Morgunblaðið - 30.09.2001, Side 8

Morgunblaðið - 30.09.2001, Side 8
FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Málþing um mjólk Mikilvægur kalkgjafi og gefur orku MÁLÞING ummjólk verðurhaldið í þingsal 1 á Hótel Loftleiðum 2. október og hefst það klukkan 20. Þingið er haldið að tilhlutan Nátt- úrulækningafélags Ís- lands og verða flutt þar fjögur framsöguerindi. Einn fyrirlesara er Kol- brún Einarsdóttir nær- ingarráðgjafi. Hún var spurð hvað hún ætlaði að ræða um? „Ég ætla að tala þarna um mjólkurofnæmi og mjólkursykuróþol.“ – Er slíkt algengt? „Mjólkurofnæmi er al- gengara hjá börnum en fullorðnum. Hjá börnum er stærsti hlutinn annað- hvort með mjólkur- eða eggjaofnæmi. Hjá fullorðnum er algengast ofnæmi fyrir hnetum eða skelfiski. – Er mjólkurofnæmi hættu- legt? „Það getur verið það. Fólk getur fengið mjög slæm ein- kenni, svo sem onæmislost. Al- gengast er hins vegar að fólk sé með annaðhvort húðútbrot eða einkenni frá meltingu eða önd- unarfærum.“ – Er hægt að ráða við svona ofnæmi með ofnæmistöflum? „Þær geta haldið niðri ein- kennum en ef fólk greinist með ofnæmi fyrir mjólk er best að halda sig algjörlega frá mjólk og mjólkurvörum og margir losna þá alveg við einkenni.“ – Er ekki slæmt að geta ekki notað neinar mjólkurvörur? „Eðlilega er það erfitt því við Íslendingar notum mjólk í ýms- an mat. Mjólk er því oft í unnum matvörum. Þeir sem þjást af svona ofnæmi geta því ekki keypt hvað sem er í búðum, það þarf að kunna að lesa innihalds- lýsingar og síðan þarf fólk að læra hvaða mat það þarf að borða í staðinn. Þegar mjólkin er tekin hverfur úr fæðinu mikið af hitaeiningum og einnig er mjólk þýðingarmikill kalkgjafi. Fólk verður því að nota t.d. kalkbætta sojamjólk eða taka inn kalktöflur.“ – Er mjólk mikilvæg fæðuteg- und fyrir þá sem hana þola? „Mjólkurvörur eru einkum mikilvægur kalkgjafi. Þeir sem nota ekki mjólkurvörur þurfa að tryggja að fá kalk úr öðrum matvörum, sardínur gefa t.d. mikið af kalki en annar matur gefur kalk í minna mæli, svo sem grænmeti, ávextir og korn- matur. Mjólkin gefur líka orku, prótein og B2 vítamín, en auð- velt er að fá þetta úr öðrum matvælum.“ – Nú segja sumir að fullorðið fólk hafi ekki sérstak- lega gott af mikilli mjólk? „Við höfum ekki þörf á að þamba mjólk en gott er að drekka tvö glös af mjólk á dag og borða ost á eina til tvær brauðsneiðar.“ – Þurfa börn meiri mjólk en fullorðnir? „Þau þurfa sama skammt og fullorðnir nema þau sem eru í örum vexti eins og unglingar, þau þurfa aðeins meira.“ – Er mjólkursykursóþol al- gengt? „Mjólkursykursóþol er mjög algengt hjá öðrum þjóðum, nema Norður-Evrópubúum. Ensímið sem sér um að brjóta niður mjólkursykur hverfur úr meltingarveginum þegar fólk kemst á fullorðinsár nema hjá Norður-Evrópubúum.“ – Hvernig stendur á þessum mun? „Þetta er erfðafræðilegur munur og er ekki sjúkdómur heldur eðlilegt.“ – Hvernig lýsir mjólkursyk- ursóþol sér? „Fólk fær uppþembu, vind- gang, magaverki eða niður- gang.“ – Er hægt að laga þetta? „Nei, fólk þarf að forðast mat sem inniheldur mikinn mjólkur- sykur, svo sem mjólk og súr- mjólkurvörur en fólk getur hins vegar borðað venjulega osta. Það getur verið misjafnt hvað fólk þolir af mjólkursykri, sumir þola hálft glas af mjólk en aðrir þola alls ekki neitt.“ – Hvað með lyf – slá þau á óþolið? „Það er hægt að fá lyf til að taka inn og hjálpa til við nið- urbrot mjólkursykurs. Einnig er hægt að fá dropa til að setja út í mjólkina þannig að mjólkursykurinn brotni niður. Á mörg- um stöðum erlendis er hægt að fá mjólkur- sykurssnauða mjólk og mjólkurvörur.“ – Hvað fleira verður fjallað um á námskeiðinu? „Aðrir fyrirlesarar verða Björn Guðbjörnsson gigtarlækn- ir, Hallgrímur Magnússon lækn- ir og Auðunn Hermannsson hjá Mjólkurbúi Flóamanna. Auk þess verða pallborðsumræður þar sem þetta málefni verður rætt og fyrirspurnum svarað.“ Kolbrún Einarsdóttir  Kolbrún Einarsdóttir fæddist 9. desember 1956 í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Tjörn 1976 og námi í næringarfræði frá háskólanum í Ósló 1981 og í klínískri meðferðarfræði frá háskólanum í Gautaborg 1983. Hún hefur starfað sem nær- ingarráðgjafi á Landspít- alanum og er nú deildarstjóri næringarstofu á Landspítala – háskólasjúkrahúsi. Kolbrún er gift Gísla Þór Sigurþórssyni kennara og eiga þau þrjú börn. Tvö glös af mjólk á dag og ostur á eina eða tvær brauðsneiðar ÁSGERÐUR Halldórsdóttir, for- maður suðvesturkjördæmis Sjálf- stæðisflokksins og fulltrúi í mið- stjórn flokksins, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti í bæj- arstjórnarpróf- kjöri flokksins sem fram fer 3. nóvember nk. Ásgerður, sem er fædd árið 1956, hefur um langt skeið verið mjög virk í íþrótta- og félagsmálum Sel- tjarnarness og gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðis- flokkinn, bæði á nesinu sem á lands- vísu. „Ásgerður lauk prófi í viðskipta- fræði við Háskóla Íslands árið 1990 en stundar nú nám í stjórnun og stefnumótun við meistaradeild HÍ. Hún er deildarstjóri innra eftirlits og reikningshalds hjá Tryggingamið- stöðinni hf., þar sem hún hefur starf- að í mörg ár. Eiginmaður hennar er Kristján Guðlaugsson, forstöðumað- ur tölvudeildar Lýsingar hf. og eiga þau þrjú börn á aldrinum 7, 16 og 21 árs,“ segir í fréttatilkynningu. Gefur kost á sér í fyrsta sæti Ásgerður Halldórsdóttir Sjálfstæðismenn á Seltjarnarnesi Það er fátt annað eftir til ráða í þessu heimsins besta kvótakerfi en að reyna að „flengja sjóinn“. HÁSKÓLARÁÐ hefur falið kennslu- málanefnd Háskólans að yfirfara hugmyndir um samræmingu reglna sem gilda um lokaverkefni stúdenta. Í tilkynningu frá HÍ segir að þær sameiginlegu reglur fyrir Háskóla Ís- lands sem settar voru af háskólaráði 26. júní 2000, kveði fyrst og fremst al- mennt á um það hvernig stúdentar skuli haga námi sínu. Slík almenn ákvæði eigi m.a. við um kröfur sem gerðar eru til lokaverkefna nemenda. Í 4. mgr. 53. gr. segi til dæmis að stúdentum sé algerlega óheimilt að nýta sér hugverk annarra í ritgerðum og verkefnum, nema heimilda sé getið í samræmi við viðurkennd fræðileg vinnubrögð. „Viðmiðanir um fræðileg vinnu- brögð eru ekki teknar upp í reglurn- ar, enda styðjast þær við órofa hefð. Í Háskóla Íslands er meginreglan sú, að deildum er falin nánari útfærsla hinna almennu reglna í samræmi við aðstæður og hefðir á hverju fræða- sviði, sem geta verið um margt ólíkar. Flestar deildir hafa gefið út skrifleg fyrirmæli í þessu efni, sem að jafnaði eru birt í kennsluskrá Háskólans eða á heimasíðu viðkomandi deildar,“ seg- ir í fréttatilkynniningu frá HÍ. Deildir Háskólans fylgjast með því að reglum um lokaverkefni og annað sem að náminu lýtur sé fylgt. Þær geta beitt ýmsum úrræðum ef mis- brestur verður á því. Háskólinn fer yfir regl- ur um lokaverkefni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.