Vísir - 22.10.1979, Síða 5
VÍSIR
Mánudagr 22. október 1979
Umsjón:
Guömundur
Pétursson
PNnsessan
og svínin
Á trlandi og meöal irskættaös fólks I Bandarikjunum er mikil
gremja i garö Margrétar prinsessu Breta, sem sögö er hafa talaö
um ,,irsk svin” I ræöu, sem hún flutti á dögunum I Chicago. Hefur
veriö efnt til mótmælaaögeröa, þar sem hún hefur siöan komiö
fram, og meöal mótmælendanna hafa veriö svin, eins og sést á
myndinni hér fyrir ofan. — Sjálf heldur prinsessan þvi fram, aö
rangt hafi veriö eftir henni haft.
STEFNUMÚT VIÐ GASKLEFANN
Jesse Bishop, moröinginn
dauöadæmdi, sem hefur marg-
neitaö að sækja um mildun
refsingar á i dag stefnumót viö
gasklefann i Nevada-riki. Siöast i
gær neituðu yfirvöld náöunar-
beiðni áhugamannasamtaka,
sem berjast fyrir þvi, aö dauöa-
refsingin sé afnumin.
Bishop haföi, þegar slðast frétt-
ist I morgun, neytt sinnar siöustu
máltiöar, og tekiö símann úr
sambandi, svo aö hann yröi ekki
ónáöaður frekar af þeim sem
vilja honum vel og telja sig geta
fengiö aftökunni frestaö, ef hann
aðeins vilji það sjálfur.
Moshe Dayan
sagöi af sér
Begin forsætisráöherra hefur
lýst þvi yfir, aö stjórn hans muni
ekki endurskoba stefnu slna I
málefnum Palestlnuaraba: „Viö
höfum verið á réttri braut og.
höldum okkui* viö grundvallar-
viðhorf okkar”.
Ekki hefur enn verið boðaö
hver taka muni viö af Dayan.
Moshe Dayan, utanrlkis-
ráöherra Israels, sagði af sér em-
bætti um helgina I mótmælaskyni
við stefnu israelsku stjórnarinnar
varðandi sjálfstjórn Palestlnu-
araba á hernumdu svæbunum.
Afsögn hans kom mjög á óvart,
þótt afstaða hans til sjálfs-
stjórnarmála Palestlnuaraba
væri öllum kunn. Hann haföi eng-
an þátt tekið I samningaviðræð-
um landa sinna viö Egyptaland
og Bandaríkin vegna þess aö
hann var ósammála meðráðherr-
um sinum, sem tregir eru til þess
að veita Ibúum hernumdu
svæðanna aukiö sjálfstæði og
heimastjórn.
Millisvæöamótinu lokiö
Petrosian tryggði sér rétt til
þátttöku I áskorendaeinvígjunum
með þvi aö sigra Ivkov frá Júgó-
slaviu í siðustu umferðinni.
Timmanfarnaöistekki eins vel,
þótt hann hefði peð yfir á móti
Garciafrá Kúbu, og varð að láta
sérnægjajafntefliog 11 vinninga.
Petrosian, Portisch og Hubner
enduðu allir jafnir með 11 1/2
vinning hver. Þeir munu ásamt
Spassky, Korchnoi, Tal, Poluga-
yevsky og annað hvort Adorjan
eða Ribli (sem heyja einvlgi
innbyrðis um réttinn) gllma um
réttinn til þess að skora heims-
meistarann Karpov á hólm árið
1981.
Af keppendunum I RIo þótti
Portisch tefla best, en Petrosian
var sá eini þrlmenninganna, sem
slapp taplaus.
Athygli vakti Jaime Sunye frá
Brasiliu, sem fékk tiltillaus að
vera með I millisvæðamótinu,
vegna þess að það var haldið i
heimalandi hans. Hann endaði
jafn Ivkov I 5.-6. sæti með 9 1/2
vinning.
Kosningar
í Sviss
Úrslit kosninganna I Sviss virð-
ast leiða til þess að sama sam-
steypustjórn miðflokkanna, sem
setið hefur verði áfram næsta
fjögurra ára kjörtlmabil.
Úrslitin liggja ekki endanlega
fyrir, en af talningunni séð virtust
kjósendur hafa greitt sömu stjórn
atkvæði sin. Þó meö tregðu.
Kjörsókn var 49%, en var 52% I
siðustu kosningum 1975.
Um 30 stjórnmálaflokkar buðu
fram alls 1.855 frambjóðendur til
þeirra 200 þingsæta, sem kosið
var um I neðri deildinni.
USA sigraöi í bridge
Bandarikin unnu heims-
meistaramótið I sveitakeppni I
bridge, en með aöeins 5 punkta
mun yfir Itallu, og er það minnsti
munur, sem dugaö hefur.
Giorgio Belladonna, sem hafði
fyrir mótið tilkynnt að hann ætl-
aði að draga sig I hlé, að þvl
loknu, brast I grát, þegar I ljós
kom, að frábær frammistaöa
hans ogf élaga hans dugði ekki til.
The Times” kemur út
íí
Blaðstjórn „The Times” hefur
nú byrjað undirbúning að þvl, að
elsta dagblað Breta hefji á ný
göngu slna eftir 11 mánaða hlé.
Tókst loks I gær að ná sam-
komulagi við stéttarfélög starfs-
manna, og hefur verið boðað að
blöðin komi út fyrir lok nóvem-
ber.
Deilan stóð um nýja tækni-
væðingu, fækkun I mannahaldi og
leiðir til þess að semja við
stéttarfélögin, og er hún talin
hafa kostað eigendurna 30
milljónir sterlingspunda.
Þegar lokaspretturinn hófst,
hafði bandariska sveitin 66
punkta forskot, og aðeins
fimmtán spil eftir. En þá kom
kafli, þar sem ttalarnir mokuðu
inn stigunum meðan Bandarikja-
mennirnir fœgu ekkert, og mun-
aði einungis elleffu, þegar örfá
spil voru eftir.
Brachman, milljónamæringur-
inn frá Texas, sem keypti nokkra
af fremstu bridgemönnum USA
til þess að gera sig að heims-
meistara, hefur leyst upp sveit-
ina.,Núsegisthannhafa áhuga á
þvl "að verða betri bridgespilari,
og hefur myndaö sveit áhuga-
mannameö einni undantekningu,
og það er Paul Soloway, sem er
atvinnumaður og var með honum
I landsliöinu. „Ahugamennirnir”
eru þó all-margfrægir bridge-
menn (Lazard, Levitt, Zeck-
hauser).
6 andófs-
menn dregn-
ir fyrir rétt
Leikritaskáldið, Vaclav Havel,
og fimm aðrir andófsmennTékka
koma fyrir rétt I Prag I dag. Eru
það einhver stærstu réttarhöld
þeirrar tegundar, sem verið hafa
I A-Evrópu frá því að
Helsinki-sáttmálinn með mann-
réttindaákvæðum sínum var
undirritaður 1975.
Ef sakborningar verða fundnir
sekir, eiga þeir yfir höfði sér allt
að 10 ára dóm fyrir andróðurs-
starfsemi. Meðal þeirra eru 2
konur og 2 talsmenn mannrétt-
indasamtakanna „Sáttmáli 77”.
öll heyra þau til samtökum,
sem unniö hafa að þvl að vekja
athygli á ranglátum dómum og
valdníðslu yfirvalda I Tékkó-
slóvaklu.
Sexmenningarnir voru hand-
teknir ásamt fjórum öðrum félög-
um sínum I matlok I vor, og hafa
setiö I fangelsi síðan.
A Vesturlöndum er fylgst af at-
hygli með máli andófsmannanna,
og hefur verið vakin upp hörð
gagnrýni á afstöðu tékknesku
stjórnarinnar til stuðningsmana
mannréttinda. Meðal þeirra, sem
látið hafa I ljós áhyggjur si'nar af
málaferlunum, eru Jimmy
Carter Bandarlkjaforseti, og
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands.
Stundið
Voit
/'TIGÞs
Stiga borðtennis-
vörur
í miklu úrvali
Voit körfuboltar
i úrvali, verð
trá kr. 6.645