Vísir - 28.08.1979, Page 11
VlSIR
Þriðjudagur 28. ágúst 1979.
ÍSLAND ER STÆRSTI VIB-
SKIPTAVINUR UTAN NOREGS
seglp Tore A Sörensen h|á Wlchman vélaverksmlölunnl,
sem er meö bás á vörusýningunnl I Laugardalshöll
„Við framleiðum um
hundrað þúsund hestöfl á
ári og vélar f rá okkur eru
í um það bil 30% af ís-
lenskum bátum'' sagði
Tore A. Sörensen sölu-
maður hjá Wichman, en
það fyrirtæki framleiðir
vélar og er með bás á Al-
þjóðlegu vörusýningunni í
Laugardalshöll.
Tore sagði að þeir hefðu siöast
verið með i svona sýningu hér-
lendis fyrir tiu árum siöan. Þeg-
ar hann var spuröur hversvegnn
Tore A. Sörensen.
slikar sýningar hér á tslandi
hefðu aðdráttarafl fyrir Norð-
menn, sagði hann að Island væri
þeirra stærsti viðskiptavinur ut-
an Noregs og þvi I alla staði
eðlilegt að þeir legðu áherslu á
þennan markað. Hann kvaðst
koma oft til tslands þvi hann
væri yfir deild sem sæi um viö-
skipti hingaö. Hinsvegar hefði
hann ekki verið a sýningunni
1959.
Fyrirtækiö As/Wichman er i
Rubbestatedneset, skammt frá
Bergen i Noregi. Umboðsmaður
hér er Einar Farestveit.
— JM
spilar fyrir sýningargesti á skemmtarann. Vfsismynd
Meö hljómsveít
í vinstrl hendi
„Þú ert með heila hljtímsveit i
vinstri hendi og getur leikiö á átta
sólóhljóöfæri með þeirri hægri.'
sagði Pálmar Arni i samtali við
Visismenn, er við litum inn i
sýningarbás Hljóðfæraverslunar
Pálmars Arna á Alþjóðlegu vöru-
sýningunni i Laugardagshöllinni.
Pálmar var þarna að kynna
skemmtarann frá Baldvin, sem
hann er með til sýnis i básnum en
jafnframt spilaði hann fyrir
sýningargesti.
Pálmar sagði að skemmtarinn
væri alveg einstakt hljóöfæri. Það
gæti hver sem er spilaö á hann.
Menn þyrftu ekkert tónlistarnám
að hafa að baki. Oft væri þaö að
þeir sem heföu skemmtara
byrjuðu á þvi að læra á annaö
hljóðfæri jafnframt.
Nóturnar og hljómarnir eru
skráðir meö bókstöfum I nótna-
heftið og lyklarnir i hljdmborðinu
eru merktir með þessum
bókstöfum.
Vinstri höndin sem stjórnar
hljómsveitinni getur valið á milli
um 17 hljúmsveita eöa takta eftir
þvi sem mönnum fellur best i geð.
Pálmarer með á sýningunni 11
hljóðfæri frá Baldwin þar af fimm
geröir af orgelum með inn-
byggðum skemmtara. Pálmar
mun sjálfur spila fyrir sýningar-
gesti en einnig veröur breskur
hljómborðsleikari, Graham
Lightburn, I básnum og spilar
fyrir gesti.
Skemmtarinn hefur veriö á
markaönum I 4 ár og kostar um
920 þúsund krónur. . KiS
Jón Ragnar Sigurjónsson
Séra Rögnvaldur Finnbogason
Hvoð segjo Wortburg-
eigendur
um bílinn sinn?
Wartburg bíllinn minn hef ur reynst mér
vel/ ágætur úti á þjóðvegum/ þolir vel
slæma vegi/ er neyslugrannur. Miðað
við verð og aðra bila sem ég hef átt er
hann hreint ágætur.
Jón M. Guðmundsson
oddviti Reykjum.
Ég hef átt 25 bíla; af smábílum, sem ég
hef átt, ber hann af úti á þjóðvegum.
Enginn montbíll eða rokokomubla, en
eins og sniðinn fyrir okkar aðstæður.
Einfaldur, sparneytinn og þægilegur.
Séra Rögnvaldur Finnbogason
Staðastað
Ég keypti Wartburg fyrst og fremst af
því að hann var ódýr og þetta er gamal-
reynt kerfi. Wartburg er sannkallaður
óskabíll fyrir þetta verð, lipur i akstri,
þýður á vegi, reynist vel í snjó, er
sparneytinn, mjög góður ferðabíll.
Eftir 2 ár fæ ég mér aftur Wartburg.
Jón Ragnar Sigurjónsson
TRABANT/WARTBURG UMBOÐIÐ
Vonorlandi v/Sogoveg — Símor OOSÓO-OTTIO