Morgunblaðið - 13.07.2001, Side 52

Morgunblaðið - 13.07.2001, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. Þaðan var siglt á bátum eftir ánni Napo til búða á vegum ferðaskrifstofunnar í Paña- cocha. Þar hófst gönguferð um frumskóginn að morgni miðvikudagsins 4. júlí sl. sem átti að taka 2–3 tíma. „Svo gerist það að leiðsögumaðurinn fann ekki réttu leiðina til baka í búðirnar og við þrömmuðum á eftir honum fram á kvöld. Við sáum ekki til sólar fyrir trjánum og vissum lít- ið hvar við vorum. Hann viðurkenndi þó ekki fyrr en um kvöldið að við værum villt. Við fundum yfirgefinn strákofa til að gista í fyrstu nóttina. Við höfðum engan mat með okkur og aðeins hálfan lítra af vatni. Ætli hver fyrir sig hafi ekki drukkið um 300 millilítra af fersku vatni alla ferðina. Við fundum sykurreyr og jöpluðum á honum allan tímann. Einnig átum við villt ber og fundum nokkra banana sem við bökuðum yfir eldi,“ sagði Sigurjón. Daginn eftir fundu fjórir leiðsögumenn þau sem höfðu leitað þeirra í sólarhring, en Sigur- jón sagði að fljótlega hafi komið í ljós að þeir höfðu einnig tapað réttu leiðinni í búðirnar. „Þeir fundu okkur í sefi þar sem drulla var úti um allt með litlum gróðureyjum. Við börð- umst í gegnum það fram á kvöld í hellirign- ingu og við orðin holdvot. Við bjuggum þá til skýli úr bambusgreinum og sváfum þar aðra nóttina í kolniðamyrkri og grenjandi rign- STUTT gönguferð um frumskóga Ekvador, sem átti að taka 2–3 tíma, snerist upp í hálf- gerða martröð hjá Íslendingunum Sigurjóni Magnússyni, 25 ára, og Borghildi Kristjáns- dóttur, 22 ára, sem villtust í skógunum í síð- ustu viku ásamt frönskum ferðamönnum og leiðsögumönnum frá ferðaskrifstofu í Ekva- dor. Eins og kom fram í Morgunblaðinu í gær var ferðafólksins leitað í nokkra daga þar til það kom fram í tjaldbúðum í Pañacocha í norðausturhluta landsins. Höfðu þau þá þvælst um frumskógana í rúma þrjá daga, og gengið 12 tíma á dag í bæði steikjandi hita og sól og grenjandi rigningu. Sigurjón sagði við Morgunblaðið í gærkvöldi að hann hefði verið orðinn svo sárfættur eftir ferðina að skera þurfti stígvélin af honum. Þau Borghildi sak- aði ekki að öðru leyti en um tíma voru þau far- in að óttast um líf sitt. Ferðalag Sigurjóns og Borghildar hófst í rútu frá bænum Baños og ekið var til Coca. ingu. Við vorum öll útbitin eftir maura og moskító-flugur. Þá var okkur ekkert farið að lítast á blikuna. Aðbúnaður leiðsögumann- anna var heldur ekki til að auka traust okkar á þeim. Þeir voru bara á stuttbuxum búnir sveðjum einum saman, enginn var áttavitinn og hvað þá talstöð. Þetta var eins og í versta Tarzan-ævintýri,“ sagði Sigurjón. Urðum að halda áfram Ganga þeirra um frumskógana hélt áfram þriðja daginn, föstudaginn 6. júlí, og sagði Sigurjón að þá hefðu þau verið orðin heldur framlág, hann sárfættur og Borghildur með flugnabit. Þá mátti litlu muna eitt sinn að þau væru bitin af eitursnáki. Þegar fram á laug- ardag var komið fundu leiðsögumennirnir loks réttu leiðina og komu þau í búðirnar í Pañacocha síðdegis á laugardag, en ekki á mánudagsmorgun eins og fregnir fjölmiðla í Ekvador hermdu. Sigurjón sagði þær fregnir hafa verið heldur ónákvæmar en hvarf þeirra í skógunum engu að síður vakið athygli bæði dagblaða og sjónvarpsstöðva. Sigurjón og Borghildur stunda bæði nám í Danmörku en ákváðu að verja sumarfríi sínu í Ekvador. Borghildur var þar skiptinemi fyrir fjórum árum og var för þeirra heitið til borg- arinnar Guayaquil í vesturhluta Ekvador þar sem „fósturforeldrar“ hennar búa. Stutt gönguferð Íslendinga um frumskóga Ekvador endaði með ósköpum „Eins og í versta Tarzan-ævintýri“ Sigurjón Magnússon og Borghildur Kristjánsdóttir. Morgunblaðið/Billi SUMARHÁTÍÐ Vinnuskóla Reykja- víkur var haldin í blíðskaparveðri í Laugardal í gær og var þar mikið um dýrðir. Um 1.400 starfsmenn Vinnuskólans á aldrinum 14 til 16 ára komu þar saman, kepptu í íþróttum og sýndu listir sínar. Með- al þeirra var þessi stúlka sem flögr- aði um á trampólíninu. Loftstökk Vinnuskólans  Um 1.400/4 FYRSTU íslensku kartöflurnar á þessu sumri verða til sölu í dag í verslunum Hagkaups á höfuðborg- arsvæðinu. „Um takmarkað magn er að ræða í fyrstu, u.þ.b. 1 tonn. Kartöflurnar koma frá Sóleyjarbakka í Hruna- mannahreppi. Um er að ræða prem- ier-afbrigði. Framboðið verður tak- markað næstu 10 dagana en eftir það fer það að aukast. Kílóverðið í fyrstu verður 349 kr.,“ að því er fram kem- ur í fréttatilkynningu frá Hagkaupi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Jens Gíslason með fyrstu ís- lensku kartöfluuppskeruna í sumar. Nýjar íslenskar SEX kíló af hassi fundust í ferða- tösku bresks karlmanns þegar hann kom til landsins frá Ósló á sunnudag- inn. Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hefur lagt hald á hátt í 19 kíló af hassi á þessu ári en allt árið í fyrra var lagt hald á rúmlega 12 kíló. Fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík fer með rannsókn málsins en maðurinn hefur verið úrskurðað- ur í tveggja vikna gæsluvarðhald. Breti stöðv- aður með 6 kíló af hassi ♦ ♦ ♦ FJÖLÞJÓÐLEGT fjareftirlit með fiskveiðum, sem Ísland er aðili að, hefur gert fiskveiðieftirlit mun skilvirkara, að sögn Hafsteins Hafsteinssonar, for- stjóra Landhelgisgæslunnar. Mál norsku skipstjóranna, sem hafa verið ákærð- ir fyrir landhelgisbrot innan íslenskrar lögsögu, er fyrsta málið sem fer fyrir dómstóla, frá því kerfið var tekið í notkun fyrir tveimur árum. Hafsteinn segir fjareftirlitskerfið einnig vera mikilvægt öryggistæki, þar sem skip sem búin eru ákveðnum búnaði sendi frá sér mjög nákvæm stað- setningarhnit á klukkutíma fresti og lendi eitthvert skip í vandræðum sé strax hægt að sjá hvaða skip eru stödd í næsta nágrenni og senda þau á vettvang. Hann segir að hægt væri að auka öryggi ís- lenskra sjómanna með því að færa tilkynninga- skylduna til Landhelgisgæslunnar og koma fjareft- irlitsbúnaði fyrir í öllum íslenskum skipum. Hann segir einnig að mikið hagræði myndi hljótast af því. Landhelgisgæslan sendir Slysavarnafélaginu Landsbjörg, sem hefur umsjón með tilkynninga- skyldunni, upplýsingar um staðsetningu þeirra skipa sem eru búin þessum tækjum tvisvar á sólar- hring. Búnaðurinn er þegar til staðar, þannig að ekki þyrfti að ráðast í miklar fjárfestingar. Ísland aðili að fjölþjóðlegu fjareftirlitskerfi sem er mikilvægt öryggistæki Hægt að koma búnaðinum fyrir í öllum íslenskum skipum  Í fyrsta/10 LISTAR Framsóknarflokks og Skagafjarðarlista hafa myndað nýj- an meirihluta í sveitarstjórn Skaga- fjarðarkaupstaðar, en meirihluta- samstarfi Framsóknar- og Sjálf- stæðisflokks var slitið sl. föstudag vegna ágreinings. Stefán Guð- mundsson, sveitarstjórnarfulltrúi Framsóknar, sagði að fundur full- trúaráðs í gærkvöld hefði samþykkt þau drög sem lágu fyrir um myndun meirihlutasamnings við Skagafjarð- arlista. Sagði Snorri Styrkársson, formaður Skagafjarðarlista, að félagsfundur þeirra hefði og sam- þykkt drögin á fundi í gærkvöld. Framsókn og Skagafjarð- arlisti mynda meirihluta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.