Vísir - 29.06.1979, Blaðsíða 11

Vísir - 29.06.1979, Blaðsíða 11
VISIR Föstudagur 29. júni 1979 11 FLUGLEHIR SEGJA UPP 200 STARFSMÖNNUM - 30% fækkun í stjórnunar- og skrlfslofustfirfum - samdráltur á fillum fiuglelðum Um 200 starfsmönnum hjá Flugleiöum innanlands hefur veriö sagt upp störfum. Samdráttur á öllum flugleiöum félagsins hefur veriö boöaöur á næstu vetraráætlun. Jafnframt er unniö aö um- fangsmiklum skipulagsbreytingum á fyrirtækinu. Einstaka deildir veröa lagöar niöur en starfssviö annarra breytist. Þessar upplýsingar komu fram hjá Siguröi Helgasyni forstjóra félagsins á blaöamannafundi í gær meö stjórnendum Flugleiöa. „Okkur er óljúft aö gripa til þessara aögerða en þaö er gert i varnaðar- og öryggisskyni”, sagöi Sigurður. Þetta væri viöleitni i þá átt aö rétta viö hag fyrirtækisins og ná fram sparnaði og hagkvæmni I rekstri. Sigurður benti á þá rekstrar- örðugleika sem hefðu verið hjá Flugleiðum á siðasta ári en þá var sem kunnugt er um 3ja milljarða rekstrartap hjá félag- inu. Ýmislegt benti til að áfram- haldandi taprekstur yrði á þessu ári og liklega enn meiri en i fyrra. Sigurður rakti siðan þann vanda sem við er að gli'ma en það er einkum þrennt: erfið samkeppnisaðstaða á Atlants- hafsfluginu, ört vaxandi oli'u- kostnaður og kyrrsetning DC 10 þotunnar i Bandarlkjunum. Engar fargjaldahækkanir hefðu hins vegar orðið til að mæta þessum aukna rekstrar- kostnaði. Sigurður sagði að þessar upp- sagnir væru miöaðar við fyrir- hugaðan samdrátt, en verið væri að kanna ýmsar leiðir, ný verkefni og nýjar flugleiðir, til að nýta vélar fyrirtækisins bet- ur. Flest af þessu væri á frum- stigi en þó væri búið að gera drög að samningi um pfla- grímaflug i haust. Tækist að afla nýrra verkefna yrði'einhver hluti af þvi starfs- fólki sem sagt hefur verið upp endurráðinn. Þessar uppsagnir þýða um 16% heildarfækkun á starfsliði Flugleiða innanlands, en um 30% fækkun I skrifstofu og stjórnunarstörfum. Um 51 flug- liða verður sagt upp þar af 18 flugmönnum, 9 frá Félagi is- lenskra atvinnuflugmanna og 9 frá Félagi Loftleiðaflugmanna, 7 flugvélstjórum og 26 flugfreyj- um. Sigurður sagði að Flugleiðir myndu gera sérstakar ráðstaf- anir til þess að það fólk sem missti atvinnuna fengi vinnu annarsstaðar og hefði Starfs- mannadeild Flugleiða verið fal- ið að vinna að þvi. Fyrirhugað er einnig að segja upp hluta af Stjórnendur Flugleiöa tilkynntu um uppsagnir fjöida starfsmanna og boöuöu samdrátt I rekstri fé- lagsins. Jón Júliusson framkvæmdastjóri stjórnunardeildar, Einar Helgason framkvæmdastjóri innan- landsfiugs, Siguröur Helgason forstjóri, Leifur Magnússon framkvæmdastjóri flugrekstursdeildar, Björn Theódórsson framkvæmdastjóri fjármáladeildar og Martin Petersen framkvæmdastjóri mark- aösdeildar. Visismynd GVA. erlendum starfsmönnum Flug- leiða á ýmsum stöðum en Sigurður sagði að ekki þyrfti að koma til þess strax þar sem hjá þeim væri yfirleitt miklu styttri uppsagnarfrestur. Hér er uppsagnarfresturinn 3 mánuðir og munu umræddir starfemenn hætta störfum 1. september og 1. október að öllu óbreyttu. Nokkrum af þessum starfsmönnum var sagt upp um siðustu mánaðamót en hinir fá uppsagnarbréfin i hendur þessa dagana. — KS. stórlöxum KULDI 0G VEIÐILEYSI haia hrjáð velðimenn I Húnavatnssýslum IHúnavatnssýslum eru margar bestu laxveiöiár landsins, en þar hefur til þessa veriö fremur treg veiöi i sumar, aldrei sllku vant. Laxinn viröist fyrst þessa dagana vera aö ganga I árnar aö ein- hverju marki og til aö bæta gráu ofan á svart hefur flesta dagana viöraö ilia á veiöimenn. A laugar- daginn munaöi ekki miklu aö mennþyrftuaö vera á sklöum viö veiöina, aö sögn veiöivaröarins i Miöfjaröará! Vatnsdalsá 49 laxar voru komnir á land i gærmorgun Ur Vatnsdalsá. Þar hófst veiði 17. júni, en það var ekki fyrr en á miðvikudaginn, 27. júni, sem sæmilega veiddist. Þá fengust 12 laxar. 1 gær var áin afturorðin vatnsmikil og mórauð, að sögn Ingibjargar ráðskonu i veiðihúsinu, og þvi ekki mikil veiðivon. Stærsti laxinn, sem veiðst hefur á þessu sumri I ánni, var 16 pund. Viðidalsá „Mönnum finnst eitthvað vera að lifna yfir ánni,” sagði Gunn- laug Hannesdóttir ráðskona i veiðihúsinu við Viðidalsá. 1 gær höfðu komið 66 laxar á land úr ánni, sá stærsti 16 pund og kom hann úr Kerfossi. Þetta er treg veiði miðað viðsfðasta sumar, en þá veiddust 1851 lax i Viðidalsá. Miðfjarðará „Veiðin datt mjög niður i kuldakastinu um siðustu helgi,” Það er vlöar en á norö-vestur- landi sem laxveiöin er treg enn sem komið er. Þessi mynd var tekin um siðustu helgi af veiöi- mönnum viö ölfusá. Þar hefur llt- ið fengist þrátt fyrir miklar til- raunir. Visismynd: EJ. sagði örn Sævar Eyjólfsson veiði- vörður í Miðfjarðará. ,,En nú er þetta aðeins að braggast. Sá lax sem kominn er i ána er kominn vel uppeftir og menn eiga von á þvi að nú fari að veiðast.” Frá þvi veiði hófst 8. júni hafa veiðst 170 laxar i Miðfjarðará og tveir þeirstærstu voru 18 pund að þyngd. örn sagði að það væri fall- egur fiskur sem fengist. Blanda „Þetta er að glæðast núna,” sagði Sigurður Kr. Jónsson á Blönduósi,þegarviðinntum hann eftir veiðinni f Blöndu. Hann sagði að bestu dagarnir hefðu verið á þriðjudag og miðvikudag. Þá hefðu veiöst 16 laxar hvorn daginn, en frá byrjun veiðitimans hafa aðeins veiðst 70—80 fiskar. ,,Ain er afskaplega skemmtileg núna,” sagði hann. „Hún er blá- tær eins og undanrenna og frekar vatnslitil. Og það er eins og veiðin séaðhefjast núna hálfum mánuöi seinna en venjulega.” Frá Laxá i Asum fengum við þær Léttir að þar væri sömu sögu að segja. Siðustu dagarnir gæfu góða von um að nú væri laxinn farinn að ganga fyrir alvöru. — SJ. 1949 ^ 30 ÁRA ÞJÓNUSTA 1 1979 §é SENDIBÍLASTÖÐIN H.F. • BORGARTÚNI21

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.