Morgunblaðið - 13.07.2001, Blaðsíða 22
LISTIR/KVIKMYNDIR
22 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Acidophilus
FRÁ
Apótekin
Fyrir meltinguna og maga
með GMP gæðastimpli
100% nýting/frásog
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
Fríhöfnin
Mörgum sinnum sterkara
LESTUR og spjall verður með
þýska ljóðskáldinu og þýðandanum
Manfred Peter Hein í dag kl. 15 í
stofu 301 í Nýja Garði v/Suðurgötu,
en hann er gestur Þýðingarseturs
Hugvísindastofnunar HÍ. Þar mun
hann lesa ljóð og texta eftir sig sem
að hluta verða þýdd á íslensku.
Manfred Peter Hein hefur verið
búsettur í Finnlandi frá 1958 og hef-
ur gefið út fjölda ljóðabóka og einnig
prósa og mikið af þýðingum úr
finnsku, ljóð, prósa og leikrit.
Lestur og spjall
með ljóðskáldi
Bræðsluminjasafnið Grána kl. 21.
Norrænar ballöður og miðalda-
söngvar. Flytjendur: ALBA, Dan-
mörku Poul Høxbro, flautur og
trommur, Miriam Andersen, söngur
og harpa.
Þjóðlagahátíð
á Siglufirði
FRUMSÝNINGAR
ANIMAL Laugarásbíó, Regnboginn,
Stjörnubíó
BRIDGET JONES DIARIES
Bíóhöllin, Háskólabíó
Memento
Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit: Chri-
stopher Nolan. Aðalleikendur: Guy Pierce,
Carrie-Anne Moss, Joe Pantoliano. Sérlega
áhugaverð, um mann með ekkert skamm-
tímaminni. Frábærlega útsmogin og úthugs-
uð, spennandi og fyndin. ½
Bíóborgin.
Rien Sur Robert
Frönsk. 1999. Leikstjóri og handrit: Pascal
Bonitzer. Aðalleikendur: Fabrice Luchini,
Sandrine Kiberlain, Valentina Cervi, Michel
Piccoli. Undarlegir vegir ástarinnar reynast
án enda í dálítið sjarmerandi, vel leikinni og
óvenjulegri tilfinningamynd. Háskólabíó.
Spy Kids
Bandarísk. 2001. Leikstjóri og handrit: Ro-
berto Rodriguez. Aðalleikendur; Antonio
Banderas, Carla Gugino, Alan Cumming. Æv-
intýraleg, spennandi og skemmtileg mynd
fyrir alla fjölskylduna. Laugarásbíó, Regnboginn.
Tilsammans
Sænsk. 2001. Leikstjóri og handrit: Lukas
Moodyson. Aðalleikendur: Lisa Lindgren,
Michael Nyqvist, Gustaf Hammarslen.
Háskólabíó.
The Mummy Returns
Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit:
Stephen Sommers. Aðalleikendur: Brendan
Fraser, Rachel Weisz, John Hannah. Múmían
snýr aftur með miklum látum. Ósvikin fjöl-
skylduskemmtun með mögnuðum brellum.
½
Bíóhöllin.
Nýi stíllinn keisarans – The
Emperor’s New Groove
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Mark Dindal.
Handrit: Thomas Schumacher.
Það kveður við nýjan tón í nýjustu Disney-
myndinni sem fjallar um spilltan keisara sem
breytist í lamadýr og lærir sína lexíu.
Bráðfyndin mynd fyrir börn og fullorðna.
½ Bíóhöllin.
One Night at McCooĺs
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Harald Zwart.
Handrit: Moon Shark. Aðalleikendur: Liv Tyl-
er, Matt Dillon, Michael Douglas. Skrautleg-
asta gamanmynd um flónin sem flækjast inn
í ráðabrugg hinnar kynþokkafullu Liv Tyler.
Michael Douglas er eftirtektarverður. ½
Laugarásbíó, Regnboginn.
Baise moi
Frönsk. 2000. Leikstjórn og handrit: Virginie
Despentes og Coralie Trinh Thi. Aðalleikend-
ur: Raffaela Anderson, Karen Bach. Sérlega
átakanleg og raunsæ lýsing á kynlífs- og
morðferðalagi tveggja franskra undirmáls-
dama. Tilgangur myndarinnar eitthvað á
huldu, en enginn fer ósnertur út af henni.
Regnboginn.
Along Came a Spider
Bandarísk. 2001. Leikstjóri Lee Tamahori.
Handrit: Marc Moss. Aðalleikendur: Morgan
Freeman, Monica Potter, Michael Wincott.
Snyrtilega gerð glæpamynd um mannrán og
mistök. Vel leikin af Freeman en ótrúverðug,
með ógnarlega möskvastærð. Háskólabíó.
Crocodile Dundee in Los
Angeles
Áströlsk/Bandarísk. 2001. Leikstjóri Simon
Wincer. Handrit: Matthew Berry. Aðalleikend-
ur: Paul Hogan, Linda Kozlowski, Jonathan
Banks. Krókódílamaðurinn í bragðdaufum
ævintýrum í kvikmyndsborginni. Barnamynd.
Bíóborgin, Kringlubíó.
See Spot Run
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: JohnWhitesell.
Handrit: William Kid. Aðalleikendur: David
Arquette, Michael Clarke Duncan. Meinlaus
barnamynd um hressan bolabít og heimska
tvífætlinga, ástir og uppeldismál. Dágóð til
sins brúks. Kringlubíó.
Evolution
Bandarísk. 2001. Leikstjórn: Ivan Reitman.
Handrit: Abraham Vincente Nicholas. Aðal-
leikendur: David Duchovny, Juliane Moore,
Orlando Jones. Loftsteinn hrapar á jörðina og
getur af sér furðuskepnur í mislukkaðri gam-
anmynd ½
Stjörnubíó, Laugarásbíó.
Head Over Heels
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Mark Waters.
Handrit: John Deere. Aðalleikendur Freddie
Prinze Jr., Monica Potter. Meinlausir tilburðir
til að stæla Gluggann á bakhliðinni. Enginn
Hitchcock í sjónmáli. ½
Bíóhöllin.
Pearl Harbor
Bandarísk 2001. Leikstjóri Michael Bay.
Handrit William Wallace. Aðalleikarar Josh
Hartnett, Ben Affleck, Kate Beckinsdale. Af-
skaplega langdregin og leiðinleg mynd sem,
þegar öllu er á botninn hvolft, fjallar ekki um
neitt. ½
Bíóhöllin, Bíóborgin, Kringlubíó.
Tomb Raider
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Simon West.
Handrit: Martin Hudsucker. Aðalleikendur:
Angelina Jolie, Jon Voight, Iain Glen, Noah
Taylor. Bústinn barmur og bardagaatriði eru í
aðalhlutverki í þessari mynd sem byggð er á
samnefndum tölvuleik. Ófrumlegur vitleysis-
gangur en Jolie er alvöru töffari. ½
Háskólabíó, Laugarásbíó.
Watcher
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Joe Sharbanic.
Handrit: David Elliot og Clay Ayers. Aðalleik-
endur: James Spader, Keanu Reeves, Ernie
Hudson, Marisa Tomei. Spennulaus mynd
um fjöldamorðingja sem hyggst klekkja á
lögreglumanni. Bragðlaust allt saman. ½
Háskólabíó.
Dr Dolittle 2
Bandarísk. 2001. Leikstjóri og handrit Steve
Carr. Aðalleikendur Eddie Murphy. Jeffrey Jo-
nes, Kevin Pollak, Kristen Wilson. Agalega
slök mynd um dýralækninn vinsæla. Sagan
er of einföld og óáhugaverð og húmorinn lé-
legur og ósmekklegur. Eddie Murphy má fara
að hugsa sinn gang.
Kringlubíó, Regnboginn.
Pokémon 3
Bandarísk 2001. Leikstjóri Michael Haigney.
Handrit Haigney og Norman Grossfeld. Þriðja
Pokémon-myndin er einsog þær fyrri; realísk
stuttmynd kemur á undan háskaævintýrinu
þar sem Pokémonar berjast og Ash bjargar
málunum. Óaðlaðandi og óspennandi að
öllu leyti.
Bíóborgin.
Valentine
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: James Blanks.
Handrit: Tom Savage. Aðalleikendur: Denise
Richards, David Boreans. Óspennandi hryll-
ingsmynd með réttdræpum persónum. ½
Kringlubíó.
Bíóin í borginni
Sæbjörn Valdimarsson/Arnaldur Indriðason/Hildur Loftsdóttir
MARVIN Marge (Rob Schneider)
vinnur skrifstofustörf hjá lögregl-
unni en dreymir um að gerast al-
vöru lögreglumaður. Kvöld eitt
svarar hann neyðarkalli og þar sem
enginn lögreglumaður er við á stöð-
inni stekkur hann sjálfur af stað.
Hann missir af bófunum en lendir í
alvarlegu bílslysi.
Sá sem bjargar honum úr bílflak-
inu er sérvitur vísindamaður sem
rannsakað hefur erfðavísindi og
komist að ákveðnum niðurstöðum
og notar aumingja Marvin sem til-
raunadýr. Hann græðir í hann ýmis
líffæri úr dýrum og brátt fer Marvin
að haga sér ákaflega einkennilega,
svo ekki sé meira sagt.
Þannig er söguþráðurinn í banda-
rísku gamanmyndinni The Animal
sem frumsýnd er í fimm kvik-
myndahúsum í dag. Með aðalhlut-
verkin í henni fara Rob Schneider,
Colleen Haskell, John C. McGinley,
Guy Torry og Edward Asner. Leik-
stjóri er Luke Greenfield en Adam
Sandler er einn af framleiðendum
myndarinnar.
„Þetta er mynd um mann sem
reynir að vera ekki dýrslegur en
hefur ekki erindi sem erfiði,“ er haft
eftir gamanleikaranum Schneider.
„Hann rembist við að halda mann-
legum eiginleikum sínum en hann
er með öll þessi líffæri úr dýrum og
þau eiga eftir að taka yfirhöndina.“
Schneider gerði fyrir ári eða svo
gamanmyndina Deuce Bigalow:
Male Gigolo í samstarfi við grín-
arann Adam Sandler og þeir ákváðu
að gera aðra mynd saman. En sam-
starf þeirra nær lengra aftur í tím-
ann, báðir eru uppistandarar og
unnu við Saturday Night Live, ein-
hverja vinsælustu gamanþætti
bandaríska sjónvarpsins.
Einn af leikurunum í The Animal
er Colleen Haskell sem reyndar er
ekki leikkona heldur tók hún þátt í
fyrstu Survivor-seríunni og var
strandaglópur á eyðieyju. Hún vakti
mikla athygli í þáttunum og Schnei-
der fékk hana til þess að fara með
aðal kvenhlutverkið í myndinni
sinni. Hún leikur konu að nafni Ri-
anna, mikinn umhverfisverndar-
sinna sem vingast við Marvin.
„Colleen er algjört náttúrubarn í
leiklist,“ segir leikstjórinn Green-
field. „Þetta gerðist allt mjög
hratt,“ segir Colleen, „en það var
verulega gaman að vinna með Rob.
Ég hef enga reynslu af kvikmynda-
leik en hann gerði mér þetta allt
saman auðveldara. Hann kenndi
mér allt sem ég kann svo ef ég stend
mig ekki í stykkinu er auðvelt fyrir
mig að segja að það sé honum að
kenna.
Elsti leikarinn í myndinni er
gamla sjónvarpsstjarnan Ed Asner.
„Mér fannst frábært að Ed vildi
leika í myndinni,“ segir Schneider.
Asner segir húmorinn hafa breyst
mikið frá því hann lék í gamanþátt-
um sjónvarpsins. „Það er meiri
fáránleikahúmor í gangi núna en áð-
ur en lífið er líka oft fáránlegt.“
Leikarar: Rob Schneider, Colleen
Haskell, John C. McGinley, Guy Torry
og Edward Asner. Leikstjóri: Luke
Greenfield.
Sirkusselur; Schneider í hlutverki sínu í gamanmyndinni The Animal.
Dýrið tekur
yfirhöndina
Laugarásbíó, Regnboginn, Stjörnubíó,
Borgarbíó Akureyri og Nýja bíó Keflavík
frumsýna bandarísku gamanmyndina
The Animal.
BRIDGET Jones (Renee Zellweger)
er kona á fertugsaldri sem býr í
London. Hún vaknar með timbur-
menn á nýársdag og enn er hún ein-
hleyp. Ekki bætir úr skák að hún þarf
að mæta í árlegt kalkúnaboð hjá for-
eldrum sínum. Einn af gestunum þar
er lögmaðurinn Mark Darcy (Colin
Firth), sérlega glæsilegt mannsefni,
en Bridget missir áhugann á honum
þegar hún heyrir hann tala um sig í
heldur niðrandi tón.
Bridget ákveður að halda dagbók
og heitir sér því að tapa nokkrum
aukakílóum og finna sér kærasta.
Hún er mjög skotin í yfirmanni sínum
í útgáfufyrirtækinu þar sem hún
vinnur. Hann heitir Daniel Cleaver
(Hugh Grant). Í ljós kemur að áður-
nefndur Mark og Daniel voru vinir
þar til Mark reyndi við kærustu
Daniels.
Þannig er upphaf sögunnar í gam-
anmyndinni Dagbók Bridget Jones
eða The Bridget Jones’s Diary, sem
frumsýnd er í fjórum kvikmyndahús-
um í dag. Með aðalhlutverkin í henni
fara Renee Zellweger, Hugh Grant,
Colin Firth, Jim Broadbent, Gemma
Jones, James Callis, Shirley Hend-
erson og Sally Phillips. Leikstjóri er
Sharon Maguire.
Dagbók Bridget Jones varð til árið
1995 sem vikulegur dálkur í breska
blaðinu Independent þegar blaða-
maðurinn Helen Fielding byrjaði að
skrifa greinar um einhleypa konu á
fertugsaldri í leit að ást í hörðum
heimi.
Fielding skrifaði skáldsögu sem
byggði á dálkaskrifum hennar og hún
kom út árið 1996 og varð metsölubók
á stundinni. Bókin seldist um allan
heim í yfir fjórum milljónum eintaka
og þess var ekki langt að bíða að kvik-
myndagerðarmenn keyptu réttinn til
þess að kvikmynda hana. Working
Title Films hreppti þann rétt en
mesta athygli vakti hjá þeim sem best
töldu sig þekkja til mála, að banda-
rísk leikkona var fengin til þess að
fara með hlutverk Bridget hinnar
bresku.
Það gekk reyndar ekki andskota-
laust að finna réttu leikkonuna í hlut-
verkið og tók tvö ár að leysa úr því
vandamáli. Renee talar með texas-
hreim enda frá Texas og sótti stíft
nám hjá talkennara, sem áður hafði
tekist að gera Gwyneth Paltrow að
Breta í myndinni Sliding Doors. Að
auki settu framleiðendur myndarinn-
ar Renee í vinnu hjá útgáfufyrirtæki í
London undir dulnefninu Bridget Ca-
vendish. Enginn innan fyrirtækisins
komst að hinu sanna. Þá þurfti Renee
að fita sig talsvert fyrir hlutverkið og
sökkti sér í skyndibitabras og ísát.
Niðurstaðan varð sú að Renee
þótti smellpassa í hlutverkið ef marka
má viðtökur þær sem myndin hefur
fengið.
Leikarar: Renee Zellweger, Hugh Grant,
Colin Firth, Jim Broadbent, Gemma
Jones, James Callis, Shirley Henderson
og Sally Phillips. Leikstjóri: Sharon
Maguire.
Dæmalausar dagbækur
Háskólabíó, Sambíóin Álfabakka, Nýja
bíó Akureyri og Nýja bíó Keflavík frum-
sýna gamanmyndina The Bridget
Jones’s Diary með Renee Zellweger.
Reuters
Renee Zellweger í hlutverki
Bridget í gamanmyndinni The
Bridget Jones’s Diary.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦