Vísir - 26.01.1980, Qupperneq 6
vtsm Laugardagur 26. janúar 1980
,,Þrír
möguleikar
eftir
aörir en
utanþings-
stjórn”
— segir Benedikt Gröndal,
formaöur Alþýöuflokksins,
um stjórnarmyndunar-
tilraunirnar
Alþýöuflokkurinn hefur nú kynnt drög þau að
umræðugrundvelli um stiórnarmyndun sem hann
lagði fyrir hina flokkana í fyrradag. Samkvæmt
þeim byggjast tillögur til úrbóta i efnahagsmálum í
kringum gjaldmiðilsbreytingu er hefði«för með sér
hundraðföldun krónunnar. Með slikri kerfisbreyt-
ingu telur flokkurinn aöhægtværiaðendurvekja trú
manna á verðgildi krónunnar og stuðla að traustari
efnahag en hingað til hefur verið.
Benedikt Gröndal kynnti þessar tillögur fyrir
fréttamönnum i gær. Sagði hann að í þessum tillög-
um væri rætt um nýjar leiðir til að koma hreyfingu
á stjórnarmyndunarviðræðurnar. Engefum honum
orðið:
„Þar sem þrjár tilraunir
höföu veriö geröar til stjórnar-
myndunar á þeim sjö vikum
sem stjórnarkreppan hefur
staöiö, var augljóst að búið var
aö fara yfir vitt svið i þeim um-
ræðum og þvi ekki létt fyrir
okkur aö finna umræöugrund-
völl. Mér fannst þvi aö viö
alþýöuflokksmenn yröum aö
leita að nýjum atriöum til aö
koma hreyfingu á stjórnar-
myndunar viör æður nar.
„Kjarni tillagnanna
byggður á hundraðföldun
krónunnar."
— Hvaöa atriöi eru ný i drög-
um Alþýöuflokksins ?
„1 þessum drögum er þaö
nýtt aö þar er rætt um gjald-
miöilsbreytingu. 1 fyrravor
voru samþykkt lög um
hundraöföldun krónunnar sem
skyldu taka gildi 1. janúar 1980,
envar siðan frestaðum eittár.
Ég hef gert þetta atriöi aö
kjarna sem tillögurnar i efna-
hagsmálum eru byggöar um-
hverfis. Það hafa margar þjóö-
ir fariö þá leið aö gera kerfis-
breytingu i efnahagsmálum
sem byggö er á nýrri mynt.
Siðan meö ýmsum ráöstöfun-
um hefur verið haldiö vörö um
þessa breytingu og þannig
reynt að sporna viö áhrifum
veröbólgunnar.
Þessi kerfisbreyting mundi
eiga sér staö i þremur þáttum :
Aödragandi gjaldmiöils-
breytingarinnar á þessu ári,
nýrri krónu sem tæki gildi frá
og með 1. janúar á næsta ári,
umbætur og framfarir sem
fylgdu i kjölfarið og unniö væri
aö út kjörtimabiliö.”
Engar grunnkaups-
hækkanir á árinu
„1 aödragandanum aö mynt-
breytingunni er átt viö það sem
gera þarf á þessu ári til aö hún
haldi gildi sinu en hrynji ekki
strax niöur. Tilgangurinn er aö
ná veröbólgunni niöur fyrir
30%, stefna aö greiðsluafgangi
á fjárlögum, lækka tekjuskatt á
almennt launafólk um 7 millj-
aröa, grunnkaup haldist
óbreytt og veröbætur hækki
ekki umfram 5% i hvert sinn, á
þriggja mánaöa fresti.
Viö kerfisbreytinguna sjálfa
á nýja krónan aö tákna timamót
i efnahagsmálum og aö horfið
veröur frá þeim veröbólgu-
hugsunarhætti sem einkennt
hefur islenskt þjóölif. Samfara
þessu yröi um aö ræöa marg-
vislegar breytingar i rikisbú-
skap, nýtt skattakerfi, nýtt
lánakerfi meö jákvæöum vöxt-
um og verötryggingu og nýja
landbúnaöarstefnu þar sem
niöurgreiöslustefnan veröi
endurskoöuö og útflutningsbæt-
ur lækkaöar úr 10% i 7% á
þremur árum.
Benedikt Gröndal á blaðamannafundinum þar sem hann kynnti drög sin aö stjórnarmyndunarvið-
ræðum: „Hundraðföldun krónunnar er sá kjarni sem tillögurnar i efnahagsmálum eru byggðar um-
hverfis.” Vísismynd BG.
1 framhaldi af kerfisbreyt-
ingunni yrði svo unnið að um-
bótum og framförum með þvi
að atvinnulifi landsmanna sé
skapaður traustari grundvöll-
ur en hingað til.
Það er trú okkar alþýöu-
flokksmanna aö slik kerfis-
í íréttaljósinu
Haildór
Reynisson
blaöamaður
breyting og traustur gjald-
miðill sé undirstaðan undir
bættum kjörum fólks.”
,/Tveir flokkar eru þegar
búnir að hafna tillögun-
um."
— Eru þessar tillögur
byggðar á þeim hugmyndum
sem þegar voru fram komnar i
fyrri stjórnarviðræðum?
„í þessum tillögum eru tvær
meginbreytingar : i fyrsta lagi
myntbreytingin og i öðru lagi
er rætt um rikisstjórnarmál á
breiöum grunni i staö þess aö
falla allt of mikiö i þann þrönga
jaröveg aö fjalla einungis um
þaö sem gera þarf á næstu vik-
um og mánuöum.
Þaö er þvi alger misskiln-
ingur aö halda aö Alþýöu-
flokkurinn hafi ætlaö sér aö
sjóöa upp úr eldri tillögum eitt-
hvaö meöaltal. Viö sögöumst
aðeins ætla aö hafa hliösjón af
þeim umræöum sem þegar
hafa farið fram. Viöbrögö
hinna flokkanna segja svo til
um þaö hvort hægt sé að halda
stjórnarmyndunarviöræðum á
þessum grundvelli áfram.”
Alþýðubanda lag og
Framsókn þegar búin að
hafna
— Er þaö rétt aö tveir flokk-
anna séu þegar búnir að hafna
þessum tillögum?
„Það er rétt að Alþýðu-
bandalagiö og Framsóknar-
flokkurinn eru þegar búnir að
hafna tillögunum. Lúövik mætti
einn og hafnaöi tillögunum án
þess að hafa lesið þær. Ég vil i
þessu sambandi leggja rika
áherslu á aö ég bauö öllum
flokkunum til viöræðna meö það
i huga aö fjórir flokkar væru i
stjórn, en Lúðvik hafnaöi þeim
möguleika. Þá gekk ég á hann
með stjórn Alþýöuflokks, Al-
þýðubandalags og Sjálfstæðis-
flokks en hann hafnaði af-
dráttarlaust. Þar með finnst
mér Alþýðubandalagiö hafa
dregið sig út úr islenskri póli-
tik nú um stundarsakir.
Framsóknarflokkur inn
hafnaöi þessum drögum okkar
i heild en bauðst sjálfur til að
leggja fram sinn eigin grund-
völl og hann leiddi sjálfur i
s t jór nar my ndar viðr æðum.
Sjálfstæöisflokkurinn er á
fundi i dag, föstudag, og þing-
flokkur Alþýöuflokksins mun
siöan halda fund i fyrramálið
og ræða viöbrögö hinna flokk-
<anna. A eftir mun ég gera for-
setanum grein fyrir umræðun-
um.”
„Óbrúanlegt djúp milli
Alþýðuflokks og Alþýðu-
bandalags."
— Ætlaröu þá aö skila um-
boöinu?
„Ég segi ekkert um þaö fyrr
en ég gef forseta mina skýrslu.
Ég vil s iður aö hann frétti það i
gegnum fjölmiöla.”
— A hverju stranda þessar
viðræður?
„Varðandi þessa tilraun er
það að segja að Alþýöubanda-
lagið tilkynnti okkur munnlega
að fyrri tilraunir til stjórnar-
myndunar heföu leitt i ljós aö
svo mikill ágreiningur væri á
milli þessara flokka i launa- og
atvinnumálum aö óbrúanlegt
djúp væri þar á milli.
Ég skal þó játa aö viö setjum
fram i nokkrum liöum' itrustu
hugmyndir en viö höfum reikn-
að með að i viðræðunum fyndist
eitthvaö meöaltal sem allir
gætu sætt sig viö. Þessar itr-
ustu kröfur settum viö einkum
fram i landbúnaðarmalum og
fjárfestingarmálum og þaö var
engin von til þess að Framsókn
féllist á kröfur eins og settar
voru fram i landbúnaöarmál-
um. En þetta er lika fyrst og
fremst umræöugrundvöllur.”
Þjóðstjórn?
— Hvaöa afstöðu hefuröu til
utanþings s t jór nar ?
„Ég er eins og aörir stjórn-
málamenn ákaflega óhress
meö þann möguleika, en hann
getur oröiö neyðarúrræði. Það
er hins vegar mál forsetans aö
ákveða hvort utanþingsstjórn
verði sett á laggirnar. Þó er á
þaö aö lita aö enn eru eftir þrir
möguleikar á þingræöisstjórn.
1 fyrsta lagi Framsóknarflokk-
ur, Sjálfstæöisflokkur og Al-
þýðubandalag, i ööru lagi
Framsóknarflokkur og Sjálf-
stæðisflokkur og i þriöja lagi
þjóöstjórn.
Hvað siöast nefnda mögu-
leikann snertir gætu málin
horft ööru visi viö þegar allt
annað hefur verið reynt og
þjóöstjórn er siöasti möguleik-
inn á þingræðisstjórn.”
HR
03
GESTSAUGUM
Teiknarl: Krls Jackson
^EINN HLUrUR EG 'VT'Á, ÍSLENZKPiN ER BETRj)
HftTP) VIO EN5KU ER, OROlN AÐ
ERU TU-DREI 0ORIN FRfl.'ó
EINS OG ÞfíU
ERU
ÍTöFUD.