Morgunblaðið - 30.09.2001, Qupperneq 1
Húsnæðismál
spítalanna
MORGUNBLAÐIÐ 30. SEPTEMBER 2001
223. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
10
Hægri hönd
bin Ladens
14
Laxveiði enn
í öldudal
24
B
PAKISTÖNSK kona lítur út um
glugga á strætisvagni í hafnarborg-
inni Karachi í gær. Stjórn talibana í
nágrannaríkinu Afganistan hefur
samþykkt að eiga frekari fundi með
pakistönskum embættismönnum
sem eru að reyna að fá harð-
línustjórnina til að framselja
Osama bin Laden, sem grunaður er
um að hafa staðið á bak við hryðju-
verkin í Bandaríkjunum 11. sept-
ember.
Reuters
Í strætó
í Karachi
KAÞÓLSKUR blaðamaður var
skotinn til bana á Norður-Ír-
landi á föstudaginn, fáeinum
klukkustund-
um eftir að
bresk stjórn-
völd höfðu
krafist þess að
stærsti útlaga-
hópurinn í röð-
um mótmæl-
enda léti af
aðgerðum
gegn kaþólsk-
um og lög-
reglu, en sæta pólitískum
refsiaðgerðum ella.
Að sögn lögreglu skutu
byssumenn blaðamanninn,
Martin O’Hagan, þegar þeir
óku framhjá honum í Lurgan,
bæ suðvestur af Belfast, þar
sem hann var á göngu ásamt
konu sinni. Hún varð ekki fyrir
skoti. O’Hagan var 51 árs.
Hann er fyrsti blaðamaðurinn
sem er myrtur í átökunum á
Norður-Írlandi, sem staðið
hafa í þrjá áratugi.
O’Hagan hafði áunnið sér
óvild margra herskárra manna
í undirheimum bardagaliðs
mótmælenda vegna bein-
skeyttra skrifa sinna um af-
brot þeirra og manndráp.
Hann starfaði í Dublin fyrir
blaðið Sunday World, en hann
flúði frá Norður-Írlandi árið
1993 eftir að skrifstofur blaðs-
ins í Belfast voru sprengdar í
loft upp og honum tóku að ber-
ast morðhótanir frá bardaga-
liðum mótmælenda vegna
greina sem hann hafði skrifað
um þá.
N-Írland
Blaða-
maður
skotinn
Martin
O’Hagan
Belfast. AP.
HVERFANDI líkur eru taldar á því
að diplómatísk lausn finnist á deil-
unni í Afganistan eftir að pakist-
anskir sendimenn snéru heim frá
landinu tómhentir úr leiðangri sem
miðaði að því að sannfæra talibana-
stjórnina í Afganistan um að fram-
selja hinn meinta hryðjuverkafor-
sprakka Osama bin Laden.
Réttarhöldum yfir átta erlendum
hjálparstarfsmönnum, sem eru í
haldi í Afganistan, var í gær frestað
til dagsins í dag (sunnudags). Er
hjálparstarfsmönnunum, tveim
Bandaríkjamönnum, tveim Áströl-
um og fjórum Þjóðverjum, gefið að
sök að hafa boðað kristna trú í Afg-
anistan sem stjórnað er samkvæmt
íslömskum trúarbókstaf.
Sendinefnd skipuð háttsettum ísl-
ömskum klerkum og yfirmanni pak-
istönsku leyniþjónustunnar reyndi
að fá talibanastjórnina til að af-
henda bin Laden, sem grunaður er
um að hafa staðið á bak við hryðju-
verkin í Bandaríkjunum 11. sept-
ember sl.
Pakistan hefur lýst stuðningi við
Bandaríkjamenn í deilunni við talib-
ana, en Pakistan er ennfremur eina
ríkið í heiminum sem viðurkennir
stjórn talibana í Afganistan. Höfðu
Pakistanar vonast til að geta komið í
veg fyrir að Bandaríkjamenn beittu
hervaldi í deilunni við talibana.
Þetta var í annað sinn sem Pak-
istanar sendu menn til viðræðna við
talibanastjórnina síðan hryðjuverk-
in voru unnin. Fyrri viðræðunum
lauk með því að afganskt klerkaráð
ákvað að bin Laden skyldi beðinn
um að fara sjálfviljugur úr landi.
Það hefur hann ekki gert.
Einn af sendimönnunum í seinni
ferðinni sagði að hann teldi að æðsti
leiðtogi talibana, múllann Mohamm-
ed Omar, væri „óhræddur við stríð“
við Bandaríkjamenn. Á fundinum
hefði Omar ekki einu sinni viljað
ræða um bin Laden.
Haft er eftir pakistönskum klerki,
sem tók þátt í viðræðunum við talib-
anastjórnina, að Omar hafi sagst
ekki hafa skipt um skoðun og neitað
að afhenda bin Laden. Hafði klerk-
urinn, Mohammad Jamil, ennfrem-
ur eftir Omar, að Bandaríkjamenn
yrðu að láta af „þrjósku“ sinni.
Hernaðarátök virðast sífellt lík-
legri og fregnir hafa borist af því að
bandarískar sérsveitir hafi þegar
farið inn fyrir landamæri Afganist-
ans í könnunarleiðangra. Háttsettur
bandarískur embættismaður stað-
festi þetta sl. föstudag.
Breska ríkisútvarpið, BBC,
greindi frá því á fréttavef sínum að
talibanastjórnin neiti því að banda-
rískir sérsveitarmenn hafi komið
inn á yfirráðasvæði talibana, sem
ráða um 90% af öllu landinu. Þá
hefðu talibanar einnig neitað frétt-
um þess efnis að þrír bandarískir
sérsveitarmenn og tveir afganskir
leiðsögumenn þeirra hafi verið tekn-
ir höndum.
Sjónvarpsstöðin al-Jazeera í
Quatar hafði það eftir heimildar-
manni í al-Qaeda-samtökum bin
Ladens að hópurinn hefði verið
handtekinn af liðssveitum talibana
og verið færður til yfirheyrslu. Yrðu
myndir af þeim birtar innan tíðar.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
(SÞ) hefur samþykkt ályktun um að
öll 189 aðildarríki samtakanna skuli
neita hryðjuverkamönnum um pen-
inga, stuðning og skjól. Ályktunin er
bindandi og var samþykkt einróma
á föstudaginn.
Pakistanar segja talib-
ana ekkert gefa eftir
Islamabad, Sameinuðu þjóðunum. AP.