Morgunblaðið - 13.07.2001, Side 44

Morgunblaðið - 13.07.2001, Side 44
FÓLK Í FRÉTTUM 44 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ BJÖRN OG Unnur falla vel undir skilgreininguna „ungt fólk á uppleið“. Þau eru par við nám í Listaháskólanum á leiklistarbraut. Þau stofnuðu fyrirtækið Réttur dagsins ehf. ásamt Berki Sigþórs- syni í kringum framleiðslu sinnar fyrstu kvikmyndar og nú hafa fleiri verkefni raðað sér á verkefnalista fyrirtæk- isins. Frumraunin á kvik- myndasviðinu mun svo líta dagsins ljós í haust. „Í stuttu máli sagt er þetta saga sem gerist í nú- tímanum þótt það sé ákveðið tímaleysi í henni,“ upplýsir Unnur um efni myndarinn- ar. „Við kynnumst lífi manns sem rekur gistiheimili á Ránargötu og hefur ein- angrast frá umheiminum. Það er í raun og veru eins og tíminn hafi staðið í stað í þrjátíu ár hjá þessum þrí- tuga manni, sem leikinn er af Hilmi Snæ Guðnasyni. Hann er á miklum tímamótum í lífi sínu og þarf í raun í fyrsta sinn að horfast í augu við sjálfan sig og umhverfi sitt sem hann hræðist mjög mikið.“ Veruleikaflótti Hvernig kom það til að þið ákváðuð að gera kvikmynd? „Maður hefur orðið fyrir áhrifum í gegnum tíðina af bæði vondum og góðum kvikmyndum. Okkur fannst við allt í einu hafa eitthvað að segja og fannst kvikmyndin spennandi form,“ segir Unnur. Hvað tók myndin langan tíma í vinnslu? Unnur situr fyrir svörum: „Merki- lega stuttan í raun og veru. En við að- löguðum okkur svolítið að því að við vorum með þröngan tímaramma, bæði út af okkar námi og eins út af leikurunum og öllu starfsfólkinu.“ „Þetta er svona tveggja ára ferli- allt í allt. Það var stefnt að frumsýn- ingu haustið 2001 og það stendur,“ segir Björn. „Tökurnar tóku ekki nema þrjár vikur. Þær gengu hratt og vel,“ bætir Unnur við. Þau Unnur og Björn eru höfundar handritsins ásamt Berki, sem einnig er kvikmyndatökumaður myndarinn- ar. „Við skrifuðum í hvert sínu horn- inu og komum svo saman og ræddum hugmyndir. Við vorum við með fólk til að lesa yfir hjá okkur,“ segir Unn- ur og Björn bætir við: „Já leikstjóra, rithöfunda og kvikmyndagerða- menn.“ „Við unnum handritið mikið út frá hugtökunum innilokun, einangrun og hræðsla,“ segir Björn. „Hvað gerist innandyra hjá fólkinu sem tekur ekki þátt í neyslusamfélaginu og hræðist hraðan nútímann. Fólkinu sem flýr raunveruleikann eins og við þekkjum hann. Persónurnar eru raun- verulegar en um leið svolítið skrýtnar. Þetta er svona fólk sem þú myndir horfa á eftir ef þú mættir því á götu.“ „Þetta er miklu meira per- sónusaga um forvitnilegt fólk,“ segir Unnur. Fáir árekstrar Daníel Bjarnason sér um að semja alla tónlist fyrir myndina. Hann er á tón- smíðabraut í Tónlistarskóla Reykjavíkur. Björn og Unn- ur eru mjög ánægð með ár- angurinn. „Tónlistin er allt frá því að vera angurvær og mjög fal- leg og í það að vera létt og kómísk. Bara það að hlusta á tónlistina fær mann til að hlæja og gráta til skiptis,“ segir Unnur hrifin. Er ekkert erfitt að vera tvö að leikstýra sömu mynd? Unnur situr fyrir svörum: „Nei það var aðallega skemmtileg reynsla. Í upp- hafi veltum við því auðvitað fyrir okkur hvort það væri geðveiki að ætla að leikstýra bæði en þar sem við erum mjög vön því að vinna náið saman þá ákváðum við að kýla á það. Við lögðum af stað með verkaskiptingu. Ég sá meira um leik- arana en Björn meira um framleiðsl- una í heild.“ Að lokum lék blaðamanni forvitni á að vita hvort Unni og Birni hefði ekki langað að fara sjálf með hlutverk í myndinni. „Nei furðulega lítið,“ segir Unnur. „Það var mjög meðvituð ákvörðun hjá okkur að leika ekki í myndinni. Þetta er auðvitað frumraun okkar í leikstjórn og við vildum hafa fókusinn á réttum stað.“ „Við vorum líka með svo góða leik- ara í öllum hlutverkum. Við höfum alla framtíðina til að vera hinum meg- in við linsuna,“ segir Björn að lokum. Forvitnilegt fólk Í haust verður frumsýnd ný íslensk kvikmynd sem ber heitið Reykjavík Guesthouse – Rent a Bike. Birta Björns- dóttir hitti þau Unni Ösp Stefánsdóttur og Björn Thors leikstjóra, handrits- höfunda og framleiðendur myndarinnar. Morgunblaðið/Sigurður JökullBjörn Thors og Unnur Ösp Stefánsdóttir. Íslenska myndin Reykjavík Guesthouse – Rent a Bike frumsýnd í haust birta@mbl.is Leikarar kvikmyndarinnar Reykjavík Gesthouse – Rent a Bike í öllu sínu veldi. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 Á leikferð um landið:                     !"     #$     !" #"  $% $&''()& % *+ "" ,% &-- ..'//**!""0+1!2/! 333  & (   $4 & (  Í kv öld Vesturgötu 2, sími 551 8900 Nýr matseðill, léttir og spennandi réttir Hljómsveitin Hunang              MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney Lau 14. júlí kl. 20 – NOKKUR SÆTI LAUS Lau 21. júlí kl. 20 – LAUS SÆTI Fö 27. júlí kl 20 – LAUS SÆTI SÍÐUSTU SÝNINGAR Í SUMAR WAKE ME UP e. Hallgrím Helgason Stórsöngleikur Leikfélagsins WMU Fi 19 júlí kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI Su 22. júlí kl. 20 - LAUS SÆTI Fi 26. júlí kl. 20 – LAUS SÆTI Ath. TAKMARKAÐUR SÝNINGAFJÖLDI Miðasala: 568 8000 Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Stóra svið Sumarsöngleikurinn HEDWIG KL. 20.30 Fös 13/7 örfá sæti laus Fös 20/7 örfá sæti laus Lau 21/7 AUKASÝNING örfá sæti laus Lau 28/7 nokkur sæti laus Lau 11/8 Fös 17/8 Lau 25/8 Fös 31/8 Ath. aðeins sýnt í sumar! „í einu orði lýst meistaraleg“ S.H. Mbl „stjarna er fædd“ DV „hvergi er slegið af trukkinu“ A.E. DV „óborganleg“ S.S. Fréttablaðið Barinn opnar kl. 19.30, tveir fyrir einn tilboð til kl. 20. Plötusnúðar leika fyrir sýningu og í hléi. Hádegisleikhúsið RÚM FYRIR EINN Sýningar hefjast aftur 15. ágúst Miðasalan er opin frá kl 10-14 í Iðnó og 14-18 í Loftkastalanum alla virka daga og frá kl. 14 fram að sýningu á sýningarkvöldum. Hópasala er í síma 530 3042 og skrifstofusími er 530 3032 eða 530 3037. midasala@leik.is — www.leik.is Miðasölusími er 530 3030   Í HLAÐVARPANUM Ungir menn á UPPLEIÐ lau. 14. júlí kl. 20 fim. 19. júlí kl. 20          5 5//*2"// %6333 ' (  Súrefnisvörur Karin Herzog Vita-A-Kombi olía

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.