Morgunblaðið - 13.07.2001, Page 34

Morgunblaðið - 13.07.2001, Page 34
MINNINGAR 34 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Elínborg Guð-mundsdóttir fæddist á Háhóli, Álftaneshreppi á Mýrum, hinn 23. september 1917. Hún lést á heimili dóttur sinnar í Hafn- arfirði 4. júlí síðast- liðinn. Elínborg var dóttir hjónanna Ólafar Jóhannsdótt- ur og Guðmundar Sigurðssonar, bónda á Háhóli og síðar verkamanns í Reykjavík, yngst fimm systkina. Þau eru: Sig- mundur, f. 29.9. 1908, Sigurlín, f. 16.10. 1911, Jóhann f. 28.2. 1913, og Sigurður, f. 14.1. 1914. Þau eru nú öll látin nema Sigurlín. Elín- borg giftist Jóni Jó- hannessyni togara- sjómanni, f. 18.3. 1884 í Hraunsmúla í Staðarsveit, Snæ- fellsnesi, d. 5.9. 1965, dóttir þeirra er Svandís Borg, gift Ólafi Ragnars, börn þeirra eru Jón Þór, nemi í við- skiptafræði við HÍ, f. 30.5. 1973, og Hulda Hlín, B.A. í félagsfræði, f. 29.12. 1976. Útför Elínborgar fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Gengin er Elínborg Guðmunds- dóttir Þegar Elínborg gekk á vit for- feðra sinna var hún í sátt við sjálfa sig og aðra samferðamenn og hafði því vissulega fullnægt því hlutverki sem almættið ætlaði henni í upphafi. Hún lifði lífinu fram til síðasta dags þrátt fyrir erfiðan sjúkdóm en eng- inn má sköpum renna, vitað er að þetta er hið eina sem allra bíður. Elínborg var glæsileg kona, gegn- heiðarleg til orðs og æðis og verð- ugur fulltrúi sinnar kynslóðar, þeirr- ar sem nú er óðum að hverfa, hún hafði sannleikann ætíð að leiðarljósi og er til efs að hún hafi talað illa um nokkurn mann. Er hún missti eiginmann sinn stóð hún ein uppi með unga dóttur og beindist atorka hennar að því að veita henni brautargengi út í lífið. Hún vann ýmis störf þeim til fram- færslu, lengst af í Hraðfrystistöð Reykjavíkur. Elínborg varðveitti uppruna sinn í hjarta sínu og ferðað- ist gjarnan til æskuslóðanna sem og um land sitt og þá gjarnan með veiði- stöngina í farteskinu, en þann áhuga tók hún með sér úr föðurhúsum, vissi hún fátt skemmtilegra en að renna fyrir fisk í ám og vötnum. Er hún lét af störfum um sjötugt beindist áhugi hennar og orka til ferðalaga út í heim og gerði hún mjög víðreist bæði aust- an hafs og vestan, kynntist menn- ingu og háttum annarra þjóða og svalaði fróðleiksþrá sinni sem var óþrjótandi. Lífsgleði og orka hennar var með ólíkindum sem glöggt kom fram þegar hún sárlasin ákvað að taka að fullu þátt í útskrift dóttur- dóttur sinnar sem lauk háskólaprófi fyrir nokkrum dögum. Að því loknu dró hægt af henni, við skynjuðum að útskriftin vó þungt á vogaskálum lífs hennar, menntun var henni ofarlega í huga til handa barnabörnunum, nokkuð sem ekki stóð bóndadóttur á Mýrunum til boða á kreppuárunum þrátt fyrir nægar gáfur. Ljóst er að máltækið hugurinn ber hálfa leið átti ekki við þarna, hugurinn bar hana alla leið. Það er vissulega mikil auðna fyrir undirritaðan að hafa átt Elínborgu að tengdamóður, vini og bakhjarli í nær þrjá áratugi, tími sem bar aldrei neinn skugga á, þennan tíma fór aldrei styggðaryrði á milli. Guð blessi Elínborgu Guðmundsdóttur. Ólafur Ragnars. Í dag kveðjum við systkinin heimsins bestu ömmu og efst í huga okkar er þakklæti og aðdáun. Það sem eftir situr eru allar góðu minn- ingarnar í huga okkar sem aldrei hverfa. Það fyrsta sem kemur upp í huga okkar er hversu gott var að koma til ömmu á Hringbrautina, þegar við vorum bæði í Háskólanum hittumst við oft hjá ömmu á föstu- dögum í mat og var þá alltaf veislu- matur með kransakökum í eftirmat. Þegar við vorum yngri ferðuðumst við oft með ömmu innanlands og var þá veiðistöngin alltaf með í för því amma hafði gaman af því að veiða. Svo voru það ferðalögin erlendis sem eru ógleymanleg. Amma var góður ferðafélagi, hún var alltaf í góðu skapi og til í allt, „ég fer bara með ykkur“ var hún vön að segja. Henni fannst gaman að koma á nýja staði og sjá eitthvað nýtt. Síðustu ferðalög hennar voru í fyrrasumar og þá var ferðinni heitið til Skotlands og Mal- lorca. Þegar mamma og pabbi ferðuðust kom amma alltaf til okkar með prjónana sína og passaði okkur, þessi tími var frábær enda mátti allt hjá ömmu og voru pönnukökurnar henn- ar í alla mata. Samskipti okkar við ömmu voru mjög náin og voru þau nær daglega. Við höfðum yndi af því að snúast í kringum hana, keyra hana í bankann, í spilin og með sokk- ana sem hún var alltaf að prjóna. Síð- ustu mánuðina var amma heima hjá okkur og voru samskipti okkar við ömmu mjög náin. Við borðuðum oft saman í hádeginu, við brauð, en hún hræringinn sinn. Amma okkar var hversdagshetja, hún var umhyggju- söm, ósérhlífin en umfram allt heið- arleg. Hún mátti ekkert aumt sjá og var alltaf boðin og búin til að hjálpa öðrum. Amma var alltaf jákvæð og létt í lund, kvartaði aldrei og velti sér ekki upp úr hlutum sem gegn henni streymdu. Þegar amma veiktist tók hún því með sama æðruleysi og hana einkenndi, hún var vön að segja „svona er þetta bara og það þýðir ekki að tala um það“. Þetta æðru- leysi gerði okkur öllum auðveldara að takast á við aðstæðurnar, þetta lýsir því vel hvernig amma var. Efst í huga okkar í dag er hversu tignarleg, fín og glöð hún var í út- skrift Huldu 23. júní síðastliðinn. Enda lét hún aldrei veislur fram hjá sér fara, hún mætti með þeim fyrstu og fór með þeim síðustu. Í okkar huga er amma farin í ferðalag sem verður lengra en öll hin sem hún hefur farið í, vonandi sér hún eitthvað nýtt og hittir einhverja sem hún hefur ekki séð lengi. Við kveðjum nú ömmu okkar með sorg og söknuði, einnig með miklu þakklæti því hún hefur hefur gefið okkur svo margt sem við búum að í framtíðinni. Takk fyrir allt, elsku besta amma. Hulda Hlín og Jón Þór. Nú þegar kær frænka mín hefur kvatt þetta líf langar mig að minnast hennar í nokkrum orðum. Ég á margar minningar tengdar frænku minni, t.d. allar berjaferðirn- ar sem hún bauð okkur í þegar við vorum börn. Borga frænka átti forláta mynda- vél sem hún var dugleg að taka myndir á þegar við vorum lítil, sem við njótum góðs af í dag, einnig er mér minnisstætt að hún gaf okkur systrunum fyrstu myndavélina sem við eignuðumst. Þá vorum við líklega 9-10 ára, á þessa myndavél tókum við myndir í mörg ár. Borga frænka var glaðleg og skemmtileg kona sem allt- af var gaman að hitta, einnig var hún ómissandi á öllum stærri stundum í lífi mínu eins og fermingum barnanna minna og stærri afmælum í gegnum árin. Ég og fjölskylda mín vottum Svandísi einkadóttur hennar og fjölskyldu okkar dýpstu samúð á þessari stundu. Ég minningar geymi, ég man þær og skil, þær minna á vordagsins blessaðan yl. Því syrgir minn hugur, ég sé þína mynd í sólhýru blómi, í fjallanna lind. (Steinunn Þ. Guðmundsdóttir.) Ég minnist Borgu frænku minnar með virðingu og þakklæti og bið henni Guðs blessunar á nýjum veg- um. Þín bróðurdóttir, Ólöf Sigurðardóttir. Mikil heiðurskona, Elínborg Guð- mundsdóttir, er látin. Í hartnær 50 ár var hún heimilisvinur og aufúsu- gestur á heimili foreldra minna og nú á kveðjustundu eru henni færðar þakkir fyrir vináttu og órofa tryggð í gegnum árin. Fyrstu kynni mín af Elínborgu voru þau að hún kom vikulega í mörg ár og aðstoðaði móður mína við heim- ilisstörfin. Við systur vorum þá allar á skólaaldri og ég minnist þess að þessi hægláta og hlýlega kona sýndi okkur strax mikinn velvilja og vænt- umþykju og átti enda hug okkar allra frá fyrstu tíð. Síðar breyttust að- stæður þannig að Elínborg sneri sér að öðrum störfum um nokkurra ára bil. Sem betur fer gaf hún sig þó á ný að heimilishjálp og aðstoð við aldr- aða og varð það fleirum en aldraðri móður minni mikill happafengur. Elínborg var mörgum góðum kostum búin. Hún var víðsýn og skemmtileg, jafnan glöð og hress í bragði og gekk rösklega til verka. Hún hafði léttan hlátur og góða kímnigáfu, en var engu að síður ró- lynd og yfirveguð. Allt hennar fas einkenndist af mikilli greiðvikni og hlýju í garð okkar sem áttum með henni samleið og nutum aðstoðar hennar. Henni var flestum betur lag- ið að hjálpa og aðstoða og ég þykist vita að allir þeir sem nutu góðs af þessum eiginleikum Elínborgar hugsa nú til hennar með þakklæti og virðingu sem vinar og velgjörðar- manns. En hún Elínborg okkar lifði svo sannarlega ekki aðeins fyrir aðra. Sjálf varð hún mikillar gæfu aðnjót- andi, þar sem hún eignaðist yndis- lega dóttur, tengdason sem hún hafði miklar mætur á og efnileg barna- börn. Hún kunni líka betur en marg- ur að njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða og þeim mun betur eftir því sem árin urðu fleiri og aðstæður betri. Margsinnis lagði hún land und- ir fót og ferðaðist bæði hér heima og erlendis. Einnig var hún félagslynd í besta lagi og naut þess jafnan að sækja fundi og félagsstarf aldraðra. Elínborg Guðmundsdóttir bar aldur sinn með mikilli reisn og henni tókst ótrúlega vel að bægja elli kerlingu frá eftir því sem árin færðust yfir. Vissulega hefðum við óskað henni lengri lífdaga í skjóli dóttur sinnar og fjölskyldu hennar, en minningin um einstaka konu lifir í huga allra þeirra sem henni kynntust. Guðbjörg Tómasdóttir. ELÍNBORG GUÐMUNDSDÓTTIR Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf- undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Útfararþjónustan ehf. Stofnuð 1990 Rúnar Geirmundsson útfararstjóri Traust persónuleg alhliða útfararþjónusta. Áratuga reynsla. Símar 567 9110 & 893 8638 utfarir.is #$                 '4 ': " '4 '  5*((*,')  $ 5+6  ;/ :6< 2     +            5   +  !   !!"            (    (          )  * ) )  6 )  6  !  *6 06* *  * ! 0, *2      *) *06*  *6  0, *2  $  * 06* $ * 0, *2     *)06* :*     0, *06*  * *  2   0, *#*)* 0, *2 : * %  % 06* 6 $   0, *06*  *)*) 2  1 * 1 * 2 1 * 1 * 1 * ! ,  -8= #' >%$ ' 4&""  +, *  1?..@   ) )    6 *$ 1  2     0+ )   &( & )   3+  7      (    6 *$    06*  *)*  06* A    06*   2 !         '3 -%& '  *) *, )* ) *5*)        # (  8  '""  *)* *,06*  0 *,06*  *  *2  %6  *,2  :* 3 506* (* *  *,06* ,**2  )* 6  *,06*  *  : * 2  :  *,2 2 1 * 1 * ! 9   (  $  +  (    7       ) 7)    + -8= '$ '4&""-%'"' )  +,  A ..!    * * 5( ! 5( 2  46*  * *"+2*0 *2  :*  * * 2 5  0*! 9   (  $  +  (    7        )     + B - -8'4&""-   + )C '**! & ! ?, 02  * 5 + 0*& 06*  *** 2   0 & 06* ) *B* & 2  * 0 *:** B< 2  0*&  * *1 * !

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.