafa glöggir menn reiknaö út og munu þéir útreikningar miöaðir við óbreytta verðbólgu. „Hermang”? Helgarpósturir.n slær þvi upp að Alþýðuflokkurinn hafi tekið við „hermangsgreiðsl- um" þar sem undirverktakar á Keflavikurflugvelli hafa gef- ið flokknum fé. Ekki veit ég hvort tilgang- urinn með þessum skrifum sé sá að undirstrika sjálfstæði Helgarpóstsins gagnvart Al- þýðuflokki, en þetta eru af- skaplega barnalegar „upp- ljóstranir”. A sama hátt má segja að öll fyrirtæki sem hafa átt einhver viðskipti við her- inn eða Aðalverktaka hafi borgað stjórnmálaflokkunum með „hermangspeningum” þegar þau kaupa happdrættis- miða flokkanna. Þar eru allir flokkar undir sömu sök seldir. Skemmtunin sem brást Reykviskar hljómsveitir fara gjarnan f landsreisur yfir sumarmánuðina og hefur þá viljað brenna við að sumar þeirra álfti að allt sé hægt að bjóða utanbæjarmönnum. i Akureyrarblaðinu Degi ségir að hljómsveitin Manna- korn hafi ætlað að skemmta Húsvikingum fyrir skömmu, en litið hafi orðið úr hljóð- færaslætti sökum ölvunar flestra hljómsveitarmanna. Voru Húsvíkingar að vonum óhressir með þessa fram- komu. Hins vegar hefði HLH flokkurinn skemmt þar á dög- unum og þar var allt I stakasta lagi. Vlðtal vlð erkíóvlnlnn Ingólfi Margeirssyni hefur tekist að gera Sunnudagsblaö Þjóðviljans mjög gott og er ekki hægt að likja þvi saman hvað þar er meira og betra efni en i sunnudagsblöðum Moggans og Timans. Um siöustu helgi birti Ingólfur viðtal við Styrmi Gunnarsson ritstjóra Morgun- blaösins, en um árabil var Styrmir einn mest hataði maður landsins á siöum Þjóð- viljans. Er hætt við að surnum af gömlu stalinistunum þyki nú fokið I flest skjól þegar birt er viðtal við erkióvininn sjálf- an og það án nokkurra athuga- semda. 14 Umsjón: Edda Andrésdóttir Kyntáknið Carroll Baker: Flúðl Hollywood „Mér likaði aldrei lifið I Holly- wood. Ekki einu sinni heimili mitt. Ég átti eina af þessum ekta „sýningarhöllum ” i Beverly Hills. Þar var allt hvitt. Hvitir veggir, hvit teppi, hvitar viðar- hurðir, annað hvort hvitt hvert sem maöur leit, eða gler. Þetta var eins og að búa á vitlausra- spítala.” Carroll Baker heitir leikkonan sem þetta segir og mun sjálfsagt mörgum kunn, enda eitt af kyn- táknum kvikmyndaborgarinnar á sinum tima. Og hún heldur áfram að tala um húsið sitt: „1 hvert skipti sem ég þurfti að hvilastfannst mér ekkert hægt að fara nema i sundlaugina. Og það er ómögulegt að vera i sólinni i marga klukkutima. En inni i hús- inu fann ég engan stað þar sem mér gat liðið vel. Þeir sem komu til min voru yfir sig hrifnir og höfðu á orði hversu dýrt þetta glæsilega hús hlyti að vera. Fyrir mér var það martröð.” Hún varð stjarna eftir hlutverk sitt i Baby Doll, en kyntákn var hún og i hlutverkum i samræmi við það vildu framleiðendur hafa hana. Hún Iék meðal annars i The Big Country, The Miracle með Roger Moore, The Carpetbagg- ers, Harlow og Sylvia. Hún bað um að fá hlutverk I How The West Was Won og Cheyenne Autumn, og segir að hún hafi aldrei verið hamingjusamari i Hollywood en þegar hún lék i þeim. A árinu 1968 ákvað hún að yfirgefa Hollywood og fara til Evrópu. ,,Ég hafði unnið stans- laust i fjögur ár.Börnin min tvö, sem voru átta og niu ára, höfðu litið haft af mér að segja, en þurftu á mér að halda. Mér fannst ég hreinlega ekki mannleg leng- ur. Ég var að týna sjálfri mér I vinnu, og átti aðeins fri á sunnu- dögum. Hjónaband mitt var að fara út um þúfur. Ég tengdist málaferlum ogég fann að ég varð að komast útúr þessu. Ég varð að flýja”. „Tækifáérið gafst þegar mér var boðið á kvikmyndahátið i Feneyjum. Þar hitti ég italska leikstjórann Marco Ferreri sem gerði Le Grand Boeuf, og hann bauð mér hlutverk I stórkostlegri kvikmynd sem hét L’Harem.” „Ég fann það þegar ég kom aftur til Ameriku að hugsana- háttur ítala átti betur við mig, „Dagurinn i dag skiptir máli. Morgundagurinn sér um sig.” Ég skildi við manninn minn og fór með börnin tvö til Italiu.” Carroll viðurkennir þó að Hollywood hafi breyst og sé betri i dag en áður. Samt kærir hún sig ekki um að vera þar. Hún býr til skiptis i Englandi, Róm og New York. Hún segir það hafa komið fyrir oftar en einu sinni að langa til aö að segja skilið við kvikmynda- leik. „En þá alltieinu er manni boðið hlutverk sem er virkilega þess virði að þiggja það, eins og i The World Is Full Of Married Men, og þá fyllist maður vinnu- gleði á ný”. il, * Carroll Baker I hlutverki sinu I The World is Full of Married Men. c miDSYIflKJUN 8UÐURLAND8BRAUT 14 REYKJAVÍK UTBOÐ Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í byggingu steinsteyptra starfsmannahúsa og mötuneytis við Hrauneyjafossvirkjun. Miðast verkið við afhendingu á húsunum í haust/tilbúnum undir tréverk. útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkjunar að Háaleitisbraut 68, 108 Reykjavík, frá og með miðvikudeginum 13. júní 1979 aðtelja og kostar eintakið kr. 10.000,-. Tilboðsfrestur er til 29. júní 1979, en þá verða tilboðin opnuð kl. 14:00 í skrifstofu fyrirtækis- ins. Reykjavík 12. júní 1979 LANDSVIRKJUN Lausar stöður. Kennarastöður við Fjölbrautaskólann á Akranesi eru lausar til umsóknar. Kennslugreinar sem um er að ræöa eru: Stærðfræði, eðlis- og efnafræði, danska, franska, sér- greinar á heilbrigðissviði og sérgreinar á tréiðnabrautum. Æskilegt er að kennarar geti kennt fleiri námsgreinar en eina. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 5. júli nk. Sérstök umsókn- areyðublöð fást i ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 7. júni 1979. FREEPORTKLUBBURINN / TILEFNI HHJMSÓKNAR Systur Peggy og systur Mary Ann 14-22 júní, hefur verið ákveðið að bjóða þeim til hádegis- verðar að Hótel Valhöll, Þingvöllum strax eft- ir AA fund að morgni sunnudags 17. júní. Lagt verður af stað frá AA-húsinu við Tjarnargötu strax að loknum fundinum og haldið beint á Þingvöll. Þeir sem hefðu áhuga á að borða með systrunum á Þingvöllum láti skrá sig i sima 82399 (Skrifstofa SÁÁ) fyrir miðviku- daqskvöld 13/679. Freeportklúbburinn Lausar stöður. Kennarastöður við Fjölbrautaskóla Suðurnesja i Kefla- vik eru lausar til umsóknar. Kennslugreinar sem um er að ræða eru: Islenska, erlend mál, félagsfræði, stærðfræði og sérgreinaF á uppeldisbraut. Æskilegt er að kennarar geti kennt fleiri námsgreinar en eina. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 5. júli nk. Sérstök umsókn- areyðublöð fást i ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 7. júni 1979. Rörsteypan hf. Framtíðarstarf óskum eftir að ráða starfskraft til verk- smiðjustarfa. Uppl. hjá verkstjóra. Rörsteypan hf., Fífuhvammsvegi, Kópavogi, sími 40560 og 40930. Lausar stöður. Við Flensborgarskólann i Hafnarfirði, fjölbrautaskóla, eru lausar til umsóknar tvær kennarastöður, önnur I heimilisfræðum (1/2 staða) og hin i trésmiði (1/2 staða). Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf skulu hafa borist menntamáíaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 3. júli nk. — Umsóknar- eyðublöð fást i ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 8. júni 1979. l

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.