Morgunblaðið - 13.07.2001, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.07.2001, Blaðsíða 17
ÚR VERINU MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 17 TÍMAMÓT urðu í útgerðarsögu Ís- lendinga í vikunni þegar vertíðar- bátarnir níu sem smíðaðir voru í Kína komu til landsins. Íslendingar hafa ekki ráðist í sambærilegt raðsmíðaverkefni frá því að Jap- anstogararnir tíu voru smíðaðir fyrir íslenska útgerðarmenn í upp- hafi 8. áratugarins. Raðsmíðaskipin frá Kína voru hönnuð af skipaverk- fræðistofunni Skipasýn ehf. og er Kristinn Halldórsson, fram- kvæmdastjóri hennar, sannfærður um að framhald verði á skipasmíði fyrir íslenskar útgerðir í Kína. Kristinn segir aðdragandann að smíði skipanna níu ná aftur til árs- ins 1996 en hann var þá á ferð í Kína að kynna sér starfsemi skipa- smíðastöðva þar í landi. Það varð til þess að ári seinna var send fyr- irspurn til Kína vegna smíði á 18 metra löngum báti og til baka kom tilboð frá Limac Company Ltd. sem á skipasmíðastöðina í Dalian í Norður-Kína. „Tilboðið þótti mjög áhugavert og á næstu mánuðum þróuðust málin þannig að ákveðið var að smíða 21,5 metra langa báta. Í upphafi voru þrír til fjórir aðila að velta fyrir sér nýsmíði en þegar yfir lauk voru þeir orðnir níu. Samningurinn var síðan undirrit- aður í apríl 1999.“ Mikill munur á gæðakröfum Við undirritun smíðasamninga var miðað við að bátarnir yrðu af- hentir í september á síðasta ári og hefur afhendingunni seinkað um 8 mánuði. Kristinn segir að allir hafi gert sér ljóst strax í upphafi að kröfur sem íslenskir útgerðarmenn geri til fiskiskipa séu allt aðrar en Kínverjar hafi vanist. „Á móti kom að þeir voru að bjóða töluvert lægra verð en við höfðum áður séð. Þetta bil þurfti síðan að brúa og það hefur kannski valdið töfunum. En miðað við þær væntingar sem við gerðum í upphafi tel ég að allir geti vel við unað, bæði íslensku út- gerðarmennirnir og kínversku skipasmiðirnir.“ Kristinn segir að samskiptin við kínversku skipasmíðastöðina hafi gengið vel, enda Kínverjarnir lagt metnað sinn í að skipin yrðu sem best úr garði gerð. „Auðvitað komu upp ágreiningsmál og menn höfðu á stundum mismunandi skilning á því hvernig gera átti hlutina. En þetta tókst engu að síður vel að lokum.“ Mesti kúfurinn farinn af nýsmíðaöldunni Kristinn segist ekki í vafa um að framhald verði á skipasmíðum fyrir íslenskar útgerðir í Kína, þó hann telji að kúfurinn sé farinn af ný- smíðaöldunni í bili. Hann bendir á að íslenskir útgerðarmenn hafi í gegnum tíðina leitað með nýsmíðar á ódýrari markaði og í dag bjóði Kínverjar hagstæðasta verðið. „Lægra verð kemur hinsvegar allt- af niður á gæðum. Því er ekki að neita að íburðurinn í skipunum frá Kína er ekki eins mikill og hand- bragðið ekki eins vandað og til dæmis í norskum eða íslenskum skipum. Ég er hinsvegar sannfærð- ur um að Íslendingar eiga í aukn- um mæli eftir að leita til Kína með nýsmíðar. Ég á samt sem áður ekki von á því að sami krafturinn verði í nýsmíðum og undanfarin tvö ár. Það kom ákveðinn toppur í nýsmíð- arnar eftir að rúmmetrareglan svo- kallaða var afnumin og menn gátu endurnýjað flotann með eðlilegum hætti og menn höfðu væntingar um að kvótinn yrði aukinn. Ég á hins- vegar ekki von á því að sjá sams- konar kraft á næstu þrem til fjór- um árum, þó væntanlega verði samið um smiði tveggja þriggja skipa á þessu tímabili.“ Kristinn segir að enn sé þörf fyr- ir frekari endurnýjun á íslenska fiskiskipaflotanum, sérstaklega í hinum svokallaða vertíðarbátaflota. Niðursveifla í efnahagslífinu hafi hinsvegar slegið á fjárfestingar í bili. „Við höfum öðlast mjög dýr- mæta reynslu með skipamíðunum í Kína. Kínverjar eru leynt og ljóst að sækja inn á þennan markað og þeir hafa ekki síður öðlast mikla reynslu. Þeir líta á það sem heiður að fá þessi verkefni fyrir Íslend- inga því þeir vita vel hversu fram- arlega við stöndum í fiskveiðum,“ segir Kristinn. Fleiri skip verða smíðuð í Kína Morgunblaðið/Jim Smart Sævar Birgisson, skipatæknifræðingur hjá Skipsýn og Kristinn Hall- dórsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, ánægðir með gang mála. Framkvæmda- stjóri Skipasýnar segir Kínverja bjóða hagstæð- asta verðið Fyrirtækið ICEDAN hefur annast sölu á stærstum hluta öryggisbúnaðar um borð í fjöl- veiðiskipin níu sem komu með þýska flutningaskipinu Wiebke og sjósett hafa verið í Hafn- arfjarðarhöfn á síðustu dögum. Skipin bíða nú haffærnisskír- teina í Hafnarfjarðarhöfn en lokafrágangi skipanna mun ljúka á næstu dögum og er hluti af honum að setja björg- unarbúnað um borð í öll skipin. Fyrirtækið ICEDAN hefur annast sölu á öllum öryggis- búnaði um borð í skipin s.s. björgunarbátum frá VIKING AS í Danmörku og björgunar- vestum frá fyrirtækinu Baltic í Svíþjóð. Einnig sjá þeir skip- unum fyrir slökkvitækjum, blysum, bjarghringjum, bjarg- hringjalínum, línubyssum og bjarghringjaljósum, björgun- argöllum og Markúsarnetinu. Icedan ehf. er eitt af stærstu fyrirtækjum landsins á sviði veiðarfæraþjónustu og er með veiðarfæragerðir á Akureyri, í Þorlákshöfn og í Hafnarfirði, en þar eru framleidd fullbúin veiðarfæri. Höfuðstöðvar fyr- irtækisins eru að Óseyrar- braut í Hafnarfirði en þar er sinnt, ásamt venjulegum skrif- stofustörfum, sölu, inn- og út- flutningi og lagerstjórnun. Einnig er starfrækt dótturfyr- irtæki þeirra, Icedan Canada Inc. í St. John’s á Nýfundna- landi og er það orðið eitt stærsta veiðarfærafyrirtækið á Nýfundnalandi og sér um af- greiðslu á flestum erlendum skipum sem koma til löndunar þar. ICEDAN selur öryggis- búnaðinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.