Vísir - 26.11.1979, Blaðsíða 1

Vísir - 26.11.1979, Blaðsíða 1
i Mánudagur 26. nóvember 1979/ 262. tbl. 69. árg. Þegar enska knattspyrnufélag- iö Nottingham Forest keypti fyrr á þessu ári Trevor Francis frá Birmingham City, og borgaöi fyrir hann liölega eina milljón | sterlingspund,sögöu menn aö eng- inn knattspyrnumaöur á Eng- | landi væri milljón punda viröi. Menn viöurkenndu þó, aö ef B nokkur væri þaö i hópi enskra ■ knattspyrnumanna, væri þaö fl „The Wonderboy” Trevor Franc- ■ is. Hann hefur frá þvl að hann B kom fyrst fram á sjónarsviöið i knattspyrnunni, þótt bera af öör- um á Bretlandseyjum, þarf þó nokkuö til þess þar i landi, þar sem vagga knattspyrnuíþróttar- innar hefur alla tiö veriö. Þvi er haldið fram aö aðeins einn enskur knattspyrnumaður njóti eins mikilla vinsælda — eöa meiri — en Trevor Francis. Er þaö Kevin Keegan, sem nú leikur meö HamburgSV 1 Vestur Þýska- landi. Báðir þessir leikmenn njóta einnig óhemju vinsælda hér á landi, enda hér mikill og sttír •m hópur sem fylgist meö öllu er ger- | ist I knattspyrnunni á Englandi. Flestir vita mun meir um Keegan I en Francis, og þvi datt okkur I ■ hug, að koma hér meö smá úr- I drátt Ur knattspyrnusögu þessa ■ fyrsta milljón punda manns i ■ ensku knattspyrnunni. 1954: — Þann 19. april fæöist drengur á sjúkrahúsi i Plymouth I Suður-Englandi. Nokkrum dög- um siöar er hann skýröur Trevor | Francis. 1970: — Leikur sinn fyrsta leik meö ■ atvinnumannaliði — Birmingham City. Hann er þá aöeins 16 ára gamall. 1971: — Skorar öllfjögur mörk Birm- ■ ingham i leik gegn Bolton i 2. ■ deild á St Andrews leikvellinum. Hann er enn unglingur hjá félag- inu og haföi ekki skrifaö undir neinn samning. 1 13 leikjum frá desember 1970 til mars 1971, skor- ar hann 14 mörk i 2. deild. Everton biöur 200 þúsund ster- lingspund fyrir hann, en Birming- ham segir nei. 1972: — TrevorFrancis skrifar undir fjögra ára samning sem atvinnu- maöur hjá Birmingham. Er val- inn f enska unglingalandsliðið sem sigrar i HM-keppni unglinga á Spáni. Manchester City býöur 350 þúsund sterlingspund fyrir hann, en Birmingham segir nei 1973: — Hann er eitt mesta efni sem hér hefur komið fram segja knattspyrnusérfræöingar á Bret- landi. Francis leikur sinn fyrsta leik I landsliöi Englands undir 21 árs. Leikurinn er við Ptílland og fer fram Ifæöingaborg hans, Ply- mouth, og hann gerir stormandi lukku i leiknum. 1974: — Þetta er mjög erfitt ár hjá Francis. Hann á viö meiösli aö stríöa í fyrsta sinn, og missir úr marga leiki. Bjartasta minning hans frá árinu er aö hann giftir sig og fer aö búa. 1975: 1977: — Birmingham kemst i undan- úrslit I bikarkeppninni og er þaö mest aö þakka Francis, sem skorar mikiö. I undanúrslitunum er Birmingham slegiö út af Ful- ham eftir framlengingar og auka- leik. Trevor Francis óskar I fyrsta sinn eftir því aö vera seldur frá Birmingham, en svariö er nei. 1976: — Francis óskar enn eftir aö vera seldur, en forráöamenn Birmingham vilja ekki láta hann af hendi. Hann fær háar fjársektir hjá klúbbnum fyrir aö „segja of mikiö”í viötölum viö blaöamenn. Hann svarar fyrir sig meö því aö tilkynna veikindi rétt fyrir leiki hvaö eftir annaö, og kemst upp meö þaö átölulaust. — Leikur sinn fyrsta leik i A-landsliöi Englands. Þykir ekki standa sig neitt sérlega vel enda tapar England leiknum. Mótherj- arnir eru Hollendingar sem sigra 2:0. I deildinni þykir Francis aftur á móti standa sig mjög vel, og mörg félög vilja fá hann. Svariö er þaö sama hjá Birming- ham. Trevor Francis er ekki til sölu. 1978: — Kröfur Francis um aö fá aö fara frá Birmingham gerast enn háværari. Hann samþykkir loks aö skrifa undir annan samning viö félagiö meö þvi skilyröi aö hann fái aö leika knattspyrnu I Bandarikjunum um sumariö. Þar gerir hann þaö gott, en Birming- ham fellur niöur i 2. deild. MILLJON PUNDA MAÐURINNH Trevor Francis Það eru trúlega fáir enskir knattspyrnumenn, sem eiga eins stóran aðdáendahóp hér á islandi og þessir tveir...Kevin Keegan og Trevor Francis. 1979: — Loksins samþykkir Birming- ham aö Francis megi fara, og kapphlaupiö um hann hefst á miIU félaga i Englandi og viöar Þann 9. febrúar skrifar hann undir samning viö Nottingham Forest. Upphæöin er 1.180.000 sterlingspund — metupphæð fyrir knattspyrnumann á Bretlands- eyjum. Hann skorar nokkur mikilvæg mörk fyrir Forest — loks þegar hann kemst I aðalliðiö —og þar á m eöal er sigurmarkiö I Evrópukeppni deildarmeistara gegn Malmö FF frá Svíþjóö.-klp - t

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.