Morgunblaðið - 30.09.2001, Side 24

Morgunblaðið - 30.09.2001, Side 24
24 SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ LOKATÖLUR eru ekki allsstaðar staðfestar hvað þáað fyrir liggi heildarveiði-tala fyrir vertíðina 2001.Samanburðurinn er þó við sumarið 2000 er heildarveiði nam 27.287 löxum og 24.432 löxum ef menn kjósa að draga frá þá fiska sem skráðir voru slepptir í veiðibæk- ur, en þeir voru 2.918 síðasta sumar. Að öllum líkindum eitthvað fleiri nú. Talsverður barlómur hefur verið í stangaveiðimönnum og víst er, að í ýmsum ám var veiðin ekki beysin og annars staðar þar sem þó gekk eitt- hvað af fiski fóru ill skilyrði illa með veiðivonina. Þannig voru langvar- andi þurrkar víða um land um há- sumarið og lítill vatnsforði til að við- halda laxveiðiánum. Þetta kom auðvitað illa niður á veiðiskapnum og mun minna veiddist en ella. En þrátt fyrir barlóminn er at- hyglisvert að skoða eitthvað af veiði- tölum sumarsins. Sem fyrr segir verður Eystri- og Ytri-Rangá lokað nú um helgina, en lokatölur í þeim eru nokkuð ljósar, Eystri-Rangá er með um 3.000 laxa og Ytri-Rangá um það bil 2.500 laxa. Þær eru langhæstar yfir landið, en hafa algera sérstöðu í íslensku veiði- áaflórunni ásamt Breiðdalsá. Þær eru sum sé hafbeitarstöðvar, göngu- seiðum er sleppt í stórum stíl í þær, seiðin ganga til sjávar og skila sér til baka. Náttúrulegir laxastofnar Rangánna eru hverfandi og silungur er þeirra fiskur. Af þessum sökum segir ástand og gangur mála í Rang- ánum lítið um ástand villtra ís- lenskra stofna. Það segir ekki einu sinni að ástandið sé hugsanlegra betra í hafinu af því að metveiði var í ánum, því hún kann að stafa af betri seiðum og sleppitækni en áður. Margar af „sjálfbæru“ ánum eru sannarlega með lakari veiði heldur en í fyrra, en þónokkrar þeirra eru svipaðar og jafnvel betri. Við skulum líta á nokkur dæmi. Efst er Langá á Mýrum með 1.407 laxa sem er mun betra en í fyrra, þá skilaði áin 1.014 löxum. Næst er Norðurá í Borgar- firði með 1.354 laxa sem er 287 löx- um minna en í fyrra. Blanda og Svartá voru með um 1.325 laxa sam- an á móti aðeins 713 löxum í fyrra. Næsta sæti er skipað Þverá/Kjarrá, heildartalan úr þeim til samans var 1.205 laxar sem er svipað og í fyrra, nokkrum löxum minna þó, 1.286 í fyrra. Næst er Selá með 1.110 laxa sem er ívið minna en í fyrra (1.360), en afar góð veiði samt. Utan Eystri- og Ytri-Rangár eru síðan þrjár ár til viðbótar sem fóru yfir þúsund laxa, Laxá í Aðaldal með 1.079 laxa sem er dálítill bati frá fyrra ári (942), Laxá í Kjós sem gaf um 1.020 laxa sem er næstum sama veiði og í fyrra og Grímsá sem gaf 1.006 laxa sem einn- ig er nánast sama veiði og í fyrra. Næstu ár eru Laxá í Leirársveit með um 930 laxa sem er svipað og í fyrra, Hofsá með um 910 laxa sem er um hundrað löxum meira en í fyrra, Laxá í Dölum með um 900 laxa sem er 300 laxa viðbót frá fyrra ári. Af öðrum þekktum laxveiðiám má nefna eftirtaldar og eru tölur frá 2000 innan sviga. Laxá á Ásum 565 (760), Haukadalsá 575 (348), Elliða- árnar 414 (586), Miðfjarðará 434 (632), Leirvogsá 430 (540), Vatns- dalsá um 520 (323). Auk þess má nefna að allar ár Þistilfjarðar voru með nokkrum tugum laxa meiri afla heldur en í fyrra og þar var með- alþyngd laxa um eða yfir 9 pund. A.m.k. var svo í Svalbarðsá og Hafralónsá. Loðið og teygjanlegt Orri Vigfússon, formaður NASF, verndarsjóðs Atlantshafslaxins sagði um vertíðina, að enn einu sinni hefðu vonir brugðist. „Lokatölur liggja enn ekki fyrir, en það stefnir í að heildarveiði verði langt fyrir neð- an 35.000 laxa langtímameðaltalið. Reikna má með að heildarveiðin í ár verði undir 30.000 löxum. Ef dregin er frá veiðin í hafbeitaránum, sleppt- um fiski og laxi af eldisuppruna má áætla að eftir standi um 18.000 veiði á hreinum villtum laxi,“ segir Orri og heldur áfram: „Laxastofnar á Íslandi og í Rúss- landi standa þó betur en í flestum öðrum löndum þar sem hrunið er um eða yfir 80%. Nýlega ræddi ég við fé- laga minn sem var að veiða í Ponoi- ánni. Þeir félagar höfðu veitt 144 laxa og þar af voru 104 nýir eða lús- ugir, margir stórir og pattaralegir. Öllum löxunum var að sjálfsögðu sleppt en Rússar eru smám saman að taka forystu í stjórnun laxveiða á meðan við keppumst við að hífa upp nokkrar veiðitölur með maðkaflokk- um. Ef ekkert verður að gert og laxastofnar halda áfram að minnka, glatast mikil verðmæti sem engin leið er að bæta, þ.e.a.s. efnahagsleg verðmæti, en ekki síður hin miklu verðmæti sem fólgin eru í útivist og veiðiskap. Við hljótum að vera sam- mála um að þessi glæsilegi fiskur má ekki við meiri áföllum, það verður að spyrna við fæti og snúa þeirri óheillaþróun sem við blasir.“ Guðni Guðbergsson, fiskifræðing- ur hjá Veiðimálastofnun, sagði í samtali við Morgunblaðið að enn væri of snemmt til að rýna um of í tölur sumarsins. Hins vegar sagði hann að títtnefnt orð, „óefni“, þegar rætt væri um ástand og horfur í lax- veiðum hér á landi, væri bæði loðið og teygjanlegt. Lagði Guðni áherslu á, að ákveðið magn þyrfti af hrygn- um í hverri á til að framleiða ákveðið magn hrogna sem þyrfti til að gjör- nýta búsvæðin. Það sem framleidd- ist umfram það væri það sem aflögu væri fyrir veiðimenn og það gæti verið langur vegur frá því ástandi að veiðimenn teldu ástandið orðið óvið- unandi og til þess að það væri orðið þannig að ástæða væri til að hafa áhyggjur og grípa til aðgerða. „Veiðitölur komast mun fyrr í „óefni“ heldur en raunverulegt ástand stofna. Svo er líka hugtakið teygjanlegt, hvað eru menn að tala um? Jú, e.t.v. rýrnandi verðgildi og menn fái minna fyrir peninginn. Á móti kemur að merki eru um að það skipti menn minna máli, menn borgi uppsett verð og geri sig ánægða með minni afla,“ segir Guðni. Ríflega 200 þúsund fiskifræðingar Guðni lagði á það ríka áherslu að allar aðgerðir sem hugsanlega yrði gripið til byggðust á rannsóknum og fyrirliggjandi gögnum. „Það hefur sýnt sig að það eru ríflega 200.000 fiskifræðingar í landinu og rík til- hneiging til að grípa til patent- lausna. Lítið dæmi þar um eru sleppingar. Ég bendi t.a.m. á að 65% smálaxa, sem bera uppi veiðina á Ís- landi, eru hængar. Það er sem sagt nóg af þeim og spurning hvað fæst með því að sleppa þeim. Patent- lausnirnar eru allt frá því að dæla kviðpokaseiðum í ár og upp í að loka þeim alveg og friða í nokkrar ár til að ná upp hrygningarstofni. Ég held að mikilvægara sé að skýra myndina af því hvað er að gerast í náttúrunni. Við þurfum að fá höfuðstól endur- heimtan. Er sjórinn að skila minna til baka eða eru færri seiði að fara til hafs? Hvað veiðist af hverri göngu? Laxinn er að heyja ansi harða lífs- baráttu. Við höfum horft upp á það sem við teljum góða árganga göngu- seiða ganga út í hagstætt sjávarhita- stig, en svo skilar fiskur sér illa heim. Eitthvað í mynstrinu hefur breyst. Ef við lítum til áranna milli 1970 og 1980 þá veiddust 20.000 smálaxar og 20.000 stórlaxar. Í fyrra veiddust hins vegar 20.000 smálaxar en aðeins 4.000 stórlaxar og þessar tölur hljóta að segja eitthvað. Menn hafa velt fyrir sér að aukaár í sjó höggvi stór skörð í laxatorfurnar, en við erum að tala um fisk sem er þá orðinn 50–60 sentímetra langur og erfitt að sjá að einhverjir afræningj- ar geti verið stórtækir. Ég held hins vegar að það sé innbyggt í seiðin hvað þau verði lengi í sjó strax og þau ganga úr ánum. Kynjahlutfall laxa hefur verið rannsakað í Víði- dalsá og Laxá í Aðaldal. Í þeim eru 65% stórlaxa hrygnur og 25% smá- laxa hrygnur. Þetta hlutfall breytist ekki þótt stórlöxum fækki en smá- laxar standi í stað. Þegar síðan stór- lax þverr á þennan hátt hlýtur það að koma harðast niður á norðlensku ánum sem hafa verið með jafnt hlut- fall stór- og smálaxa. Breyttar forsendur talna Hér á undan var þess getið að víða í laxveiðiánum væru forsendur veiði- talna breyttar og bæri að skoða sumarútkomuna í ljósi þess. Vaxandi fjöldi áa þar sem fluga er annað- hvort eina leyfilega agnið eða að stærstum hluta er hluti af skýring- unni. Veiðiminnkun í Norðurá virð- ist t.d. mega rekja til þess að svo- kölluð maðkaholl voru ekki í ánni síðsumars. Veiðiminnkunin milli ára nemur um það bil það sem tvö fyrstu maðkahollin hafa verið að veiða síð- ustu sumrin. Í stað maðkaholla var veitt til vertíðarloka með flugu og að auki við slök þurrkaskilyrði. Í Kjarrá var aðeins fluguveiði og má búast við að heildarveiði í Þverá/ Kjarrá hefði verið eitthvað yfir veiðitölu síðasta sumars ef mað- kveiðihollin hefðu verið á ferð síð- sumars eins og áður. Miðfjarðará, sem var mjög slök í sumar hefði ugg- laust verið með mun hærri tölu hefði verið veitt á maðk, en maðkahollin þar nyrðra hafa verið sérstaklega dugleg síðustu sumur og veitt jafn- vel á þriðja hundrað laxa á þremur dögum í vatns- og fiskleysi. Segja má að með því að takmarka eða banna maðkinn í vaxandi fjölda áa sé verið að draga úr sókn og álagi. Tals- vert er um dæmi af þeim toga sem hér hafa verið nefnd og þeim mun ef- laust fjölga ef eitthvað er næstu sumrin, enda er það nú tilkynnt á hverjum árbakkanum af öðrum að hér eftir verði aðeins leyfð flugu- veiði. Laxveiði á Íslandi enn í öldudal Veiðimenn með væna laxa við Kaðalstaðahyl í Þverá í Borgarfirði. Laxveiðivertíðinni 2001 lýkur nú um helgina, en þá verður Rangánum báðum og Breiðdalsá lokað. Lax- veiði á Íslandi er enn í öldu- dal en einstakar laxveiðiár voru ýmist betri, svipaðar eða lakari en í fyrra. Þá eru ekki lengur sömu forsendur fyrir sumum aflatölum og áður. Guðmundur Guð- jónsson kannaði landslagið og ræddi meðal annars við Guðna Guðbergsson fiski- fræðing. Sumar ár, eins og t.d. Blanda, hafa verið á uppleið í veiði. Laxinn er að heyja ansi harða lífsbar- áttu. Við höfum horft upp á það sem við teljum góða árganga gönguseiða ganga út í hagstætt sjáv- arhitastig, en svo skilar fiskur sér illa heim. Eitthvað í mynstrinu hefur breyst.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.