Morgunblaðið - 13.07.2001, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Eldsnöggar skíðakonur/C4
Logi hugar að atvinnu-
mennsku/C1
8 SÍÐUR Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
4 SÍÐUR
Þjóðdansa-
félag Reykja-
víkur mun
hafa í nógu að
snúast í næstu
viku, en þá
verður það í
gestgjafa-
hlutverkinu
þegar norræna þjóðdansa- og
þjóðlagamótið BARNLEK 2001
verður haldið í Grafarvogi. Mótið
er fyrir börn á aldrinum 8-16 ára,
og er von á yfir 2.200 þátttak-
endum af öllum Norðurlöndunum
og einnig frá Hjaltlandseyjum.
Eitt af stefnumálum Þjóðdansa-
félagsins er að varðveita íslenska
þjóðbúninginn og hvetja til meiri
notkunar hans meðal almennings.
Félagið á nokkurt
magn af íslenskum
þjóðbúningum og rek-
ur búningaleigu en þar
hefur að vonum verið
mikið að gera vegna
undirbúnings fyrir
þessa miklu hátíð. Helga Þór-
um“, segir Helga og hlær við.
Hún telur að þó nokkuð sé um ís-
lenska búninga í einkaeign, en
því miður séu þeir alltof sjaldan
notaðir. Til marks um almenna
eign nefnir hún að eingöngu 23
kvenbúningar hafi farið í útleigu
hjá sér fyrir peysufatadaga
Kvennaskólans og Verslunarskól-
ans síðastliðið vor, en þær sem
báru íslenska búninginn þessa
daga hafi þó skipt mörgum tug-
um.
Að sögn Helgu hefur það færst
í vöxt að fermingarstúlkur skarti
íslenskum búningi á ferming-
ardaginn, og kyrtilbúningurinn sé
oft leigður fyrir brúðkaup — og
þá í hvítu, að sjálfsögðu.
Margar gerðir íslenskra bún-
inga eru í eigu Þjóð-
dansafélags Reykjavík-
ur, svo sem upphlutir,
peysuföt, skautbún-
ingar, kyrtlar og fald-
búningar.
En hvers konar bún-
ingum munu íslensku drengirnir Morgunblaðið/Billi
Þjóðbúningar
til á börn
frá fjögurra
ára aldri
&Hefðir börn búningar
Sérblöð í dag
PÓSTHÚSSTRÆTI við Aust-
urvöll er í endurnýjun þessa
dagana, líkt og aðrar götur í
miðborginni, þar sem jarð-
vegsskipti standa yfir með
aðstoð stórvirkra vinnuvéla.
Strætið verður síðan hellu-
lagt og snjóbræðslurör lögð
þar undir.
Ístak er verktakinn og sam-
kvæmt áætlun á strætið að
vera tilbúið með haustinu. Á
meðan verða gestir Hótel
Borgar sem annarra fyr-
irtækja á þessu svæði að not-
ast við tvo jafnfljóta og
geyma ökutæki sín annars
staðar, séu þau á annað borð
til staðar.
Pósthús-
stræti
endur-
nýjað
Morgunblaðið/Jim Smart
ATKVÆÐAGREIÐSLA fór fram í gær um
kjarasamning sjúkrahúslækna sem gerður var
rétt fyrir síðustu mánaðamót og var hann sam-
þykktur með miklum meirihluta. Um er að ræða
framlengingu á fyrri samningi sjúkrahúslækna
og gildir hann frá 1. júní síðastliðnum til 1.
febrúar 2002. Að sögn Ingunnar Vilhjálmsdóttur,
formanns samninganefndar sjúkrahúslækna,
tóku rúmlega 40% þeirra sem hafa atkvæðisrétt
þátt í átkvæðagreiðslunni og af þeim samþykktu
um 80% samninginn.
Ingunn segir að ýmislegt sé í deiglunni varð-
andi kjaramál sjúkrahúslækna og þær hugmynd-
ir sem uppi eru þarfnist frekari tíma til skoð-
unar. Því hafi ekki annað komið til greina en að
gera skammtímasamning að svo stöddu og með
því hafi báðir samningsaðilar verið að kaupa sér
tíma.
„Við höfum haft ákveðnar hugmyndir um
hvernig eigi að byggja upp laun lækna á sjúkra-
húsum. Ríkið hefur ekki talið sér fært að verða
við þeim óskum og við teljum að það þurfi lengri
tíma til að vinna í þeim málum. Heilbrigðisráðu-
neytið er einnig með í gangi ýmsar hugmyndir
um launauppbyggingu lækna. Þar af leiðandi var
ekki grundvöllur til að ganga frá langtímasamn-
ingi að svo stöddu,“ segir Ingunn.
Sjúkrahúslæknar samþykkja kjarasamning með miklum meirihluta
Framlenging á eldri
samningi til bráðabirgða
ÍSLENDINGURINN, sem var
handtekinn á Waterloo-stöðinni í
London með amfetamín 2. júní sl.,
hefur verið dæmdur í fimm mánaða
fangelsi í Bretlandi fyrir fíkniefna-
smygl. Helmingur refsitímans er
skilorðsbundinn.
Samkvæmt upplýsingum frá
bresku tollgæslunni vó amfetamínið
679 grömm þegar það hafði verið
þurrkað. Þegar Morgunblaðið
greindi fyrst frá handtöku mannsins
var magnið sagt 1,1 kíló. Upplýs-
ingafulltrúi bresku tollgæslunnar
sagði að þegar efnið var vigtað
skömmu eftir handtöku mannsins
hafi það enn verið í umbúðum auk
þess sem það hafi verið rakt. Þetta
gæti útskýrt mismuninn á þyngdar-
tölum.
Söluverðmæti í Bretlandi
er um ein milljón íslenskar kr.
Amfetamínið reyndist rýrt að
gæðum en styrkleiki þess var 10%.
Yfirleitt er það amfetamín sem gert
er upptækt í Bretlandi 40–60% að
styrkleika. Söluverðmæti efnisins í
Bretlandi er um ein milljón íslenskar
krónur en maðurinn kvaðst hafa
keypt það á um 475 þúsund krónur í
Amsterdam.
Maðurinn, sem er 23 ára gamall,
var handtekinn þegar hann kom til
Bretlands um Ermarsundsgöngin
frá Brussel. Hann lýsti sig sekan við
réttarhöld 18. júní. Samkvæmt upp-
lýsingum frá bresku tollgæslunni
hefur maðurinn þegar hafið afplán-
un. Mælt var með að honum yrði vís-
að úr landi.
Handtekinn í Bretlandi
með amfetamín
Dæmdur
í fimm
mánaða
fangelsi
♦ ♦ ♦
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karl-
manni sem réðst á móður sína hinn 4.
júlí sl. og veitti henni 10 sentímetra
langan skurð á háls með skærum.
Í úrskurði Héraðsdóms Reykjavík-
ur kemur fram að hætta sé talin á því
að hann haldi áfram líkamsárásum og
að nánustu ættingjar óttist að hann
leggi á ný til atlögu gangi hann laus.
Maðurinn, sem hefur játað á sig
verknaðinn, var því dæmdur í gæslu-
varðhald á grundvelli þess að það sé
nauðsynlegt til að verja aðra fyrir
árásum hans.
Í úrskurðinum er því lýst að mað-
urinn hafi komið heim til sín að kvöld-
lagi. Hann reykti eina hasspípu í hjóla-
geymslu en fór því næst inn í íbúðina.
Þar fór hann inn á baðherbergi þar
sem móðir hans var að skipta á átta
mánaða gamalli dóttur sinni. Hann
kom henni að óvörum, greip um höku
hennar og skar hana með skærunum á
framanverðan hálsinn.
Samkvæmt læknisvottorði náði
skurðurinn á hálsinum rétt inn fyrir
húð auk þess sem móðirin meiddist á
hendi. Geðlæknir lýsti því svo að hann
væri á mörkum þess að teljast sak-
hæfur. Manninum var gert að gang-
ast undir rannsókn á andlegum og lík-
amlegum þroska.
Í haldi til
að tryggja
öryggi
annarra
ALÞJÓÐAHÚS, sem taka á til
starfa í haust, verður í Hafnarstræti
1–3 í Reykjavík takist samningar við
eigendur hússins. Að sögn Snjólaug-
ar Stefánsdóttur, verkefnisstjóra hjá
Reykjavíkurborg, er nú unnið að
ráðningu framkvæmdastjóra.
Bára Snæfeld hjá túlkaþjónustu
Miðstöðvar nýbúa segir að mjög
mikill kostur sé að starfsemi Al-
þjóðahúss verði í miðborginni, vegna
samgangna. Megintilgangur Aþjóða-
húss verður að tengja saman fólk af
ólíkum uppruna og vinna gegn for-
dómum gagnvart útlendingum.
Alþjóðahús í
Hafnarstræti
VERSLUNARMENN bregðast
reiðir við ásökunum landbúnaðarráð-
herra í DV í gær um að tollalækkanir
á grænmeti hafi ekki skilað sér til
neytenda. Finnur Árnason, fram-
kvæmdastjóri Hagkaups, segir að
verð á eggaldini og lauk til verslunar-
innar hafi ekki breyst við tollabreyt-
inguna í júní því vörurnar hafi ekki
borið toll fyrir. „Ég sé ekki betur en
að ráðherra viti ekki hvar tollarnir
voru felldir niður og hvar ekki,“ segir
hann og bætir við: „Við erum ekki
óvanir óvönduðum og illa ígrunduð-
um yfirlýsingum frá Guðna.“ Finnur
segir jafnframt að verð hafi lækkað á
öllum tegundum sem niðurfelling
tolla 15. júní náði til og að verðbreyt-
ingar frá þeim tíma hafi fyrst og
fremst tekið mið af breyttu innkaups-
verði miðað við þróun á markaði
hverrar tegundar fyrir sig.
Einar Þór Sverrisson, fram-
kvæmdastjóri Ávaxtahússins, stað-
festi að rangt hefði verið farið með
um tolla á hótellauk og eggaldini.
„Eggaldin og laukur, þar með talinn
hótellaukur, báru ekki toll fyrir tolla-
breytinguna 15. júní heldur voru á
undanþágu vegna fríverslunarsamn-
ings EES,“ sagði hann og bætti við
það heyrði til undantekninga að
keyptur væri laukur frá löndum utan
Evrópusambandsins.
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra segist í raun bara hafa verið að
bregðast við orðum blaðamanns Dag-
blaðsins. „Það er hneyksli ef það er
rétt sem DV heldur fram að vörurnar
hafi ekki lækkað þrátt fyrir afnám 30
prósenta tolls, en ég vona svo sann-
arlega að þetta sé ekki rétt,“ sagði
Guðni. Hann sagði að farið yrði yfir
þessi mál því ótækt væri að bera
menn röngum sökum. „Komi það í
ljós að fréttin hafi verið röng gleðst
ég því það er óskaplega mikilvægt
þegar ríkið gefur eftir 70 til 100 millj-
ónir í tollum af svona vörum að það
skili sér til neytandans,“ bætti land-
búnaðarráðherra við.
Talsmenn matvöruverslana segjast bornir röngum sökum
Vanir óvönduð-
um yfirlýsingum