Morgunblaðið - 13.07.2001, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.07.2001, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ FJÖGUR norsk loðnuskip voru tekin innan íslenskrar landhelgi á sunnu- dag grunuð um að hafa brotið lög um landhelgi Íslands. Gylfi Geirsson, forstöðumaður fjarskipta- og upplýs- ingatækni hjá Landhelgisgæslunni, segir að fjölþjóðlegt fjareftirlit sem Íslendingar eru aðilar að hafi átt stóran þátt í þessari aðgerð. Upplýs- ingar um staðsetningu skipanna komu í gegnum gervihnött frá norsk- um yfirvöldum, samkvæmt milli- ríkjasamningi sem hefur verið í gildi í eitt ár. Íslensku varðskipin höfðu nánari afskipti af skipunum þegar grunur vaknaði um að ekki væri þar allt með felldu. Síðustu tvö ár hafa löndin sem eiga aðild að NEAFC (North East Atl- antic Fisheries Commission) átt í samstarfi um fiskveiðieftirlit á Norð- austur-Atlantshafi. Auk Íslands eiga Grænlendingar, Færeyingar, Norð- menn, Pólverjar, Rússar og Evrópu- sambandslöndin þar aðild. Að sögn Gylfa eru löndin misjafnlega langt komin hvað varðar þetta eftirlit. Gylfi segir að Íslendingar séu í fremstu röð hvað þetta eftirlit varðar. Gögnin koma frá yfirvöldum viðkomandi skips Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir að fjar- eftirlitið geri eftirlitið mikið gleggra og skilvirkara. „Við getum séð ná- kvæma staðsetningu skipanna og á hvaða hraða skipið siglir, sem getur gefið vísbendingar um hvort tilefni sé til nánara eftirlits,“ segir Hafsteinn. Hann leggur þó áherslu á að fjareft- irlitið komi ekki í staðinn fyrir raun- verulegt eftirlit. Hafsteinn segir að verulegur sparnaður og hagræðing felist í þessari tækni. Fjareftirlitið virkar þannig, að sögn Gylfa, að skip senda frá sér merki á minnst klukkutíma fresti upp í gervitungl. Þaðan fer merkið til Landhelgisgæslunnar, eða sambæri- legs eftirlitsaðila í því landi sem skip- ið er skráð. Upplýsingarnar eru síðan framsendar, annaðhvort til höfuð- stöðva NEAFC í London ef skipið er á alþjóðlegu hafsvæði, eða þá til þeirrar stofnunar sem sér um eftirlit í þeirri landhelgi sem skipið er í. „Þegar norskt skip fer inn í ís- lenska lögsögu skynjar kerfið í Nor- egi það og sendir sjálfvirkt komu- skeyti til Íslands. Svo sendir kerfið skeyti á minnst tveggja stunda fresti meðan það er innan íslenskrar lögsögu. Svo þegar skipið fer aftur út úr lögsögunni sendir kerfið sjálfvirkt brottfararskeyti og hættir þá að framsenda staðsetningarnar.“ Það sama á að sjálfsögðu við um íslensk skip sem fara yfir í erlenda landhelgi, þá eru gögn send til viðkomandi yf- irvalda frá Landhelgisgæslunni. Samkvæmt ákvæðum í fiskveiði- löggjöfinni verða skip sem stunda veiðar á alþjóðlegu hafsvæði, eða inn- an lögsögu annarra ríkja að hafa þennan búnað um borð. Þau fá ekki útgefið veiðileyfi frá Fiskistofu fyrr en Landhelgisgæslan er búin að lýsa því yfir að skipið sjáist í fjareftirliti. Þegar skipin koma inn í nýja lög- sögu eiga þau að tilkynna hversu mikill afli er um borð, með skeyti sem er nokkurs konar tölvupóstur, að sögn Gylfa. Eftir það eiga skipin að senda daglega skeyti þar sem fram kemur hver heildaraflinn er. Þegar skipið fer úr landhelginni sendir skipstjórinn skeyti um heildaraflann og í gegnum hvaða eftirlitspunkt hann ætli að sigla. Þá er hægt að stöðva skipið og sjá hvort aflinn um borð er í samræmi við það sem var gefið upp. „Þessar upplýsingar fara sjálfvirkt um borð í varðskipin og koma sér vel sem samanburðargögn við rauneftirlit. Þetta er ansi öflugt upplýsingakerfi. Misræmið kemur strax í ljós,“ segir Gylfi. Staðsetningin hárnákvæm Gylfi segir að staðsetningin sé send úr skipunum sjálfum og síðan í gegnum viðkomandi yfirvöld, þannig að gögnin séu í raun og veru ekki frá Landhelgisgæslunni komin. Skipstjórar norsku skipanna þriggja sem voru fluttir til hafnar á Seyðisfirði hafa verið ákærðir um að hafa veitt í íslenskri lögsögu þegar þeir höfðu sagst vera í þeirri græn- lensku. Þeir neituðu sakargiftum í Héraðsdómi Austurlands á miðviku- dag og sögðu að staðsetningartæki þeirra hafi gefið upp að þeir væru í grænlenskri landhelgi. Réttarhöldin munu, að sögn lögmanns Norðmann- anna, snúast um hvort hægt verði að sanna hvort upplýsingarnar úr fjar- eftirlitinu séu óvefengjanlegar. Gylfi segir að skipstjórarnir ættu að sjá sömu staðsetningarhnit um borð og skipin senda frá sér. „Skekkjan er svo lítil, þetta er nánast 100% nákvæmt. Ef skip sem er verið að fylgjast með kemur til hafnar sjáum við t.d. ekki eingöngu hvar skipið er við höfnina, heldur líka hvort það liggur við bryggju eða hvort það sé skip á milli,“ segir Gylfi. Íslenskur hugbúnaður Nú er unnið að því að setja upp sambærilegt fjareftirlitskerfi á vest- urhluta Atlantshafsins, að sögn Gylfa, hjá stofnun sem heitir NAFO (North West Atlantic Fisheries Org- anisation) og er í Halifax í Kanada. „Það er gaman að geta þess að tölvu- kerfin og allur hugbúnaður, sem er notaður hér, í Færeyjum, á höfuð- stöðvum NEAFC í London og sem verið er að setja upp í Kanada er hannaður hér á Íslandi,“ segir hann. Það er íslenska fyrirtækið Stefja sem hannaði búnaðinn og hleypur kostn- aður við hönnun og þróun búnaðarins á tugum milljóna króna, að sögn Gylfa. Íslenskur hugbúnaður hefur eflt fiskveiðieftirlit á Atlantshafi til muna Í fyrsta sinn sem reynir á fjareftirlitskerfið Mál norsku skipstjór- anna sem hafa verið ákærðir fyrir landhelg- isbrot er fyrsta málið sem fer fyrir dómstóla eftir að nýtt fjareft- irlitskerfi var tekið í notkun. Nína Björk Jónsdóttir kynnti sér kerfið. Morgunblaðið/Ásdís Halldór Nellett, yfirmaður gæsluframkvæmda, og Guðni Skúlason varðstjóri. Á tölvuskjánum er hægt að fylgjast með staðsetningu skipa innan íslensku landhelginnar. Í gær mátti sjá hvar þrjú norsk loðnuskip höfðu raðað sér á miðlínuna, en kvóti Norðmanna í íslenskri lögsögu er uppurinn.                             !    " #$%&''       ()   " #$            *+,     *+,     *+,' *-..              /     "'                                                             !   ninabjork@mbl.is HAFSTEINN Hafsteinsson, for- stjóri Landhelgisgæslu Íslands, vill að tilkynningarskylda ís- lenskra skipa verði færð undir Landhelgisgæsluna. Hann telur að þannig væri hægt að auka ör- yggi íslenskra sjómanna og ná fram talsverðri hagræðingu og sparnaði. Í fjareftirlitskerfi sem Land- helgisgæslan hefur notað í tvö ár við fiskveiðieftirlit er hægt að sjá nákvæmlega hvar skip, sem eru búin ákveðnum tækjum, eru stödd. Enn sem komið er hefur kerfið einungis verið notað hér á landi til að uppfylla milliríkja- samninga um fiskveiðieftirlit, en í nágrannalöndunum er byrjað að nota kerfið einnig til eftirlits inn- an lögsögunnar. Öll skip sem stunda veiðar utan íslenskrar lögsögu eru búin þess- um fjareftirlitsbúnaði og vill Haf- steinn að búnaðurinn verði settur í öll íslensk skip. „Með okkar kerfi getum við fundið öll nær- stödd skip, lendi eitthvert skip í vandræðum, og sent þau á stað- inn eins og skot,“ segir hann. Skipin senda frá sér staðsetn- ingarhnit á klukkustundarfresti og eru þessar upplýsingar síðan sendar áfram til tilkynning- arskyldunnar tvisvar á sólar- hring. „Hið raunverulega eftirlit er því hjá okkur,“ segir Haf- steinn. Hagsmunaaðilar hafa tekið hugmyndinni vel Hann segir að þessi hugmynd hafi verið rædd bæði við Sólveigu Pétursdóttur dómsmálaráðherra og Árna M. Mathiesen sjáv- arútvegsráðherra. Sömuleiðis hafi þetta verið rætt við Slysa- varnafélagið Landsbjörgu, sem hefur umsjón með tilkynning- arskyldunni, og Landssamband íslenskra útvegsmanna. Hafsteinn segir að vel hafi ver- ið tekið í þessar hugmyndir og að enginn hafi til þessa viðrað rök fyrir því að halda bæri óbreyttu kerfi. Búnaðurinn sé þegar til staðar og ekki þurfi að leggja í mikinn viðbótarkostnað. Lagabreytingu þyrfti til að færa tilkynningarskylduna til Landhelgisgæslunnar, því í 8. grein laga um tilkynningarskyldu íslenskra skipa segir að Slysa- varnafélag Íslands fari með yfir- stjórn tilkynningarskyldunnar. Tilkynningarskyldan verði færð til Landhelgisgæslu Myndi auka öryggi sjófarenda

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.