Vísir - 26.11.1979, Blaðsíða 19
20 cm undir millikassa, óhlaöinn bfll.
Lægstu punktar eru I lægra iagi,
metrar undir kviðinn. En það er á
tveimur stöðum, þar sem menn
hefðu getaö óskað sér, aö hærra
væri undir Eagle: milli framhjól-
anna, þótt það komi ekki sérstak-
lega að sök, og i öðru lagi undir
millikassann og sidrifiö (Quadra-
trac), sem er framarlega undir
kviðnum. Þar er hæð frá jörðu að-
eins 20 sentimetrar, og minnkar
niður í 15-17 sentimetra, þegar
bfllinn er hlaðinn. Sem sagt 5-10
sentimetrum lægra en á flestum
jeppum. Sem betur fer, er hér um
litinn flöt að ræða, þannig, að með
lagni bilstjórans má sneiða hjá
þessum ókosti i flestum tiifellum.
En bilstjóri, sem ekki hefur til-
finningu fyrir undirvagninum,
gæti sest óþyrmilega á milli-
kassa-hlifðarpönnuna, ef hann
ætlaöi aö leika jeppakúnstir á
ósléttu landi.
Sem áður sagði, er hlifðar-
panna undir sidrifinu, og allur er
undirvagn Eagle að sjá eins vel
hannaður og ætla má að framleið-
anda með reynslu aöstandanda
jeppans gamla og góöa.
Að framan tekur sterklegur biti
milli framhjólanna við hnjaski og
höggum. Fjöðrunin er sjálfstæð á
hvoru framhjóli en ekki heill
öxull: engu fórnað af fólksbilseig-
inleikum þar fremur en var á sin-
um tima á Jeep Wagoneer fyrstu
árin. Siðan þá hafa orðið miklar
framfarir I hönnun og endingu
framhjóladrifs með sjálfstæðri
fjöðrun, þannig, að framdrif
Eagle ætti þess vegna að
vera pottþétt. Eagle er ekki búinn
millikassa fyrir hátt og lágt drif,
eins og jeppar, heldur fæst hann
aöeins með sjálfskiptingu, sem
gerir það að verkum, að ekki
finnst eins mikið fyrir vöntun á
lágum gir og á beinskiptum bll.
Vegna þyngdar og fyrirferðar,
sem hvort tveggja er illa séð á
tima orkukreppu, er ekki svo
mikils að sakna, þótt ekki sé lágt
dirf. tlr þvi aö fólksbileigeinleik-
ar voru á annað borð látnir sitja i
fyrirrúmi, verður að telja sjálf-
skiptinguna fullnægjandi lausn,
auk þess, sem millikassi fyrir
hátt og lágt dirf hefði hækkað
verð bflsins og aukið á viðhalds-
kostnað og eyðslu.
Concord •+- framdrif
1 upphafi þessarar greinar
sagði, að hvergi hefði verið slegið
af kröfunni um 100% fólksbil I
hönnum Eagle. Þó sést, að þetta
hefur verið erfitt I nokkrum atriö-
um. Eagle er ekkert annað en
Concord, sem áður hét Hornet,
að viðbættu framdrifi.
Til þess að gæða bilinn betri
torfærueiginleikum, var hann
hækkaður, og sett á hann stærri
hjól með 15 tommu felgu. Til þess
að hjólin rækjust ekki utan I
brettin, þurfti að breyta þeim og
vikka, og auk þess að stytta
fjöðrunarslagið að framan. Grun
hef ég um, að hún hafi verið stytt
einnig til þess að minnka álagið á
hjöruliðunum á framdriföxlun-
um, sem eru mjög stuttir. Fram-
leiðandinn segir, að hún hafi einn-
ig verið stytt til þess að bfllinn
fjaðri ekki eins langt niður, t.d.
þegar hann er hlaðinn og verði of
lágur frá jörðu. Fjöðrunin er
stinnari að framan en á venjuleg-
um Concord-fólksbil, en þó er hún
það mjúk, að fyrir minn smekk
má hún ekki mýkri vera. Hún
virtist lemja saman á stuöpúöum
istörum, hvössum holum, en ekki
gafst tækifæri til þess aö reyna
þetta nógu Itarlega. Væru
gúmmipúðarnir, sem taka við
uppslaginu i framfjörðuninni eins
stórir og á Range Rover, kæmi
þetta ekki eins að sök, en hugsan-
lega er framfjöðrunin takmörkuð
að þessu leyti á Eagle. Hægt er að
fá bilinn með hæðarjafnara, sem
er innbyggður I höggdeyfana.
/,Normal" á vegi
Eagle fer ágætlega á vegi, og
ekki er nokkur leið að finna neina
þá hegðun eða hreyfingu, sem
bendir til þess, að hér sé um jeppa
I dulargervi að ræða. Þótt ekki sé
hann eins rásfastur og beztu
Evrópubílar með tannstangar-
stýri, er hann þó mun auðveldari i
akstri en aðrir bandariskir fjór-
hjóladrifsbflar.
Vegna hálku, reyndist ekki unnt
að fullreyna, hvort hann hoppaöi
til að aftan I þvottabrettum eða
holum á beygjum, og veröur að
reyna slika eiginleika siðar við
betra tækifæri.
Af skrifum erlendra blaða að
ráða og akstri á stuttum, óslétt-
um ofaniburðs-kafla má þó ráða,
að billinn standist þær megin-
kröfur, sem gerðar eru til fólks-
bila af þessari stærð. Hjól-
barðarnir taka fremur mið af
þjóövegaakstri en akstri utan
vega. Mynstrið er það fint, að það
syngur ekkert i þeim, en engu að
siður skortir litið upp á fullkomna
jeppa-spyrnu, nema þá i lausum
sandi eða mikilli drullu.
Framsætin eru ágæt, en þó
mætti hliðarstuðningur vera
betri. Það er gott rými fyrir fjóra
i þessum bfl, en fimmti maður,
sem þyrfti að sitja i miöju aftur-
sæti, ætti ekki sjö daga sæla á
langferð, þvi að stokkurinn fyrir
drifskaftið er haröur að sitja á .
Aftursætissetan er of stutt. Eagle
er dæmigerður ameriskur bfll að
innanveröu og innréttingin þvi
nokkurt smekksatriði. Billinn,
sem reyndur var, var skutbill, en
einnig er hægt að fá Eagle i ýms-
um geröum, bæði fjögurra og
tveggja dyra. Varahjól og benzin-
geymir taka mikið rými undir
farangurssýminu aftast, og þvi er
lágt undir loft og heildarrými,
þegar aftursætið er fellt fram
„aðeins” um 1780 litrar eða held-
ur minna en á skutbflum af
svipaöri stærð, eins og til dæmis
Volvo, Ford Fairmont og Peugeot
504 station.
Aðeins er hægt að fá Eagle með
einni vél, 258 cubika, sex strokka,
114 hestafla vél, sem gefur hinum
1500 kilóa þunga bfl 140 kilómetra
hámarkshraða og spyrnu upp i
100 kilómetra hraða á 18 sekúnd-
um. Þótt þetta séu heldur hag-
stæöaritölur en t.d. á Lada Sport,
tekur maður ekki andköf yfir
hressileika Eagle. En þetta er
svosem alveg nóg, þvi aö bfllinn
er þægilegur á góöum hraöa, og
það eru ekki allir I kvartmilu-
klúbbnum.
Hægt er aö fá Eagle meö
dráttarbúnaði fyrir allt aö 1600
kflóa dráttarþunga, einnig með
hlifðarpönnu að framan (hlifðar
pannan undir milli kassa er
standard). Eyöslan er, ef að lik-
um lætur, þetta 12-18 litrar á
hundraðið eftir akstri.
Bfllinn leggur mjög vel á i
beygjum og er ágætlega lipur
með vökvastýrinu, sem er stand-
ard.
Timamótabíll á óvissum
tímum
Þótt á götum Reykjavlkur sé
bfll af gerðinni Renault 12 með
drifið á öllum hjólum, og þaö
megi segja, að hann sé fyrsti
fólksbillinn af meðalstærð, sem
gæddur sé fullkomnum fólksbils-
eiginleikum, að viðbættu fjór-
hjóladrifi, er Eagle að mörgu
leýti timamótabill á íslandi.
Renaultinn fyrrnefndi er i hópi
lágra fólksbila, þvi að hann er að
engu leyti frábrugðinn venjuleg-
um Renault 12 hvað hjól og undir-
vagna snertir, þótt hann sé meö
drifi á öllum hjólum.
Eagle er hins vegar á stærri
hjólum og hærri frá jöröu en Con-
cordinn, sem hann er soðinn upp
úr, og er I allt öörum verð- og
stærðarflokki en Subaru og Lada
Sport.
Hann er tveimur milljónum
króna ódýrari en Wagoneer og
næstum helmingi ódýrari en
Range Rover.
Offramboö á bflamarkaði verð-
ur sennilega helzti tálmi i mikilli
sölu þessa bils um sinn. Hefði
hann komið á markað fyrir
tveimur árum eða fleiri er ekki
vafi á, að þar hefði orðið um
„dellu” aö ræða, svo margir
heföu áreiöanlega orðið til að
kaupa sér svona bfl. Nú geldur
hann hins vegar þess, að bifreið-
ar I þessum s-tæröarflokki og þar
fyrir ofan eiga i vök að verjast
fyrir sihækkandi benzinverði.
Þetta er réttur bill á réttum staö,
en I augnablikinu kannski ekki á
réttri stundu. En fljótt skipast
veður I lofti, og má vera, að stund
Eagle renni upp, fyrr en varir.
Og fyrr en varir munu keppi-
nautarkoma fram á sjónarsviðið,
þvi að i Eagle er fólgin allt of góð
hugmynd til þess að framleiöend-
ur hans verði látnir einir I friði
um hana.
AMC Eagle: hinn brattasti I brattanum!
19
HÓTEL VARÐDORG AKUREYRI
SÍMI (96)22600
Góö gistiherbergi
Verö frá kr.: 6.500-12.000
Morgunveröur
Kvöldverður
Næg bílastæði
Er í hjarta bæjarins.
’E S
3 T "
VT*
Djóðum andlitsböð með hinumviður-
kenndu Dior og Loncome snyrtivörum
Dömur othugið
Sérstokur ofslóttur of Ojo skipto
ondlitsnuddkúrum
Opið ó
lougordögum
“ '’tyójan s/f G
KOSNINGAGETRAUN
RAUÐA KROSSINS
Gunnar Eyþórsson,
fréttamaður
ÉG SPÁI:
Fjöldi þingmanna '78-79 Spá
Alþýöubandalag 14 n
Alþýðuflokkur 14 Oi
Framsóknarflokkur 12 /3
Sjálfstæöisflokkur 20 Zé>
Aörir flokkar og utanflokka 0 o
Samtals 60 60
Svona einfalt er aðvera með. Klippið þessa
spá út og berið saman við aðrar sem birtast.
ALLIR MEÐ!
RAUÐI KROSS ISLANDS
HJÁLPARSJÓÐUR
Þ. ÞORGRIMSSON & CO
'Armúla 16 sími 38640