Morgunblaðið - 30.09.2001, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 30.09.2001, Blaðsíða 11
braut, almenn skurðdeild og brjóstholsskurð- deild sameinast tímabundið á deild þar og skurðsviðið losar aðra deild. Þetta hefur í för með sér að rúmum fyrir brjóstholsskurðdeild fækkar um sex í um sjö mánuði. Kostar mikið, en borgar sig Þetta eru aðeins nokkur dæmi af þeirri keðjuverkun sem fer af stað við sameiningu sér- greina innan Landspítala og sýnir ljóslega hve stórt verkefni það er að nýta núverandi húsnæði spítalans sem best. Sameining starfsemi, sem áður fór fram á fleiri stöðum, hefur þegar kostað umtalsverðar fjárhæðir. Þessi kostnaður hefur m.a. verið nefndur til sögunnar eftir að í ljós kom að LSH hafði farið 247 milljónum fram úr fjárheimildum á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Á fundi stjórnarnefndar Landspítala – há- skólasjúkrahúss 13. september sl. kom fram, að kostnaður samfara nauðsynlegum framkvæmd- um vegna sameiningar sérgreina er áætlaður um 300 milljónir króna. Hins vegar er talið að sú hagræðing sem fæst með þessum tilfærslum verði ekki undir 150 milljónum króna á ári, þeg- ar breytingarnar hafa komið fram að fullu. Það sýnir skýrt hagkvæmnina sem felst í að reka alla skylda starfsemi á einum stað. Þótt hagrætt sé og deildir sameinaðar eru forsvarsmenn spítalans á einu máli um að ráð- ast verði í miklar byggingaframkvæmdir, eigi sjúkrahúsið að standa undir nafni og geta sinnt sjúklingum framtíðarinnar. Dönsk ráðgjafar- stofa, Ementor, hefur lagt mat á húsnæðisþörf spítalans til næstu 20 ára og skilaði lokaskýrslu sinni í síðustu viku. Danirnir töldu þrjá kosti koma til greina, að nýta áfram lóðir spítalans við Hringbraut og í Fossvogi á svipaðan hátt og gert er í dag, að meginstarfsemin þróaðist á annarri hvorri lóðinni eða að reistur yrði nýr spítali, t.d. á lóð Vífilsstaða. Tillögur Ementor, sem ná fram til ársins 2020, gera ráð fyrir að Landspítalinn þurfi um 120 þúsund fermetra húsnæði. Á Vífilsstöðum þyrfti að byggja frá grunni sem fyrr segir, við Hringbraut eru nú alls 60 þúsund fermetra byggingar og í Fossvogi 30 þúsund fermetra byggingar. Ef allar byggingar Landspítala – háskólasjúkrahúss eru taldar, þar með Landa- kot, Grensásdeild, geðdeildin Arnarholt, Kleppsspítali og Vífilsstaðaspítali er heildarfer- metrafjöldinn nú um 160 þúsund fermetrar. Sumt af því húsnæði yrði rýmt og það selt þegar framtíðarstaðsetning aðalsjúkrahúss verður ljós og búið verður að hagræða í rekstrinum. Starfsemi vex ekki eins og íbúafjöldinn Fram til ársins 2020 mun íbúum höfuðborg- arsvæðisins fjölga um 36%, eða um 60 þúsund manns, samkvæmt spám Hagstofunnar. Hins vegar munu breyttar áherslur í heilbrigðisþjón- ustu leiða til þess að umfang starfsemi sjúkra- húsanna vex ekki að öllu leyti að sama skapi. Þessar breyttu áherslur endurspeglast í tillög- um Ementor, sem gera ráð fyrir að fram til árs- ins 2020 fækki inniliggjandi sjúklingum um fjórðung, en dagsjúklingum fjölgi um 46%. Skýringin felst í tækniframförum, sem hafa það í för með sér að inngrip verða minni en ella. Sem dæmi má nefna að ýmsar aðgerðir sem áður kölluðu á holskurð og langa sjúkrahúslegu eru nú leystar með kviðsjáraðgerðum, sem sjúk- lingar jafna sig miklu fyrr af. Legutími sjúk- linga var að meðaltali 15 dagar fyrir áratug, en á vefrænum bráðadeildum er hann nú kominn niður í 7 daga. Aukin tækni þýðir dýrari tæki, en sjúklingar komast fyrr til starfa á ný og þró- unin er því þjóðhagslega hagkvæm þegar allt er talið. Allt bendir til að sjúklingum framtíðarinn- ar verði í vaxandi mæli sinnt á göngu- og dag- deildum. Þá könnuðu dönsku ráðgjafarnir aldurssam- setningu þjóðarinnar. Flestir sjúklinga, sem þurfa viðameiri aðgerðir, eru 60 ára og eldri. Stórir árgangar eru nú að færast að þessum aldri og eftir 2010 geta sjúkrahúsin reiknað með að sá þungi leggist á þau að fullu. Kröfur sjúk- linga um aðbúnað hafa einnig breyst og þeim fer fækkandi sem sætta sig við legu á 4 eða 6 manna sjúkrastofum. Þetta þýðir, að þótt inniliggjandi sjúklingum fækki hlutfallslega, þá fækkar sjúkrastofunum ekki að sama skapi. Við mat á þróun í starfi spítalans kemur fram, að starfsfólki muni fjölga verulega, haldi starf- semin áfram að vaxa á sama hátt og undanfarin ár. Hins vegar megi halda aftur af þeirri fjölgun og jafnvel nær alveg koma í veg fyrir hana ef Landspítalinn – háskólasjúkrahús nær sömu hagkvæmni í rekstri og dönsk og norsk sjúkra- hús sem miðað er við í skýrslunni. Þó er tekið fram, að þótt með þessu megi fá vísbendingu um framtíðarþróunina séu þau sjúkrahús ekki fyllilega sambærileg við LHS, til dæmis geri smæð þjóðfélagsins hér það að verkum að sér- hæfing á Landspítala sé fjölbreyttari en á mörgum hinna sjúkrahúsanna. Hin sjúkrahúsin hafi einnig betri aðstöðu og húsnæði. Margar og ólíkar byggingar við Hringbraut Varðandi núverandi húsnæði Landspítala – háskólasjúkrahúss hefur Ementor ýmislegt við það að athuga. Að vísu er tekið fram að hús- næðið í Fossvogi sé nokkuð heildstætt en Hringbrautin fær öllu lakari dóma. Þar eru margar og ólíkar byggingar. Fyrst skal telja að- albygginguna, byggingu 1, sem skiptist í A, B, C, D, W, E, F, G og K álmu. Þar að auki eru níu aðrar byggingar. Bygging 2 hýsir kvennadeild og fæðingarheimilið, bygging 3 hýsir geðdeild- ina og að auki eru rannsóknarstofur Háskólans, eldhús sjúkrahússins, ketilhús og rafverkstæði, Blóðbankinn og Hjúkrunarskólinn. Þarna er svo að bætast við nýr barnaspítali. Í nágrenni sjúkrahússlóðarinnar við Hringbraut eru sex hús til viðbótar á vegum spítalans, við Þorfinns- götu, Eiríksgötu og Rauðarárstíg. Loks má svo nefna að rannsóknarstofur í sýkla- og veiru- fræðum er að finna í Ármúla. Dönsku ráðgjafarnir gera athugasemdir við að skurðstofur eru ekki á einni og sömu hæð- inni, og gildir það bæði um Hringbraut og Foss- vog. Skurðstofurnar eru einnig mjög litlar, ef miðað er við staðla á nútímasjúkrahúsum, og nauðsynlegt að bæta þar úr. Þótt litlar skurð- stofur geti nýst við aðgerðir á inniliggjandi sjúklingum og göngusjúklingum, þá verða að- gerðir á göngusjúklingum sífellt flóknari og slíkar skurðstofur þurfa einnig að vera stórar, eða um 120 fermetrar. Á gjörgæsludeildum sjúkrahúsanna eru nú 21 rúm, 11 Í Fossvogi og 10 á Hringbraut. Ementor telur þörfina vera 18 rúm árið 2020, svo nú séu rúmin í reynd of mörg. Rannsóknarstofur verði á einum stað Varðandi rannsóknarstofur LHS telur Ementor nauðsynlegt að safna þeirri starfsemi sem mest á einn stað, til að nýta sem best starfs- menn og tæki. Hins vegar ætti að koma vinnu- stöðvum upp á völdum stöðum á sjúkrahúsun- um, þar sem hægt væri að taka einföld sýni og tryggja þannig skjóta þjónustu við einstaka deildir. Rannsóknir ætti að vera hægt að panta með tölvupósti eða samskiptatækni af svipuðum toga og fá niðurstöðurnar með sama hætti. Sýn- in væri svo hægt að flytja á rannsóknarstofuna með bílum sem færu reglulega á milli vinnu- stöðvanna og rannsóknarstofunnar. Ementor tekur sérstaklega fram að svo virðist sem nú- verandi rannsóknarstofur hafi ekki sömu af- kastagetu og sambærilegar rannsóknarstofur á Norðurlöndunum. Til að nýta skjalageymslur sem best er mælt með að eldri skýrslur en 3 ára séu geymdar ut- an sjúkrahússins. Um allan heim séu sjúkrahús að taka upp tölvuskráningu slíkra gagna en á meðan slíkt kerfi sé ekki komið endanlega í notkun verði einnig að styðjast við pappírsgögn. Búa þarf betur að háskólastarfinu Búa verður betur að háskólastarfi innan Landspítala – háskólasjúkrahúss en nú er gert, að mati dönsku ráðgjafanna. Þeir benda á að það skorti m.a. 400 sæta fyrirlestrasal, minni sal, aðstöðu fyrir hópvinnu nemenda, fataskápa, mötuneyti og lestrarherbergi. Þá þurfi rann- sóknar- og skrifstofuaðstöðu fyrir starfsmenn háskólans, auk læknisfræðibókasafns. Eldhúsmál sjúkrahúsanna eru ekki í góðu horfi, að mati Ementor, sem telur æskilegt að losna við eldhússtarfsemina frá Hringbrautinni og Fossvogi. Við Hringbraut er eldhúsið í húsi norðvestan við aðalbygginguna og í Fossvogi er eldhúið í miðju sjúkrahúsinu. Þetta húsnæði mætti nýta á mun hagkvæmari hátt. Þá er mælt með að þjónusta verði aukin við aðalinnganga sjúkrahúsanna, t.d. með því að opna kaffiteríur, selja dagblöð o.s.frv., auk þess sem stjórnendum spítalans er bent á að huga að auknum upplýsingum til sjúklinga, koma e.t.v. á fót starfi umboðsmanns sjúklinga og bókasafni með netaðgangi. Aðstaða starfsfólk þykir ekki í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru á nútíma sjúkra- húsum, t.d. er nefnt að sjálfsagt þyki nú til dags að þeir starfsmenn, sem ekki hafa eigin skrif- stofu, hafi læstan skáp til umráða og aðgang að mötuneyti. Loks mælir Ementor með að stjórnendur Landspítala – háskólasjúkrahúss kanni hvort ekki megi færa starfsemi sem tengist þrifum, dauðhreinsun, rekstri lyfjabúrs, vörugeymslu, dreifingu og sorphirðu í hendur utanaðkomandi aðila, í stað þess að reka starfsemina innan spít- alanna. Vantar 16 þúsund fermetra nú þegar Dönsku ráðgjafarnir litu ekki eingöngu til framtíðar, heldur lögðu mat á núverandi ástand. Þeir telja að LSH þurfi um 16 þúsund fermetra viðbótarhúsnæði nú þegar, eigi hann að standa undir kröfum og stöðlum nútímaspítala. Brýn- ast er að bæta úr plássleysi á legudeildum, auka ferliþjónustu og stækka skurðstofur og rönt- gendeild, auk þess að búa betur að starfsfólki og háskólastarfseminni. Ef ekkert verður að gert mun spítalann vanta 31 þúsund fermetra hús- næði árið 2020. Það er athyglisvert að Ementor telur barna- spítalanum ætlað of stórt húsnæði, því honum eigi að nægja 2.400 fermetra rými í stað þess 3.600 fermetra húss sem í byggingu er. Um- framplássið megi nýta í þágu háskólakennslu spítalans, þvagfæradeildar og lýtalækninga- deildar. Forsvarsmenn spítalans benda hins vegar á, að þótt barnaspítalinn teljist stór miðað við annað húsnæði LSH, þá sé hann byggður til framtíðar og sé í samræmi við þá staðla sem nú séu uppi um sjúkrahús. Tillögur Ementor gera ráð fyrir þeirri skammtímalausn að skipting sérgreina milli Hringbrautar og Fossvogs yrði í stórum drátt- um eins og forsvarsmenn sjúkrahússins höfðu ætlað, þ.e. í Fossvogi slysa- og bráðamóttaka, taugalækningar, lungnalækningar og fleira. Við Hringbraut yrðu barnalækningar, fæðinga- lækningar, almennar lyflækningar, krabba- meinslækningar, þvagfæralækningar, lýta- lækningar, augnlækningar og geðlækningar. Ementor gerir að vísu ráð fyrir almennum skurðlækningum í Fossvogi og lýtalækningum við Hringbraut, en það hefur snúist við með samþykkt stjórnarnefndar LSH á dögunum. Þá gerir ráðgjafarstofan ráð fyrir að rannsóknar- stofur yrðu sameinaðar á einum stað. Til að koma þessu skipulagi á með viðundandi hætti þyrfti að byggja 30 þúsund fermetra húsnæði samtals.                                            ! "    # $! %&  '(()   )   !! &&*  +    , !! "-    ./0 # $! &12) !!  +   ) / 3        "           +   / # !! 2 1  4      &12/  # 3       !        ) %&  +   /   !! ,5 6 -0      4 # !   25  4  7 / $!   !!) "    1 8     !  "            - "-  9 ! -        " ./ #  !!   : .  !! 25  4 / . !!           "      +   /  #     "   1  4  /    7   1/ " "  !        - !!/ 3 "      / / ;1 - )  " 7 )     "7 ((  ( /  # < !!    1  4   - =     !!    - / < !!  -  =&           +   /  # $! %%2  %%      +          )  -   &/ "   "-      %%2  %%  #       !!    "-       +   ) %% ) 4  /     "    -  !!     - / $! 2>  2&  4      ")    -           # ! 7  !! %&      +    " / 3    !!/ ?     "    2@  4 )     7!!/   7!!   .  4 # %&  +          !!)   %1/ 3            )  " ,> 6 -0    5  4  / 3       " !!  !  # $! %&2  +       2@  4  ,7    !!0/   !!   (  5  4  # ! 7 "  !! %1  +   )    3       #        !! %1 /  #       21  4 )     !!)     !!/          &  4 )     "   ! A.      7  &/  #      2&  4 )     . !!     2  ! !!      !# 2&  &  4  -     ) . / / 3     . !!  -    : ./  # =&        ! "  / 3   !!     4 /   .       # ! 7      @  4   !   4 !  7  @/ # ?    "    . !! 5  4      # ? >  4   !  / >/ "  7)       7    / 3          "  !   )      / /  " B) @  5/  # %&2  +     !     / 3  - 7    !!/ +    %& , -  0  %B$   #    "-      > -    /      )  -     (   4          )    # 4     (    / SJÁ SÍÐU 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2001 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.