Vísir - 04.07.1979, Blaðsíða 11

Vísir - 04.07.1979, Blaðsíða 11
VÍSIR MiOvikudagur 4. júll 1979 Siguröur A. Magnússon viö Akrópölishæö I Aþenu i siöustu viku. TX'TO: n UðRULEIÐiR HF. Kleppsmýrarvegi 8 - Sími 83700 Vörumóttaka alla virka daga til: SKRIÐULAND BúÐARDALUR KRÓKSFJ. NES HÓLMAViK— DRANGSNES AKUREYRI RAUFARHÖFN — ÞÓRSHÖFN SEYÐISFJÖRÐUR ESKIFJÖRÐUR HORNAFJÖRÐUR SELFOSS HVERAGERÐI — STOKKSEYRI — EYRARBAKKI KEFLAVIK— NJARÐVIK ..OJUMN M REYNR EITTHVM NYTT" - seglr Slgurður I vlDtali vlð Vlsi.en hann mun fara með hlulverk griskumæiandi Breta I nýrri kvlkmynd lelksljðrans voulgaris „Kvikmyndin fjallar um ákveðið skeið I æfi eins mesta stjórnmálamanns Grikkja á þessari öld. Hann hét Elefþerios Venizelos, en mér hefur verið falið að fara með hlutverk helsta ráðunauts hans, sem var Breti”, sagði Sigurður A. Magnússon rithöfundur er Visir hitti hann að máli i Aþenu á dög- unum og spurðist fyrir um fyrir- hugaðan kvikmyndaleik Sigurðar. Þetta er eitt af stærstu hlutverkum myndar- innar sem verður um einnar og hálfrar klukkustundar löng. Það er einn kunnasti kvik- my ndaleikstjóri Grikkja, Pandelis Voulgaris, sem stjórn- ar gerð kvikmyndarinnar um Venizelos, og hefur Voulgaris unnið að handritinu fyrir myn<l- ina undanfarin tvö ár. Kvik- myndatakan hefst 16. júli og er áætlað að hún standi yfir til 21. september. „Kommér mjög áóvart’ „Voulgaris kom til Islands i sambandi við kvikmyndahátið Listahátiðar i tilefni af sýningu einnar kvikmyndar hans og átti sæti i dómnefnd hátiðarinnar”, sagði Sigurður. „Ég var fenginn til þess að vera túlkur hans og fylgdarmaður og fór vel á með okkur, en það kom mér mjög á óvart, þegar hann birtist, þar sem við hjónin búum nú i Vouliagmeni og sagði að ég væri maðurinn, sem hann þyrfti að fá i hlutverk Bouchers i kvik- myndinni.” „Tókstu boðinu strax?” „Eg sagðist vera i vafa um að ég gæti leikið slikt hlutverk vegna reynsluleysis, en Voul- garis sagðist helst vilja fá til samstarfs við sig óreynt fólk, sem hann gæti mótað að vild i hlutverkin og þegar hann sagð- ist vera viss um að hann gæti gert úr mér góðan leikara ákvað ég að slá til. Það er alltaf gaman að reyna eitthvað nýtt”. Með sagnaflokk i smíð- um Sigurður A. Magnússon dvaldist I Grikklandi i um það bil ár fyrir þrjátiu árum, lærði grfsku, ferðaðist um landið og skrifaði bókina „Griskir reisu- dagar”. Siðan hefur hann alloft komið til Grikklands og fylgst náið með griskum málefnum og talar grisku reiprennandi. Sigurður er um þessar mundir starfandi sem aðalfararstjóri ferðaskrifstofunnar Útsýnar i Grikklandi og tekur kvik- myndaleikurinn við er þvi starfi sleppir i sumar. Siðastliðinn vetur dvaldist Sigurður ásamt fjölskyldu sinni i Berlin, þar sem hann vann að ritun skáldsögu og hlaut hann þýskan styrk til dvalarinnar. Að sögn Sigurðar hefur hann nú nýverið skilað handriti að bókinni til Máls og menningar með tilliti til útgáfu i haust. Hann segist hugsa sér að þetta verði fyrsta bókin i trflógíu, flokki þriggja skáldsagna, sem byggi að nokkru leyti á reynslu hans sjálfs og sé grunnur fyrstu bókarinnar minningabrot frá bernskuárunum. Heiti fyrsta hluta verksins sé enn ekki endanlega ákveðið, en helst hallist hann að þvi að nefna hana „Undir kalstjörnu”. Einnig eru væntanlegar á markað i haust tvær bækur sem Sigurður hefur þýtt fyrir bóka- útgáfuna Sögu tengdar griskri og norrænni goðafræði. í griskum harmleikj- um i Bandarikjunum Sigurður er ekki alls ókunnug- ur leiklistinni og má i þvi sam- bandi nefna, að hann var i um það bil áratug leiklistar- gagnrýnandi hjá Alþýðublaðinu og Morgunblaðinu og árið 1962 sýndi Þjóðleikhúsið leikrit eftir hann sem hér Gestagangur. „Leikhús er ein af minum ástriðum, en ég get ekki sagt að mikið hafi reynt á leikarahæfi- leika mina fram að þessu að öðru leyti en þvi, að ég lék i tveimur forngrískum harm- leikjum i New York á meðan ég var við nám I Bandaríkjunum fyrir mörgum árum”, sagði Sigurður er hann var inntur eftir reynslu sinni á leiksviði. „Ég er búinn að fá handritiö I hendur, þykkan doðrant, og verð nú að fara að lesa mig til og kynna mér hlutverkið. Eftir kynni min af griskum málefn- um og sögu hef ég miklar mætur á Venizelos, þeim sem myndin fjallar um og Boucher sá sem ég á að leika, er kunnur samninga- maður og virðist hafa verið snjall, en hann var meðal annars tengiliður Venizelosar við Búlgara, er hann stóð i samningamakki við þá. Hann starfaði aftur á mdti sem frétta- ritari breska blaðsins The Times hér i Grikklandi.” íslendingur leikur Breta „Hver heldurðu að sé ástæðan fyrir þvi, að Voulgaris velur Islending i hlutverk Bretans?” „Hann sagðist vilja fá i þetta hlutverk útlending, sem væri al- talandi á grisku en talaði málið þó með örlitlum hreim. Þess vegna kvaðst hann vilja fá mig I hlutverkið auk þess sem hann sagði að útlitið hæfði þvi ágæt- lega, en það verður nú að koma i ljós.” „Er þetta söguleg mynd?” „Handritið, sem Voulgaris hefur samið er með sögulegu ivafi og atburðarás og samtöl i myndinni byggjast á upplýsing- um, sem hann hefur aflað sér um persónurnar, sem koma við sögu og timabilið, sem myndin fjallar um, en það eru árin 1910 til 1924.” Taka kvikmyndarinnar hefst nú um miðjan júli og fer hún að miklu leyti fram i Aþenu, en auk þess á ýmsum öðrum stöðum þar á meðal eyjunni Krit. Eftir að kvikmyndaleiknum lýkur mun Siguröur A. Magnús- son halda aftur til Berlinar ásamt fjölskyldu sinni, þar sem hann hefur vetursetu og hyggst skrifa annan hluta skáldverks- ins, sem hann tók til við i fyrra- vetur. -ÖR Þetta er ekki atriði úr kvikmyndinni. Hér er Siguröur f hlutverki leiðsögumanns farþega Ctsýnar i Grikklandi aö segja frá sögu og menningu Grikkja. hó rg reiðslustof a HELCU JÓAKIMS Reynimel 34, slmi 21732 STEFNAN Uppteisrt ítTálshygigÍunnaT Nýjar bœkur um stjórnmál HÆOUROQfllTGEBOtR t92S-19?S Safn 10 greina um stefnu Sjálf- stæðisflokksins HÖFUNDAR: Jón Þorláksson Jóhann Hafstein Bjarni Benediktsson Gunnar Gunnarsson Birgir Kjaran Ólafur Björnsson Benjamin Eiriksson Geir Hallgrimsson Jónas H. Haralz Gunnar Thoroddsen Dreifingaraðilar: s. 82900 og 23738 Safn 15 nýrra greina um frjáls- hyggjuna HÖFUNDAR: Ilannes Gissurarson Jón St. Gunnlaugsson Pétur J. Eiriksson Geir H. Haarde Jón Asbergsson Þráinn Eggertsson Baidur Guölaugsson Halldór Biöndal Bessi Jóhannsdóttir Erna Ragnarsdóttir Þór Whitehead Daviö Oddsson Friörik Sophusson Þorsteinn Pálsson Bœkurnar fást í helstu bókaverslunum og kosta kr. 4.000 og 3.500

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.