Morgunblaðið - 13.07.2001, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 13.07.2001, Qupperneq 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 12 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ AFBROTUM hefur fjölgað verulega á þeim stöðum sem hafa framlengt vínveitinga- og skemmtanaleyfi umfram þá staði sem ekki hafa slíkt leyfi. Almennar ónæðiskvart- anir um helgar eru nú seinna á næturnar en áður en opn- unartími veitingastaða var framlengdur en litlar breyt- ingar hafa orðið í heimilisof- beldismálum. Hins vegar telur lögregla auðveldara að halda uppi al- mannafriði að næturlagi um helgar en áður. Þetta er meðal niðurstaðna í nýrri áfangaskýrslu lögregl- unnar um lengdan opnunar- tíma veitinga- og skemmti- staða, en skýrslan var meðal þeirra gagna er fylgdu skýrslu samstarfshóps um miðborgarmál sem fjallað var um í Morgunblaðinu í gær. Í áfangaskýrslu lögreglu er lagt mat á breytingu á veit- ingatíma áfengis og opnunar- tíma skemmtistaða um helg- ar en um mitt ár 1999 voru reglur þar að lútandi rýmk- aðar og opnunartíminn lengdur. Um var að ræða tilraun til að takast á við þann vanda sem skapaðist við það að fólk þyrptist út af skemmtistöðum í miðborginni á sama tíma þegar veitingastaðirnir lok- uðu klukkan þrjú. Í skýrsl- unni segir að tilraunin hafi einnig átt að gera lögreglu auðveldara að sinna verkefn- um sínum og veita henni tækifæri til að endurskipu- leggja starf sitt í miðborginni um helgar. Aukið hlutfall afbrota á stöðunum Þegar tölur um brotafjölda á veitingastöðunum eru skoð- aðar má sjá þróun í þá átt að tilkynningum um brot hefur fjölgað mun meira á þeim stöðum sem hafa framlengt leyfi en á þeim sem ekki hafa slíkt leyfi. Gildir þetta um flestar tegundir brota, svo sem líkamsárásir, þjófnaði og ölvun á almannafæri. Fyrir breytinguna hafði þróunin verið svipuð á þessu stöðum þó að minna hafi verið um brot, þar sem ekki er fram- lengdur opnunartími í dag, þá sem nú. Í áfangaskýrslunni er einn- ig skoðað hvert hlutfall þess- ara brota inni á skemmtistöð- unum sé af heildarfjölda brota. Skoðaðar eru sérstak- lega tölur sem varða líkams- árásir og kemur í ljós að frá 1999 til 2000 varð nokkuð stökk í hlutfalli líkamsárása sem eiga sér stað á þeim stöðum þar sem opnunartími var framlengdur en hlutfallið er hins vegar nokkuð stöðugt á þeim stöðum sem ekki hafa framlengt leyfi. Á sama tíma fjölgaði líkamsárásum í heild um 5 prósent „þannig að gera má ráð fyrir því að þessi fjölgun í tilkynningum á stöð- um með framlengt leyfi sé ekki eingöngu tilkomin vegna raunverulegrar fjölgunar mála heldur einnig vegna til- færslu mála af heimilum og götum úti inn á staðina,“ eins og segir í skýrslunni. Svipaðar niðurstöður koma í ljós þegar tölur er varða þjófnaði og ölvun á almanna- færi eru skoðaðar en tilkynn- ingum um slík brot fjölgaði á þeim stöðum sem hafa fram- lengt vínveitingarleyfi eftir 1999. Meiri áfengis- og vímu- efnaneysla en áður Í niðurlagi skýrslunnar segir að auðvelt væri að draga þá ályktun að fram- lenging vínveitinga- og skemmtanaleyfa hafi leitt til fjölgunar afbrota í borginni en hafa verði nokkurn fyr- irvara á þeirri ályktun. „Í fyrsta lagi felur lengdur opn- unartími í sér lengda viðveru á þessum stöðum og að sama skapi tilfærslu brota þang- að,“ segir í skýrslunni. Þá eru teknir saman helstu gallar við lengdan afgreiðslu- tíma. Bent er á að neysla áfengis fari lengur fram í miðbænum og líklegt sé að neysla áfengis og hugsan- legra vímuefna sé því meiri en hún var fyrir breytingu. Þá hafa erfiðleikar skapast við gatnahreinsun að morgni helgidaga og að væntingar um fækkun ofbeldisbrota í miðborginni hafa ekki náð fram að ganga. Þegar litið er á kostina hins vegar er bent á að ekki er lengur sama hópsöfnun í miðbænum og vandamál því tengdu og auðveldara sé fyrir lögreglu að halda uppi al- mannafrið. Eins eru ekki sömu vandamál fyrir almenn- ing að fá þjónustu leigubif- reiða og áður var. Loks segir að þar sem þróun afbrota sýni að fjölgun brota verði einkum hjá þeim stöðum sem hafa lengri afgreiðslutíma megi álykta sem svo að hinn almenni borgari verið síður fyrir afbrotum nema hann sæki sérstaklega skemmtanir svo síðla nætur. Bent er á það í skýrslunni að í upphafi tilraunarinnar hafi ekki verið gert ráð fyrir svo miklum fjölda veitinga- staða sem hefðu framlengdan opnunartíma en auðveldara væri að hafa eftirlit með þessum stöðum væru þeir færri. Einn kosturinn í stöð- unni sé að veita ótakmarkað leyfi til klukkan fimm að morgni en slíkt myndi setja skýrari ramma fyrir störf lögreglu þótt viss hætta væri fyrir hendi að það myndi ein- ungis verða til þess að mann- mergð yrði um fimmleytið í bænum í stað klukkan þrjú áður. Nýlega var þó ákveðið í borgarráði að afgreiðslutími skyldi gefinn frjáls til klukk- an hálfsex á morgnana um helgar auk þess sem af- greiðslutími á fimmtudögum var rýmkaður til klukkan tvö á nóttunni. Miðborgarvaktin farin milli kl. fimm og hálfsex Karl Steinar Valsson að- stoðaryfirlögregluþjónn segir að með því að takmarka opn- unartímann til fimm eins og lögreglan lagði til hefði borg- aryfirvöldum gefist tækifæri til að þrífa til í miðborginni eftir næturskemmtanir um helgar áður en fólk er komið á stjá að morgni. „Við hefðum viljað halda þessum tíma vegna þess að miðborgar- vaktin fer á milli klukkan fimm og hálfsex á morgnana úr miðbænum vegna hvíld- arákvæða en borgin varð hins vegar ekki við þessum til- mælum okkar. Við vorum líka andvígir því að hafa opið til klukkan tvö á fimmtudögum og það er líka búið að rýmka alla virka daga um hálftíma til viðbótar sem við teljum ekki að sé til bóta,“ segir hann. En þar sem um tilraun er að ræða, kemur þá ekki til greina að færa afgreiðslutím- ann aftur í gamla horfið? „Við erum reyndar ekki hlynntir því,“ segir Karl Steinar. „Við teljum að það þurfi meira svigrúm, fyrst og fremst til þess að tryggja að fólk kom- ist í burtu og sé ekki fast niðri í miðbæ. Í sjálfu sér teljum við að við getum hald- ið vel utan um ástandið eins og það er núna en þessi mikli samsöfnuður af einstakling- um sem var hér áður var lög- gæslulegt vandamál. Við viljum gera mikið til að lenda ekki í því aftur því meiri líkur eru á því að við lendum í vandræðum með að hafa stjórn á hlutunum þegar mannfjöldinn er svona mik- ill.“ „Bitamunur en ekki fjár“ Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir borgarstjóri segir að með því að lengja afgreiðslutíma veitingastaða til klukkan tvö á fimmtudögum í sumar hefði borgarráð verið að koma til móts við óskir samtaka veit- inga- og gistihúsaeigenda. „Þeir töldu að það skipti miklu máli fyrir ferða- mennskuna í borginni,“ segir hún. „Hitt er kannski bita- munur en ekki fjár hvort opið er til klukkan fimm eða hálf- sex um helgar og ég sé ekki stóran mun á því.“ Hún segir ekki allt sem sýnist varðandi fjölda þeirra veitingastaða sem hafa leyfi til lengri opnunartíma en til klukkan þrjú. „Það eru ekki allir sem eru með opið fram á morgun sem hafa leyfi til þess. Ætli það séu ekki sex staðir sem voru með alveg opið framundir sjö–átta á morgnana. Eins verður lögreglan að hafa í huga að borgaryfirvöld verða að gæta jafnræðis. Þau verða að byggja bæði leyfis- veitingar og synjanir á efnis- legum rökum.“ Áfangaskýrsla lögreglu um lengdan afgreiðslutíma veitinga- og skemmtistaða Afbrotin hafa færst inn á skemmtistaðina    % 00 0   1. 2. 3. ,. -. 4. +. 5. .       5662       5661      5666       +...         0        %7% 1. 2. 3. ,. -. 4. +. 5. . 8%  4. 5666 9      +.: %5666 !     % 00  0   %7%       % 00  +,; +.; 5,; 5.; ,; . 5662 5661 5666 +... +,; +.; 5,; 5.; ,; .        <       Miðborg „Sjáðu okkur, við erum að borða ávexti úti,“ heyrðist frá nokkrum glaðbeittum krökk- um sem sátu og hámuðu í sig safaríkar appelsínur úti í garði á leikskólanum Urðar- hóli í gær. Viðmælandi þeirra var Þórhildur Líndal, um- boðsmaður barna, sem var í heimsókn hjá þeim þennan daginn. Þetta er í fyrsta sinn sem Þórhildur heimsækir leik- skóla með skipulögðum hætti en Urðarhóll var fyrsti skól- inn af sex sem hún hyggst heimsækja þessa dagana. Áð- ur hefur hún farið í heimsókn- ir í grunnskóla og fleiri staði sem börn koma við sögu. „Tilgangurinn með þessum heimsóknum er sá að kynna sér aðbúnað barnanna og að þessu sinni ákvað ég að velja úr tiltekna leikskóla sem hafa einhver yfirlýst markmið úr aðalnámskránni,“ segir Þór- hildur eftir að hafa spjallað við krakkana og skoðað leik- skólann þeirra. „Til dæmis gengur þessi skóli undir nafn- inu heilsuleikskóli sem mér fannst mjög forvitnilegt að kynna mér.“ Tölvur, tjáning og tónlist Áherslur hinna leikskól- anna sem Þórhildur hyggst kynna sér að þessu sinni eru margvíslegar. Einn leggur áherslu á að kenna börnunum á tölvur, annar byggir á Hjallastefnunni, þá ætlar hún að heimsækja Waldorfleik- skóla, leikskóla sem leggur áherslu á tjáningu, vistvænan leikskóla og leikskóla sem er með tónlistarlegt uppeldi. Hún segir afskaplega gef- andi að fara svona út og hitta umbjóðendur sína. „Ég reyni að ræða við þau en það er fyrst og fremst um það hvað þau eru að gera nákvæmlega núna því veröldin er bara dag- urinn í dag hjá þeim. Ein stelpan sagði mér nú samt að hún væri að fara til útlanda og að hún ætti bleikan sundbol og svona,“ segir hún og hlær. Að sögn Þórhildar hefur reynslan frá grunnskólaheim- sóknunum sýnt að þær leiða alltaf af sér ákveðin viðbrögð. „Eftir að ég hef komið til baka á skrifstofuna er haft sam- band og menn bera upp er- indi, bæði börnin, kennarar og foreldrar því í heimsóknunum er börnunum afhentur bækl- ingur þar sem kemur fram hvað ég er að gera og að ég sé að vinna í þeirra málum.“ Foreldrar barna á leikskól- unum fá einnig bækling eftir heimsóknir Þórhildar. „Þar kemur fram hvert er mitt hlutverk, þar er aðeins minnst á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem er mikilvægur grunnur undir þetta starf sem ég er að vinna og þar eru upp- lýsingar um hvernig hægt er að nálgast mig,“ segir Þór- hildur og hnykkir á því að lok- um að fólk eigi ekki að hika við að hafa samband því henn- ar hlutverk sé einmitt að þjóna börnunum. Umboðsmaður barna kynnir sér aðstæður barna á leikskólum Hittir um- bjóðendurna Morgunblaðið/Sigurður Jökull Umboðsmaður barna naut veðurblíðunnar með börnunum á Urðarhóli í gær. Kópavogur STEFNT er að því að halda áfram að leggja malbik á Hringbrautina á mánudag eða þriðjudag eftir nokkurra daga hlé vegna bilunar sem varð í malbikunarstöð á staðnum á miðvikudag. Veður til malbik- unarframkvæmda er þó ekki hagstætt í höfuðborginni þar sem spáð er rigningu frá mánudegi. Beðið er eftir vara- hlutum í malbikunarstöðina erlendis frá, en á meðan er malbikað annars staðar í Reykjavík þar sem ekki er þörf á eins mikilli malbikunar- framleiðslu og við Hringbraut- ina. Borgartúnið var malbikað á miðvikudag og í gær hélt malbikunarflokkur vestur á Tómasarhaga og í Frostaskjól til að leggja slitlag á götur. Það sem af er sumri hafa malbik- unarframkvæmdir gengið vel í höfuðborginni. Hring- braut kláruð eftir helgi Vesturbær

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.