Morgunblaðið - 13.07.2001, Page 27

Morgunblaðið - 13.07.2001, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 27 víst þykir ið verður Pounds. aumferðin nars hvors að kana ýs forseta ympíuleik- r af þeim komi illa ðasérsam- C-fulltrúa ý til borga en undir hægt án reyfingar- Að tillögu tteðfyrra, rrverandi aríkjanna, íþrótta- C. Forset- t sérstaka nefndinni. andi land- nig eru 5 ss einu og uður-Am- ni til sam- r vaxi um fnaðar. ð Alþjóða- innan við nka en nú milljarðar. þótt Sam- li deilt út hafa verið nn þungi lþjóðasér- píunefnda ni og þarf ig pening- konar ein- eftir fund- a og ríkti lengi vel eftir að Samaranch tók við af Killanin lávarði í sömu borg fyrir 21 ári. Loks má gera ráð fyrir að spillingarsárin opnist á ný þegar flautað verður til leiks í Salt Lake City á næsta ári er spurningar vakna á ný um hvernig gangverk Alþjóða- ólympíunefndarinnar geti orðið gegnsærra og starfsemi hennar og fulltrúanna ábyrgari. Verðandi for- seti verður sagður valdamesti mað- urinn í heimi íþróttanna en þrátt fyr- ir auðlegðina og áhrifin verður starf hans enginn dans á rósum. IOC-fulltrúarnir kjósa í dag um hvar ólympíuleikarnir árið 2008 verða haldnir en valið stendur milli fimm borga sem eftir ítarlegt forval hafa verið úrskurðaðar fullbærilegar til að halda mótið á grundvelli umsókna sinna. Mestar líkur þykja á að Kín- verjar hreppi hnossið og að leikarnir verði haldnir í Peking. Er þess þó að minnast að í níu tilvikum af síðustu 11 hafa leikarnir ekki hlotnast þeirri borg sem fyrirfram hefur verið talin sigurstranglegust í keppninni um þá. Þess vegna útilokar enginn IOC- fulltrúi að annað hvort París eða Tor- onto verði fyrir valinu, en almennt er búist við að Osaka í Japan og Istanbúl í Tyrklandi falli úr leik í fyrstu tveim- ur umferðunum. Fyrirkomulag vals- ins er með þeim hætti að í fyrstu um- ferð stendur valið milli allra borganna fimm, í þeirri næstu er nafn þeirrar sem fæst fékk atkvæðin ekki lengur að finna á kjörseðlinum og þannig koll af kolli þar til meirihluti IOC- fulltrúanna 122 hefur greitt einhverri borginni atkvæði sitt. Úrslitanna er beðið með mikilli eftirvæntingu. Ekki aðeins vegna sterkrar stöðu Peking sem árið 1993 varð að sjá á eftir þúsaldar- ársleikunum til Sydney með aðeins einu atkvæði, en þá var átta árum styttra en nú frá fjöldamorðum kín- verska alþýðuhersins á Torgi hins himneska friðar 1990. Heldur og vegna þess að niðurstaðan í staðar- valinu er talin geta ráðið miklu um hver verður valinn eftirmaður Sam- aranch sem forseti IOC. Altént ótt- ast IOC-fulltrúar sem undirritaður hefur rætt við og styðja Jacques Rogge, að mörgum þætti of mikið af því góða að velja bæði Frakka sem gestgjafa árið 2008 og Belgann sem forseta IOC á sama fundinum. Sömuleiðis ganga þeir út frá því að stuðningur reytist af Kóreumannin- um Kim Un Yong verði Peking fyrir valinu þar sem þegar hefur verið ákveðið að HM í fótbolta 2002 fari fram í Suður-Kóreu og Japan á næsta ári og muni IOC-fulltrúum þykja það nóg fyrir Asíu. Ef þessar kenningar eru réttar hefur Dick Pound líklega ekkert á móti því að heimaborg hans, Toronto, falli snemma úr leik. Dvínandi andstaða við að Kínverjar fái leikana Andstaða við að Kínverjar fái leik- ana hefur dalað undanfarið og skipt- ir mestu að bandarísk stjórnvöld hafa ekki viljað leggja þeirri baráttu lið og tilraun til að fá Bandaríkjaþing til að taka fyrir tillögu þar sem Al- þjóðaólympíunefndin er hvött til að veita Kínverjum ekki leikana mis- heppnaðist vegna andstöðu þing- manna sem vilja vinna að aukinni frí- verslun við Kína. Stjórn George W. Bush hefur ekki viljað efna til átaka við Kínverja á nýjum vettvangi á sama tíma og freistað er að lappa upp á samskipti ríkjanna og ágrein- ing á sviði viðskipta, njósnamála, mannréttindamála og um Taiwan. Kínverskir andófsmenn, nokkrir bandarískir þingmenn og samtök sem láta sig mannréttindamál varða halda því fram að kínverskir ráða- menn muni túlka það stjórnarstefnu sinni í hag verði Peking fyrir valinu. Stuðningsmenn Peking eru á öðru máli og telja að val borgarinnar muni miklu fremur leiða til opnunar stjórnkerfisins og umbóta því mann- réttindamálin í Kína muni fyrir vikið verða undir miklu meira eftirliti al- þjóðasamfélagsins en áður. Það haldreipi nota fulltrúar viðskiptalífs- ins en mannréttindasinnar segja græðgi þeirra og sérplægni fremur ráða ferð. Þeir segja forstjóra bandarískra stórfyrirtækja, sem fjármagni kosningabaráttu fjöl- margra bandarískra þingmanna, bera hönd fyrir blinda augað þegar mannréttindi séu annars vegar vegna vonarinnar um aukinn aðgang að hinum risastóra markaði sem fyr- ir hendi sé í Kína. Þá er það og hagur bandarískra sjónvarpsfyrirtækja og íþróttaleiðtoga að Toronto verði ekki fyrir valinu því það myndi hafa í för með sér enn lengri bið eftir því að leikarnir verði á ný haldnir í Banda- ríkjunum. Áróðurinn gegn Peking getur virkað öfugt Í einkasamtölum segja fulltrúar í Alþjóðaólympíunefndinni að utanað- komandi þrýstingur á þá frá margs konar stofnunum og hugsjónasam- tökum, sem beri velferð og mann- réttindi óbreyttra Kínverja fyrir brjósti, hafi lítil áhrif er þeir ákveða hvar leikarnir 2008 skuli haldnir. Nær væri að áhrifin yrðu önnur en til var stofnað. Reyndar benda þeir sömu á að afstaða til mannréttinda- mála hafi ekki ráðið úrslitum er Sydney fékk 2000-leikana. Þar hafi Peking fengið flest atkvæði þangað til í fjórðu og síðustu umferð er Manchester datt úr leik og atkvæði greidd þeirri borg fóru flest yfir á Sydney. Þá eru fjöldamargir IOC- fulltrúanna frá ríkjum þar sem mannréttindum er einnig ábótavant og í millitíðinni hafi Kínverjar verið iðnir við að afla sér velvildar með því að byggja upp íþróttamannvirki, leggja til tækjabúnað og efna til þjálfunarbúða í þróunarlöndum. Fulltrúar með nef fyrir markaðs- málum sjái urmul tækifæra með því að velja Peking og borgin muni njóta atkvæða fulltrúa sem finnst IOC snúast um of um Evrópu. Vegna kosninganna á þingi IOC í Moskvu verða bæði borgirnar sem vilja leikana og forsetaefnin fimm að fást við nýtt afl innan IOC, fulltrúa íþróttafólksins sem stórfjölgað var er reynt var að efla tiltrú á Alþjóða- ólympíunefndina í kjölfar hneykslis- málanna í Salt Lake City. Atkvæði þeirra eru talin mikilvæg og Kín- verjum stendur t.a.m. ógn af þeim því íþróttamennirnir 11 vilja ekki til Peking með leikana 2008, heldur Parísar eða Toronto. Í forsetaslagn- um eru þeir á bandi Jacques Rogge. Á næsta ári fjölgar fulltrúum íþróttafólksins í 15 er keppendur á leikunum í Salt Lake kjósa fjóra úr sínum röðum inn í nefndina. Er Samaranch hélt til Mosku bærðust þrjár óskir í brjósti hans. Sú fyrsta að Peking fái leikana 2008, önnur að Jacques Rogge verði valinn eftirmaður hans og sú þriðja, að son- ur hans og alnafni verði kosinn inn í Alþjóðaólympíunefndina. Merki eru um að jafnvel þeim sem næst honum standa hafi verið misboðið með síð- ustu tillögunni og þyki Samaranch hafa misbeitt stöðu sinni. Sonurinn hafi lítið látið til sín taka á íþrótta- sviðinu og fyrst og fremst verið vara- formaður Alþjóðanútímafimmtar- þrautarsambandsins til átta ára upp á punt. Rogge og Pound lögðu báðir að Samaranch að stinga ekki upp á syni sínum. Enginn greiddi þó at- kvæði gegn tillögunni er forsetinn bara hana upp í framkvæmdastjórn- inni í maí og umræða um hana varð engin. Spurningin er hvort óbreyttir IOC-fulltrúar hafa kjark til að snupra fráfarandi foringja sinn og stinga upp á fleirum til kjörs er til- laga stjórnarinnar um sjö nýja full- trúa verður á dagskrá í Moskvu. og nýjan ólympíuforseta á þingi Alþjóðaólympíunefndarinnar í Moskvu Reuters á ólympíuskilti í Peking í gær. Líklegt er talið að borgin hreppi ólympíuleikana 2008. nd á krossgötum agas@mbl.is JUAN Antonio Samaranch læt-ur um helgina af starfi for-seta Alþjóðaólympíunefnd- arinnar eftir 21 ár á valdastóli. Þar með hverfur úr starfi áhrifamesti forseti IOC frá Pierre de Coubertin en aðeins sjö menn hafa gegnt starfinu í 107 ára sögu nefnd- arinnar. Samaranch tók við óburðugum samtökum en hefur eflt þau og skóp um tíma órofa ein- ingu meðal ólympíuhreyfing- arinnar. Hefði hann hætt leik þá hæst hann stóð, eftir glæsilega ólympíuleika í heimabæ hans, Barcelona, 1992 ríkti meiri ljómi yfir valdatíð hans en nú er. Samaranch sneri sér snemma að stjórnmálum og reis hratt upp í valdakerfi Francos einræðisherra og um tíma ráðherra. Í krafti for- mennsku sinnar í ólympíunefnd Spánar valdist hann inn í Al- þjóðaólympíunefndina árið 1966. Samaranch lifði af breyting- arnar frá einræði til lýðræðis eftir dauða Francos og var útnefndur fyrsti sendiherra Spánar í Moskvu árið 1977. Sú ráðstöfun reyndist honum farsæl og var í raun stökk- pallur hans í forsetastól Alþjóðaól- ympíunefndarinnar. Pólitísk átök vegna Moskvuleikanna og fjarvera fjölda ríkja frá þeim varð til þess að Killanin lávarður hrökklaðist af forsetastóli. Forsetakjörið var formsatriði því Samaranch fékk drjúgan meirihluta í fyrstu umferð þess og naut m.a. einróma stuðn- ings kommúnistaríkjanna. Á þessum tíma þótti stefna í hægt andlát IOC. Hreyfingin átti innan við 500.000 dollara á banka og fulltrúarnir þurftu sjálfir að kosta sig á fundi hennar sakir fá- tæktar nefndarinnar. Og fyrir lá að reynt yrði að fá ríki til að snið- ganga leikana 1984 í Los Angeles í hefndarskyni fyrir heimasetu ann- arra er Moskvuleikarnir fóru fram. Við því fékk Samaranch ekkert gert en tvennt varð honum og IOC þó til bjargar. Annars vegar leiddi mikill hagn- aður af Los Angeles-leikunum til þess að borgir kepptust á ný um leikana. Og örlagaríkur fundur með Horst Dassler, erfingja Adidas-veldisins, leiddi til mjög ábatasamrar markaðssetningar ól- ympíuhringanna og gífurlegra tekna af sjónvarpsréttarsamn- ingum. Smám saman ruddi hann og atvinnumennsku í íþróttum leið inn á ólympíuleikana og gerði þá óum- deilanlega að enn meiri íþróttahá- tíð en áður. Samaranch notaði og pólitíska kænsku sína og fékk ríki heims til að sameinast í þátttöku á ólymp- íuleikunum í Seoul í Suður-Kóreu 1988. Ákafar tilraunir Norður- Kóreumanna til að fá ríki heims til að sniðganga leikana misheppn- uðust algjörlega. Og leikarnir fjór- um árum seinna í Barcelona þóttu sem stærsti gimsteinn í kórónu for- setans. Hefði hann stigið af valda- stóli í framhaldi af þeim væri Sam- aranch óumdeildur bjargvættur ólympíuhreyfingarinnar. En hann kaus að sitja áfram og lét hækka aldursmörk nefndar- manna og forseta til að svo mætti vera. Á sama tíma kraumaði undir óánægja með bruðl og gjafir til IOC-fulltrúanna frá borgum sem sóttust eftir ólympíuleikum og voru tilbúnar að múta fulltrúunum til að fá atkvæði þeirra. Margir stóðust ekki freistingarnar og sjálf- ur sætti Samaranch vaxandi gagn- rýni fyrir flottræfilshátt með því að baða sig í auði hreyfingarinnar og m.a. ferðast um heiminn á einka- þotum á kostnað IOC. Peningarnir streymdu inn en lít- ið var spurt hvernig þeim var var- ið. Hafi peningahyggjan þótt ámæl- isverð sköðuðu leikarnir í Atlanta 1996 ímynd IOC enn frekar, svo of- urseldir voru þeir auglýsinga- mennskunni. Samaranch hafði enn tækifæri til að draga sig í hlé sem óumdeildur foringi en var ekki á því og fékk aldursmörk forseta enn hækkuð. Sem þýddi að hann stóð enn við stýrið er spillingarmálin tengd Salt Lake City voru dregin fram í dagsljósið. Tíu fulltrúar í Al- þjóðaólympíunefndinni voru ýmist reknir eða neyddir til afsagnar og forsetinn neyddist til að biðja um traustsyfirlýsingu. Þótt 86 fulltrú- ar hafi greitt honum atkvæði en að- eins tveir ekki hafði hann ekki lengur þau öruggu tök á fulltrúun- um sem áður var. Gagnrýnisraddir fengu hljómgrunn og Samaranch neyddist til að hrinda af stað víð- tækum umbótum á nefndinni. Engum blöðum er um það að fletta að Samaranch er aðsóps- mesti forseti Alþjóðaólympíunefnd- arinnar eftir Coubertin. Þjóðhöfð- ingjar hafa beygt sig að vilja hans þegar á hefur þurft að halda og þótt hann segi að eining hreyfing- arinnar sé mikilvægasta veganesti arftaka síns stígur Samaranch upp af valdastóli með mun klofnari hreyfingu en hann sjálfur hefði kosið. Fulltrúarnir eru andvígir allsherjarbanni við heimsóknum til borga sem vilja fá leika og sumir halda því jafnvel fram opinberlega að Samaranch hafi látið hagræða niðurstöðum forvalsnefndar, sem lagði mat á umsækjendur um leik- ana 2008, Peking í hag. Og reynt að fá nefndina til að mæla ekki með Osaka og Istanbúl til að auðvelda Kínverjum róðurinn. Og gegn ráð- um nánustu ráðgjafa sinna og í skugga Salt Lake hneykslisins hef- ur hann lagt til að sonur hans verði kjörinn inn í IOC í Moskvu, ein- ungis til að styrkja þá skoðun að taumur ættmenna og vina sé enn dreginn innan IOC. En þrátt fyrir átök og upplausn munu undirsátar Samaranch þakka starf hans í þágu nefnd- arinnar og útnefna hann heið- ursforseta IOC til æviloka á fund- inum í Moskvu. Minning hans verður og ódauðleg með því að ól- ympíusafnið í Lausanne verður nefnt upp á nýtt og í höfuðið á hon- um. Öðrum forsetum en Coubertin hefur ekki verið sýndur sambæri- legur heiður. Reuters Samaranch með Pútín Rússlandsforseta í móttöku í Kreml í gær. Bjargvætturinn frá Barcelona

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.