Morgunblaðið - 13.07.2001, Qupperneq 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Farfuglaheimilið í Laugardal
Miklar annir
– líf og fjör
Farfuglaheimilið íLaugardal er starf-rækt allt árið en
miklar annir eru þar yfir
sumarmánuðina.
„Þetta er þó að breyt-
ast, „sumarið“ er að lengj-
ast ef svo má segja, ann-
irnar byrja nú fyrr, strax í
mars og apríl og hætta síð-
ar, eða í nóvember,“ sagði
Sigríður Ólafsdóttir,
rekstrarstjóri umrædds
farfuglaheimilis.
– Hvers vegna er þetta
að breytast?
„Á haustönn og yfir vet-
urinn er núna æ meira um
skólahópa frá Skandinavíu
og Englandi sem koma og
dvelja nokkra daga í senn.
Þá er farfuglaheimilið
hentugur kostur því við
bjóðum aðstöðu til að hóparnir
geti séð um sig sjálfir í matargerð
og með fundaaðstöðu. Við ætlum
raunar að bjóða meiri fræðslu og
tækifæri til funda fyrir alla –
einnig Íslendinga. Á vorin erum
við að fá gesti í tengslum við Go-
flugið, sem er ódýrt flug frá Eng-
landi. Meira er um fólk sem
stansar hér á leið sinni frá Evr-
ópu til Ameríku. Ég hef og orðið
vör við aukinn áhuga fólks á að
dvelja hér í Reykjavík í nokkra
daga.“
– Hafið þið húsakost fyrir stóra
hópa?
„Í vor var farfuglaheimilið á
Sundlaugavegi 34 stækkað þann-
ig að nú getum við tekið á móti
allt að 196 manns í einu í 40 her-
bergjum. Meiri hlutinn, eða 28
herbergi, eru með baði. Herberg-
in hýsa tvo og allt upp í sex gesti.“
– Er það einhver sérstakur
hópur fólks sem kemur til ykkar?
„Þetta er að vísu mislitur hópur
en á það sammerkt að vera á hött-
unum eftir einfaldri og ódýrri
gistingu. Þetta er fólk á öllum
aldri, alls staðar að og ég verð að
segja að gestirnir okkar eru ein-
staklega þægilegt og jákvætt
fólk. Þetta er fólk sem leggur
meira upp úr upplifun og nátt-
úruskoðun og vill eyða peningun-
um sínum fremur í ferðina sem
slíka en lúxus í aðbúnaði. Ég hitti
um daginn hollenskan mann um
þrítugt sem tvisvar hafði farið til
útlanda og í bæði skiptin hafði
hann notað tækifærið og ferðast
til Íslands. Þetta er dýrt ferðalag
en með því móti að nota okkar að-
stöðu réð hann við það peninga-
lega að ferðast til þeirra staða á
Íslandi sem fólk almennt fer að
sjá þegar það heimsækir landið.“
– Hvaða þjónustu veitið þið?
„Auk gistingar bjóðum við
tækifæri til að kynnast öðru fólk
inni á farfuglaheimilinu þar sem
við erum með aðstöðu til að elda
og þar matreiðir fólk fyrir sig hlið
við hlið. Þótt við séum með fjöl-
skylduherbergi getur fólk einnig
valið að deilda herbergi með
ókunnugum í fimm og sex manna
herbergjum. Oft myndast þá
mjög skemmtileg tengsl. Við er-
um einnig með þvotta-
aðstöðu fyrir gesti og
þessa dagana erum við
að setja upp nettengd-
ar tölvur.“
– Er þetta farfugla-
heimili hluti af keðju?
„Já, við erum hluti af stærstu
gistihúsakeðju í heimi, Hostelling
International, sem á hlut í yfir
4000 farfuglaheimilum í rösklega
sextíu löndum. Við fáum því mjög
víðtæka og góða kynningu út á við
og státum af því að vera í lykilað-
stöðu í þessari keðju, staðsett hér
í Reykjavík, stórt heimili og norð-
arlega á hnettinum.“
– Rekið þið líka tjaldstæði?
„Já, við rekum tjaldstæðið í
Laugardal yfir sumartímann. Þar
gistir skemmtileg flóra ferða-
manna yfir hásumartímann.“
– Hvaða þjónustu fær fólk þar?
„Þjónustan kemur flestum
þægilega á óvart. Þar er móttak-
an opin allan sólarhringinn. Fólk
getur þvegið þvottinn sinn, þar
eru sturtur og eldhús, grill og
hjólaleiga. Auk þess fær fólk allar
upplýsingar sem það þarfnast um
Ísland.“
– Eruð þið með ferðir út á land?
„Við skipuleggjum ekki sjálf
neinar ferðir ennþá en erum með
upplýsingagjöf og sölu á kynnis-
ferðum ýmissa fyrirtækja.“
– Eruð þið með einhverja mat-
sölu?
„Við bjóðum morgunverðar-
hlaðborð en þar sem langt er í
næstu veitingastaði erum við að
velta fyrir okkur möguleikum á
frekari matsölu.“
– Hvað kostar að gista hjá ykk-
ur?
„Allt frá 1400 krónum fyrir ein-
staklinginn – vilji maður deila
herbergi með fjórum til fimm öðr-
um gestum – og upp í 2500 krónur
fyrir manninn í tveggja manna
herbergi með baði. Þetta verð
miðast við félagsmannaverð.
– „Hvað áttu við með því?
„Það er hægt að ganga í Banda-
lag íslenskra farfugla fyrir litlar
1200 krónur fyrir manninn á ári.
Eins geta hjón með börn undir 16
ára aldri fengið fjölskylduskír-
teini. Þetta skírteini
gildir í eitt ár sem af-
sláttarskírteini á öll
4000 heimilin innan
Hostelling-keðjunnar
hvar sem er í heimin-
um. Hjá okkur hér í
Laugardalnum getur fólk fengið
allar upplýsingar um farfugla-
heimili keðjunnar, þar af heimilin
26 sem er að finna víða um Ísland.
Það þarf að bóka hér fyrirfram og
þegar er nær fullbókað fram á
haust. Loks vil ég geta þess að ég
er með frábært starfsfólk hér sem
er tilbúið að svara spurningum og
greiða götu gesta.“
Sigríður Ólafsdóttir
Sigríður Ólafsdóttir fæddist
21. apríl 1969 í Reykjavík. Hún
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1989 og
prófi frá Kennaraháskóla Íslands
1995. Hún starfaði þrjú ár við
menntamálaráðuneytið við end-
urgerð nýrra námsskráa og
kenndi einn vetur við Vesturbæj-
arskólann. Frá febrúar sl. hefur
hún verið rekstrarstjóri Far-
fuglaheimilisins í Laugardal.
Sigríður er í sambúð með Berg-
þóri Haukssyni, eðlis- og tölv-
unarfræðingi hjá OZ, og eiga
þau tvö börn.
„Sumarið“
er að lengjast
og gestum
fjölgar
Því miður, ráðherra, hún fúlsar meira að segja við að nærast á skrúfblýantsnagi,
hún vill bara dollara og pund.