Morgunblaðið - 13.07.2001, Qupperneq 36
36 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Háseti
Tvo vana háseta vantar á 280 tonna netabát
frá Grindavík strax. Upplýsingar í símum
426 8032, 852 0652 og 894 5713.
Ferskar kjötvörur
Óskum eftir kjötiðnaðarmönnum og vönu fólki
í kjötskurð og framleiðslustörf. Góð laun fyrir
gott fólk. Áhugasamir hafi samband við Hilmar
í síma 588 7580.
Síld og fiskur
Atvinna í boði
Starfsmaður óskast til framtíðarstarfa við
afgreiðslu á pöntunum í kjötvinnslu okkar
í Hafnarfirði. Einnig óskast starfsmaður til
afgreiðslu og útkeyrslu í sumarafleysingar.
Upplýsingar gefur Sófus í síma 863 1938.
Sigur Rós
Sigur Rós óskar eftir strákum og „strákslegum“
stelpum á aldrinum 12-15 ára til að leika í tón-
listarmyndbandi sem kvikmyndað verður í lok
mánaðarins.
Áhugasamir eru vinsamlega beðnir um að
mæta sunnudaginn 15. júlí milli kl. 14 og 17
að Laugavegi 26 (sama hús og Skífan), Grett-
isgötumegin hjá Labrador kvikmyndum.
Tónlistarkennarar
Áhugaverð störf
Lausar eru til umsóknar eftirfarandi stöður við
Tónlistarskóla Ísafjarðar:
● Aðstoðarskólastjóri (nýtt starf).
● Útibússtjóri á Þingeyri (nýtt starf).
● Útibússtjóri á Flateyri (nýtt starf).
● Kennari í tónfræðagreinum (100%).
Hér gefst áhugasömu fólki tækifæri til að móta
ný störf í metnaðarfullum og framsæknum
skóla, sem byggir á gömlum grunni.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist Tónlistarskóla Ísafirði, Austur-
vegi 11, 400 Ísafirði.
Netfang tonlist@snerpa.is .
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Ragnarsdótt-
ir skólastjóri í símum 456 3010, 456 3926 eða
861 1426. Netfang sonata@snerpa.is .
Forval
Umsýslustofnun varnarmála, Sala varnarliðs-
eigna f.h. Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli,
auglýsir hér með eftir aðilum til að taka þátt
í forvali vegna útboðs á eftirfarandi samning-
um innan varnarsvæðisins á Keflavíkurflug-
velli:
1. Samningur um ræstingu.
2. Samningur vegna viðhaldsverkefna fyr-
ir tölvu- og fjarskiptamiðstöð (Naval
Computer and Telecommunication
Station).
3. Samningur vegna viðhaldsverkefna fyr-
ir stjórnstöð (Control and Report Cent-
er) og hugbúnaðardeild (Iceland Soft-
ware Support Facility).
4. Uppfylling landsvæðis.
Samningarnir eru allir til eins árs með mögu-
leika á framlengingu fjórum sinnum, til eins
árs í senn.
Tilkynning þessi tekur einungis til íslenskra
lögaðila.
Forvalsgögn fást hjá varnarmálaskrifstofu utan-
ríkisráðuneytisins, Rauðarárstíg 25, Reykjavík,
og á Brekkustíg 39, Reykjanesbæ. Þau ber að
fylla út af umsækjendum og áskilur forvals-
nefnd utanríkisráðuneytisins sér rétt til að hafna
forvalsgögnum sem ekki eru fullnægjandi. Ekki
verður tekið við upplýsingum frá þátttakendum
eftir að forvalsfrestur rennur út.
Umsóknum skal skilað til forvalsnefndar
varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytis-
ins, Rauðarárstíg 25, Reykjavík, eða
Brekkustíg 39, Njarðvík, fyrir kl. 16.00,
fimmtudaginn 26. júlí nk.
Umsýslustofnun varnarmála,
Sala varnarliðseigna.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
Garðabær
60 m2 verslunarpláss á besta stað við Garða-
torg 7 í miðbæ Garðabæjar.
Frábærlega staðsett — Mikið gluggarými fyrir
sérverslun og dugnaðarfólk.
Staðurinn er tilbúinn til leigu eða sölu.
Verð kr. 7,5 millj.
Fasteignasalan HOLT 530 4500.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Aðalfundur Goða hf. verður haldinn á Grand
Hótel miðvikudaginn 18. júlí kl. 16.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn Goða hf.
TIL SÖLU
Fiskbúð
Til sölu fiskbúð með mikil og góð viðskipta-
sambönd. Mjög áhugaverður kostur fyrir fram-
takssaman einstakling eða hjón.
Listhafendur leggi inn nafn og símanúmer á
auglýsingadeild Mbl. merkt: „F — 11389“.
Garðplöntusala
Ísleifs Sumarliðasonar,
Bjarkarholti 2, Mosfellsbæ,
auglýsir 20-30% verðlækkun á rósum og fleiri
plöntum 13.—17. júlí. Lokað sunnudag.
Sími 566 7315.
Fólksbíla- og jeppakerrur
Smíðaðar úr „galvaníseruðu“ stáli, fullkominn
ljósabúnaður, bremsur á hjólum og handbremsa,
eins og tveggja öxla, fjaðrandi öxlar, 50 mm
kúlutengi, allt að 2.500 kg heildarþungi.
Gerð Stærð Hjólb. Heild.þ. Verð m/vsk.
B7524/13H 244x126x35 mm 165R13 1000 kg kr. 176.000
B1326H 260x130x35 mm 175R14 1300 kg kr. 206.000
B2030HT 304x150x35 mm 175R13 2000 kg kr. 296.000
C2537HT 375x174x35 mm 175R14 2500 kg kr. 426.000
Hafið samband við sölumenn okkar og fáið
nánari upplýsingar.
BÁTAR SKIP
Bylting — Víkingur — Fjölveiðiskip
Frá Bátagerðinni Samtak ehf.
Hann gerir það sama og 100
tonna skip. Hann þarf aðeins
þrjá menn í áhöfn. Hann gengur
22/23 mílur og eyðir aðeins 4,6
l á m á 1800/2000 snúningum.
Hann kostar aðeins 30% af verði
100 tonna báts. Byggingartími
í sjóklárt er þrír mánuðir. Hann
tekur 13x660 kg kör í lest.
Skútahrauni 11, Hafnarfirði.
Sími 565 1670. Fax 565 2069.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Auglýsing
um tillögu að breyttu
Deiliskipulagi
Flugstöðvarsvæðis á
Keflavíkurflugvelli
Samkvæmt 25. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997 með síðari breytingum, auglýsa
Varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins
og Flugvallarstjórinn á Keflavíkurflugvelli til-
lögu að breyttu Deiliskipulagi hluta Flugstöðv-
arsvæðis á Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða
svæði A, vestan Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar,
þar sem gert er ráð fyrir að hafa ýmsa þjón-
ustustarfsemi í tengslum við flugstarfsemi á
Keflavíkurflugvelli. Fyrirhuguð breyting er fólg-
in í aukningu byggðar og breyttu vegakerfi
miðað við núgildandi deiliskipulag. Auk skrif-
stofuhúsa, hótels og bílaleiga samkvæmt nú-
gildandi deiliskipulagi, er lagt til að hafa á
svæðinu stjórnsýslu og þjónustu- og atvinnu-
hús.
Deiliskipulagstillagan, sem er uppdráttur og
greinargerð, er til sýnis á skrifstofu Flugvallar-
stjóra á Keflavíkurflugvelli í Flugstöð Leifs Eir-
íkssonar og á Varnarmálaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytis, Brekkustíg 39, Njarðvíkurhverfi,
Reykjanesbæ, á venjulegum skrifstofutíma frá
13. júlí til 13. ágúst 2001. Athugasemdir ef ein-
hverjar eru skulu sendast til Flugvallarstjórans
á Keflavíkurflugvelli, Flugstöð Leifs Eiríkssonar
eða Varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytis,
Brekkustíg 39, Njarðvíkurhverfi, Reykjanesbæ,
í síðasta lagi 27. ágúst 2001.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna
innan ofangreinds frests teljast samþykkja hana.
Reykjavík í júlí 2001.
Flugvallarstjórinn á Keflavíkurflugvelli.
Varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytis.