Morgunblaðið - 13.07.2001, Síða 46
FÓLK Í FRÉTTUM
46 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Bridget Jones. Þær voru allar
klæddar fötum frá Top Shop og farð-
aðar með vörum frá Max Factor.
Að lokinni verðlaunaafhendingu
og upplestri á verðlaunasögunni var
boðið upp á skemmtiatriði. Valdimar
Kristjónsson steig á svið ásamt fríð-
um flokki hálfnakinna karlmanna og
flutti lagið „Ég elska menn“ úr söng-
leiknum Wake me up before you go
go við góðar undirtektir.
Eftir kroppasýninguna rökkvaðist
salurinn og gestir fengu að berja
myndina augum. Ekki var annað að
sjá en að áhorfendur skemmtu sér
vel og færu sáttir heim, kannski til að
skrifa í dagbókina sína.
Til gamans er hér látin fylgja með
vinningssaga Ágústu í Bridget Jon-
es-smásagnakeppninni.
Undirbúningur: Inni á baðher-
bergi sit ég með ílát fullt af háreyð-
ingarvaxi, nokkra tauklúta og leið-
beiningar um hvernig skuli fjarlægja
hárin af leggjunum þannig að þeir
verði silkimjúkir og fallegir. Athöfn-
in byrjar og ég hita vaxið í vaskinum
á meðan ég renni yfir leiðbeiningarn-
ar. Þær eru skrifaðar með örsmáu
letri og þar að auki á snyrtifræði-
ensku. Ég tel mig ná meginmáli efn-
isins og hefst handa við að klístra á
mig vaxi. Ég maka vel og vandlega
yfir leggina, þek þá vel með þessum
ótrúlega klístraða og þykka vökva.
Þar sem ég sit á upphituðu flísunum
á baðherbergi foreldra minna renna
á mig tvær grímur þegar ég kemst
að raun um að ég er límd föst við bað-
herbergisgólfið. Hitinn á gólfinu og
vaxið mynduðu nánast tonnatak.
Hvílíkur sársauki þegar ég reyni að
losa leggina frá. Eina ráðið sem ég
fæ er að kalla hástöfum á mömmu
mína. Hún kemur og eftir ýmsar til-
raunir til að losa mig hendist móðir
mín í apótekið og kaupir límleysan-
legt efni. Efnið virkar vel og smám
saman losna einnig allar gervinegl-
urnar sem ég eyddi þvílíkum tíma í
að púsla á mig, snyrta og lakka. Nú
var tíminn orðinn naumur og ekki
tími fyrir fleiri stórar fegurðarað-
gerðir. Mig langaði mest til að hætta
við stefnumótið, liggja uppi í rúmi og
grenja það sem eftir var kvöldsins.
Ég náði nú samt að taka mig saman í
andlitinu og skella mér út. Stefnu-
mótið gekk ágætlega en ég var
kannski ekki jafn sjálfsörugg og
glæsileg og ég hafði hugsað mér að
vera.
sæti varð Erla Ósk Arnardóttir og í
því þriðja Íris Ósk Davíðsdóttir.
Ágústa hlaut að launum ferð til
London frá ferðaskrifstofunni Go og
fataúttekt frá Top Shop. Auk þess
hlutu allar stúlkurnar þrjár Bridget
Jones-bækur, snyrtitösku frá Max
Factor ásamt boðsmiðum á myndina.
Vinningshafarnir voru keyrðir í
Háskólabíó á slökkviliðsbíl að hætti
MARGT VAR um manninn á for-
sýningu kvikmyndarinnar Dagbók
Bridget Jones, sem fram fór í Há-
skólabíói á miðvikudag.
Fyrir sýningu myndarinnar voru
veitt verðlaun fyrir bestu smásöguna
í smásagnakeppni Bridget Jones
sem mbl.is stóð fyrir.
Það var Ágústa Harðardóttir sem
þótti eiga bestu smásöguna. Í öðru
Dagbók Bridget Jones forsýnd
Slökkviliðsstemning í Háskólabíói
Guðný, Unnur, Margrét Anna og Hildur kunnu vel
að meta drykkjuglaða dagbókarhöfundinn Jones.
Vinningshöfunum var ekið í Háskólabíó á slökkvi-
liðsbíl í anda Bridget Jones. F.v. Íris Davíðsdóttir,
Erla Ósk Arnardóttir og Ágústa Harðardóttir.
Morgunblaðið/Jim Smart
„Ég elska menn.“
Í KVÖLD og annað kvöld tekur villt
gleðin völdin þegar fönksveitin
Atóm hefur leik sinn hálftíma eftir
miðnætti á Vídalín, Aðalstræti.
Sveitarmeðlimir segjast sannkall-
aðir fönkhundar, en þeir eru saxó-
fónleikarinn Eyjólfur Þorleifsson,
trymbillinn Sigfús Óttarsson, gít-
aristinn Ómar Guðjónsson og bassa-
leikarinn Þorgrímur Jónsson, tón-
listarmenn sem eiga rætur sínar að
rekja til ekki ómerkari sveita en
Funkmaster 2000, Jagúar og Casino.
„Þetta eru vanir menn og hver
kemur með sínar hugmyndir inn í
bandið sem blandast mjög vel sam-
an, gefur af sér mikinn hrynhita og
fönk,“ segir Eyjólfur sem segir þá
ætla að reyna að koma fram sem oft-
ast í sumar.
Hluti tónlistarinnar er frumsam-
inn auk þess sem Atóm leikur töku-
lög, og er þetta allt að vonum mjög
dansvænt. „Við víkjum ekkert frá
hefðinni, spilum fönk og fólk getur
ekki annað en dillað sér með því,“
segir Eyjólfur og lofar stuði og alla-
vegana einu lagi með James Brown.
Atóm fönkar á Vídalín
Morgunblaðið/Jim Smart
Glaðbeittir fönkarar bjóða upp á stuð í kvöld og annað kvöld.
Dansvæn dilltónlist