Vísir


Vísir - 31.07.1979, Qupperneq 24

Vísir - 31.07.1979, Qupperneq 24
Þriðjudagur 31. júlí 1979 síminner 86611 I Spásvæöi Veöurstofu tslands eru þessi: 1. Faxaflói, 2. Breiðafjörö- ur, 3. Vestfirðir, 4. Norður- land, 5. Norðausturland, 6. Austfirðir, 7. Suðausturland, 8. Suðvesturland. veöurspá Um 250 km NV af Irlandi er 990 mb. lægð sem hreyfist ASA en 1022 mb. hæð er yfir Græn- landi. Svalt verður áfram á Norður-os? Austurlandi. Sunn- an og vestanlands verður hlýtt á deginum. SV mið: Austan og N gola og siðan kaldi, smáskúrir. SV land Faxaflói og Faxa- flóamiö: NA gola eða kaldi og léttskýjað að mestu. Breiöafjöröur og Breiða- fjarðarmiö: NA kaldi eða stinningskaldi, bjart veður. Vestfiröir og Vestfjaröa- miö: NA kaldi eða stinnings- kaldi. Bjart veður sunnan til á Vestfjörðum, en skýjað norð- an til og á miðunum. N land og N miö: NA kaldi til landsins og viða stinnings- kaldi á miðunum. Þurrt i inn- sveitum vestan til, en annars skýjað og súld með köflum. NA land og NA mið: NA gola, súld með köflum. Austfirðir og Austfjarða- mið: NA kaldi, þurrt sunnan til á Austfjörðum með kvöld- inu, en annars súld með köfl- um. SA land og SA miö: NA kaldi, smáskúrir i dag. Bjart til landsins i nótt. Skúrir á miðunum. veðrlð hér ■j og har ■i Veöriö kl. 6 i morgun: Akureyri alskýjað 6, Bergen skýjað 14, Helsinki léttskýjað 18, Kaupmannahöfn alskýjað 15, ósld alskýjað 15, Reykja- -. ik léttskýjað 8, Stokkhólmur aiskýjað 17, Þórshöfn þoku- rióða 9. -^eðriö kl. 18 i gær: Aþena heiðskirt 26, Berlín léttskýjað 20, Chicago skýjað 26, Feneyjar þokumóða 27, Frankfurt léttskýjað 24, Nuk skýjað 10, London, skýjað 20, Luxemburgléttskýjað 22, Las Palmas I eiðskirt 29,MaBorka heiðskirt 23, Montreal hálf- skýjað 29, New York léttskýjað 26, Parisskýjað 23, Rdm þokumóða 28, Malaga léttskýjað 32, Vln skýjað 25, Winnipeg skýjað 19. LOKI SEGIR t landhelgisstriöum okkar hefur oft veriö kvartað undan þvi, aö fréttir af atburöum hér viö land kæmu fyrst aö utan. Nú er svo komiö, aö nánast eina leiöin til aö fá yfirlýsing- ar frá sjávarútvegsráðherra er að fylgjast meö viðtölum hans við erlenda fjölmiöla. Utgeröarmenn og sjómenn l Noregl á fulla lerð: REIBIR VE8NA RRBERRR- LEYSIS STJÚRNRRIRNAR Norskl slávarútvegsráöherrann segist vona að íslendingar haldl róseml slnnl Mikil óánægja hefur komið fram meðal norskra sjdmanna og út- vegsmanna vegna framgöngu norsku ríkisstjórnarinnar i Jan Mayen málinu. i fréttatima norska sjónvarpsins i gærkvöldi var fjallað itarlega um Jan Mayen deiluna. Þar kom fram aö sjómenn og útgcrðarmenn krefjast skýrra svara frá rikisstjórninni um hvernig hún hyggist vernda norska hagsmuni viö Jan Mayen. Töluðu þessir aðilar um að norska stjórnin ætti að tileinka sér sömu aðferðir og íslending- ar hefðu notað þ.e.a.s. að færa landhélgina fyrst út en bjóða siðan upp á viðræður. Talsverð fundarhöld eru framundan hjá útgerðarmönn- um og sjómönnum næstu daga. Þannig munu útgerðarmenn koma saman til fundar i Stavanger i dag, en sjómenn á morgun. Aðalumræðuefni fund- anna er Jan Mayen deilan. Formaður samtaka norskra bátaútgerðarmanna sagðist i viðtali við norska sjónvarpið i gærkvöldi búast við, að á fund- inum i dag yrði samþykkt að fara fram á að norska rikis- stjórnin setji fram tryggingu vegna hugsanlegs tjóns sem út- gerðin gæti orðið fyrir ef islensk varðskip taki norsk loðnuveiði- skip. Ráðherrar norsku stjórnar- innar hafa upp á siðkastið litið viljað láta hafa eftir sér um Jan Mayen deiluna. Eivind Bolle sjávarútvegs- ráðherra brá þó út af þessum vana i gærkvöldler hann sagðist vona að tslendingar héldu ró- semi sinni. Mikil sumarfri hafa verið inn- an norsku rikisstjórnarinnar siðustu daga. Þannig voru aðeins 3 af 15 ráðherrum mættir til vinnu i siðustu viku, aðrir voru i frii. GEK/JEG, Osló. /1 Fulltrúar eru I Japan frá flestum löndum heims. Hér sjáum viö ungfrú Noreg, Finnland, Sviþjóö og Bretland. Slella I Japan Miss Young International keppnin stendur nú yfir i Tókió i Japan. Fulltrúi tslands i' keppn- inni er Stella Kristinsdóttir, 17 ára stúlka Ur Reykjavik. Stella er nemi i Fjölbrautaskólanum i Breiðholti. HUn hefur verið i sýn- ingarflokki i Dansskóla Heiðars og einnig er hún sýningarstúlka i Módel 79. Úrslit i keppninni verða gerð kunn á föstudaginn. — KP. m--------------------——*- Stella Kristinsdóttir keppir i Miss Young International keppninni I Japan. varOsklo á mlðln: Þör rak Pðlverla í burtu Varðskipið Þór kom klukkan 10 I gærkvöldi aö pólska togaranum URAN GDY-302, þar sem hann var að ólöglegum veiöum 10 mll- um innan islensku landhelginnar, á ,,gráa svæðinu” svokallaöa viö Jan Mayen. Fyrr um daginn hafði land- helgisgæsluflugvél i yfirlitsflugi séð þennan sama togara að veiðum ennþá innar i landhelg- inni, eða um 14 milum fyrir innan, ásamt einum rússneskum togara. Rússneski togarinn var á bak og burt þegar varðskipið kom á vett- vang. Tveir varðskipsmenn, 2. og 3. stýrimaður, voru sendir um borð i pólska togarann og athugðu þeir afla togarans og veiðarfæri. Reyndist eingöngu um kolmunna að ræða. Mikið bar á milli varðskips- manna og skipsstjórnarmanna togarans varðandi staðarákvörð- un. Töldu Pólverjarnir sig vera miklu norðar og um 10 milum fyr- ir utan landheigina. Að sögn Bjarna Helgasonar hjá Land- helgisgæslunni lentu varðskips- menn i nokkrum brösum við Pól- verjana og var ákveðið að fara ekki út i að færa togarann til hafnar, heldur var honum visað út úr landhelginni sem hann og . gerði. 1 fluginu i gær var að sögn Bjarna ekki vart neinna norskra loðnuveiðiskipa á þessum slóö- um. —GEK. ■VIB H0FUM UMRRB YFIR FLUOTURNINUM' seglr Höröur Helgason. ráðuneyllssllörl I utanrlklsráðuneyllnu „Við höfum ráð yfir þessu, það er engin spurning um það”, sagði Hörður Helgason, ráðu- neytisstjóri i utanrikisráðuneytinu, við Visi. Gömul deila stjórnvalda um yfirráðin yfir flugi á Kefla- vikurflugvelli hefur aftur komið fram i dagsljósið með þvi að fulltrúum Flugráðs var fyrir skömmu meinaður aðgangur að ratsjárherbergi i nýja flug- turninum syðra. i „Starfsmenn flugturnsins eru allir okkar starfsmenn og ráðnir af utanrikisráðuneytinu”, sagði Hörður og visaði i lög nr. 73 frá 1969, sem kvæðu á um fram- kvæmd varnarsamningsins við Bandarikjamenn. þar sem flug- mál væru m.a. flokkuð undir utanrikisráðuneytið. Deilan snyst um það hvort sam- gönguráðuneytið, sem setteryfir allar samgöngur i landinu. skuli hafa með flugumsjón á Kefla- vikurflugvelli að gera ellegar varnarmáladeild utanrikisráðu- neytis með visun i varnarsamn- inginn. Benedikt Gröndal utanrikisráð- herra er ekki á landinu og ekki tókst að ná sambandi við Ragnar Arnalds samgönguráðherra i morgun. —Gsal

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.