Vísir - 12.06.1979, Síða 16
VÍSIR
Þriðjudagur 12. júnl 1979
Um'ijón:
Sigurveig
Jónsdáttir
M VERA TRIIR UPPRUHA SINUM
Sýnlng Kára Eirlkssonar að KlarvalsstODum 26. mai til 17. iúni 1979
Þaö er greinilegt að við Is-
lendingar erum verðbólguþjóð,
slíkt er fjárfestingaræði okkar.
Gott dæmi um þetta er sýning
Kára Eirikssonar að Kjarvals-
stööum, aðeins 6 myndir af 71
vorueftirer ég leit inn á sýning-
una á laugardaginn. Ef til vill
hefur það ráðið einhverju
myndlist
um þessa miklu sölu hve
myndirnar falla vel að islensk-
um innbúum.
En allt um það þá er þessi
sýning Kára býsna kraftmikil
og vel þess virði að hún sé
skoðuð. Það sem einkum ein-
kennir verk Kára Eirikssonar
eru grannar, þykktábornar lita-
linur sem rjúfa á ofsafenginn
hátt þunntáborinn ljóðrænan
bakflöt. Þessi stfll Kára er um
margt einstæður og gerir hann
að sérstæðum og mjög eftir-
tektarverðum fulltrúa islenskr-
ar myndlistar. Að visu minnir
litaspilið i myndum Kára dálítið
Mynd nr. 11 — Heysáta.
á aöferðir vissra erlendra mál-
ara svo sem Hans Hartung, en
samt eru litirnir og sá innri ofei
sem liggur að baki linuspils
Kára sprottinn úr íslensku um-
hverfi.hluti af islenskri skynjun.
Enginn nema Vestfirðingur
myndi beita sliku linuspili af
jafn mikilli djörfung. Enda seg-
ir Kári I viðtali við Morgun-
blaðið þann 7. júni ,,Ég er Dýr-
firðingur — sprottinn úr dýr-
firskum jarðvegi, þaðan hef ég
allt mitt... þaðan er uppruni
minn. Sá er illa settur sem ekki
þekkir sinn uppruna”.
Vissulega er Kári trúr sinum
uppruna,hann hefur vafalaust
legið I grasi eins og önnur
sveitabörn og séð heiminn gegn-
um stráin. En hann er lika trúr
sinnisamtiö oghefursem slikur
vafalaust skroppið til Malljorka
og annarra álika staða sem
landinn leitar sólar. Bera
nokkrar mynda hans merki um
suðræn áhrif, t.d. mynd 21,Sef,
ljóðræn mild mynd, en Kári
hefureinnig orðið fyrir áhrifum
af götumálverkum sem seld eru
túristum.
Af allt öðrum toga er t.d.
Mynd nr. 21 — Vlsismyndir: JA
mynd ellefu, Heysáta, sem mér
finnst einna skemmtilegust á
sýningunni.þar beitir Kári lín-
unum sem sjálfstæðu afli en
ekkieingöngu sem mótvægi við
bakgrunn. Þessi mynd talar
nýrri tungu i myndgerð Kára,
hann hefur þarna gefið sig á
vald linunni. Hefur tekið stökkið
inn í heim linunnar og hann
hefur einnig náð sambandi við
þann lit sem er einna vandmeð-
farnastur, lit grassins. Það
borgar sig að vera trúr uppruna
sinum. Fremur en velmáluðum
veggjum borgaranna. Hiö fyrr-
nefnda gefur frið i sálina, hið
siðarnefnda aura i pyngjuna.
Aö visu er það allrar þakkar
verter menn leitast viö að lifga
upp á hibýli samborgara sinna.
En þegar slik gleði snýst I
sjálfumgleði: „Ég hef þá
skoðun að til að halda sýningu
sem þessa þurfi maður að vera
meira en góður. Maður þarf aö
vera eitthvað annaö. — Hvaö?
Þaö vitum við ekki”. Picasso
var vanur að segja að hann
kynni ekki að mála. Ja.mikill er
nú munurinn á honum og Kára
Eirikssyni.
Lýst eitir skeggi
„Við erum komnir með 50
manns á skrá, en viö þurfum að fá/
álíka stóran hóp til viðbótar”,
sagði Troels Bendtsen i samtali
við VIsi, en hann er einn þeirra
sem undirbúa kvikmyndun
Paradisarheimtar.
Við kvikmyndatökuna á Þing-
völlum, sem á að fara fram siðast
i þessum mánuði, eiga að koma
fram um 100 statistar og verða
þeir allir að vera meö skegg, þvi
meira þvi betra. Sérstaklega
skortir á að eldri menn hafi gefiö
sig fram. Þeir, sem áhuga hafa,
geta komið i Armúla 7, milli kl. 4
og 5 á daginn til myndatöku.
Kvikmyndun Paradisarheimtar
er þegar hafin, m.a. i Þýskalandi,
en um næstu helgi verða allir
komnir hingað til lands, sem
vinna við kvikmyndina. Þá mun
vinnan hér fyrst hefjast fyrir al-
vöru. _sj
Teikningar eftir breska myndlistamanninn Miles Parnell eru til sýnis
þessa dagana A næstu grösum, Laugavegi 42.
Miles Parnell er auglýsingateiknari að mennt og hefur hann dvalist
hér á landi slðustu þrjú árin. Slðast hélt hann einkasýningu á verkum
sinum i Galleri Sólon tslandus sumarið 1977.
Sýning Miles Á næstu grösum stendur fram til 15. júni.
Gamanleikurinn ,,A sama tlma að ári” hverfur af fjölum Þjóöleikhúss-
ins i næstu viku. Leikritið hefur þá slegið öll met I aðsókn og verið sýnt
um 130 sinnum. Ekkert gamanleikrit hefur verið sýnt jafn oft I leikhús-
inu. Sýningum fer einnig að fækka á leikriti Guömundar Steinssonar,
Stundarfrið, sem hefur veriö sýnt fyrir fullu húsi I allt vor. Leikritiö
verður sýnt til loka leikársins, 24. júnl. A myndinni eru Bessi Bjarnason
og Margrét Guðmundsdóttir I hlutverkum sinum I ,,A sama tlma að
ári”.
Þursaflokkurinn á góðri stund, t.f.v. Egill, Tómas, Ljósin I bænum halda fyrir eyrun, t.f.v. Gunnar.
Lárus, Asgeir og Þórður. Friðrik, Gunnlaugur, Stefán, Eyþór og Ellen.
Rokkhljðmleikar ársins
í Hðilinni í kvfild
Þursaflokkurlnn. Ljósln l bænum. Magnús &
Jðhann 09 Helgl Pétursson koma fram
Það verður væntanlega enginn svikinn af þvi að fara i Höllina I kvöld
og hlusta á rokktónlist eins og hún gerist best á tslandi. i Höllinni troða
upp tvær af þeim hljómsveitum, sem getið hafa sér best orð að undan-
förnu, Þursaflokkurinn og Ljósin I bænum, en auk þeirra koma fram
Magnús og Jóhann og Helgi Pétursson.kynnir kvöldsinsfmun væntan-
lega taka lagið.
„Þursabit"
Þursaf lokksins
Plata Þursaflokksins heitir
„Þursabit” og hefur einvörðungu
aö geyma frumsamið efni, sem
sett er fram á svipaðan hátt og á
fyrriplötunni, þ.e. undirsterkum
islenskum áhrifum. Þursarnir
héldu blaðamannafund um dag-
inn á svonefndri Þursaflöt við
Elliðavatn og var nýja platan
leikin af segulbandi úti undir ber-
um himni, sem verður að teljast
harla óvenjuleg kynningaraöferð.
Sjálfir vildu þeir sem minnst
um plötuna tala og Egill yfirþurs
gerði aðallega harðindin á 18. öld
að umtalsefni.
Strax eftir hljómleikana i kvöld
pakka liðsmenn hljómsveitarinn-
ar pjönkum sinum saman og árla
I fyrramálið verður stefnan tekin
á Keflavikurflugvöll, þar sem
ætlunin er að stiga um borð i flug-
vél á leið til Los Angeles. Það er
að tilhlutan Jakobs Magnússonar
að Þursarnir halda vestur um
haf, þar sem þeir leika á þjóð-
hátiðarskemmtun landans að
kvöldi 16. júni.
Laugardaginn 23. júni fara
Þursar til frænda vorra I Færeyj-
um og skemmta þeim með söng
og spili i Lærarskúlanum, en að
þvi búnu er Kaupmannahöfn á
dagskrá.
Fálkinn h.f. gefur „Þursabitiö”
út.
Ljósin í bænum
Disco Frisco
Nú er að koma út önnur plata
Ljósanna i bænum og nefnist hún
Disco Frisco eftir samnefndu
lagi. Ljósin hafa tekið miklum
breytingum frá fyrri plötunni og
eru aðeins þrir meðlimir eftir af
upprunalegu Ljósunum, Stefán S.
Stefánsson, Ellen Kristjánsdóttir
og Gunnar Hrafnsson. Nýju með-
limir Ljósanna eru Friðrik Karls-
son gitarleikari, Eyþór Gunnars-
son hljómborðsleikari og Gunn-
laugur Briem trommuleikari.
Nýja platan tók um 200 tima i
stúdiói en upptöku stjórnaði
Gunnar Þórðarson og er þetta
fyrsta verkefnið þar sem Gunnar
sér eingöngu um upptökustjórn
(production). 011 lög og textar eru
eftir Stefán S. Stefánsson en auk
Ljósanna syngur Jóhann Helga-
son (áður Eiriksson) nokkur lög
og við sögu koma einnig nokkrir
stúdiókarlar.
„Platan hefur ekki neinn bein-
an boðskap að flytja”, sagði
Stefán S. i samtali við Visi, „en
hún ber fyrst og fremst vott um
lifsgleði og lifsvilja”.
Eftir hljómleikana i kvöld ætla
Ljósin i bænum að geta I fótspor
HLH-flokksins og gera viðreist
um landið. Hljómsveitin hyggst
gera hlé á störfum sinum i júli, en
byrja aftur i ágúst og seinni hluta
ársins er hugmyndin að herja á
skólafólk.
Steinar hf. gefur út Disco
Frisco.
—Gsal