Morgunblaðið - 13.07.2001, Síða 6

Morgunblaðið - 13.07.2001, Síða 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ sem leiddi til hækkunar Símans á þeim gjöldum sem farsímanotend- ur þurfa að greiða þegar hringt er í þá erlendis eru svokölluð samtengi- gjöld. „Það eru gjöld sem hin erlendu símafyrirtæki taka fyrir að senda símtöl í þeirra kerfi, óháð því hvar sá sem hringir er staddur,“ sagði Heið- rún Jónsdóttir, forstöðumaður upp- lýsinga- og kynningarmála Símans, þegar hún var spurð að því hvort hækkun Símans væri afleiðing af reikisamningum þeirrar gerðar sem Evrópusambandið hefur nú til rann- sóknar vegna gruns um ólöglegt verðsamráð í tengslum við reiki- samninga. Hún sagði að samtengigjöldin og samningar þar að lútandi séu til komin vegna tekjuskiptingar á símtölum sem fara í gegnum fleiri en eitt símkerfi, hvort sem þau eru í sama landi eða í fleiri en einu landi. „Þessi samtengigjöld hafa þekkst í langan tíma en það sem hefur hins vegar verið að breytast undanfarna mánuði eru gjöld vegna millilanda- símtala sem enda í farsíma og hafa gjöld vegna þeirra símtala hækkað verulega undanfarna mánuði og sem leiddi til þess að Síminn varð að fylgja í kjölfarið og hækka umrædd símgjöld í farsíma til 17 Evrópu- landa. Til að koma til móts við við- skiptavini okkar lækkuðum við verð á símtölum í aðra síma en farsíma.“ Rannsókn ESB snertir eingöngu ferðamenn Heiðrún sagði jafnframt að þeir reikisamningar sem Evrópusam- bandið er nú að rannsaka snerti ein- göngu þá sem „reika“, þ.e. ferða- menn, en samtengigjöldin snerti hins vegar alla sem hringja á milli landa. „Í reikisamningum er verið að greiða fyrir afnot af farsímakerfi við- komandi farsímafyrirtækis erlendis. Þannig að ef viðskiptavinir Símans fara með GSM-símann sinn til Evr- ópu tengjast þeir erlendu kerfi og Síminn þarf að greiða fyrir þau afnot án tillits til þess hvert viðkomandi hringir.“ Bandaríska sjónvarpsstöðin CNN greindi frá því að gjöldin samkvæmt reikisamningum væru allt að tíu sinnum hærri í Evrópu en í Banda- ríkjunum. Spurð hvort það væri reynsla Sím- ans sagði Heiðrún að svo væri ekki. „Þvert á móti er almennt töluvert ódýrara fyrir viðskiptavini okkar að „reika“ í Evrópu en í Bandaríkjunum vegna þess flokks sem Ísland er sett í. Þar með er þó ekki sagt að sama gildi t.d. um Bretland eða Frakk- land.“ Ódýrara fyrir Íslendinga að „reika“ í Evrópu en í Bandaríkjunum Evrópusambandið rannsakar reikisamninga SKIPULAGSSTOFNUN hefur frestað uppkvaðningu úrskurðar um mat á umhverfisáhrifum Kára- hnjúkavirkjunar sem kveða átti upp í dag. Þóroddur Þóroddsson, sér- fræðingur hjá Skipulagsstofnun, segir frestinn til kominn af því að Landsvirkjun, framkvæmdaraðili virkjunarinnar, hafi tekið sér lengri tíma en ætlað var til að svara um- sögnum og athugasemdum sem bor- ist hafa vegna fyrirhugaðra fram- kvæmda. Hann segir úrskurðar að vænta skömmu fyrir mánaðamót. Þóroddur segir fjölda og umfang athugasemda hafa verið óvenjumik- ið. „Tæplega 400 athugasemdir bár- ust frá bæði einstaklingum og félagasamtökum. Megnið frá ein- staklingum,“ sagði hann og bætti við að þarna væri fólk að notfæra sér rétt sinn. „Þetta er auðvitað stórmál sem hefur fengið mikla um- fjöllun og góða kynningu þannig að margir hafa sýnt því mikinn áhuga og kynnt sér gögnin vel,“ bætti hann við. Skipulagsstofnun frestar úrskurði um Kárahnjúkavirkjun Óvenjumargar athugasemdir þar sem þeir væru mun öryggari hér en þar og gætu leikið sér meira úti. „Við erum bara búnir að labba um bæinn og gefa öndunum brauð. Bara eitthvað skemmtilegt,“ segir Pálmi. Inntur eftir því hvað sé skemmtilegast að gera í sólinni á sumrin sagði Pálmi það vera að leika sér í sandkassanum heima. Vinkonurnar Þóra Sumar- liðadóttir og Valgerður Ingólfs- dóttir voru að leita að kaffi og kök- um eins og þær komust að orði í Austurstrætinu. „Það er hvergi hægt að setjast niður, það er allt fullt,“ segir Þóra. Báðar eru þær búsettar á Flórída á veturna og koma til Íslands á sumrin. Að- spurðar hvers vegna þær væru ekki í sólinni á Flórída sögðu þær að þar væri alltof heitt um þetta leyti eða í kringum 35 stiga hiti. „Ef maður fer út í póstkassa á þessum árstíma bít- ur hitinn í kinnarnar,“ segir Val- gerður og bætir við að veðrið í borginni sé yndislegt, það sé hægt að anda. Þær sögðu skemmtilegast við að rölta um miðbæinn vera að skoða mannlífið og kanna hvort þær rækjust ekki á einhvern sem þær þekktu. GÓÐA veðrið lék við borgarbúa sem og aðra í höfuðborginni í gær og skein sól í heiði. Gatnafram- kvæmdirnar í Pósthússtræti virtust ekki hafa truflandi áhrif á nær- stadda og var Austurvöllur iðandi af lífi. Það var alveg sama í hvaða átt var litið, alls staðar var að finna léttklætt fólk með bros á vör. Meðal þeirra sem voru að sleikja sólkinið í grasinu á Austurvelli voru Ragnheiður Gunnarsdóttir ásamt rúmlega sex mánaða syni sínum, Degi, og Karen Axelsdóttir ásamt sjö vikna syni sínum, Tryggva. Þeg- ar blaðamann og ljósmyndara bar að garði voru mæðurnar með syni sína á brjósti en hinn sjö vikna gamli Tryggvi var í fyrsta skipti að sleikja sólina. Aðspurðar hvað þær væru búnar að gera það sem af væri góðvirð- isdeginum sögðust þær hafa notið þess að vera í sólinni á Austurvelli, þær hefðu gengið niður Laugaveg- inn og skoðað útsölurnar og kíkt inn á Kaffi París og fengið sér hressingu. Inntar eftir því hvort þær hefðu keypt eitthvað var svar- ið: „Ekki ennþá.“ Alfreð Rafn Ingólfsson lá í sólbaði í grasinu á Austurvelli og þar sem hann var með sólgleraugu var blaðamaður ekki viss um hvort hann væri sofandi eður ei. Það kom á daginn að hann var glaðvakandi og sagðist í raun vera að bíða eftir að komast í verkamannavinnu sem hann átti von á á allra næstu dög- um. Á meðan sagðist hann ætla að njóta þess til hins ýtrasta að slaka á í sólinni. „Ég er bara búinn að taka það mjög rólega í dag. Ég fékk mér svaladrykk og síðan er ég bara að slaka á í sólinni.“ Fjárfesti í sól- gleraugum á útsölu Á einum af mörgum bekkjum á Austurvelli sat Sunna Jóhanns- dóttir en hún kvaðst vera í sum- arfríi og vera að njóta lífsins ásamt vinkonu sinni. „Við fengum okkur ís og þá höfum við bara verið að rölta í bænum og skoða í búðir.“ Aðspurð hvort hún hefði keypti sér eitthvað sagðist hún hafa fjárfest í sólgler- augunum sem hún var með á nefinu. Það hefði hún gert í Skarthúsinu. Sunna er búsett í miðbænum og sagðist gera mikið af því, þegar hún væri í sumarfríi, að rölta um miðbæ- inn í sólinni með tvíburadætrum sínum og vinkonum. Aðspurð hvað hún væri búin að skipuleggja það sem eftir væri sumarfrísins sagðist hún ætla að ferðast innanlands, áfangastaðurinn var hins vegar ekki ákveðinn, hún kvaðs ætla að elta góða veðrið. Eins og jafnan á sólríkum dögum þyrstir marga í ís og á Ingólfstorgi sátu bræðurnir Pálmi, 9 ára, og Jas- on, 7 ára, íbyggnir á svip. Bræð- urnir tala bæði íslensku og ensku en þeir hafa bæði íslenskan og banda- rískan ríkisborgarrétt. Þeir voru ánægðir með ísinn og aðspurðir sögðust þeir taka sumarið á Íslandi fram yfir sumarið í Bandaríkjunum Miðbærinn heillar á sólskinsdegi Alfreð Rafn Ingólfsson Sunna Jóhannsdóttir Þóra Sumarliðadóttir, t.v., og Valgerður Ingólfsdóttir. Morgunblaðið/Jim Smart Karen Axelsdóttir ásamt Tryggva syni sínum, t.v., og Ragnheiður Gunnarsdóttir ásamt Degi syni sínum. Bræðurnir Jason, t.v., og Pálmi. Upplag Morgunblaðsins Tæp 55 þús. ein- tök seld á dag SAMKVÆMT nýjum tölum frá Upp- lagseftirliti Verslunarráðs Íslands var meðaltalssala á Morgunblaðinu á dag 54.963 eintök hvern mánuð á fyrri helmingi þessa árs. Á sama tíma árið 2000 var meðaltalssalan 55.528 eintök á dag. Morgunblaðið er eina dagblað- ið sem nýtir sér þjónustu Upplagseft- irlits Verslunarráðs, en það annast eftirlit og staðfestingu upplags prent- miðla fyrir þá útgefendur sem þess óska. Trúnaðarmaður eftirlitsins er löggiltur endurskoðandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.