Morgunblaðið - 13.07.2001, Qupperneq 13
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 13
Blaðbera
vantar
• Skerjafjörður
Upplýsingar fást í síma
569 1122
Hjá Morgunblaðinu starfa um 600 blaðberar á
höfuðborgarsvæðinu
ⓦ
vantar
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur
í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig.
Morgunblaðið,
Kaupvangsstræti 1, Akureyri,
sími 461 1600.
í syðri hluta Oddeyrar,
Rimasíðu - Lindasíðu,
Byggðaveg - Ásveg.
skemmta föstudags- og laugardagskvöld
Hljómsveitin
Einn & sjötíu
Opið öll kvöld frá kl. 20. Lokað á mánudögum.
Við Pollinn, Strandgötu 49, Akureyri
FYRSTU ungunum var fyrir fáum
dögum komið fyrir í eldishúsi Ís-
landsfugls í landi Ytra-Holts,
skammt sunnan Dalvíkur. Búist er
við að fyrstu kjúklingar fyrirtækisins
komi á markað um miðjan ágúst.
Í fyrstu atrennu voru um 13 þús-
und ungar settir í einn sjötta hluta
hússins sem er skipt niður í sex bil.
Ungar verða síðan settir í húsið einu
sinni í viku næstu vikurnar. Sam-
kvæmt því verða fuglar komnir í allt
húsið um miðjan ágúst, eða um það
leyti sem byrjað verður að slátra fyr-
stukjúklingunum.
Iðnaðarmenn lögðu nótt við dag
síðustu sólarhringa til þess að
tryggja að unnt yrði að setja fyrstu
ungana inn í húsið í dag – og það
tókst. Auðbjörn Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Íslandsfugls, sagði
þetta mikinn og merkan áfanga í
sögu fyrirtækisins sem gæfi góð fyr-
irheit um framhaldið.
Valgerður Jóhannsdóttir, gæða-
stjóri Íslandsfugls, fylgdist með að
flutningar á ungunum væru eftir
settum heilbrigðisreglum, en fyrir-
tækið hefur sett sér gífurlega strang-
ar sóttvarna- og heilbrigðiskröfur og
það gildir um allt ferlið, frá útung-
unarvélinni í eldishúsið og allan þann
tíma sem fuglinn er í eldi í húsinu.
Síðast en ekki síst verður að sjálf-
sögðu fylgt mjög ströngum reglum
við slátrun og sjálfa kjötvinnsluna.
Tölvustýrður útbúnaður sér til
þess að tryggja alltaf réttan hita í
eldishúsinu, svo og rakastig. Hita-
lagnir í gólfi hússins gera það að
verkum að enn betra verður að
tryggja rétt hitastig. Til að byrja með
er hitastigið haft röskar þrjátíu gráð-
ur.
Eldishús Íslandsfugls í Ytra-Holti
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Magnús Jónasson og Karl Sævaldsson hjá Íslandsfugli með ungana.
Fyrstu ungarnir
komnir í húsið
ÞAÐ voru talsverð viðbrigði fyrir
Norðlendinga að fá norðanátt og
kalsarigningu eftir einmuna veð-
urblíðu sem verið hefur síðustu vik-
ur en þessir krakkar í unglinga-
vinnu Akureyrarbæjar létu veðrið
ekki á sig fá og unnu sér til hita í
miðbæ Akureyrar í skjóli skemmti-
ferðaskipsins. Veðrið hefur á ný
lagast heldur og bíða menn þess
hvernig viðra muni í dag, föstudag,
þegar hundadagar hefjast, en spá-
menn Veðurklúbbnum á Dalvík
telja að veðrið þann dag muni segja
fyrir um framhaldið út hundadag-
ana.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Unnið í skjóli skips
BÆJARRÁÐ Akureyrar heimilaði á
fundi sínum í gær að gengið verði til
viðræðna við austurríska skíðalyftu-
framleiðandann Doppelmayr um
kaup á nýrri stólalyftu sem sett verð-
ur upp í Hlíðarfjalli.
Lyftan verður ein sú fullkomnasta
hér á landi og um leið sú afkasta-
mesta.
Stólalyftan sem fyrir er var sett
upp árið 1967 og hefur Vinnueftirlit
gert athugasemdir við hana og lá fyrir
að hún yrði ekki sett í gang á komandi
vetri án viðamikils viðhalds og end-
urnýjunar. Fyrr í sumar heimilaði
bæjarráð að óskað yrði tilboða í nýjar
lyftur og bárust fjögur.
Eftir ítarlegan samanburð á þeim
þar sem bæði var horft til verðs og af-
kastagetu var samhljóða niðurstaða í
bæjarráði að tilboð Doppelmayr væri
hagstæðast. Sú lyfta er aðeins dýrari
en lægsta tilboðið frá Leitner hljóðaði
uppá, en afkastageta hennar meiri.
Miðað er við að nýja lyftan geti flutt
2000 manns á klukkustund. Gamla
lyftan flutti 450 manns á klukkustund.
Sú nýja yrði fjögurra sæta, um 1.000
metra löng og verður sett upp á sama
stað og sú gamla.
Gert er ráð fyrir að í fljótlega verið
hafist handa við að taka gömlu lyftuna
niður, þá tekur við jarðvegsvinna og
uppsteypa nýrra stöpla. Áætlanir
gera ráð fyrir að lyftan verði sett upp
í október til nóvember og stefnt að því
að hún vinnu við uppsetningu hennar
ljúki um miðjan desember.
Heildarkostnaður við nýju stóla-
lyftuna og uppsetningu hennar er um
160 milljóni króna og greiðir Vetrar-
íþróttamiðstöð Íslands sem ríkið og
Akureyrarbær standa að 55 milljónir
króna og bæjarsjóður Akureyrar það
sem á vantar eða röskar 100 milljónir
króna.
Með tilkomu nýju lyftunnar væntir
Guðmundur Karl Jónsson forstöðu-
maður í Hlíðarfjalli þess að það verði
á ný besta og eftirsóttasta skíðasvæði
landsins, en þessi afkastamikla lyfta
skapar möguleika á að taka við mun
fleiri gestum en áður.
Rætt við Doppelmayr um nýja stólalyftu í Hlíðarfjalli
Afkastagetan um 2.000
manns á klukkustund
Heildarkostnaður
um 160 milljónir
og lyftan tilbúin í
desember
Bókmenntakvöld
í Deiglunni
Endir allra
funda
ENDIR allra funda er yfirskrift
bókmenntakvölds sem haldið verð-
ur í Deiglunni, Kaupvangsstræti á
Akureyri, föstudagskvöldið 13. júlí.
Þorsteinn Gylfason hefur umsjón
með þessu bókmenntakvöldi og sá
um samantekt þess. Flutt verða
kvæði eftir Tómas Guðmundsson og
Magnús Ásgeirsson. Sif Ragnhild-
ardóttir og Michael Jón Clarke
syngja við undirleik Richards
Simm. Aðgangseyrir er 1.000 krón-
ur.
gerð upptæk. Manninum var gert að
greiða allan sakarkostnað. Hann var
ákærður fyrir brot á lögum um lax-
og silungsveiði með því að hafa verið
með tvö ómerkt silunganet í sjó í
Eyjafirði, úti fyrir landi jarðar sinn-
ar án þess að netin væru fest í land.
Veiðieftirlitsmenn komu að netun-
um í byrjun júní í fyrrasumar. Mað-
urinn játaði verknaðinn en neitaði
refsiverðri sök. Vísaði hann til þess
að netin hefðu verið lögð fyrir eigin
landi og hann talið ástæðulaust að
merkja þau. Vegna ágangs fólks um
fjörur lögbýlisins hefði hann ekki
haft þau landföst. Loks véfengdi
hann gildi auglýsingar í Stjórnartíð-
indum frá 1979 um bann við veiði
göngusilungs í net í Eyjafirði frá 15.
maí til 15. ágúst og taldi gildi hennar
tímabundið.
Að mati dómsins höfðu fyrirmæli
framkvæmdavaldhafa um netaveið-
ar í sjó fullnægjandi lagastoð og var
netalögn mannsins í andstöðu við
þau.
BÓNDI í Dalvíkurbyggð hefur í
Héraðsdómi Norðurlands eystra
verið dæmdur til að greiða 20 þús-
und krónur í sekt til ríkissjóðs vegna
brota á lögum um lax- og silungs-
veiði.
Haldi maðurinn almennt skilorð í
tvö ár fellur refsingin niður, en rjúfi
hann skilorðið skal hann sæta 5 daga
fangelsi greiði hann ekki sektina inn-
an fjögurra vikna frá því honum er
tilkynnt um að refsing verði fram-
kvæmd. Þá voru tvö net mannsins
Bóndi sektaður vegna ólög-
legrar netalagnar í sjó
Söguganga
um Innbæinn
og Fjöruna
SÖGUGANGA um Innbæinn og
Fjöruna á vegum Minjasafnsins á
Akureyri verður farin á morgun,
laugardag, 14. júlí, kl. 14.
Þar verður saga bæjarins rakin
út frá þeim húsum sem nú standa
og þeim sem þekkt eru frá fyrri tíð.
Danir settu mark sitt á verslun-
arbæinn Akureyri. Þeir söknuðu
m.a. gróðursins að heiman og hófu
hér trjárækt og matjurtarækt. Upp
úr 1840 fór menningarlíf að taka við
sér á Akureyri og haft er eftir séra
Matthíasi Jochumssyni, sem flutti
til bæjarins 1887, að hér væru þó
bækur og dálítið af „comfort og soc-
iety.“
Leiðsögumaður í skoðunarferð-
inni um gömlu Akureyri er Hörður
Geirsson safnvörður. Þeim sem vilja
kynnast sögu bæjarins frá fyrstu tíð
enn betur er bent á sýninguna Ak-
ureyri – bærinn við Pollinn í Minja-
safninu á Akureyri.
STEFÁN Jónsson myndlistarmaður
á Akureyri vinnur nú að gerð nýstár-
legs listaverks sem sett verður upp í
göngugötunni í Hafnarstræti á Ak-
ureyri.
Um er að ræða stækkun og út-
færslu á verki sem verður einskonar
tilbrigði við eitt frægasta málverk
Íslendinga, Fjallamjólk eftir Jó-
hannes S. Kjarval. Verkið verður um
250 cm að umfangi og 180 cm að hæð
og hefur staðsetning þess verið
ákveðin syðst í göngugötunni, aust-
anmegin eða rétt sunnan við París.
Páll Stefánsson verkefnisstjóri
sagði að Stefán hefði unnið að nokkr-
um hugmyndum í svipuðum dúr, en
hann væri þekktur fyrir að endur-
skapa þekkt listaverk í þrívídd.
„Okkur þótti þetta mögnuð hug-
mynd, en hún er ein sú nýjasta úr
smiðju Stefáns,“ sagði Páll.
Umfangsmiklar breytingar eru
fyrirhugaðar á göngugötunni, sem
m.a. felast í því að umferð bíla verður
leyfð. Verkið hefur verið boðið út og
verða tilboð opnuð í lok júlí en fram-
kvæmdir hefjast 15. ágúst.
Höggmynd sett upp í göngugötunni
Tilbrigði við Fjalla-
mjólk Kjarvals
♦ ♦ ♦