Morgunblaðið - 30.09.2001, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 30.09.2001, Blaðsíða 34
MINNINGAR 34 SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ LEGSTEINAR Komið og skoðið í sýningarsal okkar eða fáið sendan myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík sími: 587 1960, fax: 587 1986 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892 www.utfararstofa.is ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þætti sem hafa ber í huga er andlát verður, í samráði við aðstandendur Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Kistur Krossar Duftker Gestabók Legsteinar Sálmaskrá Blóm Fáni Erfidrykkja Tilk. í fjölmiðla Prestur Kirkja Kistulagning Tónlistarfólk Val á sálmum Legstaður Flutn. á kistu milli landa Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri ✝ Guðrún SteinaÞorláksdóttir fæddist í Eyjarhól- um í Mýrdal 21. mars 1942. Hún lést á Sjúkrahúsi Suður- lands 20. september síðastliðinn. Faðir Guðrúnar var Þor- lákur Björnsson, f. 1899, d. 1987, bóndi í Eyjarhólum, sonur Björns Einars Þor- lákssonar, bónda og hreppstjóra á Varmá í Mosfells- sveit, og Önnu Jónsdóttur Hjörleifssonar, bónda í Eystri-Skógum undir Eyjafjöll- um. Móðir Guðrúnar var Ingi- björg Indriðadóttir f. 1910, d. 1995, frá Blönduósi, fædd á Breiðabólstað í Vatnsdal. For- 1963 Hilmari Þ. Björnssyni, f. 14. desember 1942. Hilmar er sonur Helgu Þorkelsdóttur og Björns Finnbogasonar. Guðrún og Hilm- ar slitu samvistir 1991. Þeirra synir eru: Sölvi Björn, f. 22. apr- íl 1963, unnusta hans er Marj- aana Hovi; og Bjarki Ingþór, f. 13. maí 1966, sambýliskona hans er Ingileif Eyleifsdóttir og eru synir þeirra Eyleifur Ingþór, f. 20. janúar 1995, og Arnþór Darri, f. 23. október 1998. Fyrir átti Bjarki Hákon Atla, f. 12. desember 1991. Guðrún hóf starfsferil sinn í Héraðsskólanum á Skógum. Frá 1961 starfaði hún á Sjúkrahúsi Suðurlands, lengst af sem gangastúlka, en síðar í eldhúsi þar til hún lét af störfum sökum veikinda. Einnig starfaði Guðrún um árabil hjá Selósi á Selfossi, byggingarfyrirtæki sem hún var einnig eigandi að. Útför Guðrúnar fer fram frá Selfosskirkju á morgun, mánu- daginn 1. október, og hefst at- höfnin klukkan 13.30. eldrar Ingibjargar voru Margrét Frið- riksdóttir frá Bergs- stöðum, Vatnsnesi, V-Húnavatnssýslu, og Indriði Jósefsson frá Helgavatni í Vatnsdal, A-Húna- vatnssýslu. Systkini Guðrúnar eru: Gunn- ar Sævar Gunnars- son, f. 1934, d. 1970; Anna Margrét Þor- láksdóttir, f. 1938, Björn Einar Þorláks- son, f. 1939, d. 1994, Indriði Haukur Þor- láksson, f. 1940, Þórólfur Þor- láksson, f. 1943, d. 1973, Ing- ólfur Helgi Þorláksson, f. 1947, Nanna Þorláksdóttir, f. 1951, og Þórarinn Þorláksson, f. 1953. Guðrún giftist 31. desember Örfá orð langar mig að skrifa í minningu ástkærrar systur minnar, Guðrúnar. Hún var 5. í röðinni af 9 systkinum. Hún er hið fjórða þeirra sem sjáum á eftir, ótímabært, yfir móðuna miklu. Eins og oft vill verða í stórum systkinahópi líta þau eldri gjarnan til með þeim yngri. Þannig var því ein- mitt farið með Guðrúnu. Hún leiddi mig fyrstu sporin, háttaði mig á kvöldin, sullaði með mér í læknum. Seinna reyndi hún að leiðbeina mér varðandi fataval og snyrtingu. En þrátt fyrir rýran árangur voru þol- inmæði hennar engin takmörk sett. Æ síðan hefur hún verið hlíf mín og skjöldur. Guðrún var gædd þeim eiginleika að laða að sér börn. Börnum mínum var hún sem önnur móðir og þau voru ófá skiptin sem hún gætti þeirra. Hún var í þeirra augum Gunna besta frænka í heimi. Stór hópur systkinabarna saknar nú sárt frænku sem var einskonar „ofur- frænka“. Sonarsynir hennar þrír voru sannkölluð ljós í lífi hennar. Þeirra missir er mikill. Heimili Guðrúnar og Hilmars var gestkvæmt. Allra leiðir lágu þangað, bæði vina og ættingja. Þar var gott að koma. Guðrún var líka einn aðaldrifkrafturinn í okkar árlegu ættarsamkomum. Nú þarf ný kyn- slóð að taka við því hlutverki. Síðastliðið vor greindist Guðrún með krabbamein. Síðan þá hefur hún barist hetjulega. Sú barátta var sárs- aukafull en Guðrún tókst á við hana af ótrúlegru æðruleysi og sigurvilja. En eigi má sköpum renna. Eftir sitj- um við ættingjar og vinir harmi sleg- in og spyrjum, hvers vegna? Ekki verða fleiri spil spiluð, ekki fleiri okkar daglegu heimsóknir. Líf- ið verður snauðara án hennar. Fram- undan er vetur og myrkur. Ótal góð- ar minningar, sorg og söknuður gagntekur huga okkar en minning- arnar tekur enginn frá okkur. Elsku strákarnir mínir, Sölvi og Bjarki, þið hafið staðið ykkur sem hetjur ásamt Hilmari föður ykkar, Ingileif og Marjaana. Hjá ykkur öll- um og litlu kútunum, Hákoni Atla, Eyleifi Ingþór og Arnþóri Darra er hugur okkar allra. Megi allir englar vaka yfir ykkur. Guð geymi ástkæra systur mína. Af eilífðar ljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en augað sér mót öllum oss faðminn breiðir (Einar Benediktsson.) Nanna Þorláksdóttir. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Enn er eitt skarð höggvið í fjöl- skylduna, fjórða systkinið kallað burt úr þessum heimi í blóma lífsins. Ykkur hefur verið ætlað annað hlut- verk sem við ekki skiljum. Gunnu sá ég fyrst þegar ég þurfti að liggja á sjúkrahúsi 12 ára gömul. Var hún gangastúlka þar og tók ég miklu ást- fóstri við hana og var hún í miklu uppáhaldi hjá mér vegna hlýju og væntumþykju í minn garð. Eina nóttina þegar mér leið sem verst sat hún á rúmstokknum hjá mér eins oft og hún gat og huggaði mig. Ekki hefði okkur grunað þá að líf okkar ætti eftir að verða svona samofið eins og varð. Nokkrum árum seinna kem ég með Ingólfi bróður hennar inn á heimili hennar, sem tilvonandi mágkona hennar, sem einnig var heimili hans því hann leigði hjá henni og Hilmari. Var mér tekið opnum örmum og af hlýju eins og henni var einni lagið. Var þetta mitt annað heimili í nokkra mánuði og eigum við góðar og ljúfar minningar frá þeim tíma. Þegar við stofnuðum okkar heimili var hún alltaf til staðar fyrir okkur. Margar yndislegar stundir höfum við átt á heimili hennar ásamt okkar börnum. Tvisvar sinnum unnum við nöfnurnar á sama vinnustaðnum. Oft var mikið fjör þegar við vorum að „fínpússa“, mikið spjallað og hlegið. Gunna var alltaf til í glens og fjör og að hafa fólk í kringum sig og mikið eiga hin árvissu ættarteiti eftir að verða tómleg án þín, elsku Gunna. Við höfum misst mikið. Söknuðurinn og sorgin er sár og óyfirstíganleg eins og er en tíminn mildar sorgina. En mestur er missir elsku strákanna okkar, Sölva, Bjarka og ömmustrák- anna þriggja sem voru gimsteinar í þínum augum. Þú sýndir yfirnáttúru- legan styrk í veikindum þínum. Okk- ur er efst í huga þakklæti fyrir að hafa átt þessa systur og mágkonu og ávallt getað leitað til hennar, jafnt í gleði sem sorg, og mætt þar hlýju og skilningi. „Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta; ég er er svo nærri að hvert eitt ykkar tár snertir mig og kvelur. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur, og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Ók. höf.) Elsku Sölvi, Marjaana, Bjarki, Ingileif, Hákon Atli, Eyleifur Ingþór, Arnþór Darri og Hilmar, guð styrki ykkur á erfiðum tímum og lýsi veg- inn framundan. Guð geymi þig, elsku Gunna. Guðrún (Gunna) og Ingólfur. Andi minn er bugaður, dagar mínir þrotn- ir, gröfin bíður mín. (Jobsbók.) Elsku besta Gunna mín, frænka og vinkona. Ég sit hér í herberginu okk- ar í Dalsmynni, skammt frá okkar góða vinnustað Hótel Geysi og reyni að skrifa einhver orð til að kveðja þig. Við höfum þekkst frá því við vor- um litlar stelpur í sveitunum okkar undir Eyjafjöllum og í Mýrdalnum. Á þeim árum var margt brallað og ýmislegt kemur upp í hugann þegar hugsað er tilbaka. Einn af vorboð- unum í sveitinni var þegar þú komst til okkar að Rauðafelli til að sækja sundnámskeið í Seljavallalaug. Í þá daga þótti ekki tiltökumál að ganga klukkustundarleið inn að laug en einn daginn þótti þér nóg um og snérir við á miðri leið, óðst yfir ána og mættir heim að bæ rennblaut og sæl. Okkur systkinunum hefði aldrei dottið til hugar að standa andspænis pabba og segja honum að við hefðum einfaldlega ekkert nennt að standa í þessari sundkennslu þann daginn en þú varst ekki í vandræðum með svör, labbaðir inn í hús og fórst að sofa. Já, Gunna mín, það má með sanni segja að þú hafir verið einstaklega orð- heppin og kunnir að svara fyrir þig og oftar ekki var mikið hlegið að þín- um hnitmiðuðu svörum. Árin liðu og við stofnuðum okkar fjölskyldur en héldum ávallt sam- bandi. Eitt haustið, fyrir nokkrum árum, ákváðum við að koma saman og taka slátur. Það verður lengi í minnum haft því ekki voru keppirnir fáir – líklega einir hundrað talsins. Þetta var mikið fjör og ófáir gullmol- arnir sem runnu upp úr þér. Hátind- inum var náð er þú slengdir einum keppnum framan í Nönnu systur þína, henni til mikillar armæðu en okkur til ómældrar gleði. Þetta er nú einungis brot af okkar góðu stundum saman því þær voru ófáar. Síðustu tvö sumur hefur það verið mér mikils virði að fá að starfa með þér á Hótel Geysi. Þar var gengið rösklega til verks og aldrei slegið slöku við. Á kvöldin er heim var kom- ið höfðum við það notalegt við kerta- ljós og spjölluðum og hlógum fram á rauða nótt. Þó að mikið hafi verið unnið og oft vakað lengi frameftir þá fundum við lítið fyrir þreytu og er ég viss um að sé að þakka fallegu um- hverfi og yndislegu samstarfsfólki. Þetta hefur verið einstakur tími sem ég mun aldrei gleyma. Ömmustrákarnir þínir þrír, Há- kon Atli, Eyleifur Ingþór og Arnþór Darri, voru þér mjög kærir og sóttu mikið til þín og hjá öllum systkina- börnum þínum varstu kölluð Gunna besta frænka. Ekki þykir mér skrýt- ið að börnin hafi hænst að þér því ávallt tókstu vel á móti þeim. Gunna mín, þú varst hlý en hæg- lát, afar ákveðin og aldrei var langt í brosið. Þú varst góð heim að sækja og vildir allt fyrir alla gera. Þú varst hetja í baráttu þinni við erfið veikindi síðustu mánuði og lýsir það vel þín- um karakter. Elsku Gunna mín, ég kveð þig með söknuði og trega. Þú kvaddir of fljótt en ég mun varðveita minningu þína um ókomin ár. Elsku Sölvi, Bjarki, Hilmar og fjölskyldur, systkini og aðrir að- standendur. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð og bið Guð að styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. „Þegar þú ert sorgmæddur skoð- aðu þá hug þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín.“ Saknaðarkveðja, Guðný I. Jónasdóttir. Mig langar að minnast Guðrúnar frænku minnar í örfáum orðum. Í raun nægja örfá orð ekki til að lýsa henni, það þarf miklu meira til – því hún var yndisleg persóna. Guðrún var systir hans pabba og því samtvinnuð í líf mitt frá því að ég man eftir mér. Fjölskyldubönd eru missterk en föðurfjölskylda mín hef- ur alltaf verið náin og undanfarin ár hefur hópurinn reynt að hittast sam- an einu sinni til tvisvar á ári. Guð- rúnu og fjölskyldu tengdumst við meira en öðrum, því ég og Sölvi son- ur hennar vorum saman í sveit hjá ömmu og afa – og síðar þegar for- eldrar mínir fluttu að Eyjarhólum, þá komu þeir bræður Sölvi og Bjarki og voru í sveit hjá okkur á sumrin. Guðrún, Hilmar og strákarnir bjuggu á Engjaveginum á Selfossi í mörg ár og var ómissandi þáttur að koma við hjá þeim þegar leiðin lá í gegnum bæinn. Ekki var heldur sjaldan sem við föluðumst eftir gist- ingu þar og var það alltaf auðsótt mál. Eins stóð heimili þeirra mér op- ið heilt sumar þegar ég var fimmtán ára og svo aftur hálfan vetur, nokkr- um árum seinna, þegar ég sótti skóla á Selfossi. Í veikindum pabba fyrir nokkrum árum var Guðrún ásamt systkinum sínum ómetanleg aðstoð og við andlát hans sýndi hún hversu stórkostlegt var að eiga hana að og er það nokkuð sem við munum aldrei gleyma. Guðrún var mjög lífsglöð og kát persóna, sem umgekkst alla sem jafningja, hvort sem börn, unglingar eða fullorðnir áttu í hlut. Hún var hrókur alls fagnaðar og stórglæsileg kona – algjör „pæja“ eins og ég sagði við hana. Í síðasta fjölskylduteiti, sem var í mars síðastliðnum, áttum við Guðrún langt og innilegt spjall, þar sem við ræddum um hamingjuna og lífið. Guðrún var hamingjusöm og smitaði hamingja hennar og gleði út frá sér og gerði mig og aðra glaðari í hjarta. Það var því reiðarslag að fá að vita skömmu seinna að hún væri með illkynja sjúkdóm sem að lokum dró hana til dauða. Það eru erfið spor að GUÐRÚN STEINA ÞORLÁKSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.