Vísir - 28.06.1979, Blaðsíða 5

Vísir - 28.06.1979, Blaðsíða 5
vism Fimmtudagur 28. júni 1979. DAGASPURSMALI HVENÆR SOMOZA HRÖKKLAST ■ . ;2Kr Saudi-Arabar ætla aö auka framieiösiu sína samfara nýju oliuveröi um eina milljón tunna á dag. Þingið í Nicaragua kemur sam- an i dag tii mikilvægs fundar. Taliðerfullvist að það muni velja eftir mann Somoza forseta. Lagt hefur verið hart að Som- oza að segja af sér og hafa Bandarikjamenn verið þar fremstir i flokki. Talsmaður Somoza hefur margsinnis neitað þeim staðhæfingúm að forsetinn ætlaði að segja af sér. Barist er enn i landinu. Skæru- liðar Sandinista hafa haft mun betur. Þeir hafa þegar sett upp útlagastjórn, sem þegar hefur verið viðurkennd af Panaama- stjórn. Sex riki hafa nú þegar slitið stjórnmálasambandi við Somoza- stjórnina. Talið er dagspursmál hvenær Somoza hröklast frá völdum. Somoza OPEC-fundurlnn: OUUTUHHAH A ALLT M 23 DALI Fulltrúar OPEC rikjanna sem fúnda nú i Genf hafa ákveð^jð að hækka oliuverðið um 35 prosent, frá 14.55 i um 20 dali. Samt sem áður komu þeir sér ekki saman um hækkunina, sum rikjin selja oliu sina mun dýrar en önnur. Saudi-Arabar setja upp 18 doll- ara fyrir hráoliutunnunna frá og með 1. júh'. iran, Alsir og Lýbia selja sina oliu allt upp i 23 dollara fyrir hverja tunnu. Oliuverðið mun gilda næstu þrjá mánuði. Oliumálaráðherr- arnir koma saman aftur i sept- ember og þá verður verðið endur- skoðað. Snarpar umræður urðu á fund- inum milli ráðherranna. Annars vegar eru þeir sem eru fylgjandi stefnu Saudi-Arabiu og svo hins vegar rikin sem snúast á sveif með Lýbiumönnum og irönum. TaliðeraðSaudi-Arabarætli að auka oliuframleiðslu sina sam- fara nýju oliuverði. Aukningin verður um ein milljón tunnur á dag. Oli framleiðsla Saudi-Araba er nú um 8 milljón tunnur á dag. Toppfundurlnn hafinn - leiðtogarnir ræða oifuvandann í dag Fundup um fiðtta- mannavandamálið Toppfundurinn i Tokyo i Japan hefst i dag. Leiðtogar sjö landa, Bandarikjanna, Japan, Vestur-Þýskalands, Frakklands, Bretlands, Italiuog Kanada sitja fundinn. Aðalmál fúndarins er oliuskort- ur og hækkunolíuverðsins. Þegar hafa verið gerð drög að samþykkt sem verður rædd á þessum tveggja daga fundi. Fréttamenn hafa þegar fengið það i hendur, en það voru fulltrúar Vestur-Þjóð- verja sem dreifðu uppkastinu. Þeir sögðu að Helmut Schmidt vær samþykkur öllum megin- atriðum sem kæmu fram i drög- unum. 1 drögunum segir að riki Vesturlanda eigi að lýsa þvi yfir að þau hafi hug á samvinnu viö OPEC rikin um að halda oliu- markaðinum i skefjum. Þá er lögð áhersla á það i upp- kastinu að iðnrikin verði aö treysta mjögá kjarnorku i fram- tiðinni. Þetta ákvæði, ef þaö verður samþykkt, mun eflaust vekja reiði margra hópa, sem barist hafa á móti kjarnorkunni. Þá er lögð áhersla á að rann- saka nýja orkugjafa oglögð skal áhersla á að nýta sólarorkuna. Samvinna skal höfð við rannsókn nýrra orkugjafa og alþjóðastofn- anir skulu fara á undan í þessu efni. Leiðtogarnir sjö koma saman i Akasaka höll i Tokyo. Þar veröur uppkastið rætt i dag og á morgun en þá lýkur fundinum. Kurt Waldheim hefur sent milli 70 °g 80 rikisstjórnum bréf þar sem hann boðar til ráð- stefnu um mál flóttafólksins frá Vietnem. Gert er ráð fyrir að húnhefjisti Geneve þann 20 júli. Ekki er búiðað tilkynna fund- inn opinberlega en gert er ráð fyrir að það verði gert á mánu- daginn. Waldheim hefur rætt við full- trúa rikisstjórna Vietnam og Kina um skipulagningu fundar- ins og hvaða mál verði lögð áhersla á að leysa. Leiðtogarnir sem nú funda i Japan ræða einnig um flótta- mannavandamálið. Frakk- landsforseti hefur með sér til- lögur á fundinn, þar sem hann leggur til aðiðnriki Evróputaki að sér flóttafólk. Fjöldann skal miða við fólksfjölda í viðkom- andi landi. Talið er að ekki verði auðvelt fyrir fulltrúa Frakka að koma þessu máli i höfn á toppfundin- um. Það mun mæta haröri and- stöðu af hálfu Vestur-Þjóðverja og Japana. cb ' lÞ°' iTtS1 TVOT e’ts tyóVdl6/. i rv •„ se^ •bet’C’ t • uW v\- . NVfa%a ife fta . ^ • -.5ÍT Srig,ar °^NY.fat sýó ‘ ST\aíí ^s á V „sirvs -. V tl-t . fYa w&fs:* *5* ^ \lW sV-f Tvetw’ cT.Þad^a sVeg,1'° TOa’On „n<>' £&t ar\Þ°rbS ‘ we Sá?' -Y.’O.r *. ^ ItaÉf.oo ’*&&&&&» ! ^ ^ e&a „ s- ^i&at á sV-ra atasta’ ^ ósV-aS \t ai út tt i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.