Morgunblaðið - 30.09.2001, Side 52
52 SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1250 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
www.sambioin.is
kvikmyndir.com
kvikmyndir.is
Þegar þú veist lykilorðið,
geturðu gert allt!
Sýnd kl. 8 og 10.10. B i. 16. Vit 251
strik.is
strik.is
Mögnuð stuðmynd
í nánast alla staði!
kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Mán kl. 6.
Ísl. tal. Vit 258.
Sýnd kl. 2 og 8. Mán kl 8.
Enskt. tal. Vit 265.
Sýnd kl. 10. B.i. 12. Vit 256
Sýnd kl. 4 og 8. Mán kl. 8. B. i. 12. Vit 270
Steven Spielberg leikstyrir hér Haley Joel Osment (Sixth Sense,
Pay it Forward) og Jude Law (Enemy at the Gates) í einni stór-
kostlegustu sögu og sjónarspili sem sést hefur á hvíta tjaldinu.
Í leikstjórn
Steven Spielberg
Radíó X
HK DV
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
Að falla inní hópinn getur
reynst dýrkeypt.
Naglbítandi og „sexí“ sálrænn tryllir í anda
„Cruel Intentions“.
FRUMSÝNING
FRUMSÝNING
Litríkur leikhópur gerir myndina að kostulegri skemmtun.
Með Bette Midler (What Women Want), Nathan Lane (The Birdcage), Stockhard
Channing (West Wing þættirnir á RÚV), David Hyde Pierce (Frasier þættirnir),
John Cleese (A Fish Called Wanda) og Amanda Peet (The Whole Nine Yards).
Leikstjóri: Andrew Bergman (The Freshman, Honeymoon in Vegas).
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Mán kl. 6, 8 og 10. B. i. 12. Vit 275
Hæfileikar
eru ekki
allt.
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
Mán kl. 5.50, 8 og 10.10. B. i. 16. Vit 274
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
Mán kl. 6. Ísl tal. Vit 245
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Sýnd kl. 2 og 4. Mán kl. 6.
Sýnd kl. 2, 5.15, 8 og 10. Mán kl. 5.15, 8 og 10.B. i. 12 ára.
Himnasending i i
Frá leikstjórum
American Pie.
Líf og dauði hef-
ur sínar góðu og
slæmu hliðar.
Með „fyndnasta
manni“
í Ameríku, Chris
Rock (Lethal Weap-
on 4, Dogma), Mark
Addy (The Full Monty),
Eugene Levy (American
Pie), Regina King (Jerry
Maguire, Enemy of the
State) og Chazz Palmenteri
(Analyze This).
Sýnd kl. 8.
Kvikmyndir.com
Hugleikur
DV
strik.is
Stærsta mynd ársins yfir 50.000 áhorfendur
Steven Spielberg leikstyrir
hér Haley Joel Osment
(Sixth Sense, Pay it
Forward) og Jude Law
(Enemy at the Gates) í
einni stórkostlegustu sögu
og sjónarspili sem sést
hefur á hvíta tjaldinu.
Í leikstjórn
Steven Spielberg
Hagatorgi www.haskolabio.is sími 530 1919
Radíó X
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
HK DV
Sýnd mánudag kl. 10.30.
Litríkur leikhópur gerir myndina að kostulegri skemmtun.
Með Bette Midler (What Women Want), Nathan Lane (The
Birdcage), Stockhard Channing (West Wing þættirnir á RÚV), David
Hyde Pierce (Frasier þættirnir), John Cleese (A Fish Called Wanda)
og Amanda Peet (The Whole Nine Yards).
Leikstjóri: Andrew Bergman (The Freshman, Honeymoon in Vegas).
Hæfileikar
eru ekki
allt.
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Mán kl. 8 og 10.
Sýnd kl.2, 4 og 6. Mán kl. 6. Ísl tal
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Mán kl. 6, 8 og 10.
KRISTINN hefur búið á Manhatt-
an í fimmtán ár og kynnst lífinu
þar í sínum fjölbreytilegustu
myndum.
„Borgin er orðin svolítið eins og
einhver suðurríkjabær með öllum
þessum fánum,“ byrjar Kristinn,
„en hátturinn er svona hér, þeim
finnst þetta sjálfsagt.
Daginn eftir að ég kom hingað,
árið 1986, tók ég neðanjarðarlest
án þess að kunna nokkuð á kerfið
og lenti inni í World Trade Center.
Ég leit upp og dáðist að allri þess-
ari symmetríu. Hvernig þeir náðu
upp eins og augað eygði. Þeir urðu
að þessu tákni því þeir voru tveir –
ég efast um að einhver hefði ráðist
á einn turn.“
Hluti af spænsku
gamanprógrammi
En hvað varstu að gera þegar
árásirnar áttu sér stað?
„Ég var með sendibílstjóra fyr-
irtækisins sem ég vinn hjá að
koma úr sendiferð á 29. stræti.
Þetta var fullkominn dagur eins og
þeir segja hér; ekki ský á himni.
Við vorum á leið upp eftir 8. breið-
götu og samstarfsmaðurinn var að
hlýða á grófan morgunþátt á
spænsku. Skyndilega sagði hann
við mig: „Ég held það sé eitthvað
að gerast í World Trade Center.“
Og þegar við litum við sáum við
þessa reykjarbólstra sem voru
eins og eldgos. Ég var farinn að
halda að þetta væri bara hluti af
spænska gamanprógramminu þeg-
ar sagt var að önnur flugvél hefði
flogið í hinn turninn. Svo komu all-
ar þessar sírenur, lögreglu- og
slökkvibílar með rauðum ljósum;
þetta var mikið sjónarspil. Þegar
ég horfði á þéttmannaða slökkvi-
bílana aka hjá tók ég eftir því hvað
slökkviliðsmennirnir voru spenntir
á svipinn. Rúmlega 300 þeirra fór-
ust …
Við hættum okkur ekki út úr
bílnum og héldum síðan uppeftir í
vinnuna.
Þegar turnarnir voru hrundir
fórum við bílstjórinn aftur niður-
eftir, því hann þurfti að sækja
konuna sína. Það var ekki auðvelt
að leita að einni manneskju þar því
ástandið minnti á Innrásina frá
Mars. Allir starfsmenn þarna nið-
urfrá voru að ganga eða hlaupa
heim til sín. Ég held ég hafi aldrei
séð meiri manngrúa. Þetta var
eins og þrisvar sinnum Times
Square á gamlárskvöld.
Menn voru dolfallnir, sumir
stjarfir, og grátandi náttúrlega.
Fréttir bárust fljótt, hvar sem
maður fór: Annar turninn er far-
inn! Svo var sagt: Hinn er farinn!
Og eftir alla vinnuna við að koma
þeim upp, sögðu menn. Mér er
sagt að um fimmtíu verkamenn
hafi farist við byggingu þeirra.“
Engin New York
eftir tíu ár?
Þegar Kristinn gekk um borgina
næsta dag segir hann að stemmn-
ingin hafi verið rólegri en á þakk-
argjörðardag. Allar götur auðar og
ekki hræða á ferli. „„Þetta er eins
og laugardagur án timburmanna,“
sagði kona sem ég mætti. Þennan
dag fann ég reykjarlykt.“
Kristinn lítur framtíð New
York-borgar ekkert sérlega björt-
um augum og sér fyrir sér endalok
hennar samfara nýrri heims-
kreppu.
„Ég hef haft á tilfinningunni,
allt frá fyrsta tilræðinu við
turnana, 1993, að eitthvað þessu
líkt myndi gerast. Það er auðvelt
að segja það nú. Þá þekkti ég fólk
sem gekk grátandi niður úr turn-
unum og grét.
Núna held ég að það gæti verið
að New York eyddist á næstu ár-
um. Ef þessir menn hefðu haft
kjarnorkuvopn hefðu þeir notað
þau. Það má hugsa sér að það
verði engin New York eftir tíu ár.“
Er það ekki óþarfa svartsýni?
„Ég veit það ekki – tala menn
ekki svona um heimsendi?
Þegar þú sérð þessa tvo turna,
þar sem vinna 50.000 manns,
hrynja niður því tvær flugvélar
fóru af fyrirhugaðri leið geturðu
ímyndað þér hvað menn með
kjarnavopn gætu gert. Þetta
kunna að virðast órar en hefði ein-
hver spáð því sem gerðist núna
hefði það líka verið sagt órar. CIA
datt aldrei í hug að þetta gæti
gerst.“
Hlýrra til
borgarinnar en áður
– Er þá ekki kominn tími til fyr-
ir þig að yfirgefa þessa borg?
„Tilfinningar mínar til borgar-
innar hafa frekar hitnað en hitt.
Þær voru farnar að kólna svolítið
áður en þetta gerðist. Nú vill mað-
ur sjá hver næsti leikur verður.
Líklega verður stríð en enginn
veit hvort náunginn næst manni er
hryðjuverkamaður eða ekki. Við
sjáum að þeir eru með auðugt
ímyndunarafl og vestræn mannslíf
eru í þeirra augum aumari en
hundslíf. Þeir hafa örugglega ekki
haft efasemdir – segja að þetta sé
samkvæmt trúnni. Samkvæmt
Kóraninum njóti þeir sælu á himni
með sjötíu dökkeygum hreinum
meyjum.“
Svo komu
allar þessar
sírenur
Morgunblaðið/Einar Falur
Kristinn Jón Guðmundsson hefur búið í New York síðustu fimmtán árin.
Hér gengur hann eftir Times Square, þar sem stórir bandarískir fánar
hafa verið settir upp.
Einhver kunnasti New York-búi af íslensku
bergi brotinn er Kristinn Jón Guðmunds-
son. Eins og Stefán Jón Hafstein sagði
okkur um árið hefur Kristinn búið ólög-
lega í Manhattan um árabil og tekið
ástfóstri við eyjuna. Einari Fali Ingólfssyni
lék því forvitni á að vita hvernig hann upp-
lifði árásirnar voveiflegu.
Ég tel að þá eigi að
byggja jafnstóra
turna, stærri, eða alls
ekki. Ekki sextíu hæð-
ir, það væri meðal-
mennska og ekki í
anda New York.
Við sjáum að þeir eru
með auðugt ímynd-
unarafl og vestræn
mannslíf eru í þeirra
augum aumari en
hundslíf.