Vísir - 04.07.1979, Side 1
Ullarlðnaðurinn f erflðlelkum:
TAPIB AÆTLAfi 1500
MILLJðNIR KRÖNA
Flðldauppsagnlr el ekkl fæst 15% genglsfelllng segja talsmenn ullarlðnaðarlns
Miklir erfiðleikar steðja nú að
ullariðnaðinum vegna innlendra
hækkana á framleiðslukostnaði.
Er talið að tapið muni nema
1500 milljónum á ársgrundvelli
og þurfi að koma til 15% gengis-
breyting ef endar eigi að ná
saman.
Vísir hafði af þessu tilefni
samband við Pétur Eiriksson
framkvæmdastjóra Alafoss og
sagði hann að ef ekkert yrði að
gert mjög fljótlega væri einsýnt
að segja þyrfti upp fjölda fólks I
ullariðnaðinum en alls munu
þar nú starfa um 1400 manns.
Pétur sagði að einkum væru
það saumastofurnar sem væru
illa staddar. Ullarframleiðend-
ur og prjónastofur gætu velt
innlendum hækkunum yfir á
þær en sá fullunni ullarfatnaöur
sem þær framleiddu til útflutn-
ings væri seldur á föstu veröi
miðað við dollarann sem aðeins
væri breytt um áramót. Yrði þvi
að koma til 15% gengisbreyting
til þess að rétta við hag þeirra.
„Eins og horfir þarf að segja
upp fjölda fólks á saumastofum
og það hefur jafnvel komið til
tals að opna þær ekki aftur eftir
sumarleyfi” sagði Zophanias
Zophaniasson framkvæmda-
stjóri Pólarprjóns á Blönduósi i
viðtali við Visi. Taldi hann að ef
saumastofurnar sem væru sölu-
aðili ullarframleiöslunnar yröu
að loka, yrðu aðrir aðilar I ullar-
iðnaðinum að gera slikt hið
sama.
Zóphanias sagði að ullarfram-
leiðendur væru ókátir með það
að gengið væri alltaf miöað við
þarfir útgerðarinnar en litt væri
tekið tillit til annarra fram-
leiðslugreina eins og ullariönað-
ar. — HR.
Húlahopp fer nú sem eldur i sinu um landiö og á góðviðrisdögum má viða sjá börn og unglinga að leik með húlahringi. Sumir hafa fengið
gamla hringinn pabba eða mömmu sem þau notuöu þegar húlaæði gekk siðast yfir. (Visism. ÞG).
Slguröur A. með
stðrt hlutverk
I grlskrl
kvlkmynd
bls. 11
Vletnamstiðrn
stðrgrmðlr
á fiðttafðikina
bls.4
Spiailað vlð
Hðkon um
triárækl
bls. 2
■
Könnun Vísis (tilefni af komu 25-30 flötlamanna frá Vietnam ningaö:
Sextfu Austur-Asfumenn
nú búsetllr hðrlendls
Hér á landi munu nú vera bú-
settir rúmlega 60 einstakiingar
sem eiga ættir sinar að rekja til
Austur-Asiu, samkvæmt þeim
tölum sem Vfsir fékk hjá Hag-
stofu islands.
Þessi tala skiptist þannig að
12 eru frá Filipseyjum, 9 frá
Japan,8 eru ættaðir frá Kína og
26frá Kóreu, þar af 22 börnsem
hafa verið ættleidd á siðustu ár-
um. Að auki eru svo nokkrir
sem ekki er nánar tiltekiö um
hvaðan séu ættaðir.
Þetta fólk er á öUum aldri,
dreift út um allt land og margt
af þvi hefur Islenskan rikis-
borgararétt. Þá er það i mörg-
um tiivikum gift islenskum
mökum.
Til samanburðar má geta
þess að nú er rætt um að hingað
komi 5-6 vietnamskar fjöl-
skyldur og yröi fjöldi þeirra
Vfetnama sem hingaö kæmi þvi
aldrei meiri en 30 manns. Eins
og kunnugt er fór flóttamanna-
aðstoð Sameinuðu Þjóðanna
þess á leit við islendinga að þeir
tækju við 50 flóttamönnum.
Visir mun i dag og næstudaga
fjalla um Asfumenn á islandi
ræöa við þá um viðbrögð Is-
lendinga og hvernig þeim liður
hér og heyra álit islendinga á
innfiutningi fólks frá Asfu og
flóttamannamálinu, sem nú er á
döfinni. —HR
íslendingar — Asiu-
menn
Fyrsta opnan af
þrem er i Visi i dag.