Vísir - 31.07.1979, Side 16
VÍSIR
Þriöjudagur 31. júll 1979.
Umsjón:
Katrin Páls-
dóttir.
Þann dag sem Vlsismenn litu inn i sjónvarpiö var ieikstjóri og höfundur aö lofa stúlkunum aö spreyta
sig viö hlutverk Eisu. F.v. Sigrún, Saga Jónsdóttir, Lárus og Guölaugur.
Visismyndir JA.
Lárus Vmir Óskarsson útskýrir fyrir Sigrúnu Vilhjálmsdóttur, hvaö
hún eigi aö gera, en hún er ein þeirra tólf, sem valdar voru úr hópi
140 stúlkna sem komu i viötal.
180 VILDU LEIKA ELSU
- í leíkrítl Guðlaugs Arasonar „Drottinn blessi heimilið”
„Það er enn óráðið hver fer með hlutverk Elsu
en nú hafa verið valdar 12 stúlkur af þeim 140 sem
komu i viðtal og myndatöku”, sagði Lárus Ýmir
Óskarsson leikstjóri sjónvarpsmyndar sem
verið er að vinna eftir handriti Guðlaugs
Arasonar rithöfundar.
„Drottinn blessi heimilið”, hefur höfundur
nefnt verkið, en reyndar var nafnið ekki endan-
lega ákveðið fyrr en i gærdag.
Elsa sú, sem ungar stúlkur
hafa sýnt svo mikinn áhuga er
dóttir hjónanna Hannesar og
Olgu. Hún er 13 ára
gömul. Faöirinn er sjómaður,
tæplega fertugur að aldri.
Hannes leikur Þráinn Karls-
son, Olgu Saga Jónsdóttir, en
einnig fer Sigurveig Jónsdóttir
með hlutverk i myndinni, þau
eru öll Akureyringar svo að
norðanmenn eiga þar drjúgan
þátt.
Eftir að auglýst var eftir
stúlku i hlutverk Elsu i útvarp-
inu voru allar simalinur i sjón-
varpinu glóandi. Alls hringdu
180 stúlkur en 140 komu i viðtal
og teknar voru af þeim myndir.
Þegar við litum inn til leik-
stjóra og höfundar i gær, voru
þeir að láta þessar tólf stúlkur
spreyta sig i hlutverki Elsu.
„Það er alltaf dálitið happ-
drætti hver verður fyrir val-
inu”, sagði Lárus. „Við völdum
þann kostinn að auglýsa eftir
stúlkum i hlutverk Elsu, fremur
en að fara eftir ábendingum”.
Hver svo sem verður fyrir
valinu i hlutverk Elsu þá eru nú
til upplýsingar og myndir af
öllum stúlkunum sem getur
komið sér vel fyrir aðra sem
þurfa að velja i hlutverk i nýjum
myndum.
Fyrstu verðlaun fyrir
prófverkefni.
Leikstjórinn Lárus Ýmir
Óskarsson, stundaði nám við
Dramatiska Institutet. i Stokk-
hólmi, i tvö ár þar sem hann
lærði leikstjórn kvikmynda og
sjónvarpsmynda.
Lokaverkefni Lárusar nefndi
hann Búrfuglinn. Sú mynd er 23
minútur að lengd. Fyrir hana
hlaut Lárus fyrstu verðlaun i
Oberhausen i Vestur-Þýska-
landi.
Eftir að námi lauk starfaði
Lárus við Borgarleikhúsið i
Stokkhólmi i hálft ár sem
aðstoðarleikstjóri. Jafnlangan
tima vann han við ýmis störf
tengd náminu.
„Drottinn blessi heimilið” er
fyrsta verkefnið, sem Lárus
vinnur að hérlendis.
Kvikmyndin verður að mestu
tekin upp i sjónvarpshúsinu, en
einnig verða hlutir hennar
teknir um borð i togara.
Guðlaugur Arason sótti nám-
skeið hjá Sjónvarpinu s.l. vetur
fyrir höfunda. Eftir að þvi lauk
voru sex verk valin til sýninga
og verða þrjú þeirra tekin upp i
haust. Verk Guðlaugs er það
fyrsta i röðinni, en siðan verða
unnin verk þeirra Steinunnar
Sigurðardóttur og Daviðs Odds-
sonar.
Hinn síungi
bjófur frá
naghdad
í fyrra gerði Clive ein nótt,” en sá bóka-
Donner fjórðu útgáfu flokkur hefur sömu
myndarinnar Þjófurinn stöðu meðal araba og
frá Bagdad. Myndin fornsögumar hafa með-
byggir á hinum vinsæla al okkar.
bókaflokkl „Þúsund Og Þaö er auövelt að sjá hvers
Pavla Ustinov sem Yasmin prinsessa.
Peter Ustinov i hlutverki kalifans I nýjustu útgáfunni af Þjófurinn i Bagdad.
vegna þetta efni hefur heillað
kvikmyndageröarmenn I yfir 50
ár. Að breyta ævintýrum „Þús-
und og einnar nætur” yfir i mynd
er verðugt verkefni fyrir hvaða
leikstjóra sem er, meðan tækni-
mennirnir vinna i eftirvinnu viö
að reyna að ná hinum sérkenni-
legu brögðum og atburðum sagn-
anna sem trúanlegustum.
Tilþrifamesta útgáfan er senni-
legasú þögla frá 1924 meö Dougl-
as Fairbanks i hlutverki þjófsins,
sigrandi dauðann og þyngdaraflið
meö akróbatiskum stökkum frá
svölum og turnum og hlaupandi
upp og niður stiga i eilifum
sveröaleik við menn Wazirs (sá
vondi)
Julanne Johnston, uppgötvun
Fairbanks, lék hina fögru og eft-
irsóttu prinsessu I þeirrimynd, en
myndin er enn i minnum höfð fyr-
ir fjörugan leik, frábæra svið-
setningu og góða tónlist.
Otgáfa Alexander Korda 1940,
gerö af London Films, er þekkt
fyrir góöa myndatöku, snilldar-
tækni og stöðugt flóö af myndræn-
um kraftaverkum,, Þjófur”
Korda var langt á undan sinni
samtið sem tæknilegt töfraverk.
Einnig þótti Sabu i hlutverki
þjófsins eftirminnilegur, en aðrir
sem komu fram i þeirri mynd
voru t.d. Conrad Veidt (sem ó-
þokkinn Jaffar vesir) og June Du-
prez (sem prinsessan).
Arið 1961 setti MGM á markað-
inn ítalska útgáfu af þessu
klassiska verki, en sú útgáfa þyk-
ir hvaö lélegust af þeim öllum. 1
aðalhlutverki var bandariska
vöövafjallið Steve Reeves en
söguþráöurinn var mjög ólikur
hinum tveim myndunum. Leik-
stjórn var i höndum hins reynda
Hollywood-leikstjóra Arthur Lu-
bin.
Nýjasta útgáfan er i höndum
Clive Donners eins og áður var
getið. Hann hefurfengið I lið með
sér Peter Ustinov sem kalifann i
Bagdad, en prinsessuna Yasmin
leikur dóttir Ustinovs, Pavla. 1
öðrum hlutverkum eru t.d. Roddy
Macdowell sem hinn heimski
þjófur, sem hjálpar hinum hetju-
lega sveröaleikara Taj, leiknum
af indverska hjartaknúsaranum
Kabir Bedi, og Terence Stamp er
I hlutverki hins illa vesirs, sem
notar galdra sina til þess að koma
prinsinum frá völdin og ná hinni
fógru og ómótstæöilegu Yasmin
prinsessu.
— Það er mikil kimni i mynd
okkar, segir Donner, en hún er
örugglega ekki eins og „Up Bag-
dad.” Við viljum koma áhorfend
unum á óvart, en við viljum jafn-
framt að það sé hluti af sögu-
þræðinum. Við viljum ekki gefa
upp nein leyndarmál en hiö fljúg-
andi teppi er vélknúið.
(Byggt á Fiims
Iilustrated)