Morgunblaðið - 13.07.2001, Blaðsíða 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 19
NOKKUR hundruð Búlgarar hafa á
undanförnum vikum komið til Nor-
egs með rútum og hafa þeir látið
heillast af auglýsingum sem birtar
hafa verið í heimalandinu. Þar er
meðal annars sagt að milljón störf
séu laus í Noregi. Talið er að menn
sem standa að auglýsingunum græði
vel á tiltækinu.
Fólkið kemur flest frá smáborg-
inni Ruse á landamærum Búlgaríu og
Rúmeníu og mun einkum vera um
sígauna og Búlgara af tyrkneskum
uppruna að ræða. Þegar komið er á
áfangastað er sótt um pólitískt hæli
en að sögn embættismanna hjá
norska útlendingaeftirlitinu fullnæg-
ir fólkið sjaldan skilyrðum sem sett
eru fyrir því að fá dvalarleyfi.
Talið er að samstarf sé á milli búlg-
arskra milliliða og manna í Noregi
um að lokka fólkið af stað. Lofað er
ókeypis húsnæði og vinnu. Þrír búlg-
arskir rútubílstjórar voru handteknir
í Ósló í gær og sakaðir um smygl á
fólki. Í farartækjum mannanna voru
80 Búlgarar sem allir sóttu um hæli.
Búlgaría hefur samið við Schengen-
löndin um að ekki þurfi vegabréf til
að ferðast á milli landsins og Scheng-
en-svæðisins, rútubílstjórarnir geta
því ekið rakleitt til Ósló og sagt að
þeir séu með ferðamenn í bílnum.
Samþykkt hefur verið áætlun í
norska útlendingaeftirlitinu um að
afgreiða með hraði umsóknirnar.
Margir Búlgaranna hafast nú við í
tjaldbúðum í grennd við Ósló.
Sígaunar lokk-
aðir til Noregs
Ósló. Morgunblaðið.
FRÖNSK yfirvöld höfnuðu í
gær beiðni bandaríska flótta-
mannsins Ira Einhorns um að
ógilda tilskipun um að hann yrði
framseldur til Bandaríkjanna
þar sem hann var dæmdur í lífs-
tíðarfangelsi fyrir að myrða
sambýliskonu sína árið 1977.
Lögfræðingur Einhorns sagði
að hann hefði reynt að fyrirfara
sér með því að skera sig á háls á
heimili sínu eftir að honum var
skýrt frá úrskurðinum. Honum
snerist hins vegar hugur á síð-
ustu stundu og fékk minniháttar
sár á hálsinn, að sögn lögfræð-
ingsins. Í kjölfar sjálfsvígstil-
raunarinnar féllust frönsk yfir-
völd á að fresta framsalinu um
eina viku.
Franskir sjónvarpsmenn,
sem var boðið að taka viðtal við
Einhorn, komu að honum í eld-
húsinu eftir að hann skar sig.
Læknir batt ekki um sárið fyrr
en viðtalinu var lokið.
Einhorn gagnrýndi Lionel
Jospin, forsætisráðherra
Frakklands, fyrir að fallast á
framsalsbeiðni bandarískra yf-
irvalda. „Hann á sök á þessu,“
sagði hann og benti á sárið.
Einhorn flúði frá Bandaríkj-
unum árið 1981, skömmu áður
en hann átti að koma fyrir rétt í
Pennsylvaníu vegna morðsins.
Hann var dæmdur í lífstíðar-
fangelsi árið 1993 í réttarhöld-
um sem fóru fram að honum
fjarstöddum.
Rússnesk lög
um stjórn-
málaflokka
VLADÍMÍR Pútín Rússlands-
forseti undirritaði í gær umdeild
lög sem hann segir verða til þess
að stofnaðir verði nokkrir stórir
flokkar í stað rúmlega 200
stjórnmálahreyfinga sem starfa
nú í landinu. Efri deild þingsins
samþykkti lögin með miklum
meirihluta atkvæða í síðasta
mánuði en áður voru þau sam-
þykkt naumlega í neðri deild-
inni, dúmunni. Kommúnistar,
bandamenn þeirra og þingmenn
Sambands hægriaflanna voru
andvígir lögunum.
Lögin kveða m.a. á um að
flokkar þurfi að hafa að minnsta
kosti 10.000 félaga til að verða
skráðir og a.m.k. hundrað félaga
í hverju héraði.
Sundhættur
í Rússlandi
EFTIR að sumar gekk í garð
um austanverða Evrópu og æ
meira freistandi varð að skella
sér til sunds í ám og vötnum
hafa hundruð manna drukknað
við þá iðju í Rússlandi og Úkr-
aínu. Fjörutíu og fjórir drukkn-
uðu í og við Moskvu í júnímán-
uði og 15 til viðbótar var bjargað
úr „sundháska“, eftir því sem
talsmaður yfirvalda greindi frá.
Munu margir hinna drukknuðu
hafa verið drukknir. Það sem af
er þessu ári hafa 634 drukknað í
ám og vötnum Úkraínu, að sögn
talsmanns Úkraínustjórnar.
STUTT
Einhorn
framseldur
Einhorn eftir sjálfsvígstil-
raunina í gær.
5 690691 200008
27. tbl. 63. árg. 10. júlí, 2001. VERÐ 499 kr. M/VSK.
Lífsreynslusaga * Heilsa * Ferðamál * Matur * Krossgátur
Útlendar
konur
í góðum
störfum
Poppstjörnur
og mömmur þeirra
fyrir
verslunarmannahelgina
Ástfangin
í Seattle
Elfa Gísladóttir
leikkona
Göt um allan kropp
Samdi vinsælasta jarðarfaralagið
Nýtt útlit • betra blað