Morgunblaðið - 13.07.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
PEDRO Solbes Mira, sem fer með efnahags- og
gjaldmiðilsmál í framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins (ESB), segir að þótt samningaviðræður
við Ísland og Noreg tækju væntanlega skamman
tíma ef þau sæktu um aðild að sambandinu yrðu
þau að bíða jafnlengi og önnur ný aðildarríki eftir
að fá að taka upp evruna, sameiginlegan gjaldmiðil
ESB.
„Það verður að meðhöndla alla umsækjendur
með nákvæmlega sama hætti,“ sagði Solbes á
fundi með blaðamönnum frá EFTA-ríkjunum í
Brussel í gær.
Í stofnsáttmála Evrópusambandsins er kveðið á
um að aðildarríki verði að halda gengi gjaldmiðils
síns stöðugu gagnvart evrunni í tvö ár áður en það
geti orðið aðili að Efnahags- og myntbandalaginu
(EMU). Að auki verða ríki að uppfylla skilyrði um
lítinn fjárlagahalla, lága verðbólgu og vexti til þess
að geta tekið upp evruna. Gert er ráð fyrir að áð-
urnefnd tveggja ára regla gildi gagnvart vænt-
anlegum aðildarríkjum ESB í Austur-Evrópu,
jafnvel þótt sum þeirra, t.d. Eistland, hafi þegar
bundið gengi gjaldmiðilsins við evruna.
Solbes segir að það dugi ekki að gengi gjald-
miðla nýrra aðildarríkja hafi verið stöðugt gagn-
vart evrunni áður en þau gengu inn í sambandið.
Hann viðurkennir að undantekningar hafi verið
gerðar frá tveggja ára reglunni varðandi sum nú-
verandi aðildarríkja, en bendir á að það verði að
horfa á hvernig ríki spjari sig eftir að það fái aðild.
„Gjaldmiðlar sumra ríkja eru nú þegar stöðugir
gagnvart evrunni. Það verður hins vegar að leggja
mat á gengisstöðugleikann eftir að ríkin fá aðild að
ESB,“ segir Solbes.
Spáir hagvaxtar-
aukningu á næsta ári
Framkvæmdastjórinn segir að niðursveiflan í
efnahagslífi ESB á þessu ári hafi verið skarpari en
gert var ráð fyrir. Þá sé verðbólgan talsvert yfir
markmiði Seðlabanka Evrópu, sé nú 3,4% í evru-
ríkjunum en þyrfti að vera 2% eða lægri. „Hins
vegar er ekkert meiriháttar ójafnvægi í efnahags-
lífi ESB og ég geri ráð fyrir að hagvöxtur fari aft-
ur vaxandi á næsta ári,“ segir Solbes.
Framkvæmdastjóri efnahags- og gjaldmiðilsmála í ESB
Tveggja ára stöðugleiki gagnvart
evru forsenda fyrir EMU-aðild
Brussel. Morgunblaðið.
SUMARHÁTÍÐ Vinnuskóla
Reykjavíkur var haldin í sól og
blíðskaparveðri í Laugardal í gær.
Um 1.400 starfsmenn vinnuskólans
á aldrinum 14 til 16 ára tóku þátt í
hátíðinni, sem er árlegur viðburður
í starfi Vinnuskólans.
Ungmennin sem hafa einkum
haft arfaklórur, hrífur og skóflur í
hönd, við störf sín fyrir Vinnuskól-
ann í sumar, nutu þess greinilega
að bregða á leik, fara í snú-snú,
fylgjast með fræknum eldgleypi og
háma í sig þær veitingar sem boðið
var upp á.
Arnfinnur Jónsson, skólastjóri
Vinnuskólans, segir hátíðina hafa
heppnast afar vel, veður hafi verið
með besta móti og almenn gleði
ríkt meðal þátttakenda. Hann seg-
ist afar ánægður með hvernig tókst
til og hversu vel krakkarnir hafi
unað við það sem boðið var upp á.
Starfsmenn Vinnuskólans
léku listir sínar
Ýmislegt var á dagskránni, sem
stóð yfir daglangt. Keppt var í
íþróttum, meðal annars fótbolta og
körfubolta, og kepptu þá flokkar
Vinnuskólans sín á milli. Eins var
boðið upp á ýmiss konar leiki, leik-
tæki og þrautir, auk þess sem sviðs-
vagn var settur upp á svæðinu þar
sem unglingar úr Vinnuskólanum
komu fram og léku listir sínar.
Sýndu þeir meðal annars spuna-
leikrit, dans og léku á hljóðfæri.
Einnig komu fram hljómsveitir auk
þess sem götuleikhús kom í heim-
sókn með eldgleypi í broddi fylk-
ingar. Um framkvæmd hátíðar-
innar sáu flokksstjórar Vinnu-
skólans.
Um 1.400
unglingar
á sumarhá-
tíð Vinnu-
skólans
Morgunblaðið/Billi
ÞORGEIR Pálsson, flugmálastjóri,
segir að í ljósi umræðu um flugör-
yggi á síðasta ári og í ljósi tilmæla
samgönguráðherra verði nýtt skipu-
lag og aukið eftirlit með flugumferð
milli lands og Eyja um komandi
verslunarmannahelgi.
„Það hefur alltaf verið unnið eftir
ákveðinni vinnuáætlun og nú hefur
verið gerð ný slík áætlun. Við höfum
alltaf verið með gríðarlega mikinn
viðbúnað út af þjóðhátíð í Eyjum og
verður hann aukinn núna. Fyrst og
fremst hefur allt skipulag verið yf-
irfarið og mannskapurinn efldur.
Nú fara níu starfsmenn til Eyja á
okkar vegum til viðbótar við þá
fimm sem þar eru fyrir,“ sagði Þor-
geir.
Sérstakt eftirlit með
flugrekstrinum
Þorgeir segir að nú verði, til við-
bótar við hefðbundinn viðbúnað við
stjórnun umferðar, aukið eftirlit
með flugstarfseminni. Auk viðbún-
aðarins í Eyjum segir Þorgeir að
haft verði eftirlit með flugrekstrin-
um af hálfu flugöryggissviðs og seg-
ir hann sérstaka áætlun hafa verið
gerða þar um. „Í fyrra beindist eft-
irlit okkar fyrst og fremst að aðilum
sem ekki höfðu leyfi til flugrekstrar
og verður auðvitað framhald á því.
Auk þess munum við einnig fylgjast
nánar með þeim flugrekendum sem
ætla að stunda flutninga milli lands
og Eyja,“ sagði Þorgeir en sagðist
ekki geta sagt nánar til um hverju
væri helst verið að fylgjast með.
„Það er í höndum eftirlitsaðila okkar
hvernig þeir haga því,“ sagði hann.
Viðbúnaður Flugmálastjórnar vegna verslunarmannahelgar
Starfsmönnum fjölg-
að í Vestmannaeyjum
HJÁ Bifreiðastöð Íslands fengust
þær upplýsingar í gærkvöldi að upp-
selt væri að verða til Eyja um versl-
unarmannahelgina.
Að sögn starfsstúlku BSÍ er upp-
selt í allar ferðir til Eyja á fimmtu-
degi og föstudegi fyrir helgina en
enn eru eftir sæti á miðvikudegi og á
laugardegi. Þá mun þeim fækka óð-
um ferðunum frá Eyjum en örfá sæti
eru laus á mánudeginum.
Hjá Flugfélagi Íslands fengust
þær upplýsingar að enn væru laus
sæti til og frá Eyjum alla dagana en
töluverð ásókn hefði verið í þær og
mikið spurt. Munu margir hafa nýtt
sér þann kost að bóka ferðir á Net-
inu.
Að verða
uppselt
til Eyja
AÐFARANÓTT fimmtudags var
brotist inn á tveimur stöðum í
Reykjavík. Að sögn lögreglu var
brotist inn í kennslustofu á kvenna-
deild Landspítalans og skjávarpa
stolið, en tilkynnt var um innbrotið
um klukkan fimm um nóttina. Þá
barst lögreglu tilkynning um það í
gærmorgun að brotist hafi verið inn í
Snælandsvídeó við Laugaveg og
þaðan stolið peningum og tóbaki.
Lögreglan í Reykjavík segir málin
vera í rannsókn en enn hefur enginn
verið handtekinn vegna þeirra.
Innbrot
í Reykjavík
LÖGREGLAN á Hólmavík stöðvaði
á föstudaginn í síðustu viku akstur
konu um sjötugt en kvartanir höfðu
borist frá ökumönnum um að hún
æki bílnum á öfugum vegarhelm-
ingi. Þannig hefði hún ekið vinstra
megin á veginum í blindbeygjur og
yfir blindhæðir. Konan var ásamt
eiginmanni sínum á leið til Ísafjarð-
ar en lögreglan stöðvaði bílinn
skammt sunnan við Hólmavík. Þeg-
ar lögreglan bað um skýringar á
aksturslaginu svaraði konan því til
að sér þætti þægilegra að aka
vinstra megin.
Lögreglan sagði að akstrinum
mætti líkja við rússneska rúllettu.
Sem betur fer hefði verið frekar lít-
il umferð á móti en talsvert margir
voru hins vegar á norðurleið.
„Þægi-
legra að
aka vinstra
megin“
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦