Morgunblaðið - 30.09.2001, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 30.09.2001, Blaðsíða 23
B & 1 % O 5 @ B & 1 % O & @  5 P  %O %&  %B %>  %1 %O 6 5 B 1 O 4.!   %  "    2   A " #  "   1 "  3# #   1 "  ,(  ! -$$( .$$( ( ( (/ (0 (1 2' 3  4#  H   H  " Q $  .  $  "  7      með frjálsa frásögn af atburðinum. Að lokum er spurt sérhæfðra spurn- inga um meint kynferðisofbeldi. Að sögn þeirra Jóhönnu Kristínar og Þorbjargar höfðu þau börn sem tóku þátt í rannsókninni flest skiln- ing á reglum rannsóknarviðtalsins og héldu góðri athygli á meðan á því stóð. „Langflest komu börnin vel út úr mati á þroska og hugtakaskiln- ingi. Það voru helst yngstu börnin sem áttu í mun meiri erfiðleikum en þau eldri að koma með frjálsa frá- sögn af atburðum og þurfti því oft að spyrja þau sérhæft út í atburðina án þess að vera leiðandi til að fá þau til að tjá sig um atvikin. Einnig komu börnin í flestum til- vikum með skýr svör við almennum atriðum í upphafi viðtals.“ Brotin flest framin innan veggja heimilis Í rannsóknarviðtölunum í Barna- húsi var greint bæði frá gömlum og nýjum brotum en mun fleiri voru í síðarnefnda hópnum. Þau börn sem greindu frá eldri brotum skýrðu í flestum tilvikum frá mjög grófum brotum. Aldur gerenda var frá 13–60 ára og var meðalaldur þeirra 32 ár þegar brotið var framið. En ungir gerendur voru 13 talsins eða 31%. Í flestum tilvikum áttu brotin sér stað innan veggja heimilis. Flestir gerenda þekktu til barns- ins og var náinn skyldleiki í tæplega helmingi tilfella. Segir í ritgerðinni að þessir aðilar tryggi sér greiðan aðgang að barni og séu í mörgum til- vikum bundnir því böndum trausts og vináttu sem gerir það að verkum að barnið hefur ekki skilning á alvar- leika misnotkunar sem beinist gegn því og á erfitt með að segja frá því sem gerst hefur. Þegar athugað var hversu alvarleg brotin voru reyndust þau á öllum al- varleikastigum, en brotin voru flokk- uð niður eftir því hversu alvarleg þau voru, og átti helmingur þeirra sér stað einu sinni en hinn helmingurinn gerðist endurtekið. Hluti brotanna stóð yfir í eitt ár eða lengur. Það kom einnig fram í rannsókn- inni að alvarlegustu brotin voru ekki síður framin gegn börnum í yngri aldurshópum. Í rannsókninni kom fram að tæp- lega helmingi barnanna hafði verið bannað að segja frá. Hluta þeirra var umbunað með gjöfum eða loforði um gjafir eða beitt var hótunum og voru þær bæði grófar og vægar. Ekki nægileg sönnun Í þeim 60 málum sem voru til rann- sóknar var ákært í málum nær helm- ings barnanna sem greindu frá kyn- ferðisofbeldi í Barnahúsi. Ákært var fyrir brot gegn tveimur börnum sem ekki greindu frá slíku þar sem sak- borningur játaði brot við yfirheyrslu. Í málum þar sem ekki var ákært var helsta skýringin sú að sakarefni voru ekki nægjanleg. Um þetta segja þær í niðurstöðum rannsóknarinnar: „Í sumum þessara mála greindu börnin frá alvarlegu broti og var bagalegt að framburður þeirra, sem í flestum til- vikum var trúverðugur, skuli ekki hafa þótt nægjanleg sönnun fyrir því að brot hafi átt sér stað.“ Það kom einnig fram að framburð- ur barna skilaði sér nokkuð vel inn í orðalag ákæru í þeim málum sem ákært var í. Í flestum tilvikum var tekið mið af þeim brotum sem barnið greindi frá og ákært fyrir sama al- varleikastig og framburður gaf til kynna. Ósamræmis gætti einungis í nokkrum tilvikum sem verða ekki tí- unduð hér. Sakborningar játa frekar veigaminni brot Það sem er þó öllu athyglisverðara í niðurstöðunum var að þær sýna að í fæstum tilvikum er játning sakborn- ings í samræmi við framburð barns og játa þeir í flestum tilvikum veiga- minna brot en barn hefur skýrt frá. Það kemur einnig fram að þegar ákært er fyrir sama alvarleikastig og barn hefur tilgreint í framburði sín- um er rík tilhneiging hjá sakborningi að játa einungis á sig hluta ákæru- atriða eða neita allri sök. Það kemur einnig fram í rann- sókninni þegar alvarleiki brota er skoðaður að sakborningar játa í flest- um tilvikum að fullu á sig brot sem flokkuð eru í rannsókninni sem væg eða gróf en játa að hluta eða neita sök ef brot eru mjög gróf. Þegar um mjög gróf brot er að ræða gangast sakborningar oft við veigaminni at- riðum ákæru en neita sök á alvar- legri atriðum ákærunnar. Segir að þetta hafi áhrif þegar kemur að dómsniðurstöðu því í flestum tilvik- um sé einungis dæmt fyrir þau atriði ákæru sem sakborningur játar á sig. Brotaþolar þurfa að vera fleiri en einn svo ákært sé Í niðurstöðum ritgerðarinnar þar sem fjallað er um dóma við kynferð- isbrotum gegn börnum segir að í all- mörgum tilvikum hafi sakborningur verið ákærður fyrir brot gegn fleiri en einu barni, allt upp í sex börn. Veki það athygli að í öllum þessum tilvikum hafi verið ákært og dæmt í þessum málum. Það er að segja mál 18 barna af 23 sem ákært var fyrir. Í einungis 5 tilvikum var ákæra gefin út þegar brotaþoli var einn til frá- sagnar. Draga þær Jóhanna Kristín og Þorbjörg þá ályktun af þessu að það sem segir fyrir um hvort kært sé í máli virðist vera að brotaþolar séu fleiri en einn. Segja þær að ýmsar skýringar geti verið á þessu, svo sem að barn er ekki lengur eitt til frá- sagnar heldur megi styðjast við framburð fleiri barna og styrki það stöðu þeirra gagnvart framburði sakbornings. Einnig sé ljóst að þegar sakborningur brýtur gegn fleiri en einu barni, jafnvel yfir langan tíma, er það brot litið alvarlegum augum hjá dómstólum. En þær taka fram að ekki megi gleyma að um alvarleg brot getur verið að ræða í málum þar sem brotið er gegn einu barni og segja allt of lítið um að ákært sé og dæmt í málum þeirra. Flestir sakborninga fengu skilorðsbundna dóma Annað sem rannsóknin leiddi í ljós var að sakborningar fengu í flestum tilvikum skilorðsbundna dóma og þurftu ekki að afplána refsingu sína í fangelsi að því tilskildu að þeir héldu almennt skilorð á skilorðstíma. Taka þær fram að það veki furðu því í mörgum tilvikum skýrðu börnin frá brotum svo alvarlegs eðlis að vænta hefði mátt þyngri refsingar af hálfu dómstóla. Þær bentu enn fremur á að fjár- hæð sú sem sakborningur var dæmd- ur að greiða brotaþola var í öllum til- vikum lægri en farið var fram á af hálfu brotaþola og réttargæslu- manns. Segja þær að rannsóknir í öðrum löndum hafi sýnt að mjög væg viðurlög séu við þessum brotum. Það kemur fram í ritgerðinni að þegar dómar eru skoðaðir með tilliti til ákæruatriða sjáist að í meirihluta tilvika er dæmt fyrir alla liði ákæru. Í tæpum helmingi þeirra tilvika eru ákæruatriði ekki í samræmi við framburð barnsins og því ekki dæmt fyrir öll þau brot sem barn hefur til- greint í framburði sínum. Í þeim til- vikum þar sem samræmi er milli framburðar barns og ákæruatriða er einungis dæmt fyrir hluta ákæruat- riða. Segir ennfremur að af þessu sjáist að þrátt fyrir að framburður barns skili sér nokkuð vel inn í orða- lag ákæru, eru þau atriði eins og hvort sakborningur játi ákæru að fullu, eða hluta eða neiti henni og einnig hvort dæmt sé fyrir alla liði ákæru eða hluta hennar, sem verða til þess að draga úr gildi framburðar barns þegar kemur að lyktum máls í dómskerfinu. Niðurstaða þeirra er sú að þrátt fyrir að vel sé staðið að skýrslutöku af börnum sem koma í Barnahús vegna gruns um kynferðisbrot virð- ist það ekki vera nægjanleg forsenda fyrir sanngjörnum lyktum máls fyrir dómstólum. Lögin heimila strangari refsingu Í lokaályktun sinni segja þær að þegar refsirammi almennra hegning- arlaga sem snýr að kynferðisbrotum sé skoðaður komi í ljós, að lögin heimili mun strangari refsingu en tíðkast hér á landi. Segir orðrétt: „Það vekur furðu að þessi rammi er ekki nýttur betur í þeim tilvikum þar sem óyggjandi sönnun fyrir broti er til staðar. Erfitt er fyrir barn að skýra frá kynferðisofbeldi og ekki fyrirsjáanlegt að mál þar sem grunur um slíkt vaknar nái fram að ganga í refsivörslukerfinu og endi með sak- fellingu ákærða. Eins og fram hefur komið hafa dómar í kynferðisbrota- málum þar sem þolendur eru full- orðnir þyngst á síðustu árum en sú þynging virðist ekki hafa skilað sér inn í dóma í slíkum málum þegar um börn er að ræða. Miskabætur hafa hækkað eitthvað á síðustu árum og hefur sú hækkun skilað sér til barna sem orðið hafa fyrir kynferðislegu of- beldi. Má varpa fram þeirri spurn- ingu hvort högum barna sé ekki bet- ur borgið með þyngingu refsivistar og fleiri óskilorðsbundnum dómum, þar sem tryggt er að atferli sakborn- ings sé stöðvað svo hann brjóti ekki af sér gegn fleiri börnum og einnig að hann fái meðferð við hæfi reynist það mögulegt.“ Rannsóknin sem hér er greint frá er gerð að frumkvæði þeirra Jó- hönnu Kristínar og Þorbjargar og hönnuðu þær öll mælitæki sjálfar með aðstoð sérfræðinga Barnahúss og leiðbeinanda síns Jóns Friðriks Sigurðssonar, sálfræðings hjá Fang- elsismálastofnun ríkisins. Í býgerð er að hefja framhaldsrannsókn á þessu sviði þar sem mál fleiri barna verða skoðuð. Sú rannsókn verður gerð í samvinnu við Barnaverndar- stofu og munu þær Jóhanna Kristín, Þorbjörg og Jón Friðrik standa að henni ásamt Gísla Guðjónssyni rétt- arsálfræðingi. Morgunblaðið/Golli „Í fæstum tilvikum er játning sakbornings í samræmi við framburð barns og játa þeir í flestum tilvikum veigaminni brot,“ segja þær Þorbjörg Sveinsdóttir og Jóhanna Kristín Jónsdóttir. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2001 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.